Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Síða 15
Eyjafréttir - 15
Íþróttir
Miðvikudagur 28. febrúar 2018
Hið árlega Guðlaugssund mun fara
fram í Sundhöll Vestmannaeyja nk.
miðvikudag en það er til minningar
um þá sem fórust þegar báturinn
Hellisey sökk árið 1984.
Í hópi þátttakenda verður Bonnie
Tsui, blaðamaður The New York
Times, en hún er að vinna að nýrri
bók sem fjallar um vísinda- og
menningarlegar ástæður á bakvið
það hvers vegna fólk stundar sund.
Að hennar mati er saga Guðlaugs
afar sérstök og ekki síður hefðin
sem hefur skapast í kringum
Guðlaugssundið sl. 30 ár.
Karla- og kvennalið ÍBV í hand-
boltanum eru í slag um titla á
þrennum vígstöðum, í Coca Cola
bikarnum, í báðum deildum og karl-
arnir eru á leið í átta liða úrslit í
Áskorandakeppni Evrópu. Það er
því í mörg horn að líta hjá Karli
Haraldssyni sem fer fyrir handbolt-
anum hjá ÍBV- íþróttafélagi. Í
Evrópukeppninni er leikið heima og
heiman og reyndi ÍBV að fá báða
leikina heim en það gekk ekki.
ÍBV hefur ekki farið stuttu leiðina
í Evrópukeppninni, spilaði í Hvíta
Rússlandi, Ísrael og núna er það
Rússland. „Já, við erum á leið í
víking til Rússlands þar sem við
mætum Krastnador sem er rétt
norður af Svartahafi. Við erum
búnir að sjá þá á myndböndum og
eigum bullandi séns á að komast
áfram. Það er búið að draga í
fjögurra liða keppninni þar sem við
mætum annað hvort Fyllingen í
Noregi eða Turda frá Rúmeníu. Að
því gefnu að við komumst áfram,“
sagði Karl.
Það er leikið ytra 24. mars og hér
heima viku seinna. „Því miður gekk
ekki að fá báða leikina hingað heim
og það verður bara að takast á við
það. Þetta verður gríðarlegt
ferðalag, tekur sólarhring hvora leið
en þessi ferðalög hafa þétt hópinn
sem ætlar sér alla leið.“
Um aðra helgi er fjórðungsúrslita
helgin í Coca Cola bikarnum sem
fram fer í Laugardalshöllinni þar
sem bæði karla- og kvennaliðið
ÍBV mæta. „Undanúrslitin eru á
fimmtudaginn og föstudaginn og
mæta stelpurnar Fram og strákarnir
Haukum. Úrslitin eru svo á
laugardeginum og okkar mögu-
leikar liggja í að gera Laugardals-
höllina að okkar heimavelli. Það
verður brjáluð stemning og
draumurinn er að koma heim með
báða bikarana. Þá verður ÍBV
handhafi allra bikara í bikarkeppn-
um í meistaraflokkum í handbolta
og fótbolta karla og kvenna.
Árangur sem ekkert félag hefur náð
og verðum við með hópferðir á
leikina gangi allt að óskum.“
Bæði liðin eiga möguleika á
deildinni, konurnar í þriðja sæti og
karlarnir í öðru og eiga leik til góða.
„Þetta væri ekki hægt nema að hafa
öflugt bakland og mæting á leiki
hefur verið frábær,“ sagði Karl að
endingu.
Sandra Erlingsdóttir átti frábæran
leik og skoraði 11 mörk þegar ÍBV
vann Fjölni, 33:27, í 19. umferð
Olísdeildar kvenna í Dalhúsum í
Grafarvogi um helgina. ÍBV er í
þriðja sæti deildarinnar með 28 stig,
en liðið jafnaði Fram og Hauka að
stigum með sigrinum gegn Fjölni.
ÍBV hefur nú þegar tryggt sér sæti í
úrslitakeppni deildarinnar, en liðið
er tveimur stigum á eftir Val á toppi
deildarinnar með 30 stig.
ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann FH
með átta marka mun í Olís-deild
karla í handbolta í kvöld. Fyrirfram
var reiknað með hörku leik, en ÍBV
var í 3. sæti með 26 stig á meðan
FH var með fimm stigum meira í
toppsætinu. Strákarnir töpuðu fyrir
Val á fimmtudaginn og ætluðu sér
svo sannarlega ekki að tapa líka á
mánudaginn.
ÍBV var yfir allan tímann og settu
þeir tóninn strax í byrjun og komust
í 4:1, FH tókst aldrei að jafna eftir
það. Þegar flautað var til hálfleiks
var staðan 20-13. Gestirnir byrjuðu
betur í seinni hálfleik og minnkuðu
muninn í þrjú mörk strax í upphafi.
En ÍBV átti leikinn svo undir lokin.
Lokatölur 37-29. Theodór
Sigurbjörnsson skoraði flest mörk
fyrir ÍBV, 9 mörk, þar af þrjú úr
vítum. Þar á eftir kom Agnar Smári
Jónsson með 6 mörk.
FH heldur toppsætinu en ÍBV eru
nú komnir í 2. sæti deildarinnar
með 28 stig og eiga leik til góða á
FH og geta jafnað þá að stigum ef
þeir vinna þann leik.
Handbolti | Olísdeild karla:
Góður sigur á toppliði FH
:: Theodór Sigurbjörnsson skoraði níu mörk :: Eiga leik til góða
Guðlaugssundið
á miðvikudaginn:
Blaðamaður
New York
Times syndir
FH 19 15 1 3 622 107 31
ÍBV 18 13 2 3 524 59 28
Selfoss 19 14 0 5 575 64 28
Valur 19 13 1 5 531 22 27
Haukar 19 12 1 6 548 81 25
Afturelding 19 9 1 9 499 -16 19
Stjarnan 19 8 3 8 533 25 19
ÍR 18 7 1 10 484 -2 15
Fram 19 5 2 12 519 -61 12
Grótta 19 5 1 13 485 -59 11
Fjölnir 19 1 4 14 487 -80 6
Víkingur 19 1 3 15 442 -140 5
Olísdeild karla
Fram 19 14 2 3 571 134 30
Valur 19 14 2 3 517 101 30
ÍBV 19 13 2 4 561 94 28
Haukar 19 13 2 4 473 59 28
Stjarnan 19 9 1 9 539 39 19
Selfoss 19 4 1 14 403 -107 9
Grótta 19 1 2 16 397 -155 4
Fjölnir 19 1 2 16 393 -165 4
Olísdeild kvenna
Elliði Snær Viðarsson í bullandi færi.
ÍBV hefur gert þriggja ára samning
við breska miðjumanninn Priestley
David Griffiths. Priestley er 21 árs
og alinn upp hjá Middlesbrough á
Englandi. Hann á að baki 6 leiki
með U-17 landsliði Englands.
Griffiths er 21 árs og spilaði síðast
með Bishop Auckland í 9. efstu
deild Englands. Hann er áttundi
leikmaðurinn sem ÍBV fær til sín
fyrir sumarið.
Handbolti | Olísdeild kvenna:
Stelpurnar í þriðja sæti
Knattspyrna |
Fyrrum leik-
maður Midd-
lesbrough
til ÍBV
Handbolti | Mikið framundan:
Í baráttu um titla á þrennum vígstöðvum
:: Ekki hægt nema með öflugu baklandi segir Karl Haraldsson formaður handknattleiksráðs
Sandra Dís í baráttunni gegn Gróttu á dögunum.