Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Blaðsíða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 2. nóvember 2016
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Landakirkja
Fimmtudagur 3. nóvember
Kl. 20.00 Æfing Kórs Landakirkju
undir stjórn Kitty Kóvács.
Kl. 20.00 Opið hús í KFUM og K
heimilinu, Vestmannabraut. Gengið
inn af Fífilgötunni.
Föstudagur 4. nóvember
Kl. 10.00 Foreldramorgun. ATH nýr
tími. Allir foreldrar velkomnir með
ungviðin.
Kl. 14.30 Litlir lærisveinar.
Laugardagur 5. nóvember
Kl. 13.00 Útför Sveinbjörns
Hjálmarssonar.
Sunnudagur 6. nóvember
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli með
söng, sögu og miklu fjöri, undir
dyggri stjórn sr. Guðmundar Arnar
og Jarls sem eru með stundina.
Kl. 14.00 Allra heilagra messa í
Landakirkju. Þeirra minnst er létust
á liðnu ári. Sr. Guðmundur Örn
prédikar og Kór Landakirkju syngur
undir stjórn Kitty Kóvács.
Kl. 20.00 Æskulýðsfundur hjá
ÆsLand, Æskulýðsfélagi Landa-
kirkju og KFUM og K í Vestmanna-
eyjum.
Mánudagur 7. nóvember
Kl. 15.30 STÁ (6-8 ára) Í stuði með
Guði.
Kl. 17.00 Kirkjustarf fatlaðra.
Helgileiksæfing.
Kl. 18.30 12 spora fundur Vina í
bata. Byrjendahópur.
Kl. 20.00 12 spora fundur Vina í
bata. Framhaldshópur.
Þriðjudagur 8. nóvember
Kl. 10.00 Kaffistofan. Létt spjall
um allt og ekkert. Allir velkomnir.
Kl. 14.00 Fermingarfræðsla.
Kl. 14.00 ETT (11-12 ára) Allir
krakkar í 6. og 7. bekk velkomnir.
Kl. 20.00 Samvera Kvenfélags
Landakirkju í safnaðarheimilinu.
Kl. 20.30 Gídeon fundur í fundar-
herbergi.
Miðvikudagur 9. nóvember
Kl. 10.00 Bænahópurinn með
samveru í fundarherbergi Landa-
kirkju.
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 13.00 Fermingarfræðsla.
Kl. 14.25 Fermingarfræðsla.
Kl. 16.00 NTT (9-10 ára) Allir
krakkar í 4. og 5. bekk velkomnir.
Kl. 19.30 OA fundur í safnaðar-
heimilinu.
Hvítasunnu-
kirkjan
Dagana 3. - 6. nóvember
Fimmtudagur kl. 20:00
Bænastund.
Föstudagur kl. 14:00
Samvera.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma, Guðni Hjálmarsson
prédikar. Kaffi og notalegt spjall á
eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Hlakka mikið til komandi
tíma í starfi hjá ÍBV
Sunna Sigurjónsdóttir er nýr
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar karla hjá ÍBV. Hún hefur hafið
störf og segir verkefnin fjölbreytt,
skemmtileg og hlakkar til komandi
tíma. Sunna er Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Sunna Sigurjónsdóttir.
Fæðingardagur: 27. júní 1984.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Unnusti er Ólafur Kristján
Guðmundsson og eigum við þrjú börn,
þau Katrínu Söru 11 ára, Gumma
Bjarna 8 ára og Sölku Kolbrúnu 1 árs.
Nám/vinna: Lögfræðingur að mennt
og starfa sem framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar karla ÍBV.
Hver eru áhugamál þín: Að ferðast á
nýja staði, líkamsrækt og hesta-
mennska, þó að ég hafi verið í langri
pásu frá þeirri iðkun. Hef vonandi tíma
í það aftur seinna.
Fallegasti staður sem þú hefur komið
á: Hef ferðast mikið í Noregi og landið
algjör náttúruperla sem og Vestmanna-
eyjar.
Uppáhalds matur: Mjög erfið
spurning! Elska mat!
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV að sjálfsögðu og svo
er það Liverpool í ensku. Á engan
sérstakan í uppáhaldi en hef gaman af
því að fylgjast með afreksfólki í
íþróttum.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Heim-
ildamyndir á borð við The Jinx og
Making a murderer. Svo hef ég gaman
af góðum grínþáttum með svörtum
húmor. Svo elska ég the Bachelor, Óla
til mikillar gleði;).
