Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 18
° ° 18 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 Vetrarlokahóf ÍBV: Frábærum árangri vetrarins fagnað með stæl Róbert Aron og Ester best - Hallgrímur og Díana Dögg fengu Fréttabikarana Þjálfarar, leikmenn, handknatt- leiksráðsmenn og hópurinn sem starfaði með handbolta karla í vetur hafa lagt áherslu á að Íslandsmeistaratitlinum sé ekki bara þeirra verk. Stór hluti Vestmannaeyinga hafi staðið að baki liðinu og það hafi skilað þessum glæsilega árangri. Það var andinn sem sveif yfir vötnunum á lokahófi hand- boltans í síðustu viku. Hátt í 300 manns mættu í Höllina til að fagna með strákunum og stelpunum líka og úr varð skemmtilegt kvöld þar sem hápunkturinn var verðlauna- afhendingin. Kom fáum á óvart að Róbert Aron Hostert og Ester Óskarsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka ÍBV árið 2014. Frábært handbolta- fólk sem er vel að verðlaunum komin. Það gaf tóninn að skemmtilegu kvöldi þegar Íslandsmeistarar ÍBV gengu í salinn, strákarnir voru hetjurnar, þeir vissu það og það gerði salurinn líka enda fögnuðurinn mikill. Sighvati Jónssyni, sjónvarpsmanni, hefur í mynd sem hann gerði um úrslitaleikinn við Hauka tekist að fanga stemmninguna sem var til staðar strax á Herjólfsbryggjunni um morguninn. Hann fylgdi hópnum fram og til baka og móttökurnar þegar heim var komið munu seint gleymast þeim sem þar voru. Myndin vakti mikla athygli og hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Var hún sýnd í styttri útgáfu á lokahófinu og hefur trúlega verið stutt í tár á hvarmi hjá viðstöddum að fá þetta tækifæri til að endurlifa fimmtudaginn 15. maí 2014. Daginn sem karlalið ÍBV kom heim með Íslandsmeistaratitil- inn í fyrsta skipti. Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksráðs, gerði upp veturinn sem er sá glæsilegasti í sögu handboltans í Vestmanna- eyjum, Íslands- og bikarmeistara- titlar í yngri flokkunum og konurnar urðu í þriðja sæti í deildinni og komust í undanúrslit. Ein stór veisla Þór Í. Vilhjálmsson, formaður ÍBV-héraðssambands, sagði að veturinn hefði verið ein stór veisla í handboltanum sem hefði náð hámarki með Íslandsmeistara- titlinum. Veitti hann sex, Daða Pálssyni fyrrum ráðsmanni, Svavari Vignissyni, þjálfara meistaraflokks kvenna, Sigurði Bragasyni leikmanni og ráðsmanni, Hugrúnu Magnúsdóttur ráðsmanni og handboltamömmu, Arnari Richards- syni ráðsmanni og Sindra Ólafssyni formanni ráðsins silfurmerki ÍBV. „Þetta verður okkur öllum ógleym- anlegt tímabil,“ sagði Þór þegar hann þakkaði sexmenningunum frábært starf í þágu íþrótta í Vestmannaeyjum. Daði Pálsson steig á svið og kallaði upp Sindra formann og Gísla Sveinsson, framkvæmdastjóra Samhenta Kassagerð sem afhenti ráðinu 700 þúsund króna ávísun frá Samhentum kassagerð sem stutt hafa handboltann í vetur og undanfarin ár. „Svo fékk ég fyrirtækin Leó freshfish, Iceland Cargo, Heildverslun Karls Krist- manns, Berg-Huginn, Þórunni Sveinsdóttur VE, Eyjablikk, Godthaab, Löngu, Vélaverkstæðið Þór og útgerðir Frás og Hugins og nokkra sem ekki vildu láta nafns síns getið til að slá í púkk og samtals voru þetta 2 milljónir sem fara til ráðsins,“ sagði Daði. Vey-arnir sem eru gamlir leik- menn, flestir komnir í yfirvigt, hafa stutt dyggilega við bakið á handboltanum í gegnum tíðina. Kallaði talsmaður þeirra, Helgi Bragason þá á svið og var þeim vel fagnað. Þá var komið að verðlaunaafhend- ingu og voru systkinin Sindri og Dröfn Haraldsbörn valin ÍBV-arar meistaraflokkanna en efnilegust voru þau Arna Þyrí Ólafsdóttir og Theodór Sigurbjörnsson. Róbert Aron Hostert og Ester Óskarsdóttir voru valin bestu leikmenn meistara- flokkanna tveggja og eru bæði vel að því komin. Bestu leikmenn í elstu flokkum fengu svo Fréttabikarana en það voru þau Hallgrímur Júlíusson og Díana Dögg Magnúsdóttir. Þeim ber að þakka Íþróttaáhugamenn og íþróttahreyf- ingin í Vestmannaeyjum standa í mikilli þakkarskuld við þjálfarana Arnar Pétursson, sem því miður er að hætta og Gunnar Magnússon. Í viðtali í síðustu Eyjafréttum sögðu Sigurður Bragason og Arnar Richardsson, sem hafa verið handboltanum drjúgir að Arnar hafi komið inn með nýja hugsun í handboltann í Eyjum. Erlingur Richardsson kom inn á réttum tíma og þegar hann ákvað að þjálfa í Austurríki síðasta haust kom Gunnar inn sem réttur maður á réttum tímann fyrir handboltann í Vestmannaeyjum. Frá vinstri: Theodór Sigurbjörnsson, efnilegastur, Gummi stuðnings- maður, Agnar Smári Jónsson, mestu framfarir, Arna Þyrí Ólafsdóttir, efnilegust og Selma Sigurbjörnsdóttir, mestu framfarir. Þessi hlutu silfurmerki ÍBV. Frá vinstri: Þór Ísfeld Vilhjálmsson, formaður ÍBV, Daði Pálsson, Svavar Vignisson, Sigurður Bragason, Hugrún Magnúsdóttir, Arnar Richardsson, Sindri Ólafsson og Hjördís Kristinsdóttir. Systkynin Sindri og Dröfn Haraldsbörn voru valin ÍBV-arar meistara- flokkanna tveggja. Hér eru þau með foreldrum sínum, Hugrúnu og Haraldi, og systur, Bylgju. Jósúa Steinar Óskarsson var valinn besti stuðningsmaður ÍBV og fékk að launum ársmiða sem gildir til 2040.Salurinn í Höllinni var þétt setinn og glæsilega skreyttur. Frá vinstri: Erla Rós Sigmarsdóttir, efnilegust í 3. flokki, Bryndís Jónsdóttir, mestu framfarir í 3. flokki, Bergvin Haraldsson, mestu framfarir í 2. flokki og Bjartey Helgadóttir, sem tók við verðlaunum fyrir hönd Svavars Kára Grétarssonar sem var efnilegastur í 2. flokki. Stjórn og starfsmenn ÍBV sem unnu svo gott starf í vetur, eins og undanfarin ár. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.