Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 12

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Qupperneq 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. júlí 2017 Þó 44 ár séu liðin frá Heimaeyjar- gosinu sem hófst aðfararnótt 23. janúar 1973 og hafði mikil áhrif á samfélagið í Vestmannaeyjum eru enn mörg mál óuppgerð. Því fékk Gísli Stefánsson, sem fæddist 1987 og hefur lengst af búið í Eyjum að kynnast við vinnslu á BA ritgerð sinni í félagsvísindum við Háskól- ann á Akureyri. Fyrir það fyrsta komst hann að því hvað hann vissi lítið um gosið og í öðru lagi hvað vantar mikið upp á að hið gríðarlega áfall sem gosið var fyrir íbúana 5300 sem hér bjuggu hafi verið gert upp. Ritgerðina kallar hann; Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og er þar vísað til afleiðinga gossins þar sem 400 hús fóru undir hraun og bærinn reis úr ösku í þess orðs fyllstu merkingu. Lykilhugtök ritgerðarinnar eru Heimaeyjargosið, sameignarminni, upplifendur og afkomendur. Sameignarminni er fræðiheiti yfir sameiginlega upplifun fólks sem er samt svo mismunandi. Sameignar- minni nær líka til þeirra sem á eftir koma og hvernig þeirra upplifun er á atburðum sem þau hafa aðeins heyrt af. Sameignarminni hefur mikið verið rannsakað þar sem stórir viðburðir eins og stríð og náttúruhamfarir eru viðfangsefnið. Leitar Gísli víða fanga við gerð skýrslunnar. Gísli nálgast verkefnið á þessum forsendum og fékk til liðs við sig tvo rýnihópa, fólk sem upplifði gosið og fólk sem fæddist eftir gosið 1973. Misjöfn upplifun Í samtali við Eyjafréttir segir Gísli að upplifun hópanna sé misjöfn og líka hvernig þetta sneri við körlunum sem voru úti í Eyjum við björgunarstörf og svo konurnar sem þurftu að halda fjölskyldunni saman við allt aðrar og erfiðari aðstæður en áður. „Þær voru með áhyggjur af körlunum sem stóðu í baráttu við náttúruöflin og allt í einu voru þær á hrakhólum með húsnæði, staddar í Reykjavík, sumar í fyrsta skipti og ekki með bílpróf. Niðurstaðan er að allt miðaðist við að koma aftur. Þetta var á pari við stríð þar sem allir sem í því lenda stefna á að koma aftur heim,“ segir Gísli sem framan af þekkti aðeins tvær sögur úr eigin fjölskyldu úr gosinu. „Önnur er frá móður minni sem er enn þann dag í dag mjög þakklát fyrir að hafa aldrei þurft að taka Gísla sögu Súrssonar prófið sem leggja átti fyrir að morgni 23. janúar 1973 í Gagnfræðaskólanum. Hin var þegar afi var heima á Vallar- götunni og stór hraunmoli kom inn um stofugluggann. Svo fór ég að spjalla betur við mömmu og þá kom fullt af sögum. Nákvæmlega svona voru viðbrögðin þegar ég byrjaði að tala við hópana, sögurnar komu.“ Það var þvert á það sem leiðbein- andi Gísla, dr. Þóroddur Bjarnason átti von á. „Hann hélt að eftir svona mörg ár yrði erfitt að fá fólk til að opna sig. Það var því lagt upp með að kanna hvernig fólki leið. Sjálfan langaði mig til að vita í hvaða ljósi mín kynslóð sér gosið og bera saman við hina sem eldri eru.“ Lítið talað Í formála segir Gísli: „Fólkið sem upplifði gosið hefur kosið að tala sem minnst um upplifun sína af gosinu nema þá þætti hennar sem eru gamansamir og skemmtilegir. Erfiðum upplifunum hefur frekar verið pakkað niður og þær faldar fyrir nýrri kynslóðum. Í þessari rannsókn er munur á sameignar- minni þeirra sem upplifðu gosið og komu aftur og afkomenda þeirra kannaður. Niðurstaðan er sú að sameignarminni afkomendanna einkennist af glansmynd sem inniheldur fyrst og fremst hug- myndir um hetjudáðir fólksins og sigur þeirra á náttúruöflunum vegna þess hve óaðgengilegar persónu- legar upplifanir af gosinu eru.“ Gísli notar Eldheima sem vettvang fyrir rannsóknir sínar. „Í ritgerðinni er safnið og upplifanir fólks af því nýtt til þess að fá það, sérstaklega þá sem eldri eru, til að tala um upplifun sína af gosinu og hjálpa rannsakanda að skilja þá upplifun betur,“ segir Gísli. „Vestmannaey- ingum má í grófum dráttum skipta í tvo hópa. Annars vegar hópinn sem upplifði gosið, kom aftur og byggði upp eyjuna og hins vegar hópinn sem telst til afkomenda þeirra. Er munur á sameignarminni þessara tveggja hópa hvað Heimaeyjargosið varðar og ef svo er í hverju felst sá munur og hvað skýrir hann?