Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Side 1
Eyjafréttir Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Vestmannaeyjum 5. júlí 2017 :: 44. árg. :: 27. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Eins og fram kom í síðasta tölublaði Eyjafrétta var opinn kynningarfundur á þriðjudaginn í síðustu viku á vegum stórfyrirtækisins Merlin Entertainments, Vestmannaeyjabæjar og Þekkingarseturs Vestmannaeyja um væntanlega uppbyggingu á griðastað hvíthvala í Vestmanna- eyjum. Á fundinum fóru fulltrúar Merlin í gegnum verkefnið af nokkurri nákvæmni en eins og gefur að skilja er það gríðarlega stórt í sniðum. Eins og fram hefur komið í Eyjafréttum hefur tekið tíma að koma málinu í gegnum stjórnsýsluna og fékk blaðamaður þau svör frá Umhverfisstofnun í gær að verkefnið væri enn til umsagnar hjá sérfræði- nefnd. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, opnaði umræddan fund með stuttri yfirferð á upphafi verkefnisins þar sem hann m.a. minntist á að honum hafi ekki litist á blikuna í fyrstu. Eftir hafa lagst í rannsóknarvinnu á umræddu fyrirtæki var honum og Páli Marvin Jónssyni, framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja, ljóst að um var að ræða virkilega spennandi verkefni. Næst var röðin komin að Merlin Entertainments en frá þeim voru komnir sjö fulltrúar til að kynna verkefnið nánar fyrir bæjarbúum. James Burleigh, aðal sendiherra Sea Life sem er keðja í eigu Merlin Entertainments, og félagar fóru yfir víðan völl í sinni yfirferð, kynntu sig og fyrirtækið sem óhætt er að segja að sé gríðar- lega stórt á heimsvísu. Í Eyjum næstu 30 - 40 árin Hvalina eignuðust Merlin Entertain- ments eftir að hafa fest kaup í skemmtigarði í Shanghai árið 2012 og er talið að í dag séu hvalirnir um 12 ára gamlir. Lífslíkur hvíthvala úti í villti náttúru eru á bilinu 35-50 ár þannig að ef allt gengur eftir gætu hvalirnir þrír allt eins verið næstu 30-40 árin í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að hvalirnir munu einungis vera þrír til að byrja með er gert ráð fyrir að hægt verði að hýsa allt að tíu hvali í einu. Vegna þess hve háðir hvalirnir eru mönnum mun þeim aldrei verða sleppt út í villta náttúru en hingað til hafa þeir einungis eytt þriðjungi ævi sinnar í sjó. Tilgangurinn með verkefninu er því einungis að veita hvölunum griðastað þar sem þeir geta sest í helgan stein í Klettsvík. Í samtali við blaðamann eftir fundinn sögðu þau James Burleigh og Christine Dure-Smith frá Merlin Entertainments m.a. að tilgangurinn með verkefninu væri að veita hvölunum griðastað en ekki græða peninga og að engin fordæmi fyrir svona verkefni. >> Nánar á bls. 10 Einar KriStinn HElgaSon einarkristinn@eyjafrettir.is Kynningarfundur Merlin Entertainments: Tilgangurinn ekki græða peninga :: heldur veita hvölunum griðarstað :: Gætu verið í Eyjum í 30-40 ár Orkumótinu lauk á laugardaginn og þegar Stjörnustrákar voru krýndi Orkumótsmeistarar 2017 eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleik gegn Gróttu. >> 20 Sjá goSið miSjöfnum augum Ómetanleg Söfn í eyjum >> 18 DagSkrá goSlokahátíðar >> >> 10

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.