Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Síða 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
Blaðamenn:
Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is
Sara Sjöfn grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is
ábyrgðarmaður: Ómar garðarsson.
Prentvinna: landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
Símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, tvistinum,
Kránni, Vöruval, Herjólfi, Krónunni og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Á fundi bæjarráðs þann 27. júní sl.
var gólfefni stóra sals Íþróttamið-
stöðvarinnar tekið til umræðu en
ástand þess hefur verið óviðunandi í
lengri tíma.
Upprunalega var málið tekið fyrir
á fundi framkvæmda- og hafnarráðs
þann 14. júní sl. og var þar gerð
bókun svohljóðandi: „Ráðið tekur
undir áhyggjur iðkenda og
starfsmanna um gæði núverandi
gólfefnis. Ráðið samþykkir að óska
eftir við bæjarráð að veitt verði
aukafjárveiting á árinu 2017 að
upphæð 43 milljónir króna svo
ráðast megi í endurbætur sem fyrst.
Ráðið samþykkir að fela starfs-
mönnum að ganga til samninga við
Sporttæki ehf. með fyrirvara um
samþykki bæjarráðs. Ennfremur
leggur ráðið áherslu á að áfram
verði unnið að endurbótum vegna
þakleka.“
Í lok fundargerðar segir að
bæjarráð samþykki erindið og feli
bæjarstjóra framgang málsins og
gerð viðauka.
Tólf félagar í Myndlistarfélagi
Vestmannaeyja verða með sýningu í
sal Listaskólans við Heiðarveg um
Goslokahelgina sem verður opnuð
föstudaginn 7. júlí kl. 14:00. Þema
sýningarinnar er Veður.
Myndlistarfélag Vestmannaeyja
var stofnað 30. apríl 2009 af átta
konum, sem allar höfðu sótt
námskeið hjá Steinunni Einars-
dóttur. Nú eru félagsmenn orðnir
25, 23 konur og 2 karlar.
Félagið hefur áður haldið átta
sýningar á verkum félagsmanna
víðs vegar um bæinn, auk þess sem
það hefur staðið fyrir námskeiðum
fyrir félagsmenn.
Opnunartímar sýningarinnar eru
föstudaginn frá 14:00 til 18:00,
laugardaginn frá 14:00 til 18:00 og
sunnudaginn frá 14:00 til 17:00.
Myndina tók Sif Sigtryggsdóttir í
KFUM&K húsinu, á námskeiði
hjá Þorgrími Andra Einarssyni.
Söngvararnir Silja Elsabet Brynj-
arsdóttir og Alexander Jarl
Þorsteinsson verða með tónleika í
Eldheimum klukkan 17.30 á
laugardaginn þar sem þau ætla að
bjóða upp á fjölbreytta dagskrá.
Húsið opnar klukkan 17.00 og
kostar miðinn 2000 krónur.
Undirleikari er Kjartan Valdemars-
son.
Þau ætluðu að halda tónleika í
Eyjum milli jóla og nýárs sl. vetur
en af ýmsum ástæðum féllu þeir
niður. Það er kjörið að nýta
tækifærið núna til að hlýða á
söngfuglana. „Þetta verða klassískir
tónleikar en að sjálfsögðu tökum
við nokkur Eyjalög,“ sagði Silja
Elsabet.
Bæði tóku þau fyrstu skrefin í
Vestmannaeyjum og eru nú í
söngnámi í London. Alexander Jarl
var í vetur á sínu fyrsta ári í Royal
College of Music en Silja Elsabet á
öðru ári í Bachelor námi í söng við
Royal Academy of Music í London.
Hún segist hlakka mikið til.
„Dagskráin verður fjölbreytt og
skemmtileg. Hún verður blönduð,
klassík og léttari lög og að
sjálfsögðu Eyjalög,“ sagði Silja
Elsabet sem vonast til að sjá sem
flesta.
