Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 06.01.2000, Blaðsíða 5
§aiSSliH©2íS FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 2000 5 n a i m i b F 1 o s a Stigið á stoki Þá eru áramótin í rénun, þó aldamótin séu aö vísu aö sumra dómi enn ókomin. Ofátið og ofdrykkjan aö baki, messugerðir og helgislepja aö komast í eölilegt horf og galaveisla verslunarstéttarinnar, stórdansleikur kaupmanna kringum gullkálfinn, afstaöinn, Finnur kominn á sinn staö, grár hversdagsleiki hins nýja árs í upp- siglingu og allir -að mér meötöldum- búnir aö stíga á stokk og strengja þess heit aö byrja nýtt líf. Hætta aö reykja, hætta aö drekka, hætta aö éta, hætta aö berja krakkana og kellinguna, hætta aö naga neglurnar, bora í nefiö og klóra sér í rass- inum. Jafnvel hætta viö að hætta hinu og þessu. Ég er búinn að vera í því heila mannsæfi aö stíga á stokk og strengja heit, án þess aö hugleiða nokkurn tímann hvaöa skollans stokkur þaö var sem ég var sístígandi á. Manni hefur bara alla tíö þótt afskaplega nota- legt aö stíga svona á stokk vegna þess aö eftir- fylgjan er venjulega engin. Einfaldlega hægt að halda uppteknum hætti eftir sem áöur. Já, já, maður hefur svosem um hver áramót stigið á stokk og strengt þess heit að hætta að reykja, hætta aö drekka mjólk eöa rjóma útá sveskjugrautinn, hætta aö éta bingókúlur og skafís með súkkulaðidrulli og hætta aö ágirnast hús, asna og eiginkonu nágranna síns. Þegar ég svo hugleiði þessi mál af einlægni og alvöru er mér nær aö halda aö eftir hverja sunnu- dagssteik hafi ég -miöur mín af ofáti- stigiö á stokk og strengt þess heit aö hætta alveg aö boröa mat. Þegar svo maginn hefur farið að láta vita af sér aftur er einsog heitstrengingin hafi orðið ósköp létt- væg, vel að merkja þar til ég var orðinn belgfullur aftur. Þá er ég óöar stiginn á stokk strengjandi þess heit að smakka aldrei framar matarbita. Svo -þegar öllu er á botninn hvolft-, er heldur notaleg tilfinning að stíga á stokk á meðan á því stendur og engar aukaverkanir eöa vesen á eftir. Þegar ég svo steig á stokk á dögunum, fór ég aldrei þessu vant, svona einsog aö hugleiöa hvaö þetta eiginlega væri sem öll þjóöin tekur uppá að gera um hver áramót. Aö stíga á stokk. Eftir því sem ég komst næst mun þetta hafa verið háttarlag manna til forna, þegar þeir ultu svefn- og öldrukknir framaf bekkjunum, eöa setun- um sem lágu meö veggjum í svefnskálum forfeör- anna. Semsagt aö stíga á stokkinn eöa fótskörina fyr- ir framan setin bugaöir af timburmönnum og tuldra í þynnkunni að nú væru þeir hættir aö drekka. Fá sér síðan mjöö í horn og halda áfram að drekka. Stíga svo, eftir drykklanga stund, aftur á stokk í ölæöi og strengja þess heit aö drepa mann og ann- an. Og svíkja þaö líka. Og þar sem mér hefur alltaf verið mikiö í mun aö glata ekki þeim hluta þjóðarauðsins sem ís- lenska þjóöin á einan eftir; nefnilega menningararf- leifðinni, steig ég á stokk á gamlárskvöld um leiö og ég fór uppí og strengdi þess heit að hefja nýtt líf viö aldamótaárhvörfin og verða betri manneskja meö því aö hætta aö drekka kaffi. Á nýársdagsmorgun vaknaöi ég svo hress og kátur, gekk til stofu í slopp, með viðkomu í eldhús- inu þar sem ég setti kaffivélina í gang og bjó mér til lútsterkt expressókaffi meö rjóma útí, en sleppti koníakinu afþví ég er nú einusinni þorstaheftur. Og sem ég lygndi aftur augunum og dreypti á blessuðu kaffitárinu -sjálfum aldamótasopanum- rifjuðust upp fyrir mér orö Jóhannesar Páls páfa þegar hann sagði: “Kaffi er svo gott að þaö hlýtur að vera synd”. Svo þakkaði ég forsjóninni fyrir þaö hvaö ég haföi verið afskaplega þjóölegur kvöldiö áöur. Að stíga á stokk. Flosi Ólafssson Baulan óskar Vestlendingum öllum gleðilegs árs. Viðskipti ykkar stuðla að auknu vöruúrvali og lœgra vöruverði BAULAN s. 435 1440 ZLi I Nú stendur yfir fjáröflun til stuðnings n...1 -J 11 ff | fp | ff f f / íjolskyldu Helgu Fossberg Helgadottur frá Þorgautsstöðum. Þeir sem vilja styðja fjölskylduna geta lagt inn á reikning nr. 3648 í Sparisjóðs Mýrasýslu. Kvenfélag Hvítársíðu. Janúartilb©ð á békhaldsvðrum Bréfabindi Pappír Plöst M illib löð Komdu bókhaldinu á hreint - komdu til okkar! Bóka/iskemman A Stillholti 18 - Sfmi 431 2840

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.