Fréttir - Eyjafréttir - 26.06.2018, Page 8
8 - Eyjafréttir
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Rólegt, fallegt
og flottur texti
Goslokalag Vestmannaeyja 2018
heitir Aftur heima og er eftir
Björgvin E. Björgvinsson. Lagið er
flutt af Söru Renee Griffin en
undirleik sjá um þeir Birgir Nielsen á
trommur, Kristinn Jónsson á bassa. Á
píanó og orgel leikur Þórir Ólafsson,
Gísli Stefánsson á gítar og Einar
Hallgrímur Jakobsson á flugelhorn.
Sara Renee er Eyjamaður vikunnar
að þessu sinni.
Nafn: Sara Renee Griffin.
Fæðingardagur: 18. maí 2000.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fjölskylda: Það er hún mamma
mín Elín Rós, stjúppabbi Friðrik
Óskar, bræður mínir Devon og
Daníel Örn og svo stjúpsystkinin
mín Aníta, Eva og Davíð.
Uppáhalds vefsíða: Held ég verði
að segja asos.com (fatasíða) þrátt
fyrir að peningarnir mínir gufa upp
eftir heimsókn á þessa síðu er það
alveg þess virði.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Gömlu góðu frá svona 90’s
til 00’s.
Aðaláhugamál: Söngur, kemur
fáum á óvart.
Uppáhalds app: Instagram.
Hvað óttastu: Ég óttast held ég öll
skriðdýr og ketti því maður veit
aldrei hvað þeir eru að hugsa.
Mottó í lífinu: Mitt mottó er held
ég bara að lifa í núinu.
Apple eða Android: Apple.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Beyonce hiklaust.
Hvaða bók lastu síðast: Vildi að
ég gæti munað það en ég bara les
ekki bækur, las síðast bók líklega í
5. bekk
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Get ekki alveg gert
uppá milli með íþróttamenn en
auðvitað er uppáhalds íþróttafélagið
mitt ÍBV.
Ertu hjátrúarfull: Er hjátrúarfull
að vissu leyti.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Ég fer reglulega í Hressó.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Friends
klikkar seint.
Hvernig líst þér á lagið, er
skemmtilegt að syngja það: Lýst
mjög vel á þetta lag, það er mjög
rólegt, fallegt og flottur texti og
auðvitað gaman að syngja svona
lag. Ekki alveg eins lag og ég er
vön að syngja en maður verður
einhvern tímann að fara aðeins út
fyrir þægindarammann.
Hvert stefnir þú sem söngkona:
Stefni á að reyna koma mér meira á
framfæri og gera góða hluti og
auðvitað reyna komast sem næst
mínum draumum.
Hverjir eru helstu áhrifavaldar
þínir: Það skal vera hún Queen B
alltaf.
Sara Renee Griffin
er Eyjamaður vikunnar
Þessi unga Eyjamær fæddist
þann 12. apríl síðastliðinn. Hún
hefur hlotið nafnið Jóna Hjördís.
Foreldrar hennar eru þau Halla
Kristín Kristinsdóttir og Ólafur
Vignir Magnússon.
Eyjamaður vikunnar framundan:
nýr Eyjamaður
mEst lEsið á EyjafrEttir.is
Kosið í ráð, nefndir
og stjórnir hjá
bænum
Skyldi landsliðið þá
hafa komist á HM?
Aftur heima - Gos-
lokalag Vestmanna-
eyja 2018
Sparisjóður Vest-
mannaeyja var
yfirtekinn á undir-
verði
Eftir fyrsta bæjar-
stjórnarfund
Íris Róbertsdóttir
skrifaði undir ráðn-
ingarsamning
Tímamót
Eðlileg skýring á
fundartíma bæjar-
stjórnar
Samþykkti leyfi fyrir
tveimur einbýlis-
húsum
Verður að öllum
líkindum áfram í ÍBV
á næsta tímabili
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fimmtudagur 28. júní
----------------------------------------------------------
18:00 - Eyjabíó
Adrift, lokasýning á mynd Baltasar.
20:00 - Hvítasunnukirkjan
Bænastund.
Föstudagur 29. júní
----------------------------------------------------------
18:00 - Eyjabíó
The Incredibles (enskt tal/ísl. texti)
21:00 - Eyjabíó
Sicario (Day of the soldado)
laugardagur 30. júní
----------------------------------------------------------
15:00 - Eyjabíó
The Incredibles (íslenskt tal)
16:00 - Hásteinsvöllur
ÍBV - Grindavík, Pepsi-deild karla
18:00 - Eyjabíó
Sicario (Day of the soldado)
21:00 - Eyjabíó
Ocean´s Eight
sunnudagur 1. júlí
----------------------------------------------------------
11:00 - Landakirkja
Lesmessa í Landakirkju. Sr. Viðar
þjónar fyrir altari og prédikar.
Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Kitty.
13:00 - Hvítasunnukirkjan
Samkoma, ræðumaður Guðni
Hjálmarsson, kaffi og spjall eftir á.
miðvikudagur 4. júlí
----------------------------------------------------------
11:00 - Hraunbúðir
Helgistund á Hraunbúðum
Miðvikudagur 26. júní 2018
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
börn og brúðhjón
Hin árlega sjö tinda ganga var
haldin á laugardaginn í mikilli
rigningu og litlu skyggni. Mætingin
var óvenju góð miða við veður-
skilyrði og tóku um tuttugu mans
þátt í göngunni, aðeins tveir fóru þó
alla sjö tindana.
Gangan hófst við Klaufina og
þaðan var haldið uppá Stórhöfða.
Næst átti að fara upp á Sæfell,
Helgafell, Eldfell, Heimaklett, upp
á Hána yfir Molda, eggjarnar og
niður Dalfjallið. Björgunarsveitin
mælti ekki með því að fólk færi
Dalfjallið og Heimaklett útaf veðri.
Allir þáttakendur fóru uppá
Stórhöfða og svo var mismunandi
hvenær fólk hætti í göngunni og
aðeins tveir kláruðu eins og áður
sagði.
Aðgangseyrir í gönguna var 2000 kr
og safnaðist 40.000krónur og rann
sú fjárhæð til Krabbameinsvarnar í
Vestmannaeyjum.
7 tinda gangan í blautviðri
á laugardaginn
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is