Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Page 10

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Page 10
° ° 10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 Sigurður VE 15, nýtt skip Ísfélagsins, lagði af stað til Íslands frá Tyrklandi á laugar- daginn og er gert ráð fyrir að siglingin taki tólf sólarhringa. Sigurður VE er smíðaður í Tyrklandi og fóru síðustu dagarnir úti í prufukeyrslur með áhöfn þess. „Hann er væntanlegur til heima‑ hafnar í Vestmannaeyjum 24. til 25. júlí,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins þegar rætt var við hann á mánudaginn. „Skipstjóri er Hörður Guðmunds‑ son og yfirvélstjóri Svanur Gunnsteinsson.“ Ísfélagið :: Sig- urður VE lagður af stað heim: Hörður skipstjóri og Svanur yfirvélstjóri :: Væntanlegur 24. til 25. júlí Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Sigurður VE er 80 metra langur og 17 metra breiður og er afar vel búinn til veiða á uppsjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Aðalvélin er 4.500 kW og kæligetan er 2x1.300.000 kcal/klst. Kælitankar skipsins eru 12 og eru samtals 2.970 rúmmetrar þannig að burðargeta skipsins er mikil og styður hún vel við öfluga landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn. Vélstjóri á Herjólf Eimskip vill ráða 1. vélstjóra á Herjólf. Menntunar- og hæfniskröfur: • Full réttindi samkvæmt reglum STCW lll/2 • Nauðsynlegt að geta unnið undir álagi • Jákvæðni og þjónustulund • Hreint sakavottorð Nánari upplýsingar um starfið veitir: Hulda Guðmundsdóttir í síma 525 7166, hg@eimskip.is Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 2014. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Fundagerðarbækur Jötuns Bókasafn Vestmannaeyja er að skanna fundargerðarbækur Jõtuns frá upphafi í tilefni 80 ára afmælis Jõtuns þann 24 okt. n.k. Okkur vantar tvær bækur í safnið annarsvegar árin 1937-1945 og 1953-1960 hins- vegar. Okkur þætti vænt um að þessar bækur kæmu í leitirnar. Ef einhver hefur grænan grun um hvar þær eru niðurkomnar vinsamlegast hafi ð samband við félagið. SJÓMANNAFÉLAGiÐ JÖTuNN Skólavegi 21b | s. 481 2700 Birna Þórsdóttir var í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarkosningunum í vor. Flokkurinn bætti við sig manni, fór úr fjórum bæjarfulltrúum í fimm og er Birna ein þeirra. Birna er 28 ára og sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund 3. júlí sl. Við spurðum hana hvernig henni hefði litist á blikuna. Hvernig var að sitja þinn fyrsta bæjarstjórnarfund? „Það var náttúrulega ekki mikið af stórum málum en aðalmálin voru að skipa í nefndir, forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra. En þetta var mjög skemmtilegt og spennandi.“ Var þetta eins og þú bjóst við? „Já, ég vissi í rauninni ekki við hverju var að búast, ég var hreinlega að renna út í blint, hef aldrei komið á svona fund áður. En þetta er mjög skemmtilegt og mjög fullorðins,“ segir Birna hlæjandi. Hvernig gekk fundurinn? „Það gekk bara mjög vel að læra inn á þetta og kynnast þessu. Til dæmis þá ætlaði ég nú að sitja hinum megin við borðið en mér var vinsamlegast bent á að sitja réttum megin við borðið. Ég sem ætlaði að vera voðalega „líbó“ eða afslöppuð, þetta var pínu fyndið,“ segir Birna með bros á vör. Er þetta eitthvað sem þú vilt gera í framtíðinni? „Allavega líst mér mjög vel á þetta enn sem komið er og ég hlakka mikið til að koma mér inn í þetta. Þetta er bara mjög spennandi því ég hef mikinn áhuga á velferð Vestmannaeyja. Ég er pínu „kontrolfrík“ og því held ég að það henti mér vel að fá að vera með puttana í málefnum heimahaganna.“ Hvernig líst þér á framhaldið? „Mjög vel en við getum alltaf gert betur, hlakka til að sökkva mér dýpra í málin og hafa eitthvað um þau að segja, sjá verkefni þróast frá byrjun og verða að veruleika.“ Birna á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í stjórnmálum og verður gaman að fylgjast með henni í komandi framtíð. Birna Þórsdóttir bæjarfulltrúi eftir fyrsta fundinn: Skemmtilegt og fullorðins :: Hafði aldrei komið á svona fund áður SÓlEy DöGG GuðBJörnSDÓTTIr frettir@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.