Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Síða 2
2 - Eyjafréttir Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. Ritstjórn og ábyrgð: Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is Blaðamaður: Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is Umbrot og hönnun: Sæþór Vídó - sathor@eyjafrettir.is Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Prentvinna: Landsprent ehf. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestm.eyjum. Símar: 481 1300 og 481 3310. Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Vöruvali og Skýlinu. Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum. Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Miðvikudagur 28. febrúar 2018 Rökkvi fann kannabis í Herjólfi Á föstudaginn handtók lögregla mann þegar hann var að koma með Herjólfi til Vestmannaeyja en í fórum hans fundust um 100 gr. af kannabis. Til aðstoðar lögreglumönnum við leit var fíkniefnahundurinn Rökkvi sem er í eigu embættisins. Maðurinn viðurkenndi að eiga efnið. Að yfirheyrslu lokinni var honum sleppt. Annað fíkniefnamál kom upp hjá lögreglunni í vikunni þegar nokkuð magn fíkniefna finnst á farþega sem var að koma til Eyja með flugi. Það fundust um 30 gr. af kannabis hjá honum. Erill hjá lögreglunni um helgina Nokkur erill var hjá lög- reglunni í Vestmannaeyjum um helgina en töluverður fjöldi fólks var að skemmta sér. Það gistu tveir einstak- lingar fangageymslu lögreglunnar um helgina. Annar var ósjálfbjarga vegna ölvunarástands en hinn vegna líkamsárásar sem gerðist fyrir utan skemmtistaðinn Lundann. Það var ekki um alvarlega áverka að ræða. Honum var sleppt eftir skýrslutöku. Í síðustu viku var haldinn íbúa- fundur um samgöngur á sjó í Vestmannaeyjum. Fundurinn var í Höllinni og mættu um 160 manns. Þeir sem fluttu erindi á fundinum voru Elliði Vignisson bæjarstjóri, Sigurður Ingi Jóhannesson, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, Hjalti Jóhannesson frá Rannsóknastofnun HA, Guðmundur Helgason frá Vegagerðinni, Friðfinnur Skaptason frá Sam- gönguráðuneytinu og Lúðvík Bergvinsson lögfræðingur. Páll Magnússon alþingismaður var fundarstjóri. Vilborg skal heita Herjólfur Á fundinum var meðal annars kosið um hvaða nafn ætti að gefa nýrri Vestmannaeyjaferju, en eins og þekkt er orðið er vinnuheitið Vilborg og var skipanefndin búin að samþykkja það. Nafnið sem hlaut hinsvegar langflest atkvæði var nafnið Herjólfur. 159 greiddu því atkvæði. Herjólfur fékk um 80% atkvæða og nafnið Vilborg fékk um 15% atvæða. Aðrar tillögur fengu mun færri atkvæði. Nú verðum við bara að bíða og sjá hvað Sigurður Ingi samgönguráðherra ákveður að gera, en nafnið er í hans höndum. Þykir miður að textinn hafi ekki sést Guðmundur Helgason frá Vegagarð- inni talaði um rekstur ferjunnar. Ræða hans skilaði sér því miður mjög illa til gesta og glærurnar sem hann sýndi máli sínu til stuðnings, náði enginn að lesa. Guðmundur sagði í samtali við Eyjafréttir að honum þætti miður að textinn hafi ekki sést. „Mér þykir miður að texti á glærum skilaði sér ekki til fundargesta en á tölvuskjá sást hann ágætlega en ekki á tjaldinu í Vestmanneyjum,“ sagði Guðmundur. Farþegatölur og fjöldi farartækja Guðmundir sagði að skortur á fjárveitingum til þessa málaflokks hafi í ársbyrjun verið um 500 millj. kr. „Hann er tilkominn að mestu leyti vegna siglinga Herjólfs árin 2011 og 2012.