Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Blaðsíða 8
° ° 8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Eyjakonan Anna Kristín Magnús- dóttir, dóttir Magnúsar Birgis Guðjónssonar og Jónu K. Ágústsdóttur, útskrifaðist á dögunum sem arkitekt frá Álaborgarháskólanum með hæstu einkunn, 12 af 12 mögulegum. Hún vinnur nú í Kaupmannahöfn, hjá Danielsen Architecture and Space Plann- ing og sat úti í sólbaði þegar blaðamaður Eyjafrétta setti sig í samband við hana, á meðan rigningin buldi á glugganum á ritstjórnarskrifstofunni. Anna Kristín er 27 ára gömul en hún lauk námi í Framhaldsskól‑ anum og lærði tækniteiknun í Tækniskólanum í Reykjavík áður en hún flutti til Danmerkur. Hún segist snemma hafa sett stefnuna á arkitektinn og komst að því seinna að Danmörk var einn af þeim stöðum þar sem hægt væri að læra arkitektúr. „Á þeim tíma var námið ekki byrjað hjá Listaháskólanum og ég held ég hafi bara bitið í mig þar að ég myndi flytja til Danmerkur til þess að læra arkitektinn. Danirnir eru einnig framarlega á sviði hönnunnar og hef ég lært margt undanfarin fimm ár.“ Hafðir þú einhvern bakgrunn sem nýttist í þessu námi? „Ég hafði alltaf gaman af því að teikna og vera í skapandi fögum í skólanum. Þegar ég var búin með framhaldsskólann í Eyjum tók ég stefnuna á tækniteiknun hjá Tækniskólanum í Reykjavík sem nýttist mér mjög vel í framhaldinu, en námið þar svalaði aðeins þorstanum hjá arkitektnum í mér. Best við þetta nám var að ég var með öll teikniprógrömmin á hreinu og þurfti þar af leiðandi ekki að eyða mikilli orku í að læra á þau. Ég gat þannig einbeitt mér betur að málinu og hvernig skólinn og menningin voru í Danmörku.“ Renndi blint í sjóinn Anna segir það vera dálítið skondna sögu hvernig hún endaði í Álaborg‑ arháskólanum en hún vissi ekki mikið um námið þegar hún fékk inngöngu í skólann. „Ég sótti um í Kaupmannahöfn og Árósum fyrst en sá á blaði þar sem kóðar skólanna voru að Álaborgarháskól‑ inn væri einnig að bjóða upp á nám í arkitektúr og hönnun. Það má sækja um þrjá skóla á umsókn‑ areyðublaðinu þannig að ég setti Álaborgarháskólann þar inn til að eiga meiri möguleika að komast í nám. Svo í ágúst beið mín stórt umslag frá skólanum þar sem mér var boðin innganga og hafði ég tvær vikur til að staðfesta komu mína. Ég var ekki lengi að taka ákvörð‑ unina eftir að hafa kynnt mér örlítið um skólann en renndi um leið blint í sjóinn. Í dag sé ég ekki eftir því þar sem þessi skóli býður upp á þrjár greinar í hönnun; Arkitektúr, Urban design og Industrial design. Við fengum að prófa allar grein‑ arnar til að sjá við hverja þeirra okkur líkaði best og á fimmtu önn áttum við að velja okkar sérhæf‑ ingu. Hjá mér var ekki spurning um annað en að fara í arkitektúrinn, en skólinn er verkfræðiháskóli og námið var allt með verkfræðiívafi sem mér finnst mjög mikilvægt og gott að hafa tæknigrunninn bak við eyrað þegar unnið er að uppsetn‑ ingu húss og byggingu þess.“ Hvernig gekk að komast inn í málið og læra á dönsku? „Það tekur smá tíma að komast inn í málið, en fyrsta hálfa árið talaði ég einungis ensku. Eftir fyrstu önnina ákað ég að taka viðsnúning og bað fólk að tala einungis dönsku við mig og ég reyndi mitt besta að tala dönskuna á móti. Ég neita því ekki að þetta var rosalega erfitt í 3‑4 vikur en svo kom málið hægt og rólega. Það þarf að stinga sér í djúpu laugina og pína sig áfram í að læra málið því allt var svo margfalt skemmtilegra og einfaldara þegar ég var loksins farin að ná tökum á því. Einnig fór ég í tungumálaskóla sem hjálpaði helling með stafsetn‑ inguna og fá meira sjálfstraust í að ná tökum á málinu.“ Hvað með húsnæði? Þurftir þú að finna það sjálf eða varstu í skólagörðum eða heimavist? „Ég fann húsnæði sjálf í gegnum AKU sem er með stúdentaíbúðir. Ég var svo heppin að fá íbúð rétt hjá skólanum, en kampusinn er 8 km frá miðbænum þar sem skólinn minn er staðsettur.“ Fimm ára nám Anna segir að Álaborgarskóli sé mjög stór skóli, með ríka verk‑ fræðikunnáttu og að Álaborg sé mikilli stúdentabær. „Það er æðislegt fyrir skólafólk að feta sig áfram í Álaborg. Borgin er ekki of lítil en heldur ekki of stór, bara mjög passleg og allir svo vingjarn‑ legir. Í mínu námi, sem heitir verkfræði í arkitektúr og hönnun (civilingeniør i arkitektur og design), vorum við um það bil 150 nemendur sem hófum nám og útskrifaðir með mér voru um 90, en það eru einhverjir sem taka fríár inn á milli og sumir útskrifast seinna.“ Hvað er þetta langt nám? „Allt í allt eru þetta 5 ár, 3 ár í BSc og 2 ár í MSc. Námið er mest allt bóklegt ef bóklegt má kallast. Við gerum tvö lítil verkefni í byrjun annar og svo eitt aðalverkefni sem er útfært á mjög svipaðan hátt og fyrirskipan á arkitektastofu sem við kemur hönnun húsa. Eini parturinn sem við förum ekki djúpt í er bygging hússins, en allt fram að því á að vera í svipuðum dúr og á arkitektastofu. Á níundu önn förum við svo í starfsnám á arkitektastofu eða verkfræðifyrirtæki þar sem við lærum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í hinum „raunverulega heimi“. Þó svo að kunnáttan sé orðin mikil á undanförum 5 árum, fann ég að ég á margt eftir ólært eftir að hafa fengið smjörþefinn af hinum raunverulega heimi og hlakka ég til Anna Kristín Magnúsdóttir útskrifaðist sem arkitekt frá Álaborgarháskólanum: Sameinaði leikskóla og dvalarheimili aldraðra í lokaverkefninu :: Hentar vel fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar :: Álaborg er passlega stór háskólaborg :: Vinnur í Kaupmannahöfn enda lítið að gera á Íslandi eins og er JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is Anna Kristín við lokaverkefnið á útskriftardaginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.