Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.1998, Síða 2

Skessuhorn - 01.04.1998, Síða 2
2 TjTTÍj’ VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262 FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is Útgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 Blaðamaður: Helgi;Danie!sson, sími 898 029? ^ Auglýsingar: Magnús Valsson, simt 437 2262 : ' 2 Hönnun og umbrot: Guömundur Stoirisson, sími 588 4144 Prentun: ísafoidarprentsmiðja Skrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00-16:00 Skessuhorn kemur út alla miðvlkudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er fyrir kl. 12.00 á föstudögum. Blaðið er gefið út í 5.400 eintökum og dreift ókeypis inn á öil heimili og fyrirtæki á Vesturlandi. Aðilar utan Vesturlands geta gerst áskrifendur að blaðinu fyrir 800 krónur á mánuði. Píslarvott- ur mark- aöarins ÉG ER í eðli mínu góður strákur. Það verður nú bara að segjast eins og er. Það lýsir sér meðal annars í því að ég hef fulla samúð með Clinton og Keikó og öðrum þeim sem minna meiga sín. Stríðshrjáðar og sveltandi þjóðir eiga alla mína meðaumkun og það jaðrar við að ég tárist yfir örlögum hins bres- ka tuskubjamar; Bangsímon. Þessa dagana eru það þó ekki fómarlömb styijalda, hungursneiðar eða illrar meðferðar sem ég hugsa til með hluttekningu heldur kunningi minn einn ágætur sem er fómarlamb markaðskannana. Þótt örlögum hans sé ekki slegið upp á forsíðum dagblaða eða viðtalsþættir í sjónvarpi honum tileink- aðir þá er þessi ágæti kunningi minn píslarvottur markaðshyggjunnar holdi klæddur. Umræddur kunningi minn hefur með öðmm orðum hlotið þau örlög að vera „úrtaksmaður". Það er ekki gerð markaðskönnun eða skoðanakönnun öðravísi en að hann lendi í svokölluðu úrtaki. Stór hluti af hans vinnudegi og mikill partur af hans starfsorku fer í að svara allskyns spumingalistum, munnlega og skriflega. Skipti eftir skipti hringir síminn og hjáróma rödd spyr hann hvaða flokk hann ætli að kjósa. Mér þykir það afskaplega heimskulegt í ljósi þess að frá því ég man eftir mér hefur hann kosið sinn gamla hallærislega flokk og ég á alls ekki von á því að hann vaxi upp úr því. Aftur er svo hringt og spurt hvað hann muni kjósa ef hans gamli hallæris- legi flokkur muni sameinast öðram gömlum og hallærislegum flokki. Hann fær þykka doðranta af spumingum um neysluvenjur og ótal vinnustundir fara í að svara hvaða tegund af tómatsósu hann kjósi að nota með pylsum og hvaða tegund með pasta og þó vita það flestir að maðurinn étur alls ekki pasta. Hann þarf að svara því hvort hann kjósi heldur að snúa sér í norður eða suður þegar hann sefur og hvers vegna hann khppir á sér táneglumar meðan hann horfir á ellefufréttimar. Vandamál kunningja míns er að hann er fram úr hófi samviskusamur. Ég viðurkenni það fuslega að ég myndi hunsa spumingalista af því tagi sem hér era nefndir og ef einhver hringdi til að spyrja mig um afstöðu til eins eða annars myndi ég eflaust þykjast vera heymariaus. En kunningi minn má ekki heyra á það minnst. Hann svarar öllum spumingum af mikilli kostgæfni og ígrandar hvert svar. Hann leggur meira að segja í umtalsverða rannsókn- arvinnu í þágu markaðarins því fyrir utan þann tíma sem hann ver til að svara hverri spumingu þá leggur hann gríðarlega vinnu í að stúdera sínar eigin neysluvenjur og ígranda sitt hegðunarmynstur til að hann sé betur í stakk búinn tii að svara stimamjúkum markaðskönnuðum. Svo dæmi sé tek- ið þá fær hann sér ekki í glas öðra vísi en að velta því fyrir sér hvort honum þyki þægilegra að skála með hægri eða vinstri. Hann skráir einnig