Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 6
° ° 6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Umhverfisráð fékk tvær umsóknir um leyfi fyrir pylsuvagni og veitingavagni yfir þjóðhátíðarhelg‑ ina. Báðir fengu nei. Baldur Ingi Halldórsson sótti um fyrir Bæjarins bestu sf. og Fjóla Sigurðardóttir fyrir Lobster‑Hut . Allir þekkja bæjarins bestu pylsur en Lobster Hut selur, eins og nafnið bendir til, humarsúpu og humar‑ samlokur. Báðum var neitað á þeim for‑ sendum að öllum stöðuleyfum fyrir veitingavagna hefur þegar verið úthlutað fyrir árið 2014. Vantar sjálfboðaliða í innrukkun á föstudags‑ og laugardagskvöld á Þjóðhátíð. Áhugasamir hafið samband við Evu í síma 861‑0147 eða Hafdísi 865‑6878. Líflegar vaktir fyrir alla, líka þá sem ekki ætla í dalinn. Með von um góðar undirtektir. Sigurjón Pálsson f.h. Ísfélagsins sótti um leyfi til umhverfis‑ og skipulagsráðs fyrir byggingu á frystiklefa, flokkunarstöð og tveimur hráefnistönkum á lóð fyrirtækisins að Strandvegi 102. Einnig var sótt um leyfi til að koma upp löndunarbúnaði á bryggju. Fyrir liggja umsagnir Vinnueftir‑ lits, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og Eldvarnaeftirlits Vestmannaeyja. Ráðið frestaði afgreiðslu og vísaði erindinu til umsagnar hjá fram‑ kvæmda‑ og hafnarráði. Á fundi umhverfis‑ og skipulags‑ ráðs í síðustu viku lágu fyrir tvær umsóknir um byggingarlóð að Hásteinsvegi 14b undir einbýlishús. Samkvæmt vinnureglum ráðsins var dregið um lóðina og kom það í hlut Birgittu Kristjónsdóttur fulltrúa sýslumanns Vestmannaeyja að draga úr umsóknum, Hnossið hrepptu Yngvi Sigurður Sigurgeirsson og Oddný Þorgerður Garðarsdóttir en Sveinn Valþór Sigþórsson og Baldvina Sverris‑ dóttir sitja eftir með sárt ennið. Yngvi og Oddný skulu skila fullnægjandi teikningum fyrir 15. janúar 2015. Valþóri og Baldvinu er úthlutað henni til vara. Ásókn í að selja pyls- ur og hum- arlokur ÍBV íþróttafélag: Sjálfboða- liðar óskast Ísfélagið stækkar við sig Dregið um Hásteinsveg 14: Oddný og Yngvi höfðu betur Bæjarráð :: Flutningur opinberra starfa á landsbyggðina: Hallar veru- lega á lands- byggðina :: Styður allar skynsamlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að efla landsbyggðina Það hrikti víða í þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, atvinnuvega- ráðherra, tilkynnti þá ákvörðun sína að flytja Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar. Þetta var tekið fyrir í bæjarráði í síðustu viku og var byrjað á að óska kjörnum fulltrúum og íbúum Akureyrar til hamingju með þá niðurstöðu að höfuð- stöðvar Fiskistofu skuli verða fluttar þangað. „Það er von og trú bæjarráðs að slíkt verði til að efla enn frekar þann sóknarhug sem einkennt hefur Akureyri á seinustu árum, auka fjöl‑ breytni í atvinnulífinu og færa stoðkerfi sjávarútvegsins nær þeim byggðarlögum sem byggja afkomu sína á grunnatvinnuveginum,“ segir í bókun bæjarráðs sem lýsir yfir mikilli ánægju með að ríkisstjórn skuli þegar hafa hafist handa við að efna loforð í stjórnarsáttmálanum um að mikilvægt er að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa. Störfum misdreift Þar hallar verulega á landsbyggðina og segist bæjarráð styðja allar skynsamlegar aðgerðir ríkisstjórnar‑ innar til að efla landsbyggðina og þar með talið flutning starfa í önnur byggðarlög. Bent er á svar við fyrirspurn Gunnars Braga Sveins‑ sonar í október 2012 þar sem kemur fram að opinberum störfum er mjög misdreift á landið. „Þannig eru til dæmis 23 íbúar á bak við hvert starf í Fjarðabyggð, 24 í Vesturbyggð, 17 í Norðurþingi, 15 á Ísafirði og 13 í Árborg. Í Vestmannaeyjum eru 4280 íbúar og hér eru 135 stöðu‑ gildi hjá ríkinu. Það merkir að á bak við hvert slíkt stöðugildi í Vest‑ manneyjum er 31 íbúi.“ Bæjarráð minnir sérstaklega á að á Íslandi eru 17.516 stöðugildi opinberra starfsmanna (tölur frá 2011) og hefur þeim fjölgað um 227 síðan 2007. Á þessum tíma hafa stór skörð verið höggin í þjónustu ríkisins í Vestmannaeyjum með tilsvarandi fækkun starfs‑ manna. Til að undirbúa enn frekar flutning starfa og stofnana til Vestmannaeyja samþykkti bæjarráð að stofna stýrihóp til undirbúnings og skipa í hann á næsta fundi. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Lítið hefur gefið til málningar úti við síðustu daga og vikur. Rigning flesta daga og ekki að sjá að breyting verði á. Er þetta annað sumarið í röð sem veðráttan kemur í veg fyrir að hægt sé að fara upp um veggi og þök með rúllu og pensil og fegra með því umhverfið. Með von um betri tíð hafa Húsa- smiðjan og Miðstöðin boðið sérstök þjóðhátíðartilboð á útimálningu. Málum Eyjar, fegrum bæinn fyrir þjóðhátíð, segir Húsasmiðjan í auglýsing- um og Miðstöðin er með þjóðhátíðartilboð. „Með þessu erum við að reyna að fegra bæinn og ákváðum að gefa góðan afslátt fram að þjóðhátíð,“ sagði Ríkharður Hrafnkelsson, verslunarstjóri Húsasmiðjunnar í Eyjum, í samtali við Eyjafréttir. „Það kom upp vegna þess að gestir sem hingað koma hafa nefnt að eitthvað vanti upp á að hús hér séu almennilega máluð, sérstaklega í neðri bænum. Með því að bjóða málningu á góðu verði erum við að leggja okkar af mörkum í að bæta ásýnd bæjarins.“ Ríkharður segir að því miður hafi veðrið í sumar ekki hjálpað til. „Já, það hefur ekki verið hagstætt veður til útiverka. Því miður og ekkert útlit fyrir betri tíð á næstunni en alltaf styttir upp að lokum og þá erum við tilbúin í slaginn.“ Björgvin Hallgrímsson, verslunar‑ stjóri í Miðstöðinni segir að hugmyndin hafi komið frá Málningu hf. sem í fyrra bauð upp á sérstök goslokatilboð sem var vel tekið. „Það var gert vegna þess að þá var 40 ára goslokaafmæli og nú stendur þjóðhátíð á tímamótum, er 140 ára á þessu ári,“ sagði Björgvin um málningartilboð Miðstöðvarinnar og Málningar. „Viðbrögð hafa verið mjög fín þó veðrið hjálpi ekki en þegar koma góðir dagar fer allt af stað. Er gaman að geta lagt fólki lið í að fegra bæinn með þessum hætti.“ Svo nálgast þjóðhátíð og þá þarf að huga að ýmsu. „Við erum með málningu sem hentar á tjaldsúlurnar og húsgögnin í tjaldið og hún er líka á góðu verði hjá okkur,“ sagði Björgvin. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Húsasmiðjan og Miðstöðin :: Þjóðhátíðartilboð á útimálningu: Málum og fegrum bæinn fyrir þjóðhátíð :: Vilja segja rigningunni stríð á hendur :: Stoppar fólk í að mála úti Fyrsta fund nýs fræðsluráðs sátu Trausti Hjaltason formaður, Hildur Sólveig Sigurðardóttir varaformaður, Sindri Haralds- son, Silja Rós Guðjónsdóttir, Gunnar Þór Guðbjörnsson, Jón Pétursson, framkvæmdastjóri sviðsins, Sigurlás Þorleifsson skólastjóri Grunnskólans, Emma Hinrikka Sigurgeirsdóttir, aðstoðarskólastjóri á Kirkjugerði og áheyrnarfulltrúarnir Helga Björk Ólafsdóttir, Helga Tryggvadóttir og Hildur Jóhanns- dóttir. Hildur Sólveig, formaður starfshóps um viðhalds‑ og húsnæðisþörf skólastiga, fór yfir skýrslu hópsins þar sem kemur fram að mikil fækkun hefur verið á börnum á leik‑ og grunnskólaaldri. Hefur þeim fækkað um 34% frá árinu 2000. Nú er nemendafjöldinn um 780 og útlit fyrir svo verði, svo langt sem hægt er að sjá, næstu fimm til tíu árin. Kom fram að eins og staðan er í dag er nægt húsnæði á leikskólum bæjarins og hægt að mæta mark‑ miðum sveitarfélagsins um að koma 18 mánaða börnum inn að hausti. Í skýrslunni segir að í dag sé sveigjanleiki lítill í Hamarsskóla því með tilkomu fimm ára leik‑ skóladeildarinnar Víkur hafi kennslustofum þar fækkað. Meiri sveigjanleiki er hinsvegar Barna‑ skólamegin og kennslurými þar meira en nægilegt. Í skýrslunni kemur fram að aukið samstarf milli stjórnenda GRV og Kirkjugerðis hafi orðið til þess að skólahúsnæði er betur nýtt og skipti skipulag innra starfs skólanna miklu hvað þetta varðar. Framundan er kostnaðarsamt viðhald við GRV, aðallega við Barnaskólann og nauðsynlegt er að grípa til ráð‑ stafana til að bæta hljóðvist við fimm ára deildina ásamt því að ýmissa lagfæringa er þörf við leikskóla bæjarins. Fræðsluráð lagði til að Bjarna Ólafi Marinóssyni verði falið að útbúa viðhaldsáætlun til lengri og skemmri tíma fyrir skólahúsnæði bæjarins með það að markmiði að draga úr kostnaðarsveiflum og auðvelda fjárhagsáætlunargerð. Fyrsti fundur nýs fræðsluráðs: Krökkum á leik- og grunnskóla- aldri fækkað um 34% frá 2000 :: Núna 780 :: Fjöldinn verður óbreyttur næstu fimm til tíu árin Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Þessi hópur 5 ára barna útskrifaðist af Víkinni í vor og hefur nám við Grunnskóla Vestmannaeyja í haust.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.