Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 19
°
°
19Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014
Pepsídeild karla:
Tvö stig í sex
leikjum
ÍBV tvöfaldaði stigafjölda sinn á
sunnudaginn með því að gera jafnt-
efli gegn Þór á Akureyri. Lokatölur
urðu 1:1 en Brynjar Gauti Guðjóns-
son kom ÍBV yfir á 38. mínútu.
Stuttu síðar fékk Dean Martin að líta
rauða spjaldið fyrir frekar litlar sakir
og léku Eyjamenn því einum færri í
síðari hálfleik. Allt stefndi í að ÍBV
myndi standa af sér sóknartilburði
Þórsara, allt þar til á þriðju mínútu í
uppbótartíma að heimamönnum
tókst að koma boltanum í netið og
jafna þar með metin. Svekkjandi
fyrir Eyjamenn sem fyrir leikinn
hefðu eflaust sætt sig við að taka stig
frá Akureyri, svona í ljósi gengi liðs-
ins það sem af er sumars.
Eins og sjá má á töflunni hér að
neðan er ÍBV í neðsta sæti með tvö
stig eftir sex leiki. Næsti leikur er
heimaleikur gegn Val á mánudaginn
og krafan er einföld, sigur og þrjú
stig. Staðan er einfaldlega þannig að
ÍBV má ekki við því að tapa fleiri
heimaleikjum í sumar enda eru þeir
orðnir þrír talsins.
Íþróttir
Framundan
Miðvikudagur 4. júní
Kl. 16:00 FH-ÍBV
5. flokkur kvenna, ABCD.
Kl. 17:30 Grótta/KR-ÍBV
2. flokkur kvenna.
Fimmtudagur 5. júní
Kl. 14:30 ÍBV2-ÍA2
5. flokkur karla, D-lið.
Kl. 15:30 Grótta-ÍBV
3. flokkur karla, AB.
Kl. 17:00 FH2-ÍBV
3. flokkur karla, C-lið.
Föstudagur 6. júní
Kl. 18:00 Álftanes-ÍBV
Borgunarbikar kvenna.
Laugardagur 7. júní
Kl. 14:00 KB-KFS
4. deild karla, B-riðill.
Kl. 13:30 ÍA-ÍBV
3. flokkur kvenna.
Mánudagur 9. júní
Kl. 17:00 ÍBV-Valur
Pepsídeild karla.
Kl. 14:00 Selfoss-ÍBV
3. flokkur kvenna.
Þriðjudagur 10. júní
Kl. 18:00 Afturelding-ÍBV
Pepsídeild kvenna.
Kl. 17:30 ÍBV-Grótta
2. flokkur karla, bikar.
Olísdeild karla
FH 6 4 2 0 8:2 14
Stjarnan 6 3 3 0 9:6 12
Keflavík 6 3 2 1 8:4 11
Valur 6 3 2 1 10:7 11
Fjölnir 6 2 4 0 10:6 10
KR 6 3 1 2 8:7 10
Víkingur 6 2 1 3 5:8 7
Fylkir 6 2 0 4 7:12 6
Fram 6 1 2 3 9:12 5
Þór 6 1 1 4 11:13 4
Breiðablik 6 0 4 2 6:9 4
ÍBV 6 0 2 4 5:10 2
Sterkasti maðurinn á Íslandi:
Pepsídeild kvenna: ÍBV - Fylkir 0:1
Georg kom sá og sigraði
- Er alltaf á leiðinni að hætta en getur það ekki þegar hann vinnur mót - Tekur þátt
í Vestfjarðarvíkingnum í sumar - Handboltaveturinn eftirminnilegur
Georg Rúnar Ögmundsson,
starfsendurhæfingarráðgjafi hjá
VIRK í Vestmannaeyjum gerði
sér lítið fyrir og vann aflrauna-
keppnina Sterkasti maðurinn á Ís-
landi, sem fram fór í Grindavík
um síðustu helgi. Georg hefur
búið í Eyjum síðan í febrúar á
síðasta ári og hefur m.a. komið að
lyftingum handboltaliðanna í vet-
ur með góðum árangri. Hann
segist stoltur yfir því að hafa
hjálpað strákunum að vinna
Íslandsmeistaratitilinn í hand-
bolta og fylgja því svo eftir með
sigrinum um helgina.
