Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Síða 9
Eyjafréttir - 9Miðvikudagur 28. febrúar 2018
Auglýsing um nýtt
AðAlskipulAg vest-
mAnnAeyjAbæjAr
2015-2035
Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur samþykkt
að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Vestmanna-
eyjabæjar skv. 31. gr. laga nr. 123/2010 ásamt
umhverfisskýrslu sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006.
Nýtt aðalskipulag tekur til tímabilsins 2015-2035
og er endurskoðun á aðalskipulagi fyrir tímabilið
2002-2014.Tillagan er sett fram á uppdrætti og í
greinargerð.
Skipulagstillagan verður til sýnis í Einarsstofu
(anddyri Safnahúss) við Ráðhúströð og hjá emb-
ætti skipulags- og byggingarfulltrúa Skildingavegi
5, frá 28. febrúar til og með 11. apríl 2018. Á sama
tíma verður tillagan aðgengileg hjá Skipulags-
stofnun bæði í sýningarrými að Borgartúni 7b
og á vefsíðunni www.skipulag.is. Þá eru öll gögn
aðalskipulagsins aðgengileg rafrænt á heimasíðu
Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, í
glugganum Nýtt Aðalskipulag.
Opið hús, kynning á skipulaginu, verður í Einars-
stofu (anddyri Safnahúss) við Ráðhúströð mið-
vikudaginn 7. mars nk. milli kl. 14:00 og 18:00.
Þar munu hönnuðir skipulagsins kynna efnistök
skipulagsins og svara fyrirspurnum áhugasamra.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér
með gefinn kostur á að gera athugasemdir við til-
löguna og er frestur til að skila inn athugasemd-
um til 11. apríl 2018. Skila skal inn skriflegum
athugasemdum til skipulagsfulltrúa á skrifstofu
hans að Skildingavegi 5, 900 Vestmannaeyjum
b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið bygg@vest-
mannaeyjar.is.
skipulagsfulltrúi
Undanfarin ár hafa verið tímabil
góðæris eftir djúpa efnahagslægð í
lok síðasta áratugar. Uppsveiflan
náði hámarki árið 2016 þegar
hagvöxtur nam 7,2%. Vöxturinn
hefur m.a. hvílt á hratt vaxandi
ferðaþjónustu, aukinni fjárfestingu í
þann geira sem og almennt meðal
atvinnuvega, hagstæðum ytri
skilyrðum, vaxandi kaupmætti
heimila og farsælli lausn á þeim
vandamálum sem fall meginhluta
fjármálakerfisins skapaði í lok
síðasta áratugar. Íslandsbanki áætlar
að hagvöxtur í fyrra hafi verið
4,1%. Fyrir yfirstandandi ár spá þeir
2,3% hagvexti, og sama hagvexti
árið 2019. Þórdís Úlfarsdóttir og
Sigurður Friðriksson sátu fyrir
svörum hjá blaðamanni Eyjafrétta
um stöðuna í Eyjum.
Ný íbúðalán stóru bankanna
þriggja jukust um 70% milli ára á
síðasta ári og var almennur
útlánavöxtur bankanna umfram
hagvöxt. Vaxtatekjur stóðu þó
nánast í stað en þóknunartekjur
jukust. Tengið þið við þetta í
Vestmannaeyjum?
Þegar skoðuð eru lán til íbúðakaupa
eða endurfjármögnunar núverandi
íbúðahúsnæðis og borin saman árin
2015, 2016 og 2017 þá má glöggt
sjá að töluverð aukning hefur verið
í þessum lánum á milli ára hjá
okkur í Íslandsbanka í Vestmanna-
eyjum, og þá einkum á milli áranna
2016 og 2017. Vextir hafa farið
lækkandi og er mikið um að
viðskiptavinir okkar séu að
endurfjármagna sín lán. Þegar verið
er að skoða fjármögnun á íbúðar-
húsnæði þá leggjum við áherslu á
vandaða ráðgjöf og að viðkomandi
skoði vel og beri saman þá kosti
sem í boði eru á markaðnum. Við í
Íslandsbanka erum boðin og búin
að aðstoða viðskiptavini okkar sem
og aðra sem til okkar leita og svara
spurningum sem upp kunna að
koma í tengslum við fjármögnun á
íbúðarhúsnæði.