“ Til að átta sig á rekstri Herjólfs er rétt að skoða farþegatölur og fjölda farartækja. „Árið 2016 voru farþegar 338 þúsund og er aukningin um 11,7% frá fyrra ári. Aukaferðir sem Vegagerðin greiðir hálft gjald fyrir töldust 42 ferðir. Til að átta sig á hvað það voru að meðaltali margir farþegar með ferjunni í hverri ferð, þá er útreikningur á fjölda farþega með hverjum legg,“ sagði Guð- mundur. Verulegur munur er á ferðum yfir veturinn og á sumrin Árið 2017 voru farþegar 344 þúsund og er aukingin um 1,8% frá fyrra ári. Aukaferðir voru 131 en aukning þeirra sem fara með ferjunni yfir sumartímann er sáralítil milli áranna 2016 og 2017. Nokkrar staðreyndir (byggðar á glærum sem ekki sáust): • Meðalfjöldi farþega í hverri ferð er mjög sveiflukenndur á sumrin og yfir veturna. • Flestir farþegar fara frá Land- eyjahöfn kl. 09:45 og kl. 12:30 og síðan frá Vestmanneyjum kl. 18:30. • Ný ferja verður afkastameiri en núverandi ferja en ekki er vitað hvaða áhrif það hefur á ferða- mannastraum til Vestmannaeyja. Rétt er að vekja athygli á þessum þætti og hafa í huga skýrslu um ferðamenn og íbúa í Vestmann- eyjum frá árinu 2012. „Það má búast við því að siglingar í Landeyjahöfn frá desember til mars verði erfiðar og að á þeim tíma þurfi að sigla eitthvað í Þorlákshöfn. Við stjórnum ekki veðrinu og tíðarfar getur verið mismunandi eftir árum. Það má samt reikna með því að um verði að ræða mun minni frátafir hjá nýrri ferju en núverandi Herjólfi yfir vetrarmánuðina,“ sagði Guðmundur. Góðar og greiðar samgöngur eru undirstaða þess að samfélagið geti þrifist á eðlilegan hátt í atvinnu- málum, menningarmálum, í öryggi og þróun byggðarlagsins. Sam- göngur hafa gríðarlega mikil áhrif á íbúaþróun í Eyjum og hvort unga fólkið vill koma heim eftir nám og setjast þar að. Ég hef sem þingmaður þessa kjördæmis talað lengi fyrir því í ræðu og riti að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum séu skilvirkar. Sem ráðherra samgöngumála hefur afstaða mín ekkert breyst en þörf á stefnu í almenningssamgöngum um land allt er knýjandi. Eins og kveður á um í ríkis- stjórnarsáttmálanum felast mikil verðmæti í því að landið allt sé í blómlegri byggð. Og að landsmenn eigi að hafa jafnan aðgang að atvinnutækifærum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Ýmsa þætti þarf að skoða með opnum huga til að koma til móts við þarfir íbúanna í Eyjum, fyrirtækja og ferðamanna. Má nefna að heimamenn kalli eftir því að ferðum verði fjölgað, að fyrsta ferð fari fyrr og síðasta ferð seinna. Skilvirkni þarf að vera í flutningi á vörum og hráefni. Varðandi ferðaþjónustuna og auknar fjárfestingar og væntingar þar um þá skipta góðar samgöngur gríðarlega miklu hvort tekst að byggja upp stöðugan ferðamanna- straum og lengja tímabilið. Þorlákshöfn Kostnaður getur verið hár, sérstaklega fyrir fjölskyldur, ef sigla þarf til og frá Þorlákshöfn. Þess vegna hef ég hug á því að tryggja sama fargjald, óháð því í hvora höfnina er siglt. Kostnaður er u.