Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Page 6

Skessuhorn - 27.01.2000, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2000 SSESSliHOSM Elsti núlifandi Vestlendingnrinn segir frá Vinnan var mikil og erfið Segir Þórdís Þorkelsdóttir sem verður 105 ára í haust Mynd: SB manneskju sem lifað hefur rúma öld. Aðspurð um merkustu ffam- farirnar á þessu viðburðaríka tíma- bili segir hún rafmagnið standa upp úr. “Eg man hve mikill munur það var þegar rafmagn kom á bæinn. Það gerðist ekki fyrr en að við flutt- um úr Fljótunum. Það gerbreytti öllu til hins betra. Þeir leituðu í Fljótunum til dæmis að heitu vatni en það fannst aldrei neitt í jörðinni. Það var mikið mælt og leitað en aldrei fannst neitt. Það komust heldur aldrei bílar í Fljótin meðan ég var þar en um það leyti sem við erum að hætta búskap koma bílarn- ir. Lagður var vegur, ef hægt er að kalla það veg, í Fljótin. En ef að læknir þurfti að komast þangað var bíllinn alltaf fastur og það þurfti að draga hann upp. Ég hef samt aldrei keyrt bíl, en þeir hafa létt mönnun- um lífið mikið og núna kemst mað- ur allt án teljandi vandræða”. Þórdís segir að sér hafi aldrei leiðst á langri æfi, ekki heldur nú þegar skrokkurinn er farinn að lin- ast. Hún finnur sér ávallt eitthvað til dundurs. “Skáldin ortu mikil ljóð sem gaman er að lesa. Alveg ljómandi ljóð. Ég hlusta mildð á út- varpið. Mest gaman er að hlusta á samtölin við fólk. Gömlu lögin eru líka góð en ég slekk á útvarpinu ef að þau nýju koma. Það er ekkert varið í þau. Eins les Didda dóttir mín oft uppúr blöðunum fyrir mig sem er gaman.” Dætumar það meridlegasta Að lokum er við hæfi að spyrja hvað Þórdísi þyki eftirmynnilegast það sem af er langri æfi og þá svar- ar hún án umhugsunar “Þessar dæt- ur mínar, þær standa allar nýjungar af sér. Ætli þær séu ekki það merki- legasta. Eitt sinn hugsaði ég um þær og nú hafa þær hugsað um mig til skiptis” SB Þórdís Þorkelsdóttir. aftur og lagar gleraugun “Dagný systir var líka hjá okkur, en hún hjálpaði til. Dagný saumaði mikið. Já, já hún saumaði. Þó hún væri veik. Það skipti engu hvað hún gerði, fór til lækna um allt og þeir gátu ekkert gert. Dagný dó 1969 úr taugalömun.” Arið 1954 lögðu Þórdís og Skarphéðinn af búskap í Fljótum og fluttu í Borgarfjörð. “Við eltum börnin í Flókadalinn enda maður- inn orðinn heilsulaus”. “Skarphéð- inn dó 1958 eftir mikla vinnu og þrældóm. Hann var búinn að þræla svo mikið með gamla laginu”. Rafinagnið Við spjöllum um allt á milli him- ins og jarðar, komum víða við í tali okkar enda margs að minnast hjá Þórdís Þorkelsdóttir segist vera orðin dauðleið á að segja fólki hve gömul hún er og það skal því upplýst í eitt skipti fyrir öll að hún er fædd 26. október 1895 og því elsti núlifandi Vestlend- ingurinn. Þórdís býr á Akranesi en er reyndar Skagfirðingur að uppruna, fædd á Unastöðum í Kolbeinsdal en ólst upp í Sléttuhlíð. Foreldrar henpar þau Þorkell Dagsson og Sigríður Þorláksdóttir voru frá Olafsfirði. Þau voru rétt að hefja búskap þegar harðindin gengu í garð og þau þurftu að flýja frá Olafsfirði. “Margir flýðu þá úr Olafsfirðinum,” segir Þórdís. Þór- inn var það mikill, miklu meiri en hann er í dag.” Menntun Þórdísar var hinsvegar ekki mikil miðað við skólagönguna í dag. Hún lærði að lesa og draga til stafs. Stærðfræði lærði hún í grunnatriðum. “Ég átti að læra dönsku og annað en það var búið þegar bróðir minn dó. Þá þurfti ég að fara að vinna meira. Ég hef samt verið að læra allt lífið” seg- ir hún og hlær. ”Skólaganga er ekki allt. Ég hef lesið mikið gegnum æv- ina. Ég var í lestrarfélagi í Fljótun- um þar sem við fengum lánaðar bækur og nú seinni ár hlustað á spólur svona eftir að sjónin fór”. Hún gefur sér stund, eins og það sé henni sár minning að rifja þessa daga upp. “Ég byrjaði samt ekki að ÍJ I Byggt firá grunni Eiginmaður Þórdísar var Skarp- héðinn Sigfússon sem einnig var ættaður frá Olafsfirði. “Foreldrar hans flýðu líka harðindin, fluttust