Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.1998, Qupperneq 14

Skessuhorn - 01.04.1998, Qupperneq 14
HEILSUHORNIÐ MOTTUR Abalskobun á Grundarfirbi MANUDAGINN 23. mars s.l. opn- aði Aðalskoðun hf. sjöundu skoðun- arstöð sína, að þessu sinni í Grundar- firði. Skoðunarstöðin er nýtt fyrir- tæki á staðnum og er búin fullkomn- um skoðunartækjum. Þar má til- kynna eigendaskipti, borga bifreiða- gjöld, leggja inn númeraplötur og panta nýjar. Öm Ármann Jónasson veitir stöðinni forstöðu. Það er akkur fyrir Grundfirðinga og aðra Snæfellinga að geta nú látið skoða ökutæki sín nánast þegar þeim best hentar. -eöe Selma Rut Þorkelsdóttir klippir á borbann. Mynd: þeyr VILTU TORFBÆ FYRIR SUMARIÐ? Framleiðum torfbæi í ýmsum stærðum. Henta líka vel fyrir bændagistingu Falla vel að íslensku landslagi. Framleiðum einnig flytjanleg íbúðarhús af ýmsum stærðum Aðlögum teikningar að óskum kaupenda FARHUS ehf. Vesturbraut 20 - 370 Búðardal Símar 434 1639 og 853 0169 • emaail: agust@aknet.is MIÐVIKUDAGUR 1. APRIL 1998 Spjaldhryggs- og lendar einkenni SPJALDHRYGGS/LÉNDAR liða- mótin eru sitt til hvorrar hliðar við spjaldhrygginn, við enda hryggsúl- unnar. Þessi liðamót em mjög mikil- væg í daglegu lífi þar sem þau hrey- fast þegar við göngum og þau taka af höggið sem kemur á hrygginn við hvert skref. Þau geta stífnað eða gengið aðeins til og valdið leiðinda seiðingi í mjóbakinu sem einnig get- ur komið fram á rasssvæði og leitt niður aftanvert lærið. Verndandi vöðvakrampi getur líka komið til og hindrað eðlilega hreyfingu. Samt sem áður em engir vöðvar sem ligg- ja yfir þessi liðamót. Það er ein ástæða þess að teygjur og æfingar eingöngu gagnast ekki nógu vel þeg- ar þetta vandamál er til staðar. A meðgöngu valda þessi liðamót oft óþægindum þar sem liðböndin sem halda þeim saman, sem og önnur lið- bönd í líkamanum, slakna er lengra líður á meðgönguna. Þær konur sem hafa fengið grindargliðnun hafa oft einkenni á þessu svæði. Þetta jaftaar sig yfirleitt aftur en vegna slakans geta liðamótin gengið til og valdið óþægindum í töluverðan tíma eftir að bamið er fætt. Facettu-liba einkenni. Stirðleiki í þessum liðum er mjög algeng orsök óþæginda í mjóbaki. Facettu-liðir em pör aftan til á hverj- um hryggjarlið og þeir koma í veg fyrir að hryggsúlan hreyfist of mikið. Ef þeir verða fyrir skaða af völdum íþrótta, vinnu, eðlilegrar öldrunar o.s.fv. geta þeir bólgnað og hreyfing getur verið skert á tilteknum stað á hryggsúlunni. Verða þessar aðstæður oft til þess að verks gætir í mjóbak- inu sem jafnvel leiðir niður í aftan- verð lærin. Enn og aftur getur vemd- andi vöðvakrampi gert þessar að- stæður verri þar sem erfitt er að við- halda hreyfingu vegna þess hve vöðvamir em orðnir stífir. Mislangir fætur, ilsig eða misgengi í mjöðmum, sem t.d. getur lýst sér þannig að önnur mjöðmin virðist mun hærri en hin, geta einnig orsak- að bakverk. Ef gmnur er á slíku ætti viðkomandi að leita til fagmanns eins fljótt og auðið er, til þess að koma í veg fyrir vítahring verkja er af því kynni að stafa. Þessi vandamál em algengari orsök fyrir bakóþæg- indum en margan gmnar. Skemmt brjósk. Hver hryggjarliður er aðskilinn frá nágranna sínum með fjaðrandi bijós- ki, sem er í tveimur hlutum, sá innri er hlaupkenndur og hinn ytri er stífur