Skessuhorn - 27.01.2000, Blaðsíða 11
^atasunuáj'
FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 2000
II
Aflabrögð
Aflabrögö í síöustu viku
Far vf f tonn
Akranes 16/1-22/1
Sturlaugur H. botnv 1 94,1
Stapavík plógur 5 21,4
Ebbi lína 1 3,4
Felix lína 5 7,2
Hafdís lína 4 3,4
Númi lína 1 2,8
Salla lína 3 1,9
Bresi net 7 10,1
Heildarafli 220,1
Grundarf. 17/1-23/1
Heiðrún botnv 1 50,0
Hringur botnv 1 68,0
Sigurborg botnv 1 51,8
Farsæll botnv 1 18,9
Sóley botnv 1 30,5
Sævar handf 2 0,4
Birta lína 4 10,0
Brynjar lína 1 3,8
Már lína 1 3
Milla lína 5 3,7
Pétur Konn lína 3 10,2
Smyrill lína 4 13,8
Þorleifur lína 3 3,1
Haukaberg net 5 23,1
Samtals 295,0
Stykkish. 16/1-22/1
Ársæll plógur 5 40,8
Bjami Svein. plógur 5 21,2
Gísli G. II plógur 5 19,2
Grettir plógur 2 22,1
Hrönn plógur 2 18,4
Ingileif plógur 2 6,3
Kristinn F plógur 5 41,0
Þórsnes plógur 5 37,6
Elín lína 2 3,4
Hólmarinn lína 2 3,3
Jónsnes lína 2 5,1
Kári lína 2 6,8
María lína 3 7,2
Rán lína 3 7,4
Steini R. lína 1 2,2
Arnar net 3 26,5
Þórsnes II net 4 18,8
Samtals 287,3
Rifshöfn 19/12-31/12
Hamar botnv 2 20,5
Rifsnes botnv 1 23,3
Bára dragn 7 6,1
Esjar dragn 9 6,2
Fúsi dragn 2 2,4
Rifsari dragn 3 5,1
Þorsteinn dragn 3 14,4
Jóa handf 3 5,3
Sæfinnur handf 3 3,5
Bjössi lína 3 5,1
Faxaborg lína 2 50,0
Guðbjartur lína 3 9,9
Heiðrún lína 3 8,5
Kristinn lína 1 3,8
Litli Hamar lína 4 15,7
Sigurvík lína 2 9,6
Sæbliki lína 4 14,0
Særif lína 3 11,0
Orvar hna 3 38,3
Fiskir net 4 11,1
Hafnartind net 4 5,9
Kristín F net 7 13,2
Magnús net 3 25,6
Saxhamar net 5 26,7
Samtals 339,2
Ólafsv.höfh 16/1-22/1
Bjarmi dragn 6 17,2
Hafsúla dragn 3 1,1
Vestri dragn 3 17,2
Aron lína 2 4
Geisli lína 4 6,1
Bervík net 8 12
Bogga net 7 8,7
Sjöifi net 4 15,3
EgiH net 6 14,3
Heildarafli 583,4
Hafnín til vinstri hefur nú verið seld en í hennar stað kemur annað skip, eins og Brimrún sem sjá máfjœr á myndinni.
\ui im IÍSL.í"*
Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki í Stykkishólmi
Sæferðir yfirtaka
rekstur Eyjaferða
Stofinað hefur verið nýtt ferða-
þjónustufyrirtæki í Stykkis-
hólmi, Sæferðir ehf en það tekur
yfir rekstur Eyjaferða sem verið
hafa brautryðjendur á þessu sviði
og um árabil eitt stærsta fyrir-
tæki landsins á sviði hvalaskoð-
unar og skemmtiferða.
Aðaleigendur nýja fyrirtækisins
eru Kynnisferðir ehf., Pétur
Agústsson, Svanborg Siggeirsdóttir
og fjölskylda, auk Olís hf. og Sjóvá-
Almennra hf. Stjórnarformaður er
Kristján Jónsson framkvæmdastjóri
Kynnisferða, en aðrir í stjórn eru
Pétur Agústsson og Grétar Br.
Kristjánsson frá Kynnisferðum.
