Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 1
°
°
°
Vestmannaeyjum 16. júlí 2014 :: 41. árg. :: 29. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
FISH&
CHIPS 145
0
kr
.
M
yn
d:
Ó
sk
ar
P
ét
ur
F
ri
ðr
ik
ss
on
Örlygur meistari
í 11. sinn
sameiginlegt
húsnæði leikskóla
og dvalarheimilis
sÖguskoðun
með hjálp
snjallsíma >> 14>> 11>> 8
Makrílvertíðin í ár ætlar að standa
undir nafni þrátt fyrir að veður
hafi sett strik í reikninginn. Það
hefur brugðið til betri tíðar
síðustu daga og hafa veiðar og
vinnsla gengið vel. Stutt er á
miðin sem kemur sér vel fyrir
vinnsluna í landi. Hjá Ísfélaginu,
Vinnslustöðinni og Godthaab
vinna hátt í 300 manns á vöktum
allan sólarhringinn. Heildarafli í
Vestmannaeyjum í sumar nálgast
12.000 tonn.
„Þetta er svipað og í fyrra, ágætis
gangur bæði í veiðum og vinnslu,“
sagði Eyþór Harðarson, útgerðar‑
stjóri Ísfélagsins í gær. „Álsey VE og
Heimaey VE landa til skiptis hjá
okkur, 200 til 400 tonnum í túr. Það
eru komin tæp 4000 tonn í land og
það er unnið á vöktum í frystihúsinu
hjá okkur allan sólarhringinn. Þar
vinna um það bil 70 manns við
vinnsluna.
Það var svipað hljóðið í Sindra
Viðarssyni, sviðsstjóra uppsjávar‑
sviðs Vinnslustöðvarinnar. „Makríl‑
veiðarnar ganga ágætlega og það eru
komin um það bil 5000 tonn á land
hjá okkur. Það er unnið á vöktum í
makrílvinnslunni og að henni koma
um 150 manns þegar allt er talið til,“
sagði Sindri.
Í Godthaab er búið að taka á móti
250 tonnum af makríl. „Það vinna
um 40 manns á vöktum í makrílnum
hjá okkur og gengur vel,“ sagði Einar
Bjarnason hjá Godthaab.
Huginn VE vinnur sinn afla um
borð og er búinn að landa 2752
tonnum í fjórum túrum. Síðast
landaði Huginn um helgina. Huginn
er aflahæstur ásamt Vilhelm
Þorsteins syni EA samkvæmt síðustu
tölum frá Fiskistofu
Sólarhring höfn í höfn
Kap VE og Ísleifur VE voru að toga
rétt austan við Kötlutangann þegar
Eyjafréttir slógu á þráðinn til Gísla
Garðarssonar, skipstjóra á Kap seinni
partinn í gær. Þá var aðeins kaldi og
lítið að sjá í augnablikinu en í
gærmorgun fengu þeir 60 tonn.
Gísli segir að makrílvertíðin í ár sé
að mestu svipuð og þær hafa verið
undanfarin ár. „Já, þetta er mjög
svipað en veðrið hefur verið að stríða
okkur. Það var sannkallað vetrar‑
veður sem við fengum á okkur um
daginn en það hefur verið fínt síðustu
daga og góð veiði,“ sagði Gísli.
Þrír bátar veiða makríl fyrir
Vinnslustöðina, Kap VE, Sighvatur
Bjarnason VE og Ísleifur VE. Þeir
eru með tveggja báta troll og skiptast
Kap og Sighvatur á að fara í land
með aflann. Ísleifur er það sem
sjómenn kalla „hlera“ og vísar til
toghlera á hefðbundnum trollum.
„Við höfum gert þetta frá 2006 með
mjög góðum árangri,“ sagði Gísli.
Allur makríllinn er unninn til mann ‑
eldis og mega bátarnir koma með
250 til 300 tonn í túr. „Þetta hefur
verið sólarhringurinn höfn í höfn
enda stutt að fara. Makríllinn núna er
heldur stærri en í fyrra og nú fitnar
hann skart. Makríllinn er góð búbót
fyrir alla,“ sagði Gísli að endingu.
Makrílvertíðin :: Heildarafli á land í Eyjum nálgast 12.000 tonn:
Hátt í 300 manns á vökt-
um allan sólarhringinn
:: Svipaður gangur og undanfarin ár :: Heldur stærri fiskur en í fyrra
:: Makríllinn er góð búbót fyrir alla segir skipstjórinn á Kap VE
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Það koma margar hendur að vinnslu makrílsins í landi og það var handagangur í öskjunni þegar ljósmyndari Eyjafrétta leit við í Godthaab í vikunni.
Mikið er þetta skólafólk sem fær vel þegna aura í vasann fyrir veturinn.