“ spyr Gísli. Eldheimar hreyfðu við fólki „Það var betra að fá eldri hópinn til að nota Eldheima sem upphafs- punkt og varð líka til þess að spurningarnar urðu þeim erfiðari og persónulegri. En þarna fór umræðan í gang,“ segir Gísli og niðurstaðan er skýr. „Hún er tvíþætt, upplifunin er mjög ólík hjá þeim sem upplifðu gosið og hinna sem á eftir komu. Þeirra upplifun var ekki í samræmi við það sem gerðist í raun og veru. Þau eldri misstu öll eitthvað í gosinu en þau hafa aldrei náð að opna sig um hvernig þeim leið og líður ennþá. Það lentu allir í erfiðleikum en á mismunandi hátt,“ segir Gísli sem sér þó jákvæðar hliðar á þessum ógnaratburði sem gosið var. „Það nær að sameina Eyjamenn og gera unga fólkið stolt af upprun- anum.“ Öflun gagna Til öflunar gagna var stuðst við tvo rýnihópa. Fyrri hópurinn samanstóð af fimm einstaklingum, allir fæddir eftir gosárið 1973 og áttu það sameiginlegt að búa í Vestmanna- eyjum og eiga ættingja og vini sem upplifðu gosið. Þessir fimm einstaklingar voru á ólíkum aldri, tvö fædd á áttunda áratugnum, tvö á þeim níunda og einn var fæddur á tíunda áratugnum. Í seinni hópnum voru líka fimm sem bjuggu í Vestmannaeyjum þegar gosið hófst og fluttu aftur heim til Eyja eftir gos. Sum þeirra höfðu búið og starfað á meginlandinu á meðan gosið stóð yfir en aðrir tekið þátt í björgunaraðgerðum í Vestmanna- eyjum á gostímanum. Þau voru einnig á ólíkum aldri. Tvö þeirra eru fædd á fimmta áratugnum, tvö á þeim sjötta og einn á þeim sjöunda. Allir þátt- takendur í rannsókninni áttu það sameiginlegt að hafa farið í gegnum sýninguna í Eldheimum. Undir báða hópana voru bornar sömu 5 spurningarnar. Fyrstu þrjár spurningarnar sneru að minningar- safninu Eldheimum og síðustu tvær spurningarnar að gosinu sjálfu. 1. Hvað finnst ykkur um safnið Eldheima og sýninguna þar? 2. Hvaða tilfinningar vakna þegar farið er í gegnum þessa sýningu? 3. Er sýningin í Eldheimum í samræmi við upplifun fjöl- skyldu ykkar og vina af gosinu? 4. Hvaða þýðingu og afleiðingar hefur gosið fyrir samfélagið sem er í Eyjum í dag? 5. Hver er ímynd ykkar af gosinu? Þ.e. hvað er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar þið hugsið um gosið? Er það af jákvæðum eða neikvæðum toga? Niðurstöður Opinská umræða um Heimaeyjar- gosið og fylgifiska þess er ekki algeng í Vestmannaeyjum. Fyrir suma er það einfaldlega of erfitt umræðuefni. Þegar ég lauk viðtalinu við eldri hópinn spurði ég þau hvort þau hefðu einhvern tíma fyrr sest niður og rætt gosið í líkingu við það sem hópurinn hafði gert. Almennt voru þau sammála um að það hafi ekki gerst áður og alls ekki af álíka tilefni. - Ja, ekki í þessum tilgangi. - Bara svona í vinahóp. - En kannski ekki í klukkutíma. - Nei... en þú veist... [við spurðum okkur] hvernig datt okkur í hug að flytja hingað [aftur]... Það eru margar mismunandi ástæður fyrir því hvers vegna fólk ræðir þetta lítið sín á milli en ljóst er að úrvinnsla áfallsins sem fylgir því að missa líkt og margir gerðu er takmörkuð. Fólk lýsir ótrúlegum missi þegar það loksins opnar á umræðuna. - Þetta var ekki mjög gott. Eins og [þegar] ég kom hérna á fimmta degi. Þá var nú suðaustan átt og það var svona, einhverjir hnullungar sem hrundu yfir allan bæinn og menn gátu kveikt í sígarettu með þeim ef þeir vildu þeir voru svo glóandi. Enda loguðu hús út um allan bæ, sér í Ómar garðarSSon omar@eyjafrettir.is BA ritgerð Gísla Stefánssonar í félagsvísindum :: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur : Flestir sem komu aftur og byggðu upp bæinn hafa bælt niður þær erfiðu tilfinningar sem fylgdu gosinu :: Ekki misstu allir allt, en það eitt að hugsa til þess að stórt og mikið landsvæði austur á Heimaey sé horfið sjónum og enginn kemur til með að geta barið það augum aftur, er mörgum erfitt Gísli með Kristínu Sjöfn konu sinni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.