Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Side 23

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Side 23
23Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 ÍþRóttiR u m S j Ó n : Einar KriStinn HElgaSon einarkristinn@eyjafrettir.is Framundan Laugardagur 8. júlí Kl. 14:00 KFS – Stokkseyri 4. deild karla B riðill Sunnudagur 9. júlí Kl. 17:00 ÍBV – Breiðablik Pepsi-deild karla Laugardagur 15. júlí Kl. 14:00 Elliði – KFS 4. deild karla B riðill Sunnudagur 16. júlí Kl. 16:00 KA – ÍBV Pepsi-deild karla Knattspyrna | Pepsi-deild kvenna :: KR 0:2 ÍBV :: ÍBV 3:1 Valur Sjöundi sigurinn í röð í deild og bikar :: Mæta Grindavík á heimavelli í undanúrslitum Borgunarbikarsins ÍBV og KR mættust í tíundu umferð Pepsi-deildar kvenna á þriðjudaginn í síðustu viku þar sem Eyjakonur unnu góðan 0:2 sigur á heimakon- um. Fyrir leikinn voru KR-ingar í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig en ÍBV í fjórða sæti með 19 stig. Eins og kannski flestir vita voru Eyjakonur að spila á föstudag- inn í Borgunarbikarnum og því hvíldin af skornum skammti miðað við lið KR-inga sem fékk viku til að skríða saman eftir fimm marka tap gegn Valskonum í umferðinni á undan. Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 25. mínútu leiksins en þar var að verki hin kanadíska Cloé Lacasse eftir sendingu frá Katie Kraeutner. Fram að þessu að hafði verið mikið jafnræði með liðunum. Fimm mínútum áður en flautað var til hálfleiks komst Kristín Erna Sigurlásdóttir í upplagt marktæki- færi en skot hennar geigaði. Staðan var því 0:1 þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik. Strax á 53. opnuðu liðsmenn ÍBV vörn KR-inga upp á gátt en tilraun Kristínar Ernu rataði framhjá markinu. Nokkrum mínútum síðar þurfti Adelaide Gay að taka á honum stóra sínum í marki ÍBV en þá slapp Sigríður María Sigurðar- dóttir ein í gegn. Undir lok leiks voru heimamenn í KR komnir framarlega á völlinn til að freista þess að ná jöfnunarmarki en í staðinn tvöfaldaði Cloé forystuna fyrir ÍBV og úrslitin ráðin. Góður sigur á Val Eyjakonur voru aftur í eldlínunni þegar þær tóku á móti Val í deildinni sl. sunnudag en þar héldu þær uppteknum hætti og höfðu betur 3:1. Með sigrinum var ÍBV að vinna sinn fimmta deildarsigur í röð og sjöunda leikinn í röð ef bikar- keppnin er meðtalin. Sóley Guðmundsdóttir kom Val yfir þegar hún varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 14. mínútu. Heimakonur voru þó ekki lengi að jafna metin en Laufey Björnsdóttir, leikmaður Vals, skoraði sömuleiðis sjálfsmark skömmu eftir mark Sóleyjar og var staðan því jöfn í hálfleik. Í síðari hálfleik var röðin komin að Cloé Lacasse en hún slapp ein í gegn á 57. mínútu eftir góða sendingu frá Sóleyju Guðmunds- dóttur og kláraði færi sitt vel. Tveimur mínútum síðar bætti Cloé við sínu öðru marki og þriðja marki ÍBV eftir frábæran sprett upp vinstri kantinn, þar sem hún skildi varnarmenn Vals eftir og skilaði boltanum snyrtilega framhjá markverðinum. Fleiri urðu mörkin ekki og sannfærandi sigur stað- reynd. Með sigrinum komst ÍBV upp í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar en liðið er einu stigi fyrir ofan Breiðablik sem á sama tíma tapaði fyrir Þór/KA. Hlé verður gert á Pepsi-deild kvenna á meðan EM stendur og verður næsti leikur ÍBV því ekki fyrr en 10. ágúst. Dregið var í Borgunarbikarnum í gær og var niðurstaðan sú að ÍBV fær Grindavík í heimsókn til Eyja. Í hinni viðureigninni mætast síðan Stjarnan og Valur. Leikirnir fara fram 13. ágúst. Nú þegar rétt tæpar tvær vikur eru í fyrsta leik Íslands á EM í knatt- spyrnu ákvað blaðamaður að slá á þráðinn til Sigríðar Láru Garðars- dóttur, landsliðskonu og leikmann ÍBV. Sigríður Lára hefur