Uppáhalds vefsíða: Skoða mikið
fréttamiðla, bæði íslenska og erlenda,
og stundum bloggsíður. Er svo með
fullt af snjallforritum í símanum
mínum og er Instagram í miklu
uppáhaldi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
lesa: Allt milli himins og jarðar en ef ég
ætti að velja einhvern einn höfund
myndi ég velja Arnald Indriðason.
Hvaða verkefni eru framundan hjá
þér í nýju starfi: Verkefnin eru afar
fjölbreytt. Ég er hægt og bítandi að
koma mér inn í starfið sem leggst mjög
vel í mig. Svo er það bara að undirbúa
komandi tímabil með því frábæra fólki
sem ég starfa með.
Eitthvað að lokum: Ég vil þakka
stuðningsmönnum ÍBV fyrir góðar og
eflandi kveðjur undanfarið. Hlakka
mikið til komandi tíma í starfi hjá ÍBV.
Sunna Sigurjónsdóttir
er Eyjamaður vikunnar
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Það mætti gerast oftar að sýningar
sem slá í gegn í höfuðborginni tylli
niður tá hér í Vestmannaeyjum. Það
gerðist einmitt á fimmtudags-
kvöldið í síðustu viku þegar Ari
Eldjárn og Björn Bragi, tveir
fimmtu af Mið-Íslandshópnum
skemmtu Eyjamönnum á Háaloft-
inu. Náðu þeir upp frábærri
stemningu og er langt síðan
jafnmargir Eyjamenn hafa hlegið
jafn mikið eins og þeir 150 sem
mættu þetta kvöld gerðu.
Sýningar Mið-Íslands hafa slegið í
gegn í Þjóðleikhúsinu en í hópnum
eru margreyndir grínarar, Ari
Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi,
Jóhann Alfreð og Dóri DNA. Ari og
Björn Bragi sýndu og sönnuðu að
þeim er ekki fisjað saman þegar
kemur að því að hæðast að sjálfum
sér og öðrum. Og þeim er ekkert
heilagt. Framsókn fékk sinn
skammt, fjölskyldur þeirra,
Íslendingar yfir höfuð og svo að
sjáfsögðu Eyjamenn sem hlógu
aldrei hærra en þegar spjótin
beindust að þeim.
Já, þeir Ari og Björn Bragi slógu í
gegn þetta kvöld og eiga greiða leið
að yngra fólki sem fyllti Háaloftið.
Það er í gríninu eins og rokkinu,
hver kynslóð á sér sínar stjörnur.
Fólk sem ólst upp við Ómar
Ragnarsson og Halla og Ladda sat
heima en hefði örugglega ekki
skemmt sér síður því grín er alltaf
grín þó áherslurnar séu aðrar.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Vel þegin heimsókn grínara
grínaranna frá Mið-Íslandi
Björn Bragi
Lilja , Hildur, Hjalli og Stefanía.
Ari Eldjárn
Áhorfendur skemmtu sér vel eins og sjá má.
Minningarkort
kvenfélagsins
líknar
Stefanía Ástvaldsdóttir
Hrauntúni 34 / s. 481-2155
Elínborg Jónsdóttir
Hraunslóð 2 / s. 481-1828
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Brimhólabr. 28 / s. 481-3314
Kristín Gunnarsdóttir
s. 481-2183 / 861-1483
Rn.0582-4-250355 / Kt. 430269-2919
Allur ágóði rennur í
sjúkrahússjóð félagsins
Minningarkort
kvenfélags
landakirkju
Svandís Sigurðardóttir
Strembugötu 25 / 481-1215
Marta Jónsdóttir
Helgafellsbraut 29
481-2192 /661-9825
Minningarkort
slysavarna-
deildarinnar
eykyndils
Kristín Elfa Elíasdóttir
Áshamri 17 / s. 481-2146
Bára J. Guðmundsdóttir
Kirkjuvegi 80 / s. 481-1860
Rn.0582-4-250442 / Kt. 470383-0389
Minningarkort
krabbavarnar
vestMannaeyja
Hólmfríður Ólafsdóttir
Túngötu 21 / sími 481-1647
Ester Ólafsdóttir
Áshamri 12 / sími 481-2573
Karólína Jósepsdóttir
Foldahraun 39e s. 534 9219
Minningasjóður
ingibjargar
Marinósdóttur
- Þroskahjálp í
vestMannaeyjuM-
Ólöf Margrét Magnúsdóttir
s. 861-3245
Unnur Baldursdóttir
s. 481-2081/897-2081