þ.b. 40 milljónir á ári miðað við síðastliðin tvö ár. Vonast ég til að geta tilkynnt þetta á næstu vikum. Herjólfur Eitt af mínum fyrstu verkum í samgönguráðuneytinu var að breyta fyrri ákvörðun um Vestmanna- eyjaferju í samræmi við loftslags- markmið ríkisstjórnarinnar þannig að ferjan gangi fyrir rafmagni. Í framhaldi fól samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Vegagerð- inni að semja um breytingar á hönnun nýju Vestmannaeyjaferj- unnar í því skyni að hún muni ganga fyrir rafmagni. Því miður hefur það dregist úr hófi, að hanna og smíða nýtt skip sem hentar Landeyjahöfn. Gamli Herjólfur þarf að vera til taks um tíma eftir að sá nýi kemur, á meðan reynsla kemur á nýtt skip. Ég hef talað fyrir þessu og í mínum huga er þetta skýrt. Því við vitum ekki hver þörfin verður. Verður kannski þörf fyrir annað skip til að annast vöruflutninga? Landeyjahöfn Frá því að Landeyjahöfn var opnuð var ljóst að ekki myndi takast að nýta hana að fullu þar sem Herjólfur hentar ekki til innsigl- ingar í höfnina. Eigi að síður var stórt skref stigið þegar Landeyja- höfn var opnuð. Möguleikar fólks og fyrirtækja opnaði nýja vídd í samgöngum milli lands og Eyja. Þó voru þeir til sem gagnrýndu og töldu að þessi nýja vídd myndi ekki gagnast sem skyldi vegna þess að Herjólfur hentaði ekki og Landeyja- höfn væri stórgölluð og höfðu þeir nokkuð til síns máls. Hitt er þó öllum ljóst að tækifærin sem felast í öflugri ferju og höfn gjörbreyta öllum samgöngum til hins betra. Vandinn er óleystur og halda þarf áfram að hanna höfnina og þróa. Brýnt er að Landeyjahöfn og nýja ferjan finni taktinn saman. Ég hyggst því fá nýjan óháðan aðila til að taka út Landeyjahöfn eftir að reynsla er komin á nýja ferju. Rekstur Markmiðið er að leiðin á milli lands og Eyja sé skilvirk og greið með þarfir íbúanna að leiðarljósi. Í því augnamiði erum við að skoða fjóra kosti á rekstrarformi. Valkostirnir eru: 1. Vegagerðin reki ferjuna í upphafi til reynslu þar sem ýmsir óvissuþættir eru í rekstri. 2. Útboð til tveggja ára. 3. Útboð til fimm ára. 4. Samstarf við Vestmannaeyjabæ. Leið eitt, að Vegagerðin reki ferjuna um skamma hríð, færir okkur vitneskju um hvernig nýtt skip reynist og gefur færi á að þróa ýmsa þætti í samræmi við þarfir íbúanna. Leið tvö er einnig vænleg en leið þrjú er síst. Almenna reglan hjá ríkinu er að bjóða út almennings- samgöngur og því skiptir máli á hvaða forsendum slíkir samningar eru byggðir. Mikilvæg forsenda er til að mynda sama fargjald, óháð því hvert siglt er. Að mínu mati gæti leið fjögur komið til greina þegar við erum búin að afla þekkingar á skipinu og Landeyjahöfn er komin í betra ástand en nú er. Mér finnst það ekkert útilokaður kostur þegar við vitum betur hvað við erum að tala um. Að lokum Góðar almenningssamgöngur skipta máli. Samgöngunetið þarf að tvinnast saman, verða ein heild og hver hluti tengjast öðrum svo allir fái sem jafnasta þjónustu. Ég vil nota tækifærið og þakka íbúum Vestmannaeyja fyrir góða þátttöku og málefnalegan fund og bæjaryfirvöldum fyrir gott samstarf. Íbúafundur um samgöngur á sjó :: Herjólfur fékk afgerandi kosningu :: Hugmyndir um rekstur ferjunnar Góðar almenningssamgöngur skipta máli Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra Aðsend grein: SARA SJöfN GREttISdóttIR sarasjofn@eyjafrett ir. is Guðmundur Helgason, fulltrúi Vegagerðarinnar í ræðustól.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.