Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 27.01.2000, Blaðsíða 7
oikiaálíHoSSJ FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 2000 7 Vegir, símalínur, flugvellir og hafiiir Vel sóttir fundir samgönguráðherra Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra stóð fyrir tveimur opn- um fundum um samgöngumál á Vesturlandi fyrir stuttu. Sá fyrri var á veitdngastaðnum Kristjáni IX í Grundarfirði miðvikudaginn 19. janúar en sá síðari á Hótel Borgamesi síðastliðinn mánu- dag. Fjölmenni var á báðum fundunum enda samgöngumál í heild sinni það sem hvað mest brennur á fólki í hinum dreifðu byggðum. Sturla Böðvarsson reifaði á fund- unum helstu mál sem heyra undir hans ráðuneyti, vegamál, ferðamál, fjarskiptamál, siglingamál og flug- mál. Meðal annars fór hann yfir helstu framkvæmdir í vegamálum á Vesturlandi. Vegaáætlun er í endur- skoðun á Alþingi þessa dagana og aðspurður kvaðst ráðherra ekki geta sagt til um nýjar áherslur á þessari stundu. Auk þeirra stór- framkvæmda sem farnar eru af stað ræddi hann meðal annars um hugs- anlega brú yfir Kolgrafarfjörð og endurbætta Uxahryggjaleið. Þá sagði hann að með tilkomu Hval- fjarðarganga væri gífurleg umferð- araukning á vestlenskum vegum, eða sem nemur 1297 bílum á dag. Sagði hann að nauðsynlegt væri að skoða hvemig tekið yrði á þessu aukna álagi á vegakerfið. Kolgrafarfj örður Ráðherra kynnti helstu áherslur í nýjum fjarskiptalögum og lagði áherslu á að íbúar í dreifbýli ættu að sitja við sama borð og þéttbýlið varðandi fjarskipti og gagnaflum- ing. Á fundinum á Snæfellsnesi fór hann einnig yfir haftiarmálin sér- staklega og urðu þar allmiklar um- ræður um þann málaflokk. Meðal annars kom fram sú hugmynd að gera Hellnahöfn að skemmtisigl- ingahöfn. Þá lögðu fundarmenn áherslu á áframhaldandi uppbygg- ingu hafharmannvirkja á þéttbýlis- stöðunum. I umræðum um vegamál á Snæ- fellsnesi var lögð áhersla á að það ráðherra að hann beitti sér fyrir úr- bótum á þeim vettvangi. Ekki flutt í heilu lagi Á fundinum í Borgarnesi var meðal annars rætt um hugsanlega umferðarmiðstöð, framkvæmdir við flugvöllinn á Stóra - Kroppi og framtíðarvegarstæði í Borgarnesi. Fyrirspumir komu meðal annars um hugsanlega brú yfir Hvítá hjá Fráfuiidi samgönguráðherra í Borgamesi. væri eindreginn vilji fyrir því meðal sveitarstjórnarmanna að samhliða vegagerð yfir Vamaheiði yrði veg- urinn yfir Fróðárheiði byggður upp. Þá spunnust miklar umræður um nauðsyn þess að brúa Kolgraf- arfjörð og tók ráðherra undir þau sjónarmið heimamanna. Þá ræddu fundarmenn um að stór hluti Snæ- fellsness væri afskiptur hvað varðar GSM samband og beindu því til Mynd: GE Stafholtsey og fluming Vegagerð- arinnar í Borgarnes. Samgönguráð- herra sagði á fundinum að menn hefðu ekki góða reynslu af flutningi stórra ríldsstofnana úr Reykjavík í heilu lagi. Hann sagðist hinsvegar leggja áherslu á að flytja í smærri einingum það af starfseminni sem auðveldlega væri hægt að starffækja utan höfuðborgarsvæðisins. GE Framsókn á faraldsfæti í gær, miðvikudaginn 26. janúar, hófst fundaherferð þingmanna Framsóknarflokksins undir yfir- skriftinni „Á miðju íslenskra stjórmnála“. Þingmennirnir munu halda 14 opna fundi víðs vegar um land þar sem sérstök áhersla verður lögð á að ræða atvinnu-, fjölskyldu- og byggðamál sem og verkefni Fram- sóknarflokksins í ríkisstjórn. Fund- irnir eru öllum opnir og verða tveir þeirra haldnir á Vesturlandi: Mánudagur 31.janúar kl 20.30. Hótel Borgamesi Ræðumenn: Ingibjörg Pálma- dóttir, Páll Pémrsson, Kristinn H. Gunnarsson og Guðni Ágústsson. Fundarstjóri: Sigurgeir Sindri Sig- urgeirsson. Mánudagur l.fehrúar kl 20.30. Hótel Framnes, Grundarfirði Ræðumenn: Halldór Ásgríms- son, Ingibjörg Pálmadóttir og Kristinn H. Gunnarsson. Fundar- stjóri: Ragna Ivarsdóttir (Fréttatilkynning) nú