og heldur hlaupinu á sínum stað. Hvert brjósk er fasttengt við næstu tvo aðliggjandi htyggjarliði og fer því sjaldan langt. Það sem getur hins vegar gerst er að brjósk sem er orðið viðkvæmt vegna endurtekinna skaða eða minni slysa getur brostið. Þetta getur leitt til þess að sumt af hlaup- inu í miðjunni lekur út, þrýstir á stí- fann ytri hringinn sem gengur út í göngin þar sem taugamar liggja. Þessi leki (brjósklos) getur þrýst á taugar sem t.d. ganga niður í fætuma og valdið snöggum verk alveg niður í tær. Verkurinn í fætinum er oft verri eða jafnslæmur og verkurinn í bak- inu sjálfu. Þetta er ekki eins algengt og þau afbrigði sem á undan em talin en er oft mun alvarlegra. Ef þú ert hrædd/ur um að þú sért komin/n með brjósklos athugaðu þá hvort að eftir- talin einkenni em eitthvað sem þú kannast við: 1. Djúpur seiðingur í mjóbaki og/eða niður í rasssvæði og læri. 2. Verkur í fæti með dofa / tilfinn- ingaleysi, náladofi eða skert afl. 3. Persónan beygir líkamann ósjál- frátt til annarar hliðar til að minn- ka verkinn, sem sjá má t.d. ef önnur öxlin er mun hærri en hin. 4. Hreyfingar em skertar og hægar. 5. Verkur kemur í fót eða bak við hósta, hnerra eða teygjur. Sr, Björn 4én**on ^ M__Ma. J ð ________ Sábmabur ab starfí NÝLEGA kom út hjá Bókaútgáfu Æsk- unnar bókin Sáðmaður að starfi, sem er afmælisrit sr. Bjöms Jónssonar fyrrum prófasts og sóknarprests á Akranesi. Sr. Bjöm varð 70 ára 7. okt. 1997. Af því tilefni ákváðu vinir hans í bindindis- hreyfingunni að heiðra hann með útgáfu afmælisrits, en sr. Bjöm er stórtemplar í Stórstúku I.O.G.T. Efni bókarinnar, sem er 256 bls. er afar fjölbreytt. I fyrsta kaflanum er við- tal við sr. Bjöm um líf hans og starf. Að öðra leyti er bókin greinasafn hans sjálfs. Gefur þar að líta sýnishom af ýmsu því besta sem hann hefur ritað um dagana. Sr. Bjöm er Skagfirðingur að upp- runa. Hann á að baki langan og farsælan feril sem prestur íslensku þjóðkirkjunn- ar, fyrst í Keflavík og síðan á Akranesi. Hann er einnig kunnur af störfum sín að bindindismálum og ekki síst fyrir áhuga sinn á bóka- og blaðasöfnun. Frágangur bókarinnar er fallegur og látlaus. Hún er unnin í Prentsmiðjunni Odda. Það var sr. Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur á Akranesi sem sá um út- gáfuna og ritaði svipmyndir úr ævi sr. Bjöms. Þar segir m.a.: „Sr. Bjöm hefur verið „sáðmaður í starfi" í þau 45 ár sem hann hefur helgað kirkju og kristni krafta sína. - Hann hefur skrrt um 5500 böm, fermt svipaðan fjölda, gift 1700 hjón - og jarðsungið 2200 manns." Sr. Björn hefur verið dáður af sóknar- bömum sínum í Keflavík og á Akranesi - enda einlægur trúmaður, frábær kenni- maður og sálusorgari; sannur vinur og bróðir í gleði og raun. Undir þessi orð sr. Eðvarðs geta Skagamenn tekið, en sr. Bjöm var prestur þeirra frá árinu 1975 til ársloka 1997, eða í tæp 22 ár. ^iiiiasioriL Metró, Akranesi • Metró, Borgarnesi Litabúðin, Ólafsvík • Hamar, Grundarfirði Skipavík, Stykkishólmi Falleg áferð og góð viðkoma, auk auk margra hagnýtra kosta, gera valið á nýju gólfefni auðvelt! • auðvelt að leggja • þolir mikið álag • mjög litsterkt • hrindirfrá sér ryki • auðvelt að þrífa V79SW Mikið úrval af mottum í öllum stærðum, gerðum og formum!

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.