Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Blaðsíða 4
4 - Eyjafréttir Miðvikudagur 28. febrúar 2018 Um liðna helgi mældi blaða- maður sér mót við þau Lottu, Hilmar, Vilmar og Þóru Sif sem vinna um þessar mundir að því að gera upp húsið Hól sem stendur við Miðstæti. Það er eigilega ekki hægt að tala um að gera upp strax því niðurrifið stendur enn og mikið verkefni er fyrir höndum. Húsið Hóll var tekið í notkun árið 1908 og er því 110 ára. Húsið er innflutt timburhús frá Noregi og var það byggt á steyptum grunni. Planið hjá þeim er að taka húsið, sem er 240 fermetrar, allt í gegn. „ Okkur vantaði að fjárfesta og út frá því kom sú hugmynd að kaupa þetta hús, sagði Karlotta Lind Pedersen, en fyrirtæki hennar og eiginmanns hennar, Hilmars Tómasar Guðmundssonar festi kaup á húsinu fyrir lok árs 2017. Hjónin eru hvorki frá né búsett í Vest- mannaeyjum en frændi hennar Lottu eins hún er köllu, Vilmar Þór Bjarnasson býr hér ásamt eiginkonu sinni Þóru Sif Kristinsdóttur og er hún fædd og uppalin í Vestmanna- eyjum. Þau hjónin eiga tvö börn, Theresu Lilju og Oliver Atlas og fluttist fjölskyldan til Eyja fyrir um tveimur árum síðan. Íbúðarhúsnæði og gisitheimili „Okkur vantaði rekstraraðila fyrir gistiheimilið og lá vel við að þau hjón tækju það að sér,“ sagði Lotta. Húsinu verður skipt í íbúð í langtímaleigu, þar sem Vilmar og Þóra Sif munu búa og hinn hluti hússins verður gistiheimili. Í gistiheimilishlutanum verða tvær litlar íbúðir og 3 herbergi og verður þar gistirými fyrir 12-14 manns. „Hugsunin er að kaupa fasteign á sérvöldum stað sem rúmar bæði almenna leigumarkaðinn og þjónustar skammtímaleigumarkað- inn líka. Rúsínan þarna er að þeir íbúar sem eru í langtímaleigu fá atvinnu af því að þjónusta þá sem stoppa stutt við. Íbúarnir taka þátt í að markaðssetja og annast annað húllumhæ sem tengist eigninni, “ sagði Lotta. Lúxus gistiheimili Eins og áður segir verða fimm gistirými fyrir 12 til 14 manns á gistiheimilinu. „Við ætlum að leitast við að halda háum klassa og skapa okkur sérstöðu á þessum markaði. Við viljum hafa þetta aðlaðandi og flott, þannig að fólk vilji og þyki eftirsóknarvert að koma og gista hjá okkur,“ sagði Vilmar. Óvíst hvenær fram- kvæmdum ljúki Aðspurð um hvenær framkvæmdum á að vera lokið, vildu þau lítið tjá sig. „Við ætlum ekkert að segja til um það, það veltur á svo mörgu,“ sagði Lotta. „Við þurfum að sækja um leyfi fyrir hinu og þessu, þannig að þetta veltur líka á löggjafanum að einhverju leyti,“ sagði Hilmar. Gæðastundir á Hóli Fjölskyldan er spennt fyrir komandi tímum og ætla þau sér að vera öll þarna yfir Verslunarmannahelgina. „Þá verða gistirýmin ekki leigð út, heldur ætlum við að njóta þess að vera hérna,“ sagði Hilmar. „Einnig eru mörg þeirra að mæta í fyrsta skiptið á þjóðhátíð þannig að þetta verður stuð,“ sagði Vilmar. Það verður því gaman að fylgjast með fjölskyldunni gæða húsið lífi á ný. Þeir sem vilja fylgjast með þeim í framkvæmdunum geta bætt þeim við sem vin á snapchat undir nafninu, holl1907, einnig er hægt að finna þau á facebook, Hóll gisti- heimili. Fjölskyldan klár í slaginn á tröppunum á Hóli. Húsið að Goðahrauni 1 sem reis á árunum í kringum 1980 var lengst af verslunarhúsnæði og síðast var þar verslunin Kjarval sem var lokað fyrir nokkrum árum. Þar var líka sjoppa, vídeóleiga og bensínsala. Nú hefur húsið fengið nýtt hlutverk og í maí er áætlað að opna þar fyrsta flokks íbúðir sem ætlaðar eru til útleigu fyrir ferðafólk og jafnvel til langtímaleigu að vetri til. Auk þess er þar fasteignasala, bílaum- boð, veislusalur og skrifstofa stéttarfélags. Húsið er samtals 600 fermetrar og fyrir nokkrum árum keyptu hjónin Arndís María Kjartansdóttir og Ómar Steinsson 150 fermetra þar sem þau reka fasteignasölu og veislusal undir nafni Eldeyjar og bílaumboð fyrir B&L. „Ómar er hér líka með skrifstofu fyrir Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi og ég rek Fasteignasöluna Eldey í samstarfi við Allt-fasteignir,“ segir