Fréttir - Eyjafréttir - 26.06.2018, Síða 11
Eyjafréttir - 11
Íþróttir
u M S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Miðvikudagur 26. júní 2018
Eyjakonur mættu aftur til vinnu
eftir 20 daga hlé frá fótbolta þegar
liðið gerði jafntefli gegn Stjörnunni
í Garðabænum sl. miðvikudag,
lokastaða 2:2.
Lára Kristín Pedersen kom
heimamönnum í Stjörnunni yfir
eftir um 20 mínútna leik en tíu
mínútum síðar jafnaði Shameeka
Fishley metin fyrir ÍBV eftir
undirbúning Cloé Lacasse.
Shameeka var síðan aftur á ferðinni
á 57. mínútu leiksins er hún kom
Eyjakonum yfir með góðu skoti.
Tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði
varamaðurinn Telma Hjaltalín
Þrastardóttir metin fyrir Stjörnuna
en Emily Armstrong í marki ÍBV
hefði átt að gera betur. Ekki urðu
mörkin fleiri og niðurstaðan 2:2
jafntefli.
Fátt um fína drætti í rigningunni
á Hásteinsvelli
ÍBV fékk Grindavík í heimsókn á
sunnudaginn í sjöundu umferð
Pepsi-deildar kvenna. Líkt og á
móti Stjörnunni lyktaði leiknum
með jafntefli, lokastaða 1:1.
Rio Hardy kom gestunum yfir á
25. mínútu leiksins og var það
staðan þegar flautan gall í hálfleik.
Á 50. mínútu leiksins jafnaði
miðvörðurinn Caroline Van
Slambrouck metin fyrir ÍBV með
góðum skalla. Ekki voru fleiri mörk
skoruð og niðurstaðan því 1:1
jafntefli eins og fyrr segir í annars
bragðdaufum leik.
Að sjö umferðum loknum er ÍBV í
fimmta sæti með átta stig, fimm
stigum á eftir Stjörnunni í fjórða
sætinu.
Tvö stig úr síðustu fjórum leikjum
Í samtali við Eyjafréttir sagði Ian
Jeffs, þjálfari Eyjakvenna, liðið hafa
átt meira skilið í síðustu tveimur
leikjum. Liðið hefur að hans mati
verið að spila vel á köflum en ekki
verið að ná úrslitum í samræmi við
spilamennsku.
„Við fengum færi til að ganga frá
leiknum núna á sunnudaginn, en
þetta snýst um að skila boltanum í
netið og við gerðum það ekki.
Grindavík spilar þétta vörn og
gerðu það vel, þær fóru einu sinni
yfir miðju í fyrri hálfleik og náðu að
skora mark. Það var aðeins meira
tempó í síðari hálfleik en því miður
fyrir okkur þá hefur þetta verið
svona stöngin út hjá okkur.“
Hefur þú áhyggjur af gengi liðsins
í ljósi þess að liðið hefur einungis
fengið tvö stig úr síðustu fjórum
leikjum? „Nei í sjálfu sér ekki en
við þurfum klárlega að bæta
varnarleik liðsins, við erum að fá
mörk á okkur með litla pressu á
okkur. Við erum vanalega að spila
vel en þurfum klárlega að verjast
betur, það er eitthvað sem við
getum bætt. Síðustu tvo leiki hefðu
við átt að vinna að mínu mati og
það er ákveðið högg að fá einungis
tvö stig af sex mögulegum. Við
erum að fá færri stig en við eigum
að fá miðað við spilamennsku,“
segir Jeffs.
Næsti leikur er gegn Fylki í
bikarnum á föstudaginn og segir
Jeffs þann leik kærkominn eftir
vonbrigðin í deildinni upp á
síðkastið. „Það er keppni sem við
höfum staðið okkur vel í síðustu tvö
árin og við stefnum að sjálfsögðu á
að fara alla leið í ár líka. Þessi
leikur kemur kannski bara á fínum
tímapunkti, því á meðan getum við
gleymt slæmu gengi í deildinni og
einbeitt okkur að því að komast
áfram í bikarnum.“
Knattspyrna | Pepsi-deild kvenna :: Stjarnan 2:2 ÍBV :: ÍBV 1:1 Grindavík
Sigla lygnan sjó um miðja deild
ÍBV og Stjarnan mættust í tíundu
umferð Pepsi-deildar karla í síðustu
viku. Svo fór að heimamenn í
Stjörnunni höfðu betur 2:1.
Shahab Zahedi kom ÍBV yfir á 17.
mínútu eftir vel útfærða skyndi-
sókn. Sindri Snær Magnússon,
fyrirliði Eyjamanna, átti þá góða
sendingu á Íranann knáa sem
brunaði upp vinstri kantinn, lék á
varnarmann Stjörnunnar og setti
boltann í fjærhornið, framhjá
Haraldri Björnssyni í markinu.
Adam var hins vegar ekki lengi í
paradís því Þorsteinn Már Ragnars-
son jafnaði leikinn fyrir Stjörnu-
menn fáeinum mínútum síðar.