Goslokahátíð 2017 :
Myndlistarfélagar sýna í sal
Listaskólans
Niðurstaða frá Úrskurðarnefnd
velferðarmála vegna umsóknar um
ferðaþjónustu lá fyrir síðasta fundi
fjölskyldu- og tómstundaráðs.
Tilefnið er að í nóvember 2016
barst umsókn um að sveitarfélagið
myndi gera 12 mánaða tilrauna-
samning við þjónustuþega, um allt
að 60 leigubílaferðir í Vestmanna-
eyjum og á höfuðborgarsvæðinu í
mánuði hverjum.
Í fundargerð segir að beiðnin hafi
verið tekin fyrir á fundi ráðsins
þann 30. nóvember 2016 sem
hafnaði erindinu á þeim forsendum
að það félli ekki undir reglur
Vestmanneyjabæjar um ferðaþjón-
ustu sveitarfélagsins.
Úrskurðarnefnd velferðarmála
felldi úr gildi ákvörðun ráðsins á
þeim forsendum að ekki hafi farið
fram nægilegt þjónustumat við
umsókn viðkomandi um ferðaþjón-
ustu. Úrskurðarnefndin metur svo
að beina hefði átt umsókninni í slíkt
ferli eftir að hún barst sveitar-
félaginu. Vestmannaeyjabæ er því
gert að taka umsóknina til nýrrar
meðferðar sem þegar hefur verið
gert.
Jónas Sigurðsson og Ritvélar
framtíðarinnar munu koma fram í
Höllinni á fimmtudagskvöld en þeir
eru hluti af afar fjölbreyttri og
skemmtilegri dagskrá yfir Gos-
lokahelgina. Blaðamaður ræddi
stuttlega við Jónas sem kvaðst
spenntur fyrir Eyjaferðinni.
Það verða tónleikar á fimmtudag-
inn, við hverju má fólk búast?
„Bara algjöru dúndri, ég held að
þetta verði rosa gaman. Ég hef verið
á leiðinni til í Eyja í langan tíma en
nú höfum við verið á tveggja vikna
túr um landið og komum við í
Eyjum á leiðinni á Eistnaflug,
tímasetningin gæti ekki verið betri,“
sagði Jónas hress að vanda.
Lagið „Vígin falla“ var um skeið á
toppi vinsældalista Rásar 2 fyrr á
þessu ári. Er ekki alltaf gaman að
sjá lögin sín njóta velgengni? „Jú,
rosa gaman, við vorum líka á
toppnum á Bylgjunni á tímabili sem
er mjög skemmtilegt. Sum lögin ná
toppnum á vinsældalista og önnur
komast í spilun víðar sem er ekki
síður skemmtilegt,“ sagði Jónas og
bætir við að hann hafi alltaf haft
gaman að því að koma til Eyja að
spila.
„Mér finnst það alltaf mjög gaman
alveg frá því ég var í Sólstranda-
gæjunum, það voru margir
Eyjamenn sem tóku ástfóstri við þá
hljómsveit. Eftir að hljómsveitin
hætti kom ég reglulega á 67 til að
trúbba og það var alltaf rosa partí.
Maður er líka svo tengdur menn-
ingunni hérna, þessari útgerðar-
menningu. Svo kom ég náttúrulega
fram á Þrettándanum með lúðra-
sveitinni um árið og það var alveg
geggjað,“ sagði Jónas að lokum.
Bæjarráð:
Samþykkt að
ráðist verði í
framkvæmdir á
gólfi stóra sals
Íþróttamið-
stöðvarinnar
Fjölskyldu- og tómstundaráð:
Brugðist við
niðurstöðu
Úrskurðar-
nefndar vel-
ferðarmála
Goslokahátíð 2017 :
Jónas Sig lofar dúndur
stemningu í Höllinni
Goslokahátíð 2017 : Silja Elsabet og Alexander Jarl
í Eldheimum á laugardaginn:
Lofa skemmtilegri og
fjölbreyttri dagskrá
Ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Einar KriStinn HElgaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Alexander Jarl og Silja Elsabet halda tónleika í Eldheimum.
Jónas Sigurðsson.