Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 8

Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 2000 ^iUissunu.^ Beðið eftir þjóðgarði undir jökli fara að sjá eitthvað gerast Segir Pétur Jóhannsson bæjarfulltrúi um. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta á eftir að geta orðið okkar stóriðja ef maður tekur mið af Skaftafelli og Þingvöllum og þeim samgöngubótum sem hér hafa orð- ið á undanförnum árum og eru í gangi. Það er mikil samstaða um þetta mál í sveitarfélaginu en menn vilja fara að sjá einhverja hreyfmgu. Heimamenn eru þegar farnir að vinna sína heimavinnu með stór- auknum áherslum á umhverfismál meðal annars og tvær hótelbygg- ingar eru að rísa í sveitarfélaginu til að taka á móti aukinni umferð þan- nig að það er mjög slæmt hve mikl- ar tafir hafa orðið á þessu,” sagði Pétur. Hefur sinn gang “Þetta verður að sjálfsögðu að hafa sinn gang eins og annað,” sagði Þórður Olafsson í umhverfis- ráðuneytinu í samtali við Skessu- horn. “Við vitum ekki annað en að þetta eigi allt að ganga upp því enn hefur enginn hafnað samning- aviðræðum. Það hefur þegar verið gengið frá samningum um ákveð- Viljum “Því er ekki að neita að okkur finnst þetta hafa gengið ansi seint fyrir sig,” sagði Pétur Jó- hannsson bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokks í Snæfellsbæ um undirbúning vegna fyrirhugaðs þjóðgarðs í kringum jökul. “Það eru liðin nokkur ár síðan málið fór af stað og við viljum gjaman fara að sjá eitthvað gerast. Fyrsta skrefið átti að vera uppkaup á jörðum í eigu einstaklinga því menn töldu æskilegt að ríkið ætti þær jarðir sem tilheyrðu þjóðgarð- inum en ég fæ ekki annað séð en sú vinna gangi óeðlilega seint fyrir sig og málið sé strand á meðan,” sagði Pétur. Pétur segir Snæfellsbæinga binda miklar vonir við fyrirhugaðan þjóð- garð undir Jökli. “Menn gera sér vonir um stóraukna umferð og ný störf bæði við þjóðgarðinn beint og í þjónustustörfum honum tengd- Pétur Jóhannsson bœjarfulltníi nar jarðir og jarðahluta en enn er eftir að ganga frá samningum um fjórar jarðir og jarðahluta og þar á meðal eru óffágengin dánarbú sem hafa tafið málið nokkuð." Þórður kvaðst ekki geta tímasett hvenær uppkaupum yrði lokið en unnið væri að því eins hratt og hægt væri. Aðspurður um hvað tæki síð- an við sagði hann að næstu skref yrðu að skipuleggja formlega hvernig garðurinn á að líta út og hvernig hann yrði byggður upp. GE Samið um lj ármögnun Snorrastofii Húsnæðið opnað með viðhöfn í lok júlí Frá vinstri: Bergur Þorgeirsson, Geir Waage, Bjöm Bjamason, Bjami Guðráðsson og Bjami Guðmundsson Nýverið undirrituðu Björn Bjamason menntamálaráðherra og forráðamenn Snorrastofu í Reykholti, samkomulag um ffamlag menntamálaráðuneytis- ins til stofhkostnaðar og reksturs Snorrastofu næstu árin. Sam- komulag þetta tekur mið af þeir- ri iðkun miðaldaffæða og miðl- unar þeirra, sem að undanfömu hefur átt sér stað innan vébanda Snorrastofu. Að sögn Bergs Þorgeirssonar forstöðumanns Snorrastofu felur samkomulagið í sér að mennta- málaráðuneytið veitir 26 milljónum króna til frágangs á húsnæði Snorrastofu. Þá mun ráðuneytið greiða 5 milljónir króna til reksturs á þessu ári og 5,6 milljónir á árun- um 2001 til 2004. Af hinu árlega framlagi er ein milljón til viðhalds og eflingar bókasafhs dr. Jakobs Benediktssonar, sem