Skessuhorn - 06.01.2000, Qupperneq 7
UOlLdSUIIl/iw]
FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 2000
7
Hluti húsnæðis Vímets hf. í Borgamesi. Forsvarsmevn KB hyggjast nú selja meirihhitaeign félagsins ífyrirUekinu Mynd: MM
KB selur eignir
og byggir í vetur
Samlagshúsið selt og meirihluti í Vírneti til sölu
Stjórnendur Kaupfélags Borg-
firðinga vinna þessa dagana
hörðum höndum að sölu eigna
og endurskipulagningu á fjár-
málum fyrirtækisins með það að
markmiði að skapa svigrúm til
væntanlegra byggingafram-
kvæmda við verslunarhús í Borg-
amesi í vetur. Nýverið seldi fé-
lagið Mjólkursamlagshúsið að
Engjaási 1 þar sem Engjaás ehf
er til húsa. Kaupandi hússins er
Sparisjóður Mýrasýslu og er
kaupverð þess ekki gefið upp.
Viðræður hafa einnig staðið yfir
milli forsvarsmanna Límtrés á
Flúðum um kaup á samtals 60%
hlut Kaupfélagsins og Guðsteins
Einarssonar kaupfélagsstjóra í
Vímeti hf. í Borgamesi. Skessu-
hom tók Guðstein kaupfélags-
stjóra tali og innti hann eftir
þessum málum og öðmm fram-
kvæmdum á vegum KB.
Vímet ekki selt
hverjum sem er
Eins og ffam kom í fjölmiðlum
milli hátíðanna var undirrituð vilja-
yfirlýsing milli stjórnenda KB og
Límtrés á Flúðum um viðræður um
sölu á meirihlutaeign KB í Vírneti í
Borgarnesi. Kaupfélagið á 48%
hlut í fyrirtækinu en Guðsteinn
Einarsson kaupfélagsstjóri á um
11%. “Við sölu á hlut Kaupfélags-
ins í Vírneti mun minn hlutur fylg-
ja í sölunni enda var hann á sínum
tíma keyptur til að styrkja stöðu KB
innan fyrirtækisins með því að
skapa meirihlutaeign og auðvelda
um leið söluna þegar að henni
kæmi”, sagði Guðsteinn. Jafnframt
sagði hann að sala á Vírneti til Lím-
trés væri úr sögunni í bili en áfram
yrði unnið að sölu fyrirtækisins til
traustra aðila. “Hvernig sú sala
mun ganga ræðst af fáanlegu verði
og því hver kaupandinn verður en
Kaupfélagið mun ekki selja hverj-
um sem er þessi hlutabréf. Við telj-
um það hvorki henta hagsmunum
Kaupfélagsins né Vírnets”, sagði
Guðsteinn.
Þegar ótti sumra Borgnesinga
um hugsanlegan flutning Vírnets
frá Borgarnesi samhliða sölu meiri-
hluta hlutabréfa fyrirtækisins var
borinn undir Guðstein sagði hann
að það væri óhugsandi að menn ætli
sér að kaupa fyrirtæki af þessari
stærðargráðu til þess eins að flytja
starfsemina burtu.“ Það sem kemur
í veg fyrir slíkt er einfaldlega sú
staðreynd að verðmæti fyrirtækisins
liggur í staðsetningunni hér í Borg-
arnesi og mannauði þess þar og
hvergi annars staðar. Það er hrein-
lega barnaskapur að halda að menn
kaupi meirihluta í Vírneti til þess
eins að flytja starfsemina burtu af
staðnum. Slík framkvæmd myndi
kosta nokkur hundruð milljónir
króna”, sagði Guðsteinn og bætti
því við að þeir sem væru með hrak-
spár um hugsanlegan flutning fyrir-
tækisins þyrftu að bæta reiknings-
kunnáttu sína.
Rekstur Vírnets hefur gengið vel
að undanförnu og líkur eru taldar á
að rekstrarafgangur fyrirtækisins
verði meiri en mörg undangengin
ár. Tíu mánaða milliuppgjör bend-
ir til þess.
Samlagshúsið selt
Daginn fyrir gamlársdag var
gengið ffá sölu Kaupfélagsins á
húsnæðinu að Engjaási 1 í Borgar-
nesi sem flestir þekkja betur sem
hús Mjólkursamlagsins fyrrverandi.