Hver er ykkar tilfinning eða
staðreyndir um uppgang í Vest-
mannaeyjum?
Það má glöggt sjá að mikill
uppgangur hefur verið í Vestmanna-
eyjum. Undanfarin ár hafa stóru
fyrirtækin, Ísfélagið og Vinnslu-
stöðin verið í miklum fjárfesting-
um. Má þar til dæmis nefna
uppbyggingu frystigeymslna,
uppsjávarvinnslna og nýsmíði
fiskiskipa. HSVeitur eru að byggja
húsnæði undir varmadælustöð.
Íbúðabyggingar eru að rísa á
Vigtartorgi og á toppi gömlu
Fiskiðjunnar sem og á fleiri stöðum
í bænum.
Hvað með kaupmátt Eyjamanna, er
það eitthvað sem þið fylgist með
eða mælið?
Við mælum kaupmátt launa í
Vestmannaeyjum ekki sérstaklega. Í
uppfærðri Þjóðhagsspá Íslands-
banka fyrir árin 2017 – 2019 kemur
meðal annars fram að kaupmáttur
launa hefur aukist hröðum skrefum
síðustu ár. Frá árinu 2012 hefur
kaupmáttur launa vaxið um 5,1% á
ári að jafnaði. Kaupmáttaraukningin
náði hámarki árið 2016, þegar hún
nam 9,5%. Í fyrra dró nokkuð úr
vexti kaupmáttar, og nam hann þá
5,1%.
Útlit er fyrir hægari hækkun launa á spátímanum en síðustu ár, og þar með talsvert minni kaupmáttaraukn-
ingu. Við gerum ráð fyrir 3,3% aukningu kaupmáttar launa í ár, og 1,9% kaupmáttaraukningu árið 2019.
Mikill vöxtur einkaneyslu síðustu ár hefur verið studdur af hraðri kaupmáttaraukningu, bættri fjárhags-
stöðu heimila, vaxandi atvinnuþátttöku og fólksfjölgun, svo nokkuð sé nefnt. Við teljum að einkaneyslu-
vöxturinn hafi náð hámarki árið 2017 með 7,5% vexti frá fyrra ári. Vöxtur einkaneyslu í fyrra var því talsvert
meiri en vöxtur kaupmáttar, í fyrsta sinn í þessari uppsveiflu. Við gerum ráð fyrir 4,7% vexti einkaneyslu í
ár og 3,0% vexti árið 2019. Hægari vöxtur einkaneyslu er í samræmi við minni kaupmáttaraukningu,
hægari fólksfjölgun, hóflegri hækkun eignaverðs og lítilsháttar aukningu atvinnuleysis.
Þórdís Úlfarsdóttir og Sigurður Friðriksson
Það má glöggt sjá að
mikill uppgangur hefur
verið í Vestmannaeyjum
:: Kaupmáttur launa hefur aukist hröðum
skrefum síðustu ár
s. 481-1300 | frettir@eyjafrettir.is | www.eyjafrettir.is
heiM að DYruM - kr. 2.016 á mán.
með áskrift að eyjafréttum færðu vikulegar fréttir, heim að
dyrum, af öllu því helsta sem um er að vera í Vestmannaeyjum
eða tengist Eyjum á einn eða annan hátt.
Ekki nóg með það heldur getur þú einnig nálgast blaðið þitt á
eyjafrettir.is hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu
líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið
og þær gerast.
neTÁsKrifT - kr. 1.490 á mán.
með netáskrift að eyjafréttum ertu alltaf með blaðið við
hendina. Þú færðu aðgang að blaði eyjafrétta á eyjafrettir.
is þegar þér hentar, hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum
færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum
um leið og þær gerast.
ÞÚ fÆrð
Meira
í ÁsKrifT