verið að stíga sín fyrstu skref með lands- liðinu síðustu misseri og gert það með ágætum. Sigríður Lára hefur sömuleiðis verið lykilmaður í sterku liði ÍBV í sumar sem situr í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar ásamt því að vera komið í undanúrslit Borgunarbikarsins. Hvernig var tilfinningin að sjá nafn þitt meðal leikmanna sem fara á EM? Er þetta æskudraumur að rætast? „Jú, klárlega. Það var frábær tilfinning að fá að vita að ég sé á leið á mitt fyrsta stórmót,“ sagði Sigríður Lára sem fór rakleiðis á æfingu með landsliðinu daginn eftir sigurinn á Val. „Undirbúningurinn byrjaði núna á mánudag, strax eftir síðasta leik í deildinni. Það er mjög gott að fara inn í EM pásuna með sigur. Annars er stíf en mjög skemmtileg dagskrá framundan með landsliðinu í Reykjavík þar sem verður æft á fullu áður en við förum út til Hollands þann 14. júlí. Þetta er allt mjög spennandi og frábær upplifun að takast á við svona stórt verkefni.“ Erum með sterka liðsheild Fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn sterku liði Frakka 18. júlí og síðan koma leikir gegn Sviss og Austurríki í kjölfarið. Hvernig metur þú möguleikana á að komast upp úr riðlinum? Þetta er mjög sterkur riðill en markmið liðsins er að komast upp úr riðlinum og ná verðlaunasæti. Við erum með sterka liðsheild og erum öll að stefna í sömu átt,“ sagði Sigríður Lára. Nokkrir fastamenn landsliðsins hafa meiðst í aðdraganda móts og munu vera fjarverandi á mótinu og segir Sigríður Lára það vissulega hafa áhrif. „Auðvitað er það mikið áfall að missa lykilleikmenn fyrir svona stórmót, eins og til dæmis Margréti Láru og Elísu. En það kemur maður í mann stað, við erum með frábæran hóp og erum tilbúnar að leggja mikið á okkur.“ Keppni eins og EM getur verið góður vettvangur fyrir leikmenn til þess að vekja athygli á sér meðal stærri liða í heiminum. Gætir þú hugsað þér að færa þig um set ef tækifæri gæfist eftir sumarið? „Ég er fyrst og fremst að einbeita mér núna að EM og ÍBV. Það kemur allt í ljós fyrr en síðar. En draumurinn er að fara út í atvinnumennsku,“ sagði Sigríður Lára að endingu. Kári Garðarsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna í handbolta hefur valið þær 16 stelpur sem taka þátt í Scandinavian Open Championship í Helsingborg í Svíþjóð. ÍBV á tvo fulltrúa í hópnum, þeir eru Sandra Erlingsdóttir og Þóra Guðný Arnarsdóttir. Sandra hefur verið lykilmaður í liði ÍBV síðan hún gekk til liðs við félagið og var hún m.a. valin efnilegasti leikmaður Olís-deildarinnar fyrir framgöngu sína á liðnu tímabili. Keppt verður dagana 20. - 22. júlí en þar mun íslenska liðið mæta Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Handbolti | Sandra og þóra Guðný í lokahópi hjá U-19 Knattspyrna | EM 2017: Frábær upplifun að takast á við svona stórt verkefni :: Fyrsti leikur Íslands verður þriðjudaginn 18. júlí :: Markmið liðsins að komast upp úr riðlinum Clara Sigurðardóttir, leikmaður ÍBV, er um þessar mundir á Norðurlandamóti með U-17 ára liði Íslands í knattspyrnu en mótið fer fram í Oulu í Finnlandi. Á mótinu leikur Ísland í riðli með Finnum, Frökkum og Svíum og er liðið sem stendur í öðru sæti riðilsins eftir 2:1 sigur á Finnum og og 1:0 tap gegn Frakklandi. Knattspyrna | Clara Sig- urðardóttir í lokahópi hjá U-17 Eyjastúlkurnar í landsliðinu á æfingamóti í Algarve fyrr á árinu ásamt Írisi Sæmundsdóttur. Margrét og Elísa Viðarsdætur, Íris, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Sigríður Láru Garðarsdóttir og Fanndís Friðriks- dóttir. Þær systurnar Margrét og Elísa leika þó ekki með landsliðinu á EM að þessu sinni vegna meiðsla. Liðsmenn ÍBV að fagna jöfnunarmarkinu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.