Fréttir - Eyjafréttir - 28.02.2018, Page 10
10 - Eyjafréttir Miðvikudagur 28. febrúar 2018
Í meira en 30 ár hefur bygg-
ingaverktakafyrirtækið Steini
og Olli verið áberandi í
byggingaframkvæmdum í
Vestmannaeyjum og setja
byggingar sem fyrirtækið
hefur byggt, svip sinn á bæinn.
Steini og Olli hafa tekið þátt í
þeirri miklu uppbyggingu sem
verið hefur í Vestmannaeyjum
síðustu tíu árin. Enn er mikið
að gera, starfsmenn fyrirtækis-
ins eru 40 alls, og verkefna-
staðan góð næstu tvö árin. Þó
er eins og toppurinn sé að
nálgast á þessu framkvæmda-
tímabili, en þá gera forráða-
menn fyrirtækisins ráð fyrir að
taki við minni nýframkvæmdir,
nauðsynlegt viðhald, breyt-
ingar og endurbætur á húsum
og nóg verði að gera þó
spennan verði minni.
Segja má að Steini og Olli hafi
verið afgerandi í þeirri uppbygg-
ingu sem orðin er í Vestmanna-
eyjum frá gosinu 1973 þegar um
400 íbúðir grófust undir ösku og
hraun. Upphafið má rekja til þess
þegar húsasmíðameistararnir Ársæll
Sveinsson og Steingrímur Snorra-
son byrjuðu að starfa saman árið
1982. Þeir stofnuðu svo formlega
fyrirtækið Steina og Olla árið 1988
en síðar komu að því fleiri aðilar
sem hluthafar. Það var svo árið
2009 að hjónin Magnús Sigurðsson,
sem stýrir fyrirtækinu ásamt Inga
bróður sínum, og Ester Sigríður
Helgadóttir kaupa fyrirtækið af fyrri
eigendum. „Þau hjónin eru
eigendur fyrirtækisins og við
bræður vinnum þetta í sameiningu.
Ég er í pappírsmálunum og
fjármálunum og er einnig mennt-
aður byggingatæknifræðingur.
Magnús er framkvæmdastjórinn og
er mun meira á vettvangi fram-
kvæmda daglega, en að öðru leyti
vinnum við þetta saman,“ segir Ingi
sem gekk til liðs við Steina og Olla
haustið 2014.
Stór hluti af byggingarsögunni
Eins og áður segir má víða sjá verk
þeirra hér í bæ. Má þar nefna
húsnæði Bónuss og Húsasmiðj-
unnar, tengivirki HS Veitna og
Landnets við FES, frystiklefa og
tengibyggingar Ísfélagsins,
Eimskipshöllina og nýja Íþróttasal-
inn, Baldurshaga og stækkun við
Hótel Vestmannaeyjar. „Einnig
byggðum við fyrri frystiklefa
Vinnslustöðvarinnar og komum að
stækkun vinnsluhúsnæðis Löngu,
bæði byggingar á Eiðinu.“
Auk byggingaframkvæmda reka
þeir steypustöð og eru nú að koma
sér fyrir á Flötunum með verkstæði
sitt, lager og skrifstofur, í húsi sem
flestir þekkja sem Netagerð Ingólfs.
„Í allt vinna 40 manns hjá fyrir-
tækinu, þar af 18 húsasmiðir, þrír
menn í Steypustöðinni, þrjú á
skrifstofunni og við stjórnun og svo
erum við m.a. með fjóra útlendinga.
Stærstu verkefnin núna eru
Varmadælustöðin fyrir HS Veitur
við Hlíðarveg og íbúðirnar sem
Stefán Lúðvíksson í Eyjablikk er að
byggja ofan á Fiskiðjuna. Þá höfum
við nýlokið endurbótum og
breytingum á annarri hæð Fiskiðj-
unnar þar sem Þekkingasetrið er til
húsa,“ segir Ingi.
Nóg framundan
Þegar Ingi er spurður um fram-
haldið segir hann að næsta verkefni
sé uppbygging á Ísfélagsreitnum í
samstarfi við Vestmannaeyjabæ.
„Hugmyndir Vestmannaeyjabæjar
eru að koma upp nýju sambýli þar
og einnig verða þarna íbúðir til
útleigu fyrir fatlaða einstaklinga.
Steini og Olli mun svo stefna á að
byggja íbúðir fyrir hinn almenna
markað. Við erum líka að hefja
framkvæmdir við Eyjahraunið þar
sem verða byggðar nýjar þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða einstaklinga
sem tengjast svo við Hraunbúðir
með tengibyggingu.“
Ekki enn í hendi
Ingi segir að mikið hafi verið að
gera í byggingariðnaði í Vestmanna-
eyjum á síðustu tíu til tólf árum.