Framkvæmdastjóri félagsins verður
Björn Kristjánsson og mun hann
jafnframt annast markaðs og sölu-
mál varðandi ferðaskrifstofur og er-
lendan markað. Flann mun verða
með aðalaðsetur í Reykjavík en
höfuðstöðvar félagsins verða í
Stykkishólmi og mun Svanborg
Siggeirsdóttir hafa umsjón með
daglegum rekstri. Pétur Agústsson
verður útgerðarstjóri og aðalskip-
stjóri félagsins ásamt Siggeiri Pét-
urssyni. Fastir starfsmenn verða
þeir sömu og hafa verið í þjónustu
Eyjaferða á umliðnum árum.
Stækkun flotans
Að sögn Svanborgar Siggeirs-
dóttur verður félagið með tvo báta í
ferðum næsta sumar. Brimrún sem
keypt var til Stykkishólms fyrir
tveimur árum verður rekin áfram
með sama sniði en Hafrún, eldri
bátur Eyjaferða, hefur verið seld. í
hennar stað kemur stærra skip sem
er tveggja skrokka eins og Brimrún
og er keypt notað frá Noregi. Nýi
báturinn verður gerður upp í vetur
og m.a. innréttaður glæsilegur veit-
ingasalur að sögn Svanborgar.
Sagði hún að bátarnir yrðu að
mestu leyti í Stykkishólmi og
Olafsvík í sumar en einnig er fyrir-
hugað að teygja starfssvæðið suður
á bóginn. “Við munum leggja áher-
slu á að efla hvalaskoðunarferðir
enn frekar, ekki síst frá Olafsvík, og
sérhæfum okkur einnig í allskyns
sérferðum og veilsuferðum. Við
gerum ráð fyrir að með öflugri
Svanborg Siggeirsdóttir
markaðssókn getum við stóraukið
farþegafjöldann en á síðasta ári
voru þeir um 15 þúsund. Við erum
því sannfærð um að þetta nýja fyr-
irtæki mun styrkja til muna ferða-
þjónustu á Nesinu. Þá er það mikill
fengur fyrir okkur að fá inn í þetta
jafn sterkt fyrirtæki og Kynnisferð-
ir og því getum við ekki annað en
verið bærilega bjartsýn á framhald-
ið,” sagði Svanborg.
GE
Syeinn Benediktsson
landar á Akranesi
Sveinn Benediktsson sem er í
eigu SR-Mjöls hf. kom til hafnar á
Akranesi með fúllfermi af loðnu
þriðjudaginn síðasdiðinn. Að sögn
Sturlaugs Haraldssonar er skipið
kvótalaust en það hefur að mestu
stundað kolmunnaveiðar frá því að
það var keypt til landsins á síðasta
ári. „Við munum útvega kvóta til
að fá Svein til að landa hjá okkur.
Síðastliðinn laugardag landaði
Oli í Sandgerði 1020 tonnum. Að
sögn Marteins Einarssonar skip-
stjóra um borð hefur gengið ágæt-
lega undanfarið. Þeir hafi aðallega
verið að fiska fyTÍr austan ásamt
öðrum bátum. „Það hefur fiskast
Við vonumst til aukningar á
loðnukvóta á þessari vetrarvertíð
og því er útiit fyrir að við verðum
með rúman kvóta þar sem sumar-
og haustvertíðir brugðust. Við
væntum þess að loðnuskipin okkar
fái að veiða eins mikla loðnu og þau
mögulega geta á vertíðinni, sagði
Sturlaugur Haraldsson.
vel hérna fyrir austan hjá trollbát-
unum.Okkur vantar aðeins smott-
erí uppá fullfermi aftur.“ Sagði
Marteinn Einarsson þegar blaða-
maður Skessuhorns ræddi við hann
á mánudag.
SB
Víkingur
afturá
veiðar
Víkingur AK fór á veiðar
síðastliðinn sunnudag eftir
nærri tveggja vikna stopp.
Eins og kunnugt er bræddi vél
Víkings úr sér á loðnumiðun-
urn austur af landinu.
Straxá inánudeginum voru
þeir á Víkingi komnir með
um 500 tonn og var útlit fyr-
ir góða veiði.
Skipin austur af landinu
hafa verið að veiða vel undan-
farna daga og hefur taisvert
farið í frystingu þó bera færi á
ám síðustu daga.
SB
SB
Óli með fullfermi
HEKIA
Hekluumboðið
á Vesturlandi
Bílasalan
Torg
s. 437 2252
HEKLA