„Eina sem ég saknaði var að það
voru engir flugeldar eða blys þegar
ég kom heim á sunnudaginn,“ sagði
Georg og hló dátt en eins og allir
vita var tekið á móti Íslandsmeistur-
um ÍBV í handbolta með pompi og
prakt þegar þeir komu með bikarinn
til Eyja.
„Ég er búinn að vera í aflraunum
frá því að ég man eftir mér. Þetta er
nánast orðinn vani en ég hef líka
stundað lyftingar samhliða því og
hef verið með þeim í handboltanum
í vetur. Ég hef sótt orku í þá og gefið
orku á móti. Titillinn hjá þeim
hjálpaði mér auðvitað í þessu móti
því þetta vinnur allt saman. Núna er
ég með hlið við hlið upp á hillu við-
urkenningu fyrir Íslandsmeistaratit-
ilinn í handbolta og svo bikarinn
fyrir að vera sterkasti maðurinn á
Íslandi. Ég er með montréttinn í
sumar,“ sagði Georg og hló enn
meira.
Erfiðara að gera sig
geðveikan
Eðli málsins samkvæmt er ekki auð-
velt að æfa aflraunir í Vestmanna-
eyjum en hann segist nota ferðir til
Reykjavíkur til að rifja upp aflraun-
irnar. „Þegar ég fer í bæinn, þá reyni
ég að koma mér í Jakaból, hitti þessa
stráka þar og fer í gegnum æfingarnar
með þeim. Í gamla daga fóru nánast
helgarnar bara í að æfa aflraunir,
lyfta steinum, bera hluti og kasta
einhverju upp í loftið. Þannig að ég
er með góðan grunn og þarf bara að
rifja tæknina upp. En ég viðurkenni
alveg að það er orðið erfiðara að
finna hungrið til að gera sig
geðveikan. Maður þarf að vera
geðveikur í að pína sig upp að rauða
strikinu og halda svo áfram þrjá
metra í viðbót. Svo er ég líka lengur
að ná mér eftir svona keppni. Núna
er miðvikudagur og ég varla get lyft
augnlokunum eftir helgina. En ég
hef mjög gaman að því að vera í
kringum þessi mót, t.d. dæma og
þess háttar. Ég fæ alveg jafn mikið
út úr því,“ sagði Georg.
Ætlarðu að hætta eftir sumarið?
„Ég segi það kannski núna en hver
veit? Þetta er fjórða sumarið sem ég
segi þetta og var ákveðinn í fyrra.
En þá tók ég þátt í síðasta aflrauna-
móti ársins, Austfjarðatröllinu. Þar
voru tveir Svíar, alvöru keppendur
en ég vann þá og þá gat ég ekki hætt.
Ég ætlaði nú bara að nota mótið um
helgina til að rifja upp og æfa mig en
svo þegar maður er kominn af stað,
þá kemur upp gamla keppnisskapið
og það er allt látið flakka. Maður fer
aðeins lengra en maður ætlaði og
svo tekur við tveggja til þriggja
vikna þynnka á meðan líkaminn er
að jafna sig. Ég ætla að keppa á
Vestfjarðarvíkingnum í sumar en
ætla að láta þessi tvö mót duga.
Hefur metnað í
handboltanum
Hvernig líkaði þér að vinna með
handboltafólkið okkar?
„Ég hafði mjög gaman af því og
mikinn metnað í því starfi. Ég er
búinn að vera lengi í lyftingunum og
er auk þess sjúkraþjálfari og langar
að sjá hvort ég geti gert alvöru
handboltavíkinga og -valkyrjur úr
þessum krökkum. Fá þau til að lyfta
og styrkja sig þannig að þau hafi
réttan styrk í handboltann. Ég hef
metnað í því að berja þessa stráka og
stelpur til manndóms,“ sagði Georg
brosandi. „Þetta Vestmannaeyja-
ævintýri hefur verið ótrúlegt. Það
sem ég hef gengið í gegnum síðasta
mánuðinn hefur verið ótrúleg
lífsreynsla. Ég upplifði mig sem
innmúraðan Eyjamann í gegnum
handboltann og mun lifa á þessum
minningum lengi,“ sagði þessi
geðþekki aflraunamaður að lokum.