„Steini og Olli hafa tekið virkan
þátt í þessari uppbyggingu eins og
sést á þeim verkefnum sem við
höfum komið að. Næsta stóra
verkefnið fyrir utan Ísfélagsreitinn
er svo aðstaðan sem erlenda
fyrirtækið Merlin ætlar að koma hér
upp sunnan við Fiskiðjuna. Það er
komið byggingarleyfi frá bæjaryfir-
völdum en eftir er að ganga frá
samningnum við verktaka hér
innanbæjar. Það er samt aldrei neitt
fast í hendi fyrr en búið er að skrifa
undir alla samninga.“
Ingi gerir ráð fyrir að á næstu
tveimur til þremur árum sjáist fyrir
endann á þeim stærstu framkvæmd-
um sem verið hafa í gangi. Þar hafi
stöðvarnar, Ísfélagið og Vinnslu-
stöðin dregið vagninn ásamt
Vestmannaeyjabæ og HS Veitum.
Þá hefur verið byggt og er í
byggingu mikið af íbúðarhúsnæði.
„Þessum stærstu framkvæmdum
lýkur á næstu misserum og árum og
eins og er, þá hafa ekki verið
tilkynnt frekari áform um stórar
framkvæmdir á næstunni, sem
vonandi verður þó að veruleika. Það
er farið að þrengja að með lóðir við
höfnina sem hefur einnig sín áhrif.
Verkefni næstu ára verða að mínu
mati því fremur í formi minni
nýbygginga, viðhalds og breytinga
og þar verður vonandi af nógu að
taka,“ sagði Ingi.
Ingi segir skipta miklu að hér eru
öflug fyrirtæki, Ísfélagið, Vinnslu-
stöðin og HS Veitur auk þess sem
bæjarsjóður hefur byggt mikið.
„Þau hafa haldið þessu vel uppi
undanfarin ár og vonandi heldur
það áfram á næstunni. Framtíðin
ræðst af því hvað þessir stóru gera
því framkvæmdir einstaklinga eru
svipaðar frá ári til árs,“ sagði Ingi
að endingu.
Steini og Olli :: Öflugt fyrirtæki á traustum grunni:
Sjáum fyrir endann á stærstu verkefn-
unum á næstu tveimur til þremur árum
:: Ísfélagið og Vinnslustöðin hafa dregið vagninn ásamt bænum og HS Veitum
ómAR GARðARSSoN
omar@eyjafrett ir. is
Málarar eru einn hlekkurinn í allri
byggingarstarfsemi og ekki sá
veigaminnsti því það kemur í þeirra
hlut að skapa fólki það umhverfi
sem því líður vel í. Sama hvort er
um að ræða íbúðar- eða atvinnuhús-
næði. Viðar Einarsson, málara-
meistari hefur staðið vaktina í
Vestmannaeyjum í bráðum þrjá
áratugi og rekur fyrirtækið
Málarinn þinn ehf. í samstarfi við
konu sína, Dóru Björk Gunnars-
dóttur. Og það er nóg að gera.
„Við erum sex núna sem er óvenju
mikið miðað við árstíma,“ segir
Viðar sem var á fullu að vinna í
nýju húsi við Vestmannabrautina.
„Það er nóg að gera en þetta er
viðkvæmur markaður. Við höfum
mikið verið að vinna fyrir Vinnslu-
stöðina, eitthvað fyrir Ísfélagið og
svo eltum við það sem Steini og
Olli og aðrir verktakar eru að gera.“
Í málningu eins og öðrum greinum
hafa orðið breytingar og framfarir
sem auka afköstin. Sandsparstli og
málningu er sprautað á þegar um
stærri verk er að ræða. „Þegar við
vinnum inni á heimilum er það
gamli góði pensillinn sem gildir,“
segir Viðar.
Hann er sammála öðrum í
byggingargeiranum að mikið hafi
verið að gera undanfarin ár en þó
séu ekki mjög mörg ár síðan
botninn datt úr þessu yfir veturinn.
„Þá varð maður að finna sér önnur
verkefni yfir daufasta tímann. Það
hefur verið mikið að gera í
stöðvunum, HS Veitum og bænum
og staðan virðist góð. Vonandi helst
það sem lengst,“ sagði Viðar að
endingu.
Viðar er ánægður með stöðuna
en segir þetta viðkvæman
markað.
Viðar Einarsson, málarameistari hefur nóg að gera:
Staðan góð og verður vonandi sem lengst
ómAR GARðARSSoN
omar@eyjafrett ir. is
Kaffipása hjá Steina og Olla sem eru á fullu í að reisa sjóvarmadæluhúsið við Hlíðarveg.
Magnús hefur í mörg horn að líta.