hjá sér hversu oft þarf að tyggja meðaltals munnbita af mismunandi kjöttegundum og svo mætti lengi telja. Skoðanakannanir og markaðskannanir miða víst að því að finna út með- altalsskoðanir á einhverri vöra eða þjónustu nú eða meðaltalsviðhorf til ein- hverra málefna. Því mætti ætla að kunningi minn væri holdgervingur hins íslenska meðalmanns. Svo er þó ekki. Hann er á engan hátt eins og fólk er flest. Hans skoðanir era ekkert líkar skoðunum annarra. Neysluvenjur hans era í hæsta máta óvenjulegar og ef út í það er farið þá er hann ekki einu sinni meðalmaður á hæð. Því óskiljanlegri era örlög þessa ágæta manns. Nú spyr ég hvort svo ítarleg vitneskja um hegðunar- og neyslumynstur sé svo mikilvæg að hún sé þess virði að leggja líf þessa kunningja míns í rúst. Fjölskylda hans líður fyrir þetta og félagar hans hafa af þessu nokkrar áhyggjur þar sem lff þessa manns snýst orðið um markaðskannanir og ekk- ert annað. Auðvitað er það jákvætt að fjöldi manns hafi af því atvinnu að grafla í einkalífi fólks en það má spyrja sig hvort tíma þess fólks væri betur varið í ' eitthvað annað. Það má að sjálfsögðu einnig spyrja sig hvort ég hafi nokkúm rétt til að vera að skipta mér af því. Hugsanlega væri mínum tíma betur var- ið í að fylla út ýtarlegar markaðskannanir og uppljóstra öllu um mínar neysluvenjur. Þá væri tíma lesenda kannski einnig betur varið í áð lesa um hvort ég fari í hægri eða vinstri gúmmískóinn á undan. Gísli Einarsson Hvalveiöar hefjist áb nýju á þessu ári LÖGÐ VAR fram svohljóðandi þingsáliktunartillaga á Alþingi þann 18. mars s.l.: „Alþingi ályktar að hvalveiðar skuli leyfðar frá og með árinu 1998 á þeim tegundum og innan þeirra marka sem Hafrannsóknarstofnunin hefur lagt til. Sjávarútvegsráðherra er falin frakvæmd veiðistjómar á grandvelli gildandi laga“. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Guðjón Guðmundsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi og meðflutningsmenn eru Einar K. Guðfinnson, Stefán Guðmundsson, Siv Friðleifsdóttir, Guðmundur Hall- varðsson, Ámi M.. Mathiesen, Ólaf- ur Öm Haraldsson og Ámi Johnsen. I greinargerð flutningsmanna til- lögunnar er vísað til þess að gildandi hvalveiðibann sé brot á sáttmála Al- þjóðahvalveiðiráðsins en þar segir í viðauka:“Hvalveiðar í atvinnuskyni skulu leyfðar á hvalastofnum, sem era í jafnvægi og þær skulu stundað- ar í samræmi við tillögur vísinda- nefndarinnar". í greinargerðinni er vísað til fjöl- margra skoðanakannana þar sem 80- 90% hafi lýst stuðningi við að hefja hvalveiðar að nýju. Þá er einnig í greinargerðinni rætt um hvalveiðar sem mikilvægan þátt í atvinnulífi Fyrsti flutningsma&ur þingsálykt- unartillögu um a& hvalvei&ar ver&i hafnar a& nýju. Gu&jón Guð- mundsson þingma&ur Vestlend- inga. landsins. Þar segir m.a.: „Af veiðun- um urðu miklar útflutningstekjur sem ætla má að gætu orðið enn meiri nú vegna verðþróunar á mörkuðum fyrir hvalaafurðir. Þessi atvinnugrein var mjög þýðingarmikil fyrir einstök sveitarfélög og hérað. í því sambandi má nefna starfsemi Hvals hf. í Hval- firði og Flóka hf. á Brjánslæk". Akraneslistinn lagbur fram UPPSTILLINGARNEFND Akra- neslistans lagði fram tillögu sína að framboðslista fyrir bæjarstjómarkon- ingamar 1998 á fundi í Verkalýðs- húsinu þann 24. mars s.l. Listinn er þannig skipaður: 1. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi 2. Kristján Sveinsson svæðisstjóri 3. Inga Sigurðardóttir þroskaþjálfi 4. Ágústa Friðriksdóttir ljósmynd- ari 5. Ingibjörg Haraldsdóttir skrif- stofumaður 6. Rögnvaldur Einarsson starfs- maður Rauða kross Islands 7. Pétur Svanbergsson iðnverka- maður 8. Ástríður Andrésdóttir verka- kona 9. Guðbjartur Hannesson skóla- stjóri 10. Adam Þór Þorgeirsson múrari 11. Helga Gunnarsdóttir menning- ar- og skólafulltrúi 12. Hannes Frímann Sigurðsson tæknifræðingur 13. Birna Gunnlaugsdóttir fram- haldsskólakennari 14. Þóranna Hildur Kjartansdóttir sjúkraliði 15. Jensína Valdimarsdóttir íþrótta- kennari 16. Hafsteinn Baldursson renni- siniður > 17. Guðlaug Margrét Sverrisdóttir leikskólakennari 18. Hervar Gunnarsson formaður Verkalýðsfélags Akraness Verbkönnuná leikskólagjöldum NÝLEGA var gerð verðkönnun á vegum ASÍ, BSRB og Neytendasam- takanna á leikskólagjöldum í ein- stökum sveitarfélögum. I könnuninni kom m.a. fram að allt að 89% munur er á leikskólagjöldum milli sveitarfé- laga. Fyrir hjón og sambúðarfólk er heilsdagsleikskóli fyrir eitt barn dýrastur á Húsavík en ódýrastur á Neskaupstað. Fyrir forgangshóp er heilsdagsleikskólinn fyrir eitt bam dýrastur á Húsavík og í Grindavík en ódýrastur á Neskaupstað. Hálfsdags- leikskóli er dýrastur í Hafnarfirði en ódýrastur í Kópavogi. Tvö sveitarfélög á Vesturlandi votir tekin með í könnuninni, þ.e. Borgarbyggð og Akranes. Akranes var með fjórða lægsta gjald fyrir for- gangshópa í heilsdagsleikskóla en Borgarbyggð var í 11. sæti. Fyrir hjón og sambýlisfólk með eitt bam í heilsdagsleikskóla var Akranes í fimmta sæti en Borgarbyggð í 11. sæti. Bæði sveitarfélögin vora undir meðalverði í báðum flokkunum. Mynd H.Dan. Mtsáunul' Sameining- arviðræbur í Dölum EINS og fram hefur komið í Skessuhomi var fyrir skömmu skipuð nefnd til að kanna grundvöll fyrir hugsanlegri sameiningu Dalabyggðar, Saurbæjarhrepps og Reykhóla- hrepps. Að sögn Marteins Valdimarssonar sveitarstjóra Dalabyggðar hefur nefndin þegar hatdið tvo fundi og sá þriðji hefur verið ákveðínn. Áætlað er að vinnulok verði í apríl en þá á að liggja fyrir hvort lögð verði fyrir íbúana skoðanakönnun í vor. Mart- einn taldi það hínsvegar afar hæpið að kosið yrði um sam- einingu fyrir sveitarstjórnar- kosningamar í vor. Sameining- arviðræbur sunnan Heibar VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli fjögurra sveitarfélaga í Borgarfirði sunnan Skarðs- heiðar um hugsanlega samein- ingu. Sveitarfélögin era Hval- fjarðarstrandarhreppur, Innri Akraneshreppur, Leirár og Melahreppur og Skilmanna- hreppur. Tveir fulltrúar frá hverju sveitarfélagi hafa verið skipaðir í samstarfsnefnd sem hefur starfað um nokkurra víkna skeið. Upphafið að umræddum sameiningarviðræðum má rekja til fundar sveitarstjómar- manna í sveitarfélögunum fjór- um sem haldinn var þann 30. nóvember s.l. Engin ákvörðun var tekin á þeim fundi en í jan- úar funduðu sveitarstjómirnar á nýjan leik og niðurstaða þess fundar var að skipa skildi néfnd til að skoða kosti og galla sameiningar: Að sögn Hallfreðs Vil- hjálmssonar talsmanns sam- starfsnefndarinnar verður reynt að hraða vinnu nefndar- innar eins og kostur er og hafa þeir Atli Rúnar Halidórsson og Valþór Hlöðversson frá At- hygli hf. verið ráðnir til að veita ráðgjöf. Árshátíb Crunda- skóla nemenda í Grundaskóla á Akranesi verða í skólanum miðvikudaginn 1. apríl og fimmtudaginn 2. aprfl n.k. Um er að ræða tjölbreytta skemm- tun með leikþáttum, kórsöng og alls kyns skemmtiatriðum sem nemendur hafa undirbúið með kennurum sínum. Markmiðið er að sem flestir komi fram og hafi gagn og gaman af. Auk sérstakra sýn- inga fyrir nemendur skólans verða fjórar almennar sýningar , fyrir foreldra og gesti. Þær sýningar verða kl. 16.00 og 20.00 1. og 2. apríl.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.