Georg í bændagöngunni sem er verulega erfið, eins og allar greinarnar. Keppendur í mótinu um helgina ásamt aðstoðarmönnum.
Skortir alla baráttu í liðið
- segir Jón Ólafur Daníelsson sem var óhress eftir tapið gegn Fylki í gær
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari
kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu var
heldur óhress eftir tapleik gegn
Fylki á Hásteinsvelli í gær,
þriðjudag en lokatölur urðu 0:1
fyrir Fylki. Þetta var jafnframt
þriðja tap ÍBV í röð en liðið
tapaði fyrir Stjörnunni á
Hásteinsvelli og gegn Þór/KA
fyrir norðan eftir laglegan sigur á
Selfossi í fyrstu umferð Íslands-
mótsins.
Úrslit leiksins voru í raun ekki
sanngjörn því jafntefli hefði gefið
rétta mynd af leiknum þar sem bæði
lið fengu sín færi en Fylkir nýtti eitt
þeirra á meðan ÍBV gerði það ekki.
„Menn verða að vilja skora. Það er
ekki nóg að hlaupa fram, þú verður
að vilja koma boltanum í netið og
sýna það. Það vantar miklu meiri
kraft, ákefð og baráttu í þetta. Það
þýðir ekkert bara að hlaupa þangað
sem þjálfarinn segir þér að hlaupa
ef þú hefur ekki viljann til að skora.
Það er bara enginn Vestmanna-
eyingur í þessu hjá okkur, engin
barátta,“ sagði Jón Ólafur í samtali
við blaðamann Eyjafrétta. Hann
sagðist hins vegar hafa átt von á
erfiðri byrjun í Íslandsmótinu.
„Þetta er eitthvað sem ég vissi að
yrði. Ég þekki veikleikana í mínu
liði og persónuleika leikmanna og
ég vissi hvernig þetta gæti farið.“
Nú er næsti leikur gegn Aftur-
eldingu, sem er án stiga í neðsta
sæti. Þið hljótið að eiga möguleika
gegn þeim?
„Það held ég ekki. Afturelding
spilaði mjög vel gegn Þór/KA í
síðasta leik þannig að Akureyringar
skoruðu bara tvö mörk hjá þeim.
Ég er ekki að sjá að við eigum eftir
að brjóta niður þann varnarmúr ef
við spilum sama sóknarleik og í
dag. Það er ekki nóg að reyna, þú
verður að sýna að þú viljir skora.“
Shaneka Gordon fékk sín færi
gegn Fylki en náði ekki, frekar en
aðrir leikmenn ÍBV, að koma
boltanum í netið.
Pepsídeild kvenna
Valur 4 3 1 0 14:2 10
Þór/KA 4 3 1 0 8:4 10
Stjarnan 4 3 0 1 11:1 9
Breiðablik 4 2 1 1 15:3 7
Fylkir 4 2 1 1 2:3 7
Selfoss 4 2 0 2 9:6 6
FH 4 2 0 2 5:18 6
ÍBV 4 1 0 3 2:8 3
ÍA 4 0 0 4 1:9 0
Afturelding 4 0 0 4 2:15 0
4. deild karla:
TG9 í 200
Tryggvi Guðmundsson skoraði 200.
deildarmarkið sitt á ferlinum þegar
KFS valtaði yfir Stokkseyri á Helga-
fellsvellinum en lokatölur urðu 9:0.
Tryggvi skoraði þrennu í leiknum og
það gerði Gauti Þorvarðarson einnig
en hin mörkin gerðu þeir Ingólfur
Einisson (2) og Hilmar Ágúst
Björnsson. KFS er í efsta sæti B-
riðils 4. deildar með fullt hús stiga
og markatöluna 13:1 eftir tvo leiki.