Arndís en nú eru þau að færa út kvíarnar. „Í sumar keyptum við í félagi við önnur hjón allt húsið og er verið að innrétta níu íbúðir á 450 fermetrum. Fimm tveggja herbergja íbúðir og fjórar stúdíóíbúðir. Hjónin Ingunn Arnórsdóttir og Svanur Gunnsteins- son eiga helminginn á móti okkur í þessu og heitir fyrirtækið Eldey gisting ehf.,“ bætir hún við. Vandað til verka Ómar segir að mjög sé vandað til verka og eigi allt að vera fyrsta flokks þegar opnað verður í maí. „Við ákváðum strax að halda okkur við heimamenn til framkvæmdanna og vorum við svo lánsöm að fá Sigmar Garðarsson til að hafa yfirumsjón með verkinu. Kolbeinn Agnarsson er sérlegur aðstoðar- maður hans. Miðstöðin sér um pípulagnir, Geisli um allt rafmagn og Viðar og hans fólk um málningu. Þá hannaði Kristín Hartmannsdóttir húsnæðið ásamt okkur,“ segir Ómar. Ennfremur reynum við að versla allt sem við getum í heima- byggð og erum við í miklu og góðu samstarfi við Húsasmiðjuna, Miðstöðina, Geisla og fleiri fyrirtæki. Hérna er toppþjónusta og frábærir fagmenn og um að gera að styrkja og styðja við bæjarfélagið sem við búum í eins mikið og við mögulega getum. Tók marga mánuði að fá öll leyfi Þau gengu frá kaupunum í fyrra- sumar í frábæru samstarfi við Landsbankann. „Þar mættum við mikilli velvild frá Jóni Óskari og hans fólki. Þá tóku við umsóknir um leyfi og að uppfylla þær miklu kröfur sem gerðar eru til slíks rekstrar sem útleiga á fasteignum er. Það tók marga mánuði að fá öll leyfi og við máttum ekki byrja fyrr en allt var orðið klárt af hendi eftirlitsaðila. Það eru gerðar afar miklar kröfur til okkar og sjálfsagt að verða við þeim,“ sagði Ómar. Þau leggja áherslu á að allt eigi að vera í toppklassa. „Það verða allar íbúðir með eigin baðherbergi með sturtu. Stærri íbúðirnar eru með fullbúnu eldhúsi en þær minni með smá eldhúskrók. Þá leggjum við áherslu á að vera með mjög góð rúm og sængurfatnað og allan aðbúnað eins góðan og kostur er,“ segir Ingunn. „Þá uppfyllum við skilyrði um íbúð fyrir fatlaða og ennfremur er allt nýtt hjá okkur og er stefnan að húsið verði eins og nýbygging, enda var allt rifið inn að steini. Húsið er afar vel byggt og þakið nýlegt, Kaupfélagsmenn spöruðu ekki steypuna hérna um árið og fyrir það þökkum við.“ Stutt á golfvöllinn Og þau óttast ekki staðsetninguna. „Hér getur fólk notið þess að vera í nálægð við náttúruna og það gæti ekki verið styttra á golfvöllinn og öll stóru fótboltamótin eru hér nánast á sömu torfunni. Sundlaugin er í fimm mínútna fjarlægð og ekki má gleyma þjóðhátíðinni. Hingað kemur fólk að fyrsta flokks aðstöðu, uppábúnum rúmum og þvottahúsi með þvottavélum og þurrkara. Það á því öllum að geta liðið vel hjá okkur og við hlökkum til að taka á móti fyrstu gestunum í vor, enda mikið búið að bóka á öllum helstu helgunum en við vorum að koma inná booking.com. Hugsunin er að þetta verði eins og að koma í sumarbústað/ íbúðar- gistingu með náttúruna, kyrrðina og fegurðina við hendina, hingað kemur fólk sem vill hafa rúmt um sig í góðri íbúð með allt til alls, en er samt út af fyrir sig og getur notið óviðjafnanlegrar náttúru,“ sagði Dísa að endingu. En ekkert af þessu verður mögulegt nema fólk komi til okkar og þökkum við Eyjamönnum fyrir frábærar undirtektir og jákvæðni í okkar garð. Því hér viljum við vera og vonum að húsið verði vesturbænum til sóma. Hamagangur á Hóli :: Gera upp eitt elsta húsið í bænum SARA SJöfN GREttISdóttIR sarasjofn@eyjafrett ir. is Ómar og Arndís :: Ingunn og Svanur :: Goðahraun 1 fær nýtt hlutverk :: Lúxusíbúðir fyrir ferðamenn: Ákváðum strax að halda okkur við heimamenn til framkvæmdanna :: Enn fremur reynum við að versla allt sem við getum hérna í heimabyggð og erum í miklu og góðu samstarfi við Húsasmiðjuna, Miðstöðina, Geisla og fleiri fyrirtæki. ómAR GARðARSSoN omar@eyjafrett ir. is Ómar og Arndís og Ingunn og Svanur. Hátt til lofts og vítt til veggja í Goðahrauninu, sem er hús sem leynir á sér.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.