Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Side 13
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 2. nóvember 2016
Áramótin 2013 var renniverkstæðið
Háin stofnað en það er staðsett í
húsakynnum Eyjablikks í Flötum
27. Verkstæðið er í eigu þeirra
Alfreðs Halldórssonar og Stefáns
Þórs Lúðvíkssonar og er sá
fyrrnefndi eini fasti starfsmaður
verkstæðisins. Fyrirtækið fæst við
alls konar rennismíði og fer
afraksturinn að langmestum hluta
til fyrirtækja á borð við Marel.
Hver var kveikjan að þessu
fyrirtæki? „Ég var náttúrulega alltaf
á sjó en svo voru bara ákveðin
tímamót sem fólu í sér breytingar
þannig að ég fór að skoða hvort það
væri grundvöllur fyrir því að brasa
eitthvað í landi. Ég skoðaði markað-
inn í höfuðborginni, fór í nokkur
fyrirtæki sem þurfa á þessari
þjónustu að halda og fékk jákvæð
viðbrögð þannig að það kom ekkert
annað til greina en að demba sér í
þetta og úr varð þetta verkstæði,“
segir Alfreð.
Aðspurður segist Alfreð ekki hafa
fengið leið á sjónum sem hefur
verið lifibrauð hans undanfarin ár.
„Ég var búinn að vera á Gullberginu
hjá Eyjólfi Guðjónssyni frá 1997 og
fór svo yfir til Vinnslustöðvarinnar
þegar Gullbergið sigldi þangað inn.
Síðasta skipið sem ég var á hjá
Vinnslustöðinni var Gandí VE en
þegar henni var lagt kom smá
millibilsástand hjá mér og var ég
m.a. yfirvélstjóri á grænlenskum
frystitogara um tíma. Þar voru
langar útiverur sem gátu staðið upp
í tvo mánuði og var það ekki að
heilla mig þannig að mig langaði
bara að komast aðeins í land og út
frá því var þetta verkstæði stofnað.
Ég hef nú samt enn smá tenginu við
sjóinn, ég er hafnsögumaður hjá
höfninni á móti Adda Steina þannig
ég fæ enn þá smá salt í lungun sem
er mjög fín tilbreyting frá vinnunni
á renniverkstæðinu. Sjómennskan
togar alltaf aðeins í mann,“ segir
Alfreð.
Í upphafi var keyptur nýr fræsari og
notaður rennibekkur á verkstæðið
en um síðustu áramót bættu þeir hjá
Hánni við sig nýjum sjálfvirkum
rennibekk með matara sem er mjög
hentugur fyrir fjöldaframleiðslu.
Vélar fyrirtækisins eru allar frá
bandaríska framleiðandum Haas og
eru tölvustýrðar þannig að keyrsla
vélanna byggir á forritun og
tölvuvinnslu.
En hvernig lýsir Alfreð starfsemi
fyrirtækisins? „Við erum renni-
verkstæði og tökum að okkur
alhliða renni- og fræsivinnu fyrir
fyrirtæki sem þurfa á slíkri þjónustu
að halda. Okkar aðalstarfssvið er að
mestu í íhlutasmíði fyrir fyrirtæki
sem eru að smíða fiskvinnsluvélar,
færibönd og búnað í matvælageir-
anum og er Marel okkar stærsti
viðskiptavinur. Við erum með
samninga við þá um ákveðnar vörur
sem við sjáum um að skaffa fyrir
þeirra framleiðslu. Við erum svo
einnig að vinna fyrir fleiri minni
fyrirtæki í þessum geira sem þurfa á
hinum ýmsu íhlutum að halda,“
segir Alfreð.
Eftirspurnin eftir þjónustu renni-
verkstæðisins er góð, segir Alfreð
og er verkefnastaðan bara ljómandi
fín. „Þetta helst náttúrulega í hendur
við þá aðila sem við erum að
framleiða fyrir, ef það er nóg að
gera hjá þeim, þá er nóg að gera hjá
okkur og eins og staðan er í dag þá
er nóg að gera þannig að við erum
bara sáttir,“ segir Alfreð.
Eins og fyrr segir þá er Alfreð eini
fasti starfsmaðurinn á verkstæðinu
en oft og tíðum fær hann lausamenn
til að hlaupa í skarðið þegar þess er
þörf. „Ef það eru einhver stór
fjöldaframleiðslu verkefni þá fæ ég
stundum menn frá Eyjablikk til að
hjálpa mér. Að sama skapi hafa
strákarnir mínir og dóttir mín verið
að hjálpa mér í framleiðslunni. Á
sumrin hefur yngri strákurinn minn
verið að vinna hjá mér í fullri vinnu
og hefur honum líkað þetta mjög
vel,“ segir Alfreð og bætir við að
það sé afar hentugt fyrir báða aðila
að deila húsnæði. „Við erum að
samnýta ýmis tæki þannig þetta
styður hvort við annað.“
Mun starfsmönnum fjölga eitthvað
á næstunni? „Já, ég hef hug á því
að bæta við einum föstum manni í
starf en það er bara ekkert auðvelt
að finna rennismiði í dag, þeir eru
ekki á hverju strái,“ segir Alfreð.
En hver er sagan á bakvið nafnið?
„Hún er nú ekki flókin, við erum
hérna undir Hánni. Við vorum búin
að vera að velta þessu fyrir okkur
um stund þegar Jóhanna á skrif-
stofunni lítur út um gluggann hjá
sér og við blasir þetta myndarlega
fjall og hún segir: „Af hverju látum
við fyrirtækið ekki heita Renniverk-
stæðið Háin?“ Þar með var það
slegið og neglt,“ segir Alfreð að
lokum.
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
:: Renniverkstæðið Háin með nýjastu tækni við framleiðsluna ::
Smíðar íhluti fyrir Marel og fleiri fyrirtæki
í matvælageiranum
Sjálfvirki rennibekkurinn.Alfreð Halldórsson ásamt Hermanni Long starfsmanni Eyjablikks.
Til leigu jarðhæð í Básum
Til leigu jarðhæð í Básum, u.þ.b. 150 fm2
Frábær staðsetning fyrir verslun,
ferðaþjónustu eða veitingahús.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og
friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 577/2016. Samkvæmt
úthlutunarreglunum er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til:
viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum.
viðhalds annarra húsa og mannvirkja sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa
og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna
byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs
ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2016. Umsóknir sem berast eftir að
umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á
leiðbeiningarit um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa
sem finna má á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, undir gagnasafn og á
Húsverndarstofu í Borgarsögusafni Reykjavíkur/Árbæjarsafni.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2017
Upplýsingar veitir Gísli í síma 774-5959
eyjaeignir@eyjar.is