er kominn tími fyrir þorrablótið í logalandi stopp haldið föstudaginn 4. febrúar stopp vissara að panta tímanlega því útlit er fyrir metaðsókn stopp gísli einarsson ritstjóri og húmoristi stýrir veislunni stop fundist hefur fín hljómsveit; bingó stop fundist hefur listakokkurinn kristján fredriksen stop fundist hafa tveir ýturvaxnir og þaulvanir dansarar frá hvíta rússlandi sem munu sjá um súluna og lofa djörfum dansi og listrænum tilþrifum stop fundist hafa horfnar vísur frá dísu í hrísum og verða þær sungnar stop fundist hefur miðaverð, það sama og í fýrra 3500 krónur stop fundist hefur bjór og léttvín sem koma þarf í lóg stop fundist hefur fyrri partur og verður samkeppni um flottasta “botninn” stop fundist hafa verðlaun fyrir hann stop fundist hefur símanúmer til að panta í miða stop það er 435 1143 stop síðustu forvöð að panta miða eru nk. þriðjudag stop rASON ficfl. og skipasali Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 Nýtt á söluskrá Mávaklettur 16, Borgarnesi. Einbýlishús ásamt innbyggðri bílgeymslu, samtals 209 ferm. Stofa og borðstofa parketlagðar, arin. Nýjar innréttingar í eldhúsi, flísar á gólfi. Baðherbergi flísalagt, bæði sturta og kerlaug. Ljós viðarinnrétting. Fjögur svefiiherbergi, eitt flísalagt, eitt dúklagt og tvö parketlögð, skápar í þremur herb. Þvottahús dúklagt. Forstofa, hol og gangur flísalagt. Gestasnyrting flísalögð. Áhvílandi 1,7 millj. Verð: kr. 11,5 millj. Borgarvík 12, Borgarnesi. Einbýlishús (ferm. 136) og bílgeymsla (ferm. 45). Stofa parketlögð, viður í lofti. Eldhús dúklagt, ljós viðarinnrétting. Baðherbergi dúklagt, bæði sturta og kerlaug. Fjögur svefnherbergi, öll dúklögð með skápum. Forstofa flísalögð með stórum skápum. Þvottahús. Gestasnyrting flísalögð. Áhvilandi 5,7 millj. Verð kr. ll.Omillj. s cJSSCEmJ30mLÆ3m BORGARBYGGÐ Menntamálaráð- herra í FVA Björn Bjarnason Menntamála- ráðherra kom í heimsókn í Fjöl- brautaskóla Vesturlands Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Með í för voru aðstoðarmaður hans og þrír starfsmenn menntamálaráðuneytis- ins. Ráðherra átti klukkustundar fúnd með nemendum á sal skólans. Þar sagði hann ffá nýjum nám- skrám fyrir skólastigin þrjú, frá leikskóla til framhaldsskóla. Fram kom að markmiðið væri að gera námið fjölbreytilegt og markvisst og auka val nemenda og ábyrgð þeirra. Stefnt er að því að efla starfsnám og tengsl menntunarinn- ar við atvinnulífið. Ollu námi á að geta lokið með stúdentsprófi ef nemendur ætla að hefja nám á há- skólastigi en það á eftir að skil- greina það nám á öðrum brautum en bóknámsbrautum. Einnig skýrði Björn frá þeirri áædun að öllum nemendum fram- haldsskólanna yrði gert kleift að eignast tölvu til að nota í náminu. Það verkefni væri enn í vinnslu. Að nemendafundi loknum fundaði ráðherrann með kennurum. Þar var einkum rætt um ýmis útfærslu- atriði námskrárinnar og mál sem varða FVA sérstaklega. Ráðherra lýsti yfir ánægju með heimsóknina og að sögn Þóris Ölafssonar skóla- meistara sagðist hann hafa skynjað ánægju nemenda og kennara með heimsókn ráðherra. SB AUGLYSING um breytingu á gjaldskrá um gatnagerðargjald í Borgarnesi Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt breytingu á gjaldskrá um gatnagerðargjald í Borgarnesi, Borgarbyggð, þannig ao 2. mgr. 2. greinar verði svohljóðandi: “Hundraðshluti byggingakostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir. Einbýlishús...............................6,0 % Par-, rað- og fjöleignahús................4,0 % Fjöleignahús (6 íbúðir eða fleiri)........2,5 % Verslunar- og skrifstofuhúsnœði...........3,0 % Iðnaðar- og geymsluhúsnœði................3,0 % Annað húsnœði (svo sem gripahús)..........2,0 %.” Borgarnesi 17. janúar 2000. Bæjarstjórinn í Borgarbyggð,

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.