Skessuhorn - 06.01.2000, Side 8
FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 2000
Frá vinstri: Atli Gtiðjónsson sem tók við viðurkenningu fóður stns, Björg Agústsdóttir og Katrín Rós Baldursdóttir.
Mynd: KK
Guðjón Þórðarson er Vesdendingur ársins 1999
Björg Agústsdóttir í öðru sæti og Katrín Rós í þriðja
Vestlendingur ársins var út-
neíndur í annað sinn fimmtu-
daginn 30. desember sl. Guðjón
Þórðarson knattspyrnustjóri
Stoke City í Englandi og fyrrver-
andi Iandsliðsþjálfari hlaut titil-
inn að þessu sinni en í öðru sæti
varð Björg Agústsdóttir sveitar-
stjóri í Grundarfirði og Katrín
Rós Baldursdóttir fegurðar-
drottning varð í því þriðja. Verð-
launaafhending fór fram á Hótel
Barbró á Akranesi en um leið
veitti Atvinnumálanefnd Akra-
ness viðurkenningar fyrir bestu
gluggaútstillingarnar og Atak
Akraness veitti Hvatningaverð-
launin 1999.
Það var Skessuhorn sem stóð fyr-
ir kjörinu sem fyrr og var fram-
kvæmdin með þeim hætti að 150
aðilum vítt og breitt um Vesturland
var gefinn kostur á að tilnefna fimm
aðila sem þeir töldu eiga heiðurinn
skilinn. Sá sem fyrstur var nefhdur
hjá hverjum kjörmanni fékk 5 stig,
sá næsti fjögur o.s.fv.
Veittar voru viðurkenningar fyrir
þrjú efstu sætin en það voru glæsi-
legir áletraðir glervasar og veglegir
blómvendir.
Guðjón Þórðarson, sem ber titil-
inn Vestlendingur ársins 1999, var
tilnefndur fyrir glæsilegan árangur
með íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu en það náði á árinu
einhverjum besta árangri sínum frá
upphafi. Þá hafa fyrirætlanir hans
með Stoke City vakið verðskuldaða
athygli og greinilegt að almenning-
ur hefur trú á að honum takist það
ætlunarverk sitt að kenna engilsax-
neskum boltabullum að leika knatt-
spymu eins og gert hefur verið á
Skaganum með góðum árangri alla
þessa öld.
Björg Agústsdóttir sveitarstjóri í
Grundarfirði varð í öðru sæti sem
fyrr segir. Hún var tilnefnd fyrir
góðan árangur í starfi sínu og fyrir
að vera kröftugur málsvari dreifbýl-
isins. Þá hlaut hún einnig lof fyrir
störf sín sem formaður SSV en því
embætti gengdi hún á síðasta ári.
Katrín Rós Baldursdóttir, sem
varð í þriðja sæti, var tilnefnd fyrir
góðan árangur í fegurðarsam-
keppni. Hún var kjörin ungfrú
Vesturland 1999 síðastliðið vor og
skömmu síðar ungfrú Island. Þá tók
hún þátt í fegurðarsamkeppni á
erlendri grund og vakti hvarvetna
athygli fyrir fegurð og glæsilega
framkomu.
Topp tllttllgn
Þátttaka í kjarinu var allgóð ogþóttfáir Vteni útvaldir voru að vtmda margjr kallaðn:
1. Guðjón Þórðarson knattspyrnustjóri Stoke City.
2. Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri, Grundarfirði.
3. Katrín Rós Baldursdóttir fegurðardrottning, Akranesi.
4. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Stykkishólmi.
5. Gísli Einarsson ritstjóri, Borgarfirði.
6. Kolbrún Yr Kristjánsdóttir sundkona, Akranesi.
7. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Akranesi.
8. Einar Trausti Sveinsson frjálsíþróttamaður, Borgarnesi.
9. Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkursamlagsstj. og oddviti, Búðardal.
10. Bjarki Már Karlsson forstöðum vefari, Hvanneyri.
11. Bjarni Guðmundsson aðstoðarrektor, Hvanneyri.
12. Birgir Leifur Hafþórsson atvinnumaður í golfi, Akranesi.
13. ÓU Jón Gunnarsson bæjarstjóri, Stykkishólmi.
14. Rakel Olsen ffamkvæmdastjóri Sigurðar Agústssonar hf. Stykkishólmi.
15. Runólfur Guðmundsson skipstjóri í Grundarfirði.
ló.Gunnar Sigurðsson formaður SSV Akranesi.
17.Gauti Jóhannesson dúx úr FVA, Akranesi.
lS.Þórhallur Bjarnason garðyrkjubóndi, Laugalandi.
19. Gunnar Gunnarsson svínabóndi, Hýrumel í Borgarfirði.
20. Pétur Ottesen formaður Sorpurðunar Vesturlands, Akranesi.
Frá vrnstri: Fulltníar Sjónglersins þau Sœvar Benediktsson og Gunnbildur Bjömsdótti ogfulltrúar verslunarinnar Bjargs þ<er Asta
Gisladóttir og Hrefiut Guðjónsdóttir
Gluggaútstillingar verðlaunaðar
Bjarg og Sjónglerið flottust
Átak Akraness ákvað síðastliðið
haust að verðlauna fallegustu og
frumlegustu gluggaútstillinguna
á Akranesi í desember. Tilgang-
urinn var að hvetja verslunareig-
endur til að leggja áherslu á
þennan þátt og lífga þannig upp
á bæinn og vekja enn frekari at-
hygli á verslun á Akranesi.
Frumlegasta útstillingin var valin
í gleraugnaversluninni Sjónglerinu.
Skreytingarnar þóttu fallega settar
fram, höfða vel til jólanna og bera
með sér hlýlegan og skemmtdlegan
húmor.
Fallegasta gluggaútstillingin var
valin í versluninni Bjargi við Still-
holt. Gluggarnir þóttu smekklega
tmnir og vel úthugsaðir.
Það var Halldór Þorgeirsson for-
maður Átaks Akraness sem veitti
viðurkenningarnar fyrir bestu
gluggaútstillingarnar.
Atvinnumálanefnd Akraness
veitti nú í fyrsta sinn svokölluð
hvatningarverðlaun. Markmiðið
með hvatningarverðlaununum er
að veita viðurkenningu því fýrir-
tæki á Akranesi sem þykir hafa
skarað fram úr á árinu og verið um
leið öðrum hvatning til góðra
verka. Heiðurinn kom í hlut Skag-
ans hf. Fyrirtækið framleiðir
vinnslulínur fyrir fiskvinnslu á sjó
og landi. I umsögn dómnefndar
segir m.a.: “I ffamleiðslu fyrirtæk-
isins sameinast hugvit og tækni sem
ásamt vöruþróun eru aðall þess.”
Þeir þættir sem hafðir voru til
hliðsjónar við val á verðlaunafyrir-
tækinu voru:
1. Frumkvœði í sölu eða kynningar-
starfsemi.
2. Aukið eða bœtt vöruúrval á árinu.
3. Góð þjónusta við viðskiptavini.
4. Skemmtilegt ttmhverfi íjjrirUekbm.
5. Nýjungar, nýsköpun eða sókn á nýja
markaði.
Það var Guðni Tryggvason for-
maður Atvinnumálanefndar sem
afhenti viðurkenninguna en Ingólf-
ur Árnason stjórnarformaður og
Þorgeir Jósefsson framkvæmda-
stjóri veittu henni viðtöku fyrir
hönd Skagans hf.