Skessuhorn


Skessuhorn - 30.07.1998, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 30.07.1998, Blaðsíða 16
SKARTGRiPIR - GJAFAVARA í'AODEL STUIHOLT118 - AKRANESI S 431 3333 ■ÍJ- RAKARASTOFA Já, k HAUKS jsj Vöruhúsi K.B. Borgarnesi Sími 437 1125 Opið 09:00-18:00, föstudaga 09:00-19:00 T" og laugardaga 10:00-13:00 Fyrsta hitaveitan tengd Þann 19. júlí sl. var merkisdagur í Helgafellssveit. Þá var fyrsti bærinn á norðanverðu Snæfellsnesi, Arnar- staðir í Helgafellssveit, tengdur við hitaveitu úr nýrri borholu sem stað- sett er nánast á bæjarhlaðinu. Sífellt fleiri svæði, sem áður voru talin “köld”, reynast nú hafa að geyma heitt vatn í iðrum jarðar. Það er bara að finna það. Góður árangur hefur náðst í þessum efnum á Snæ- fellsnesi að undanfömu og nú segja menn að leitin að heita vatninu sé rétt að byrja. Auk Stykkishólmssvæðisins er fyrirhugað að gera skipulagða leit að vatni í Eyrarsveit og Snæfellsbæ. Abúendur á Amarstöðum, systkin- in Daníel Hauksson og Hólmfríður Hauksdóttir, vom að vonum ánægð með áfangann þegar blaðamaður Skessuhoms var á ferðinni um síð- ustu helgi. Um aðdraganda hitaveit- unnar sagði Daníel bóndi að fyrsta tilraunaholan hafi verið boruð 16. júlí í fyrra og vatnið fannst síðan 5. janú- ar í vetur. Vinnsluholan er um 400 metra djúp og úr henni koma 30-35 lítrar á sekúndu af 87 gráðu heitu vatni. Holan er um 120 metra frá í- búðarhúsinu á Amarstöðum og ein- ungis 9 metra frá fjósinu, þannig að stutt er í rafmagn. “Mig var lengi búið að gmna að hér fyndist heitt vatn og upphaflega ætlaði ég einungis að bora eina til- raunaholu en þær urðu hins vegar þrjár áður en vinnsluholan var endan- lega staðsett”, sagði Daníel. Míga upp í vindinn! Um stuðning frá hinu opinbera við framkvæmdirnar sagði Daníel að hann hafi nánast enginn verið. Þó styrkti Rarik og Stykkishólmsbær framkvæmdina óbeint með greiðslu á flumingi borsins á sínum tíma og auk þess bauðst Rarik til að bora eina til- raunaholu. Það afþakkaði ég hins vegar, því þegar boðið kom hafði ég ákveðið að hætta við allt saman þó síðar hafi ég haldið áfram. f 1 sótti Daníel um fjárstyrki til v.-rk'.ms á tveimur stöðum en báðar stofnanimar sem leitað var til neituðu um stuðn- ing. “Mér hefur komið til hugar að réttast væri að ég myndi útbúa gos- bmnn með fjómm mönnum sem hver um sig væri sípissandi í sitt hverja áttina. Á gosbmnninn yrði letrað: “Það er alltaf einhver sem mígur upp í vindinn”. Eg fór fram á styrk til til- raunaborana og ætlaði sjálfur að greiða a.m.k. helming á móti, en fékk neitun alls staðar. Hins vegar núna, þegar vatnið er fundið og komið upp á yfirborðið, þá vilja margir eigna sér framtakið og jafnvel segjast eiga verkið”, sagði Daníel og ekki var laust við að vanþóknunartóns gætti í frásögn hans í garð kerfisins. “Mér finnst að menn eigi að fjárfesta í rannsóknum af þessu tagi, því jafn- vel þótt árangur verði enginn er það ákveðin niðurstaða því það segir mönnum að svæðið sé þá kalt”, bætti Daníel við og sagði að það ætti einmitt að vera hlutverk stofnana á borð við Byggðastofnun og sjóða- kerfi landbúnaðarins að styrkja fram- kvæmdir af þessu tagi og styrkja þannig búsetumöguleika og atvinnu- sköpun á jaðarsvæðum sem þessum. VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 24. tbl. 1. árg. 30. júlí 1998 Ábúendur á Arnarstö&um þau Daníel og Hólmfrí&ur vi& vatnsinntakiö í bæinn. Óvíst um nýtingu Á Arnarstöðum var íbúðarhúsið áður kynt með rafmagni. Um nýtingu vatnsins sagði Daníel að langt væri á milli bæja í sveitinni og því óvíst hvort hagkvæmt væri að leiða það þangað. “Okkar notkun verður lík- lega það lítil á vatninu að hún sem slík greiðir ekki niður stofnfram- kvæmdimar. Maður er of gamall til að geta nýtt þetta til fulls með því að hefja einhverja aðra starfsemi á jörð- inni og láta fjárfestinguna þannig skila sér. En þægindin af því að hafa nóg af heitu vatni á bænum eiga á- reiðanlega eftir að verða mikil”, sagði Daníel bóndi Hauksson að lok- um og því til staðfestingar hafði úti á hlaði á Amarstöðum verið komið fyr- ir litlu fiskkari þar sem ungur gest- komandi piltur og nafni bóndans svamlaði með plastdót sér til ánægju. I landi næsta bæjar við Amarstaði, á Hofsstöðum, hefur einnig verið borað eftir heitu vatni með góðum árangri og til stendur að leiða frá þeirri bor- holu vatn til Stykkishólmsbæjar. Framkvæmdir við það verk em nú hafnar. -MM Útsalan hefst á þriðjudaginn 'tS , <2 • •■■■ E I <u 8 o <D 1*0 co M * VORUHUS KB Gœði og gottverð Bvggi ngavö ruversl u n - Akursbraut 9 - 300 Akranes Sími 431 5040 - Fax 431 5030 - GSM 899 5031 O pn)uk) artim /A~ Föstui>. 7.50 - 18.00 Lau^A^e*- ~ suájmui>. 10.00 - 16>.00 'Hórpusilki

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.