Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2014, Qupperneq 15
°
°
Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. júlí 2014 15
Jonathan Glenn skorar fyrra mark sitt eftir sendingu Jóns Ingasonar.
ÍBV – Meistara-
flokkur kvenna:
Tvær
banda-
rískar
Meistaraflokki kvenna hjá ÍBV
barst liðstyrkur í vikunni en
félagaskiptaglugginn opnaði þann
15. júlí. Eyjakonur hafa farið
ágætlega af stað en eru þó neðar
en áætlað var.
Stelpurnar sem koma til liðsins
koma báðar frá Bandaríkjunum.
Önnur er varnarmaður og kemur frá
Duke‑háskólanum, fædd 1991 og
heitir Natasha Anasi. Ariana Calde‑
ron er fædd 1990 og getur leikið sem
framliggjandi miðjumaður eða
vængmaður.
Eyjakonur mæta Breiðabliki í dag,
þær Natasha og Ariana eru komnar
með leikheimild og geta því komið
inn á.
Íþróttir
Framundan
Föstudagur 18. júlí
Kl. 16:00 ÍBV 2‑ Breiðablik 4
5. flokkur karla D‑lið
Kl. 17:00 ÍBV ‑ Breiðablik 3
4. flokkur karla B‑lið
Kl. 18:00 FH ‑ ÍBV/KFR
3. flokkur karla C‑lið
Laugardagur 19. júlí
Kl. 14:00 KFS ‑ KB
4. deild karla B‑riðill
Sunnudagur 20. júlí
Kl. 17:00 ÍBV ‑ Fram
Pepsídeild karla
Mánudagur 21. júlí
Kl. 18:00 ÍBV ‑ Selfoss
Pepsi‑deild kvenna
Þriðjudagur 22. júlí
Kl. 18:00 Þróttur ‑ ÍBV
2. flokkur karla
Kl. 16:00 Þróttur/ÍA ‑ ÍBV
2. flokkur kvenna
Miðvikudagur 23. júlí
Kl. 16:30 ÍBV/KFR ‑ Breiðablik 2
3. flokkur karla A‑lið
Kl. 18:00 ÍBV/KFR ‑ Breiðablik 2
3. flokkur karla B‑lið
Fimmtudagur 24. júlí
Kl. 16:00 ÍBV ‑ Haukar
2. flokkur kvenna
Pepsídeild karla: ÍBV - Fjölnir 4 - 2.
KFS - Ísbjörninn 2 - 1
Meistaramót FRÍ:
Pepsídeild karla
Loksins tókst meistaraflokki karla
að sigra í heimaleik í Pepsi-deild-
inni en sigurinn kom á Hásteins-
velli gegn Fjölni í mjög svo
skemmtilegum leik þar sem Eyja-
menn stjórnuðu ferðinni, þó aðal-
lega í seinni hálfleik. Eyjamenn
höfðu unnið síðustu tvo leiki áður
en kom að þessum en það voru
útisigurinn í Keflavík og bikarsig-
urinn gegn Þrótti. Lokatölur voru
4:2 sem verður að teljast sann-
gjarnt.
Það virkaði eins og ekkert ætlaði að
ganga upp fyrir ÍBV þegar Ragnar
Leósson, fyrrum leikmaður ÍBV,
lagði boltann fyrir sig með hendinni
og sendi hnitmiðaða sendingu á
Christopher Tsonis sem kom Fjöln‑
ismönnum yfir eftir rúmlega tíu mín‑
útna leik.
Þá sneru Eyjamenn leiknum sér í
hag og uppskáru loks þegar heitasti
framherji deildarinnar, Jonathan
Glenn, skoraði glæsilegt skallamark
eftir sendingu Jóns Ingasonar. Glenn
var aftur á ferðinni eftir hornspyrnu
Jóns en þá átti Arnar Bragi Bergsson
skot að marki sem Glenn tókst að
stýra í netið.
Eyjamenn virtust hafa leikinn í
hendi sér en þá birtist Christopher
Tsonis aftur inni í vítateig þeirra og
skoraði mark. Eyjamenn fundu þá
Eyjahjartað og svöruðu með fimmta
marki leiksins þegar Atli Fannar
Jónsson stýrði boltanum í fjærhorn‑
ið með bakinu.
Eftir þetta ætluðu heimamenn ekki
að gefa færi á sér. Voru þéttir í vörn‑
inni en Víðir Þorvarðarson sýndi
snilli sína þegar hann sneri af sér
varnarmann og skaut boltanum í
stöngina og þaðan inn. Víðir hefur
skorað glæsileg mörk í sumar.
Reyndist þetta vera lokamark leiks‑
ins og lyftu Eyjamenn sér því tíma‑
bundið í 8. sæti deildarinnar en sök‑
um annarra úrslita sitja þeir í því
tíunda.
Jonathan Glenn sýndi aftur hvers
hann er megnugur en mörkin hans
koma yfirleitt innan úr vítateignum.
Hann stekkur gríðarlega hátt og er
lunkinn að komast í boltann á undan
markvörðum andstæðinganna. Sig‑
urður Ragnar Eyjólfsson er gríðar‑
lega ánægður með kappann og lét
hafa þessi orð eftir sér í viðtali við
Fréttablaðið. „Það er markmiðið
hans að vera markahæstur í Pepsi‑
deildinni, hann hefur alla burði til
þess, mér finnst hann frábær senter.“
Jonathan Glenn sýndi aftur
hvers hann er megnugur
:: Skoraði tvö :: Er heitasti framherjinn í deildinni
KFS fékk Ísbjörninn í heimsókn í
vikunni en þetta er í þriðja skiptið
sem liðin mætast á tímabilinu.
