Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 6. JANTJAR 2000
aK£»unuw.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi:
Borgarbyggð hvetur Skagamenn
tíl endurskoðunar
Úrsögn Skagamanna úr Samtök-
um sveitarfélaga á Vesturlandi
hefur ekki vakið mikil viðbrögð,
þvert á það sem búast mátti við.
Eina bókunin sem Skessuhom
hefur upplýsingar um úr öðmm
sveitarfélögum var gerð á síðasta
bæjarráðsfundi Borgarbyggðar.
Það var Guðbrandur Brynjúlfs-
son fulltrúi Borgarbyggðarlistans
sem færði málefni SSV í tal og var
bókun hans eftirfarandi:
“Vegna ákvörðunar bæjarstjórnar
Akraness um úrsögn kaupstaðarins
úr Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi vil ég taka fram eftirfarandi:
1. Eg skil mæta vel djúpstæða óá-
nægju meirihluta bæjarstjórnar
Akraness með vinnubrögð sjálf-
stæðismanna innan stjórnar SSV í
sambandi við formannskjör í sam-
tökunum fyrir skömmu. Þau eiga
sér enga hliðstæðu í gjörvallri sögu
samtakanna og era lýsandi dæmi
um dæmafáa grannhyggni og yfir-
gangssemi.
2.1 samþykkt bæjarstjórnar Akra-
ness um úrsögn úr SSV kemur fram
að ástæðan sé öðra fremur framan-
greindur yfirgangur sjálfstæðis-
manna. Að mínu áliti er fráleitt að
sveitarfélag segi skilið við heildar-
samtök á framagreindum forsend-
um einum saman. Annað hvort er
hér um að ræða tylliástæðu að hluta
til, eða þá að reiði og fljótfærni hef-
ur borið mannlega skynsemi ofur-
liði um stund.
Eg er sannfærður um að Akur-
nesingar hafa margvíslegan hag af
aðild að SSV, ekki síður en önnur
sveitarfélög á Vesturlandi, og hvet
þá því eindregið til að endurskoða
þessa ákvörðun sína, sem augljós-
lega setur framtíð SSV í mikla
óvissu.
Klofni SSV mun það veikja Vest-
urland, bæði innávið og útávið.”
I framhaldi af bókun Guðrandar
lagði Guðrún Fjeldsted bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks fram
svohljóðandi bókun:
“Eg undirrituð lýsi stuðningi
mínum við Gunnar Sigurðsson í
formannssæti í SSV Eg sat í kjör-
nefnd SSV í Reykholti og þar var
ákveðið að stjórnin skipti með sér
verkum sem og þeir gerðu á lög-
mætan hátt.”
GE
Stefén hættir
Samvinnuháskólinn á Bifröst
Þórir Páll ráðirm rekstrarstjóri
Þórir Páll Guðjónsson hefur frá
1. janúar að telja verið ráðinn fjár-
mála- og rekstrarstjóri Samvinnu-
háskólans á Bifröst. Helgi Valur
Friðriksson fráfarandi fjármála-
stjóri mun í framhaldinu hverfa al-
farið að kennslu við háskólann að
eigin ósk, að sögn Runólfs Ágústs-
sonar rektors.
Þórir Páll hefur undanfarið ár
verið framkvæmdastjóri Heilsu-
gæslustöðvarinnar í Borgarnesi, en
var áður kaupfélagsstjóri KB til
margra ára. Hann hefur fjölbreytt-
an náms- og starfsferil að baki, er
m.a. útskrifaður sem búfræðingur
frá Hvanneyri árið 1965, útskrifað-
ur frá Samvinnuskólanum árið
1968 og lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræðum frá Háskóla Islands
árið 1977. Hann starfaði áður við
skólann á árunum 1973-1987,
lengst af sem yfirkennari og um-
sjónamaður námskeiða fyrir fýrir-
tæki og atvinnulíf.
Staða sveitarstjóra Dalabyggðar
hefur verið auglýst laus til um-
sóknar. Stefán Jónsson sem gengt
hefur starfinu í hálft annað ár hef-
ur ákveðið að segja því lausu og til-
greint þá ástæðu að hann hafi ekki
náð að festa rætur í þessu starfi.