í fram Skagafjörðinn.” Skarphéðinn var átta árum eldri en ég en við hjónin vorum bræðrabörn. Það þekktist víða þá og engir aumingjar komu út úr því. Það sá enginn neitt að þeim ráðahag” Fyrstu sex búskaparárunum eyddu þau hjón í Asgeirsbrekku. Þaðan fóru þau í Sléttuhlíðina og bjuggu þar í 10 ár. “Fyrst bjuggum við að Mið-Hóli og vorum þar í tvö ár. Svo fluttum við að Ysta-Hóli í sömu sveit. Það var yndislegt að vera í Sléttuhlíðinni,” segir Þórdís og brosir. “Sléttuhlíðin var yndisleg en því miður er meira en helming- urinn af henni komin í eyði. Frá Sléttuhlíðinni fórum við í Fljótin. Það hefur verið 1933. Jörðin Sjö- undastaðir var í eyði og feyki mikil vandræði að fá jörð. Því settumst við þar að. Þetta var eyðikot, alveg niðurbrotið þegar við komum þangað og þar eyddum við kröftum okkar í yfir 20 ár. Við byggðum allt frá grunni. Það var harðbýlt í Fljót- unum en gott að vera þar. Snjóalög- in mikil og vinnan erfið. Við hjónin vorum búin að ryðja allt með handafli og ári seinna kom ýtan. Við náðum aldrei að nýta okkur þessa tækni sem kom seinna en sem betur fer hafa framfarirnar í sveit- unum verið miklar, því vinnan var svo mikil og erfið”. Mikill þrældómur Þórdís segir þau hjónin hafa búið lengi saman áður en að þau eignuð- ust dæturnar Sigríði og Aðalbjörgu. “Það var ekkert með fleiri börn að gera. Hún segir að hinsvegar hafi alltaf verið mikið af aðkomukrökk- um hjá þeim í sveitinni. “Nokkrir strákar voru sendir til okkar, því það var svo gott að vera í sveitinni. Agætis strákar. Ég sá alltaf eftir þeim á haustin þegar þeir fóru. For- eldrar mínir voru líka hjá okkur og dóu heima. Pabbi var blindur síðus- tu 11 ár ævinnar”. Hún hallar sér Úr Fljótunum. dís er yngst átta systkina. Aðeins fjögur þeirra komust á legg, þrjár stelpur og einn drengur. Aðspurð um hvernig lífið í sveitinni hafi ver- ið á uppvaxtarárunum gefur hún lít- ið út á það.”Við vorum með lítinn búskap, nokkrar kýr og kindur. Við systkinin lékum okkur þegar tími gafst til en við byrjuðum að vinna strax og hægt var. Það þurftu allir að hjálpast að. Mér var hinsvegar sagt að ég hefði verið óttalegur ræf- ill þangað til ég fékk kíghóstann. Ég fékk kíghósta ung og lá fyrir í 16 vikur en ég man lítið fyrir þann tíma. Ofan í kíghóstann fékk ég lungnabólgu líka og var nærri stein- dauð þá,” segir Þórdís. Hún kveðst hafa farið að braggast þegar hún var um 10 ára aldurinn en þá fluttu for- eldrar hennar á sjávarjörð. “Þá át ég margt og ýmislegt upp úr sjónum og ffískaðist snarlega og varð log- andi spræk”. Mynd úr einkasafni slá fyrr en ég var sautján ára. Þegar að bróðir minn var dáinn”. Hún brosir en sorgarsvipurinn leynir sér ekki. “Pabbi vildi ekki að ég myndi slá enda ræfill frá barnæsku en ég vildi fá að prófa. Eftír að ég lærði að nota orf þá sló ég þó alltaf með honum. Það lá mest á því að slá í þurrki. Það þýddi ekkert að láta grasið bíða, allir sem gátu urðu að slá”. Spurð um hvort það hafi ekki verið aukafólk á bænum segir hún lítið hafa verið um það” Hjá forel- drum mínum var eldri kona sem eyddi ellinni hjá okkur. Hún hafði áður verið vinnukona á bænum” Hef lært allt lífið Ferming Þórdísar fór fram í Fellskirkju í Sléttuhlíð. Séra Pálmi Þóroddsson fermdi hana og sjö önnur börn úr sveitinni. Þórdís var komin á hálft fimmtánda ár. “Þá var ekkert um gjafir enda ekkert til að gefa. Ég fékk þó nýjan kjól til að fermast í. Foreldrar mínur vorum bara fátækir leiguliðar og þurftum meðal annars að hrökklast tvisvar í burtu af jörðum sem við leigðuin af því eigendurnir þurftu að nota þær. “Þetta var bara svona með fá- tæklinga” segir Þórdís og strýkur um gleraugun. Þórdís fékk tækifæri til að ganga í skóla í stuttan tíma fyrir ferming- una og minnist þess þegar hún og stelpan af næsta bæ voru samferða. “Við fórum oftast á skíðum. Snjór- Sjöundastaðir í Fjótum þangaó sem Þórdísflutti árið 1933. Mynd úr einkasafni

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.