Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.1998, Page 7

Skessuhorn - 01.04.1998, Page 7
«k£SSUIU/i> MIÐVIKUDAGUR 1.APRÍL1998 7 Abalfiindur Sementsverk- smíbjunnar AÐALFUNDUR Sements- verksmiðjunnar hf. var hald- inn föstudaginn 27. apríl í húsakynnum fyrirtækisins á Akranesi. Að sögn Gylfa Þórðarsonar framkvæmdastjóra gekk rekstur fyrirtækisins sæmi- lega á síðasta ári og að flestu leyti í samræmi við áætlanir. Fjármagnskostnaður hækkaði umtalsvert vegna þess að eig- andi fyrirtækisins ákvað að fyrirtækið tæki á sig stærstan hluta af lífeyrisskuldbinding- um hjá Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins frá og með 1. janúar 1997, en ákvörðun því viðvíkjandi var ekki tekin fyrr en eftir mitt síðasta ár. Hagnaður á síðasta ári varð um 19 milljónir króna eftir skatta en það er um níu millj- ónum meiri hagnaður en árið 1996. Sementssala jókst um tæp- lega 23% frá árinu 1996 og varð um 108.500 tonn. Að sögn Gylfa eru góðar horfur varðandi sementssölu á þessu ári og rekstrarhorfur með besta móti. Munib að læsa bflnum NOKKUÐ hefur borið á því á Akra- nesi að undanfömu, að stolið er verð- mætum úr bílum. Það er helst í þeim tilfellum þegar fólk þarf að skreppa augnablik út úr bflnum t.d. við versl- un og skilur eftir peningaveski eða önnur verðmæti í honum. Lögreglan vill beina þeim tilmælum til fólks að muna eftir að læsa bflum sínum, jafnvel þótt það þurfi að yfirgefa þá stutta stund og að skilja ekki eftir nein verðmæti í þeim. Stjórn Akraborgar. Á myndinni eru frá vinstri. Olafur Grétar Olafsson, Benedikt Jónmundsson, Guðjón Guðmundsson formaður, Elís Jónsson og Gunnar Sigurðsson. Akraborgin flutti 225 þús. manns Askrift fyrir íbúa utan kjördæmisins. Sími: 437 2262 ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi að segja, að ferðir Akraborgar milli Akraness og Reykjavíkur leggjast af í júlí í sumar á svipuðum tíma og göngin undir Hvalfjörð verða opnuð. Nýlega var haldinn stjómarfundur hjá Skallagrími ehf. og í framhaldi af honum aðalfundur félagsins. Trúlega var það síðasti aðalfundur félagsins, a.m.k. meðan skip félagsins er í áætlunarferðum. Margir koma til með að sakna Akraborgarinnar, en skip Skalla- gríms hf. hafa verið í ferðum milli Akraness og Reykjavíkur og til Borgamess á sínum tíma, allar götur síðan 1932 er félagið var stofnað. Saga samgangna á sjó milli þessara staða á sér mun lengri sögu, eða allt frá árinu 1891. Við bíðum betri tíma til að rifja upp þá sögu. jjjgjjjfflfll Snæfellsbær SNÆFELLSBÆ Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: FORSTÖÐUMAÐUR VINNUSKÓLA/GARÐYRKJUSTJÓRI í starfinu felst umsjón og skipulagning á vinnuskóla, smíðavöllum ásamt verkstjórn, umsjón og vinnu við garð- yrkjuverkefni Snæfellsbæjar. Umter; að ræða tímabundið starf í 5-6 mánuði. Gott væri að viðkomandi gæfi hafíð störf sem fyrst. Leitað er að at- hæfileika til samskipta við annað fólk. Reynsla af manna- forræði mjög æskileg. Viðkomandi þarf að hafa garðyrkju- menntun og/eða mjög góða reynslu af garðyrkjustörfum. Æskilegt er að hafa bíl til umráða. ; :':-i'i.!7i%iiiÝ .y ' .: . -■ . -■■ ...." FLOKKSSTJÓRAR í VINNUSKOLA Um er að ræða störf hálfan eða allan daginn í 8-12 vikur frá 25. maí. Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu bæjaryérkfræðings í s. 436 1153. ’ a v STARFSMENN í ÁHALDAHÚS OG SLÁTTUFLOKK Um er að ræða fullt starf við áhaldahús og við slátt á opn- um svæðum í Snæfellsbæ frá maí lokum til september byrjunar. Nánari upplýsingar gefur verkstjóri í síma 436 1159. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SDS. Umsóknarfrestur er til 15. apríl og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstofur á eyðublöð sem þar fást. Nánari upplýs- ingar eru gefnar á bæjarskrifstofum í síma 436 6900 og 436 1153. Á aðalfundi Skallagríms var lögð fram skýrsla yfir starfsemina á árinu 1997. Við skulum aðeins líta á nokkrar tölur. Akraborgin fór 2783 ferðir milli Akraness og Reykjavíkur á árinu, en árið 1996 voru þær tveimur fleiri. Það féllu niður alls 122 ferðir á árinu af þessum ástæðum: Vegna stórhátíðisdaga 56 ferðir. Vegna viðhalds skipsins 40 ferðir. Vegna veðurs 18 ferðir og vegna verkfalls 8 ferðir. Alls voru fluttir 66.462 bflar, sem skiptist þannig: Milli Reykjavíkur og Akraness 35.294, en milli Akraness og Reykjavíkur 31.168. Að meðaltali voru því um 24 bflar í ferð. Þar af voru fluttir 6.559 flutingabflar, eða 2.4 að meðalatali. Vélar og vagnar voru 2.883. Fjöldi farþega var 225.873, sem var fjölgun um 1.769 farþega, eða 0.79 % frá árinu 1996. Meðaltal farþega í ferð var tæplega 81. Flestir farþegar voru í júlí. Á árinu 1997 störfuðu að meðaltali 39 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur alls 83.4 milljónum króna. Stjórn Skallagríms skipa þeir Guðjón Guðmundsson sem er for- maður, Gunnar Sigurðsson, Benedikt Jónmundsson, Ólafur Grétar Ólafs- son og Elís Jónsson. Framkvæmda- stjóri er Helgi Ibsen. Starf í boði Viljum ráða reglusaman, lagtækan starfsmann til að annast ýmiskonar viðhald, viðgerðir og fleira. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Upplýsingar gefnar í síma 435 1260. 5 ■ ■ -h., Umsóknir sendist HÓTEL REYKHOLT Borgarfirði - Sími 435 1260 fax 435 1206 Frá Grundaskóla Akranesi Kennarar - Skólastjórar Aðstoðarskólastjóri Aðstoðarskólastjóra vantar til starfa við Grundaskóla frá og með 1. ágúst n.k. Leitað er eftir duglegum, áhuga- sömum kennara með kennslureynslu og góða samstarfs- hæfileika. Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsnám í stjórnun, stjórnunarreynslu, tölvukunnáttu og þekkingu á sérkennslumálum. Almennir kennarar Við Grundaskóla vantar 2-3 kennara til að sinna kennslu yngri barna. Laun skv. kjarasamningi KÍ/HÍK og launanefndar sveita- félaga. Umsóknarfrestur er til 30. apríl n.k. Nánari upplýsingar veita Guðbjartur Hannesson, skóla- stjóri v.s.431 2811 h.s. 431 2723 og Ólína Jónsdóttir, að- stoðarskólastjóri, v.s. 431 2811 h.s. 431 1408. Menningar-og skólafulltrúi Akraness Borgnesingar, nærsveitamenn ! Munið fermingarskeyti skátanna. • Sími í Skátahúsinu : 437 1798 Skeytaþjónusta allt árið. Heimasímar: 437 1235 - 437 1706 - 437 1346. Höfum opnað vinalegt hótel á sögufrægum stað í friðsælu umhverfi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.