afhent hefur verið Snorrastofu, og 600 þús. krónur til þátttöku í umhirðu Reykholtsstaðar. Gert er ráð fyrir að framlag til bókasafns Jakobs haldist óskert í tíu ár. A móti ffam- lagi ríkisins kemur árlega tveggja milljóna króna framlag frá aðilum í héraði, þ.e. Borgarfjarðarsveit, Skorradalshreppi, Hvalfjarðar- strandarhreppi, Héraðsnefhd Mýr- asýslu og Reykholtskirkju, eins og verið hefur undanfarin ár. Þessa daga er verið að fullklára húsnæði Snorrastofu og ljúka ffá- gangi utanhúss en að sögn Bergs er reiknað með opntm þess með við- höfn þann 29. júlí nk. Reiknað er með að nýgerður samningur við menntamálaráðuneytið dugi nokkurn veginn til að ljúka fjár- mögnun verksins. “Þetta framlag er sérlega mikilvægt fyrir uppbygg- ingu Snorrastofu sem miðalda- stofnunar og mun gefa stofnuninni byr undir báða vængi við áffam- haldandi eflingu hennar,” sagði Bergur. GE Hermann Bjamasson Fæddur 9/11 1925. Dáinn 24/12 1999. Minning: Eg minnist þín frændi hérna í stuttum orðwn. Sælt er að deyja efbaráttan er þung. En ástvina missir okkar er alltaf átak. Stöndum saman og hugsum fram, allt tekur enda að lokum. Eftirsjá okkar er alltaf til staðar en lærum að hlú aðþeim sem hafa misst Og láttu Ijósið þitt upp á nj. Eg á þér margt óþakkað, en ég þekkti þig vel. Bóndinn á næsta bænum, úr sveitinni minni heima. Þú kvaddir mig með góðu og tómt er hjarta mitt. Tárin samt ég missti. og kalt er hjarta þitt. Dalur þinn er tómur fent í þína slóð, verk þín eru stopp. Þúfórst nú þessi jólin og kvaddir þennan heim. Eg sé í gegnum tárin allt var orðið klárt. Þú þurftir oft að berjast, það var orðið sárt. Þú þurftir oft að betjast þvífátæk vom ár þín. En ég sé í gegnwn lífið þú varst samt, nokkuð klár. Eljótur varst til hjálpar, ef þú heyrðir bama grát. Þessa reynslufann ég, mín litlu bama ár. Komst mér oft til hjálpar, og gafst mér góða gjöf. Efkindina mig vantar, Þá sagðirðu: komdu næsta vor. Þií kenndir mér aðferðast, Vítt um okkar sveit. Alveg suður dali og norður á strandabrún. Þvert og verstu staði allt á litla mtnum BRUN. Hrossin þín voru yndi ogfararskjóti þinn. Þú hefðir aldrei bílinn, því var þettað ekkert grín. Eg minnist þín í orðmn Og mtmdi þig vel. Leiðir okkar skyldu mína seinni árin. Við það urðum að sættast. En aldrei ég gleymi þér. Ég þakka gömlu árin og samleiðina méð þér. Minningin um þig, er það eina sem ég hef. A í vörslu minni, gamla mynd afþér. Fjalla ferðir margar og árin mín öll. Þakka öll þín kynni og geymum þettað vel. Guð blessi f/tinningu og ástvini þína alla. Kveðja Erla Þórðar. Vísir að hand- verksbókasafni Frá afhendingu handverksbókasafnsins. Frá vinstri Valur Amarson, Steinunn Eiríks- dóttir, Helga Björk BjamadLóttir, Þuríður Helgadóttir og Anna Sigurlm Hallgrímsdóttir formaáur félagsins. Lengst til bægri er Guðmundur Guðmarsson forstöðumaður safnsins sem tók við safnkostinum til varðveislu. Mynd MM. Handverksfélagið Hnokki í Borgarfirði færði Héraðsbókasafhi Borgarfjarðar í síðustu viku vísi að bókasafni um handverk til varð- veislu. Safnið hefur að geyma 36 tida og er ætlað notendum bóka- safhsins til afnota í lesstofu. Að sögn stjórnarmanna í Hnokka er safnið vísir að ffæðslu- og upplýs- ingaefhi um handverk og er ætlun- in að auka við bókakostinn þegar fram líða stundir. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.