KFS sló Ísbjörninn út í Lengju-
bikarnum með fimm mörkum
gegn einu og í deildinni með fjór-
um mörkum gegn einu. Núna lauk
leiknum með tveimur mörkum
heimamanna gegn einu marki
gestanna.
Leikmenn Ísbjarnarins mættu með
gríðarlega sterkt lið á Þórsvöllinn og
ætluðu að selja sig dýrt fyrir framan
um það bil fimmtíu áhorfendur.
Stjörnum prýtt lið KFS reið á vaðið
og skallaði Gauti Þorvarðarson
sendingu Einars Kristins Kárasonar
í markið eftir rúmlega þrjátíu mín‑
útna leik.
Tryggvi Guðmundsson fékk pláss
og tíma inni í vítateig Ísbjarnarins í
seinni hálfleik og lét ekki bjóða sér
það tvisvar. Skilaði boltanum snyrti‑
lega í hliðarnetið og KFS því komið
í lykilstöðu. Eftir klaufagang í vörn
gestgjafanna minnkaði Ísbjörninn
muninn og urðu lokamínúturnar
æsispennandi. Ekki tókst gestunum
að jafna metin og er því KFS með
sjö stiga forskot á toppi riðilsins.
Tryggvi Guðmundsson og Gauti
Þorvarðarson, markaskorarar KFS í
leiknum, eru jafnir í öðru til þriðja
sæti yfir markahæstu menn riðilsins
með átta mörk í átta leikjum hvor.
Eyjamenn áttu fulltrúa á
Meistaramóti Frjálsíþróttasam-
bandsins sem fram fór í Kapla-
krika um síðustu helgi. Það var
Hlynur Þorsteinsson hlaupari og
varð hann tvöfaldur Íslands-
meistari.
Hlynur sem keppir undir merkjum
ÍR keppti í 5000 m hlaupi og sigraði
á tímanum 15:01,69 mínútum.
Hann bar einnig sigur úr býtum í
1500 m hlaupi á tímanum 3:55,94
mínútum.
Þetta var 88. Meistaramót Íslands í
frjálsíþróttum og voru keppendur
rúmlega 180.
Með sjö stiga
forskot á toppi
riðilsins
Hlynur tvöfaldur
Íslandsmeistari
Þórarinn Ingi Valdimarsson er
genginn í raðir ÍBV á nýjan leik
eftir að hafa verið í láni hjá Sarps-
borg 08 í Noregi. Hann hefur ekk-
ert nema gott um Noreg að segja
og hefur hann notið þess að vera
þar. Hann segist sjálfur hafa viljað
koma heim og hjálpa ÍBV.
„Eyjamenn eru í vanda staddir og
félagið hefur gert allt fyrir mig í
gegnum tíðina. Vonandi get ég kom‑
ið heim og hjálpað liðinu,“ sagði
Þórarinn Ingi í samtali við vefmiðil‑
inn 433.is
Hann er gríðarlega mikill fengur
fyrir Eyjamenn sem eru nú í vanda
staddir eins og hann segir sjálfur.
Sarpsborg 08 vildi kaupa Þórarinn
en ekki náðist samkomulag við ÍBV
um kaupverð. Þórarinn Ingi getur
því spilað með ÍBV gegn Fram á
sunnudaginn á Hásteinsvelli en bæði
þessi lið eru í bullandi fallbaráttu.
Þórarinn getur spilað flestar stöður
eins og hann hefur sýnt í hvíta bún‑
ingnum. Hann er einungis 24 ára og
á framtíðina fyrir sér í íþróttinni.
Glenn í úrvalsliðið
Jonathan Glenn, framherji ÍBV, hef‑
ur verið valinn í úrvalslið umferða
1‑11 hjá stærsta fótboltamiðli lands‑
ins, Fótbolta.net. Glenn fór mjög illa
af stað í upphafi móts, glímdi við
meiðsli en hefur jafnað sig af þeim
og skorað hvert markið á fætur öðru.
Er nú markahæsti leikmaður Pepsi‑
deildarinnar með sex mörk ásamt
Herði Sveinssyni í Keflavík og
Jeppe Hansen sem lék með Stjörn‑
unni en hefur nú skipt aftur yfir til
Danmerkur. Þetta er mikil viður‑
kenning fyrir Glenn sem á eflaust
eftir að halda áfram á sömu braut í
síðari hluta Íslandsmótsins.
Þórarinn Ingi Valdimarsson er kominn
með leikheimild með ÍBV:
Vildi koma heim
og hjálpa ÍBV
:: Félagið hefur gert allt fyrir mig
í gegnum tíðina :: Vil endurgjalda það
Pepsídeild kvenna
Stjarnan 9 8 0 1 34:7 24
Þór/KA 9 5 2 2 13:9 17
Breiðablik 8 5 1 2 23:6 16
Selfoss 9 5 1 3 22:16 16
Valur 9 4 2 3 19:15 14
Fylkir 8 4 2 2 7:5 14
ÍBV 8 4 0 4 16:10 12
FH 9 2 2 5 7:30 8
Aftureld. 8 1 0 7 6:28 3
ÍA 9 0 0 9 4:25 0
Pepsídeild karla
FH 11 7 4 0 18:6 25
Stjarnan 11 6 5 0 19:13 23
KR 11 6 1 4 15:13 19
Víkingur R. 11 6 1 4 14:14 19
Keflavík 11 4 4 3 17:14 16
Valur 11 4 3 4 16:15 15
Breiðablik 11 2 6 3 13:15 12
Fjölnir 11 2 5 4 17:20 11
Fylkir 11 3 2 6 15:21 11
ÍBV 11 2 4 5 16:19 10
Fram 11 2 3 6 15:22 9
Þór 11 2 2 7 18:21 8