Kaupandi hússins er Sparisjóður
Mýrasýslu en kaupverð fæst ekki
gefið upp. Ekki er gert ráð fyrir
breytingum á þeim rekstri sem
ffam fer í húsinu en að sögn Guð-
steins kaupfélagsstjóra hefúr end-
urskipulagning Engjaáss ehf. staðið
yfir á annað ár með það að mark-
miði að hann komist í viðunandi
horf á nýbyrjuðu ári.
Auk fyrrgreindra fasteigna Kaup-
félagsins í Borgarnesi er á söluskrá
núverandi verslunarhús félagsins
við Egilsgötu, gamla kjötvinnslan
og fleiri eignir. Enn sem komið er
Guðsteinn Einarssm kaupfélagsstjóri.
hafa engin formleg tilboð borist í
gamla verslunarhúsið en ýmsir hafa
velt fyrir sér hugsanlegri nýtingu
hússins sem alls er um 2400 fer-
metrar að gólffleti. Eignasala KB er
að sögn kaupfélagsstjórans fyrst og
fremst til að auðvelda fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins og
byggingu nýs verslunarhúss við hlið
Hyrnunnar.
Nýtt verslunarhús
í sumar
Búið er að grófteikna nýja versl-
unarhúsið. Það verður staðsett á
lóðum gamla áhaldahússins og
Bílasölu Vesturlands við Borgar-
braut. Horfið hefur verið frá sam-
tengingu hússins við Hyrnuna eins
og rætt hafði verið um. Hins vegar
er frumútlitshönnun hússins lík
Hyrnubyggingunni, enda teiknuð
af sömu aðilum. Að sögn Guðsteins
Einarssonar verður um samnings-
verk að ræða eða nokkurs konar al-
útboð varðandi byggingu nýja
verslunarhússins. Þá er átt við að
sami verktakinn taki að sér allt frá
lokahönnun hússins til lokafrá-
gangs þess og lóðar. “Við stefnum
að því að verktakinn ljúki sínu verki
15. maí í vor og að Kaupfélagið
flytji starfsemi sína í húsið mánuði
síðar. I verslunarhúsinu verður m.a.
matvöruverslun Kaupfélagsins, úti-
bú fjármálastofnunar, apótek og
aðrir sjálfstæðir þjónustuaðilar”,
sagði Guðsteinn að lokum.
MM
Húsið að Engjaási 1 í Borgamesi hefur Kaupfélagið nú selt Sparisjóði Mýrasýslu.
MyndMM
Dvalarheimilið Höfði
Sjúkrali'ðar!
Laus er til umsóknar 50% staða sjukraliða
við Dvalarheimilið Höfða, Akranesi.
Nánari upplýsingar veitir Elín Björk
Hartmannsdóttír, hjúkrunarforstjóri í síma
431-2500.
Iljúkrunarfræðingar!
Laus er til lunsóknar 75% staða
hjúkrunarfræðings við Dvalarheimihð Höfða,
Akranesi. Nánari upplýsingar veitir Elín Björk
Hartmannsdóttir, hjúknmarforstjóri í síma
431-2500.
Ekið var utan í hliðina á bláum Peugeot númerið
er RU 736, (sennilega Jeppi) á gamlársdag.
Honum var lagt á planinu milii
Skagabrautar og Suðurgötu kl. 11:30 og 12.
(ská a móti Einarsbúð)
Peir sem urðu varir við þessa ákeyrslu
vinsamlegast haíið samband við lögregluna á
Akranesi eða við Jón í síma 433 8926.
Bridgehátið
Vesturlands
verður haldin í Hótel Borgarnes
helgina 8. og 9. janúar.
Sveitakeppni á laugardag,
m |L
mm* -
sunnudag.
Vestlendingar, fjölmennið og etjið kappi
við landsins bestu bridgespilara.
Vantar 12 manns sem vllja ná af sér 12 kg. «ða meiru.
Hratt, örugglega og varanlega!
Hringdu núna! Sími 699 8111
Útsala.
Ofefear landsfræga útsala hefst
föstudaginn 7. janúar
allt að 70 % afsláttur.
1
iðtaU
borgorsport
brúartorgi 4. s. 437 1707