Guðjón Baldvinsson hafði þá leikið
á Halldór Pál Geirsson í marki ÍBV
og sent boltann með hælnum á
Þorstein Má sem skilaði boltanum í
autt markið.
Það var síðan Baldur Sigurðsson
sem innsiglaði sigurinn fyrir
Stjörnuna með skalla eftir horn-
spyrnu á 84. mínútu leiksins.
Niðurstaðan 2:1 sigur Stjörnunnar
sem er í mikilli toppbaráttu á meðan
Eyjamenn sitja í 11. sætinu með
átta stig þegar tíu umferðir hafa
verið spilaðar.
Knattspyrna | Pepsi-deild karla :: Stjarnan 2:1 ÍBV:
Eyjamenn fóru tómhentir
heim úr Garðabænum
ÍBV mun mæta Sarpsborg í
forkeppni Evrópudeildarinnar en
dregið var til þess sl. miðvikudag.
Leikirnir fara fram 12. og 19. júlí
og verður fyrri leikurinn spilaður í
Vestmanna-eyjum.
Knattspyrna |
ÍBV mætir
Sarpsborg
Í fyrradag skrifaði ÍBV undir
samning við Sigurð Bragason um
þjálfun meistaraflokks kvenna á
næsta tímabili ásamt Hrafnhildi
Skúladóttur. Samningurinn er til
eins árs.
Sigurður hefur undanfarin ár
þjálfað meistaraflokk karla, fyrst
með Gunnari Magnússyni og síðan
Arnari Péturssyni, ásamt því að
stýra ÍBV-U sl. tvö tímabil.
Handbolti |
Sigurður
Bragason
nýr aðstoð-
arþjálfari
kvennaliðs
ÍBV
KFS og GG mættust í C-riðli 4.
deildar karla á sunnudaginn í leik
sem fyrir fram hefði átt að vera
spennandi í ljósi þess að liðin voru
jöfn að stigum þegar fimm umferðir
höfðu verið spilaðar. Liðsmenn
KFS sýndu hins vegar úr hverju
þeir eru gerðir og rúlluðu gestunum
upp með fjórum mörkum gegn
engu.
Bjarni Rúnar Einarsson kom
heimamönnum á bragðið með
marki strax á annarri mínútu
leiksins. Ásgeir Elíasson bætti þá
um betur og skoraði næstu tvö mörk
KFS, það fyrra á 15. mínútu og það
síðara á 32 mínútu og staðan 3:0
þegar flautað var til hálfleiks.
Allt virtist stefna í 3:0 sigur
Eyjamanna en Gunnar Páll
Hálfdánsson rak síðasta naglann í
kistu GG með marki á 82. mínútu
leiksins, mínútu eftir að hann hafði
komið inn á sem varamaður.
KFS er eftir umferðina á toppi
C-riðils 4. deildar með 15 stig, GG
er hins vegar í 4. sæti með 12 stig.
Knattspyrna | 4. deild karla C-riðill
:: KFS 4:0 GG
KFS skellti sér á
toppinn með sigri
Þór/KA 7 6 1 0 18 : 2 16 19
Valur 7 6 0 1 25 : 6 19 18
Breiðablik 7 6 0 1 19 : 6 13 18
Stjarnan 7 4 1 2 15 : 14 1 13
ÍBV 7 2 2 3 10 : 10 0 8
Selfoss 7 2 2 3 8 : 12 -4 8
Grindavík 7 1 3 3 6 : 17 -11 6
HK/Víking. 7 1 1 5 4 : 14 -10 4
FH 7 1 0 6 9 : 21 -12 3
KR 7 1 0 6 4 : 16 -12 3
Pepsideild kvenna
Valur 10 6 3 1 17 : 10 7 21
Stjarnan 10 5 4 1 24 : 14 10 19
Breiðablik 9 5 2 2 14 : 6 8 17
Grindavík 9 5 2 2 10 : 7 3 17
FH 10 4 4 2 17 : 13 4 16
KR 9 3 4 2 15 : 11 4 13
Fylkir 9 3 2 4 10 : 13 -3 11
Víkingur R. 9 2 3 4 8 : 14 -6 9
Fjölnir 9 2 3 4 11 : 18 -7 9
KA 9 2 2 5 12 : 15 -3 8
ÍBV 10 2 2 6 10 : 15 -5 8
Keflavík 9 0 3 6 6 : 18 -12 3
Pepsideild karla
KFS 6 5 0 1 16 : 6 10 15
Álftanes 5 4 0 1 21 : 2 19 12
Árborg 5 4 0 1 26 : 9 17 12
GG 6 4 0 2 15 : 12 3 12
Álafoss 5 2 1 2 11 : 8 3 7
Kóngarnir 6 1 0 5 10 : 28 -18 3
Afríka 5 1 0 4 5 : 28 -23 3
Ísbjörninn 6 0 1 5 6 : 17 -11 1
4. deild karla C riðill