Skessuhorn - 16.09.1999, Page 16
B ORGAFKNIES ÖAPÓTEK
sími 437 1 168 Bakvakt 437 1 180
www.simnet.is/apotek
Lei&toiöi i Utju tytí&uedi á VeftutUudi
—;—n
Leigjum út
gólfmottur
Borgarbraut 55, Borgarnesi. S: 437 1930
Slökkviliðið brást skiótt við þeear kviknaði í trillunni Ama Jónssyni í Olafsvíkurhöfn.
Mynd: EMK
Eldur í trillu í
Ólafsvfkurhöfii
Trillan Ami Jónsson KE-109 frá
Keflavík skemmdist mikið í eldi
sl. mánudag. Mátti telja mikla
mildi að ekki fór verr við brun-
ann en raun bar vitni. 'l'veir
menn voru við störf þegar eldur-
inn braust út á svipstundu út firá
vélarbilun. Mönnunum tókst að
forða sér en ekki mátti miklu
muna að illa færi.
Slökkvilið staðarins brást skjótt
við og greiðlega gekk að slökkva
eldinn. Skemmdir voru mestar í
vélarrúmi og í stýrishúsi trillunnar
sem smíðuð var í Svíþjóð árið 1988,
búin 212 hestafla vél. Hún er
byggð úr trefjaplasti og er um 7
brúttólestir að stærð. Skammt er
síðan trillan kom til Olafsvíkur.
Lögregla vinnur að rannsókn
málsins en ekki er talið að eldsvoð-
inn hafi borið að með óeðlilegum
hætti.
-EMK
sjóvÆe ALMENNAR
Borgarbraut 61,310 Borgarnesi. S: 437 1040
öskus ídir... keytíð
S
Ungfrúin góða og húsið forsýnd í Olafsvík
„Við ætlum að brenna með
myndina glóðvolga til Olafsvíkur
og sýna hana í Klifi,“ sagði Guð-
ný Halldórsdóttir leikstjóri.
Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á nýjustu mynd henn-
ar, Ungfrúin góða og húsið og er
ætlunin að forsýna hana í Olafs-
vík sunnudaginn 19. september.
Hvers vegna Ólafsvík?
Aðspurð um hversvegna Olafsvík
hefði orðið fyrir valinu sagði Guð-
ný að þar sem myndin hafi verið
tekin að stórum hluta í Flatey hefðu
þau helst viljað sýna hana þar, „en
þar er því rrxiður ekkert bíó svo við
fórum þá leið að henda flöskuskeyti
í sjóinn þegar tökum lauk í Flatey í
október á síðasta ári og ákváðum að
sýna myndina í næsta bíóhúsi við
þann stað þar sem flaskan kæmi að
landi. Hún kom að landi í Grund-
arfirði en þar er heldur ekki kvik-
myndahús svo Ólafsvík varð fyrir
valinu.“
Fjölskylduverk
Ungfrúin góða og húsið er gerð
eftir samnefhdri skáldsögu Hall-
dórs Laxness, föður Guðnýjar, en
hún er sjálf höfundur handrits. Að
sögn Guðnýjar er sagan átakasaga
tveggja systra og sögusviðið er
þorpið Eyvík og Kaupmannahöfn.
„Sagan er afskaplega mikið sögð
undir rós en við tókum okkur það
bessaleyfi að galopna hana og segja
áhorfendum allt. Hinsvegar er
söguþræðinum fylgt og við höldum
fullri tryggð við upprunalega verk-
ið sem slíkt,“ sagði Guðný.
Flatey fyrir valinu
Eins og fyrr segir er myndin að
stórum hluta tekin í Flatey en
einnig fóru tökur fram í Danmörku
og í kvikmyndaveri í Svíþjóð. Að
sögn Guðnýjar var Flatey fullkom-
inn tökustaður fyrir Ungfrúna.
„Flatey er eina þorpið á Islandi sem
enn er eins og um aldamótin. Það
hefði kostað formúgur að byggja
leikm^md sem stæðist samanburð
við þorpið og því var þessi staður
tilvalinn. Það var líka mjög vel tek-
ið á móti okkur í Flatey og allir
voru boðnir og búnir til að aðstoða
og dvölin í eyjunni var hin ánægju-
legasta.“
Kostnaður um 160 milljónir
Guðný sagði kostnað við gerð
myndarinnar vera um 160 milljónir
sem þýðir að Ungfrúin góða og
húsið er með dýrustu myndum sem
gerðar hafa verið hér á landi. Fram-
leiðendur er Kvikmyndafélagið
UMBI og Pegasus en myndin er
gerð í samvinnu við danska, sænska
og norska aðila. Aðalhlutverkin í
myndinni eru í höndum þeirra
Ragnhildar Gísladóttur og Tinnu
Gunnlaugsdóttur sem leika syst-
urnar og með önnur stærri hlutverk
fara þeir Egill Ólafsson, Rúrik Har-
aldsson, Magnús Ólafsson, Helga
Braga Jónsdóttir, auk tveggja Svía,
Norðmanns og Dana sem allir eru
þekktir kvikmyndaleikarar í sínum
heimalöndum. G.E.
Söluskrifstofur og
Akranes Borgarnes 1
snni 431 3386 simi 437 15
pg 431 2586