Fréttir - Eyjafréttir - 26.06.2018, Blaðsíða 1
Eyjafréttir
Stimplar
Ýmsar gerðir og litir
Eyjafréttir
Strandvegi 47 | S. 481 1300
Vestmannaeyjum 26. júní 2018 :: 45. árg. :: 26. tbl. :: Verð kr. 515 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
„Það sem mér er efst í huga er
þakklæti og virðing fyrir því
mikilvæga starfi sem ér er nú
að taka við,“ sagði Íris Róberts-
dóttir, oddviti H-listans þegar
hún skrifaði undir ráðninga-
samning sem bæjarstjóri
Vestmannaeyja í Safnahúsinu á
sunnudaginn.
Samþykkt var á fyrsta fundi
nýrrar bæjarstjórnar á fimmtu-
daginn að ráða Írisi sem
bæjarstjóra. Það var Elís
Jónsson, forseti bæjarstjórnar
sem skrifaði undir samninginn
fyrir hönd bæjarins. „Þetta er
spennandi verkefni sem ég
hlakka til að takast á við. Ég er
bæjarstjóri allra Vestmannaey-
inga og við í meirihlutanum, og
vonandi minnihlutinn líka,
munum leggja okkur fram um
að efla Eyjarnar og gera þær
áfram að eftirsóttum stað til að
búa á,“ sagði Íris sem er fyrsta
konan til að gegna embætti
bæjarstjóra í Eyjum.
„Það eitt og sér er vissulega
fagnaðarefni en hefði átt að
gerast miklu fyrr,“ sagði Íris.
Ég er bæjarstjóri allra Vestmannaeyinga
6
Vissi alltaf að ég
yrði einhvers konar
listamaður
10
9
Þykir mjög vænt
um Þjóðhátíð
Allir njóta listarinnar í
hvaða formi sem hún er