Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2017, Page 24
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
Opið Mán-fös kl. 7.30-21.00 / Lau. kl. 10-21 / Sun kl. 10-21
VöruVal góð
Verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega.
Heimsendingarþjónusta.
Opið frá 7:30 - 21:00 virka daga
og 10:00 - 21:00 um helgar.
sex ferðir Á DAG:
Frá Vestmannaeyjum kl. 8.30 / 11.00 / 13.45 / 16.00 / 18.45 / 21.00
Frá Landeyjahöfn kl. 9.45 / 12.45 / 14:45 / 17.10 / 19.45 / 22.00
SuShi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
Tökum niður pantanir!
Golfmótið Ufsaskalli sem Valtýr
Auðbergsson stendur fyrir ásamt
fleirum var haldið í níunda sinnið á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Allur
ágóði af mótunum hefur farið til
góðra verkefna. „Að þessu sinni
fórum við og gáfum Sóla og
Kirkjugerði tvær kerrur, hvorum
skóla, sem taka fjögur börn hver
kerra. Það er að segja að þetta eru þá
átta krakkar af hvorum leikskólanum
sem geta farið út í göngutúr,“ sagði
Valtýr Auðbergsson. „Mótið var eins
og ávallt fullt og það þarf ekki að
spyrja að því að veðrið er alltaf gott
hjá okkur. Það rigndi kl. 14.45 og við
mættum á golfvöllinn kl. 15.00 og þá
var allt orðið þurrt. Kerrunar eru
ætlaðar fyrir minnstu krakkana og
eru í stanslausri notkun og var
kærkomið fyrir skvísurnar á
leikskólunum. Þökkum öllum þeim
sem komu að þessu í ár kærlega fyrir
okkur,“ bætti hann við.
„Á föstudaginn á goslokunum kl.
18.00 verð ég með viðburð í
Eldheimum, Spjallstund með
Guðrúnu Erlingsdóttur – „Samtal
kynslóða – upplifun af gosinu“. Þetta
tekur u.þ.b klukkustund. Ég fæ til
mín í spjall mæðgurnar Ester
Kristjánsdóttur sem var á 29
aldursári þegar gaus og dóttur hennar
Hafdísi Sigurðardóttur sem var þá á
11 ári. Líka mæðginin Sjöfn
Kolbrúnu Benónýsdóttur sem var 36
ára í gosinu og son hennar Grím Þór
Gíslason sem var níu ára,“ segir
Guðrún Erlingsdóttir, Eyjakona og
nú blaðamaður sem ætlar að rifja upp
gosið með þessum hætti.
„Við munum spjalla um gosnóttina,
flóttann upp á land, veruna á
fastalandinu gosmánuðina og
aðstöðuna þar, ferðina til Noregs og
heimkomuna. Eftir að ég skrifaði BA
ritgerð um ferð Vestmannaeyjabarna
til Noregs fyrir tveimur árum hef ég
fundið mikla þörf hjá fólki sem bjó í
Eyjum þegar gosið hófst að ræða
ýmis mál tengd því. Sérstaklega það
sem snýr að líðan og upplifun í
gosinu og eftir það.
Það virðist einnig vera þörf á því að
kynslóðirnar tali saman. Ég kláraði í
síðustu viku útvarpsþátt sem fluttur
verður 20. janúar n.k. á RÚV þar sem
ég ræddi við mæðgurnar Maríu
Vilhjálmsdóttur og Kristrúnu
Arnarsdóttur, það var fróðlegt spjall
við þær mæðgur,“ segir Guðrún.
Hún segir að tíminn sé að hlaupa frá
okkur, börn og unglingar í gosinu séu
nú fimmtug og eldri og foreldrarnir
flestir komnir yfir 70 ára aldur. „Við
megum ekki týna sögunni, þessari
einstöku sögu um eldgos í miðri
byggð. Sem betur fer eru margar
sögur komnar á blað en betur má ef
duga skal.
Það er mín reynsla að margir
upplifðu sama hlutinn á sitt hvorn
háttinn og margt sem gerðist á
gostímanum hefur ekki verið rætt
milli foreldra og barna, systkina eða
jafnvel milli hjóna.“
Sjálf segist Guðrún hafa áhuga á að
ná til kvenna sem stóðu oftar en ekki
einar með nokkur börn og margar
hverjar ófrískar, húsnæðislausar og
eiginmennirnir á sjó eða við
björgunarstörf í Eyjum. „Hvernig
fóru þessar konur að því að búa
börnum sínum heimili, hvernig leið
þeim og börnunum og hvernig voru
aðstæður þeirra? Vissulega voru ekki
allir eiginmenn og feður í Eyjum en í
mínum huga hefur hetjudáð mæðr-
anna ekki hlotið verðskuldaða
umfjöllun sem og líðan barna gosárið
1973, það er ástæða þess að ég fer af
stað með þetta verkefni. Auk þess
sem ég hef áhuga á að skrifa
meistaraprófsverkefnið mitt eftir
áramót um málefni tengd gosinu með
áherslu á aðstæður og líðan íbúanna.
Viðburðurinn er að sjálfsögðu öllum
opinn og hver veit hvort framhald
verið á ef vel tekst til,“ segir Guðrún
að endingu.
Guðrún er MA nemi í blaða- og
fréttamennsku og starfar nú sem
blaðamaður á Morgunblaðinu. Með
námi hefur hún tekið viðtöl fyrir
Eyjafréttir, nú síðast við Dag B.
Eggertsson, borgarstjóra í Reykjavík
sem birtist í síðustu viku. Viðtöl
Guðrúnar hafa vakið verðskuldaða
athygli og vonandi verður framhald
þar á.
Spjallstund með Guðrúnu Erlingsdóttur
:: „Samtal kynslóða – upplifun af gosinu“ ::
Í mínum huga hefur
hetjudáð mæðranna
ekki hlotið verðskuld-
aða umfjöllun
:: Sem og líðan barna gosárið 1973, það er ástæða þess
að ég fer af stað með þetta verkefni
Ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Ufsaskalli gefur
fæðinga- og
kvensjúkdómalæknir
Jón Torfi Gylfason fæðinga- og kvensjúk-
dómalæknir mun verða með móttöku
þann 5. til 6. júlí frá kl 16-18 á heilsugæsl-
unni í Vestmannaeyjum.
Tímabókanir í afgreiðslunni á heilsugæsl-
unni í síma 432-2500.
Atvinna
Fiskmarkaður Vestmannaeyja óskar eftir
að ráða starfsmann í framtíðarstarf.
Próf og reynsla á lyftara er skilyrði.
Frekari upplýsingar veitir Kiddi í s. 891-8060
eða á netfanginu kiddi@fiskmarkadur.is
Eyjafréttir
GleðileGa háTíð!