Búist er við að margir verði til að
sækja um starfið enda mikið um að
vera í Dölunum á nýbyrjuðu ári og
væntanlega verður það meðal
verkefna nýs sveitarstjóra að taka
þátt í skipulagningu á hátíðahöld-
um til heiðurs Dalamanninum
Leifi Eiríkssyni. GE
Nýfæddir Vestlendingar eru
bobnir velkomnir í heiminn
um leib og nýbökubum
foreldrum eru færbar
hamingjuóskir.
21. des. kl. 17.12 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3445 - Lengd: 50 cm -
Foreldrar: Særún Gestsdóttir og
Maríus L. Heiðarsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Jónína Ingólfsdóttir.
28. des. kl. 05.45 - Sveinbarn. -
Þyngd: 4185 - Lengd: 54 cm -
Foreldrar: Olöf Helga Sigurðar-
dóttir og Guðjón Kristjánsson,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Margrét
Bára Jósefsdóttir.
20. des. kl. 18.50 - Meybarn. -
Þyngd: 3610-Lengd: 51 cm. For-
eldrar: Rósa Emilsdóttir og Helgi
Gissurarson, Miðfossum, Borgar-
firði. Ljósmóðir: Anna Lísa Jóns-
dóttir.
27. des. kl. 19.07 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3540 - Lengd: 53 cm -
Foreldrar: Helga Guðmundsdóttir
og Patrick Bertrand, Akranesi.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
22. des. kl. 07.15 - Meybarn. -
Þyngd: 3685 - Lengd: 53 cm -
Foreldrar: Ellen Magnúsdóttir og
Guðjón Arnason, Olafsvík. Ljós-
móðir: Soffía Þórðardóttir.
28. des. kl. 15.54 - Sveinbarn. -
Þyngd: 4050 - Lengd: 56 cm. For-
eldrar: Bára Einarsdóttir og Dagur
Andrésson, Borgarfirði. Ljósmóð-
ir: Jónína Ingólfsdóttir.
22. des. kl. 02.51 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3875 - Lengd: 55 cm. For-
eldrar: Rósa Björk Bjarnadóttir og
Jóhann Pétur Hilmarsson, Akra-
nesi. Ljósmóðir: MargrétBáraJós-
efsdóttir. Júlía stóra systir heldur á
bróður sínum.
23. des. - Sveinbarn. - Þyngd:
4395 - Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Karen Lind Olafsdóttir og Asgeir
Sævarsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Margrét Bára Jósefsdóttir.
30. des. kl. 19.27 - Sveinbarn. -
Þyngd: 4315 - Lengd: 53 cm. For-
eldrar: Ragnhildur Osp Sigurðar-
dóttir og Kjartan Jónsson, Kópa-
vogi. Ljósmóðir: Soffi'a Þórðar-
dóttir.
1. jan. kl. 19.35 - Sveinbarn. -
Þyngd: 3295 - Lengd: 47 cm -
Foreldrar: Ragnheiður Stefáns-
dóttir og Þórarinn Kristmunds-
son, Reykjavík. Ljósmóðir: Elín
Sigurbjörnsdóttir.
2. jan. kl. 04.06 - Meybam. -
Þyngd: 3600 - Lengd: 51 cm. For-
eldrar: Eygló Sigurðardóttir og
Þorgils Gunnarsson, Ölafsvík..
Ljósmóðir: Lóa Kristindóttir.
2. jan. - Sveinbam. - Þyngd:
4580 - Lengd: 56 cm - Foreldrar:
Hafdís Rán Brynjarsdóttir og VII-
hjálmur Birgisson, Olafsvík. Ljós-
móðir: Fanný Berit Sveinbjörns-
dóttir.
3. jan. - Meybarn. - Þyngd:
2935 - Lengd: 48 cm - Foreldrar:
Linda Kolbrún Haraldsdóttir og
Baldvin Bjarki Baldvinsson. Ljós-
móðir: Helga R. Höskuldsdóttir.