Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 27.01.2000, Blaðsíða 13
SSEESSUHÖM FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 2000 13 ATVINNA ÓSKAST Hjálp (24.1.2000) Vill einhver hjálpa mér um vinnu. Helst í vélvirkjun svo ég geti lokið námi. Flest kemur til greina. Uppl. í síma 431 2146. BÍLAR / VAGNAR / KERRUR Fombíll Land Rover (25.1.2000) Til sölu Land Rover árgerð 1975 styttri gerð með ökumæli. Er á góðum heilsársdekkjum og skoð- aður til okt. 2000.Vegna aldurs er hann undanþeginn bifreiðagjöld- um. Uppl. í síma 435 1391. Nissan Sunny (24.1.2000) Til sölu Nissan Sunny árg. 1986, skemmdur eftir umferðaróhapp. Selst í einu lagi eða í pörtum. Upp- lýsingar í síma 431 3464 e kl. 17. Cruiser (21.1.2000) 4-gíra Landcruiser gírkassi + millikassi m/spilúrtaki. Startari í Landcruiser. Dana 60 afturhásing m/íljótandi öxlum 4,10. 350 Chevy vél. Uppl. í síma:431 3344 eða 896 1172. Fjölskyldu- vinnubíll (21.1.2000) Til sölu Toyota Hi-ace '95 dies- el 4x4 langur. Skráður f. 8. Vel með farinn einkabíll með sérlega rúm- góðu farangursrými. Ekinn 165.000. m.mæli. Einn eigandi. Sumar- og vetrardekk. Verð 1.280.000 krónur. Uppl.: sigur- dura@aknet.is Til sölu (20.1.2000) Saab 900 GLE '82 sjálfskiptur. Skoðaður '00 en er ekki á númer- um. Verð: 10.000 kr Sími 434 1371. Dekk á felgum (18.1.2000) Fjögur nýleg 13“ heilsársdekk á felgum til sölu. Upplýsingar í síma 587 1090. DÝRAHALD Hey (25.1.2000) Hey til sölu, vel þurrt í pökkuð- um stórböggum. Uppl. í síma 435 ■1391. Kvígur til sölu (25.1.2000) Til sölu nokkrar kvígur, af fyrsta og öðrum kálfi. Burðartími í febr- úar og mars. Upplýsingar í síma 433 8838, Vífill. Vantar pláss (21.1.2000) Vantar pláss fyrir hestinn minn, a.m.k. fram á vor. Get tekið þátt í hirðingu og fleira. Uppl. 431 1811, Auður. Gæludýrafóður (21.1.2000) Nurture gæludýrafóður til sölu á góðu verði. Hundafóður í 15 kg pokum á 3830 kr hvolpafóður, fóð- ur fyrir hunda með hárlos og önn- ur húðvandamál, diet fóður og reg- ular fyrir alla hunda. Anton Harð- arson Suðurgata 19 Akranes s: 896 1427 FYRIR BÖRN Simo-kerruvagn (24.1.2000) Nýlegur, blár Simo-kerruvagn til sölu á 20 þúsund. Einnig er á sama stað til sölu nýtt baðborð sem fest er yfir baðkar. Kristín s:899 1578. Vantar svalavagn (24.1.2000) Oska eftir notuðum barna- vagni/kerru fyrir lítið eða gefins. Kristín s:899 1578. Til sölu (22.1.2000) Hvítt eldhúsborð verð 2.000. Gamalt skrifborð verð 1.000. Britax barnabílstóll verð 6.000, barnastóll á reiðhjól + hjálmur. Uppl. í síma 431 3344 eða 861 6227. LEIGUMARKAÐUR Einstaklingsíbúð (24.1.2000) Oska eftír einstakslingsíbúð til leigu á Akranesi. Upplýsingar í síma 431 4236. Á Akranesi óskast (18.1.2000) Ungt reglusamt og reyklaust par óskar eftir 2-3 herbergja íbúð á Akranesi, ýmislegt kemur til greina. Oruggum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 899 7491 eða 431 1562 eftir klukkan 19. ÓSKAST KEYPT Jörð óskast (24.1.2000) Vestfirðir/Snæfellsnes. Oska eft- ir að komast í samband við jarðar- eiganda sem vill selja. Jörðin má vera hluti af jörð hvort sem um er að ræða jörð í rekstri eða eyðibýli (jörð án húsa). Allt kemur til ereina. Uppl. gefur Jón Gunnar í síma 863 7227. Fururúm (24.1.2000) Oska eftir fururúmi, ca 120cm á breidd. Upplýsingar í síma 431 1549. Þrekhjól (24.1.2000) Oska efrir þrekhjóli. Upplýsing- ar í síma 431 1549. Notuð PC tölva (18.1.2000) Vantar notaða PC tölvu, minnst Pentinum 133. Uppl. í síma 861 7740. TIL SÖLU Tilsölu (21.1.2000) Hvítt elhúsborð verð 2.000, barnastóll á reiðhjól+hjálmur. Britax bamabílstóll. Gamalt skrif- borð v 1.000. Matreiðsluvél. Uppl.í síma: 431 3344 og 861 6227. ÝMISLEGT Gamlir munir (24.1.2000) Kaupi gamla muni. T.d. Lampa, ljósakrónur, verkfæri, skrautmuni og flest sem tengist stríðsáranum og þaðan af eldra, utan dyra sem innan. Upplýsingar í síma 437 1148. 10 mínútna förðun (19.1.2000) Viltu fræðast um umhirðu húðar og hárs eða læra förðun sem tekur aðeins 10 mín? 3ja tíma frítt nám- skeið fyrir allar konur. Náttúruleg- ar snyrtivörur og förðunarvörur. Þér gefst kostur á að kaupa að námskeiði loknu. Guðrún, 566 7374 og 895 0800. Bamaskapur meiri- hlutans á Akranesi Penninn í Skessuhorni þann 20.janúar (Morgunblaðinu 21.janúar) sl. reynir Sveinn Kristinsson, formað- ur bæjarráðs á Akranesi, enn einu sinni að verja þær fljótfærnislegu aðgerðir meirihluta bæjarstjórnar að segja Akranesbæ úr samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV. Sveinn segir orðrétt í fyrr- nefndu blaði í svargrein við skrifum Péturs Ottesen í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Skot í fótinn“: „Þar bætir hann (Pétur, innsk. GS) við nýju einkunnarorði , en svarabróðir hans í bæjarstjórninni og núverandi formaður SSV, Gunnar Sigurðsson, hefur notað orðið barnalegur. Það er þekkt úr þrætubókinni að til slíkra einkunna er gripið þegar hin rökræða um- ræða er mönnum ofviða.“ Eg ætla hins vegar að láta þá sem þetta lesa leggja mat á það hvort framkoma meirihluta bæjarstjórnar Akraness við úrsögn úr SSV er barnaleg eða ekki, en staðreyndir eru þessar: 1. I haust réð stjórn SSV ráð- gjafafyrirtækið Nýsi hf. til að ræða við allar sveitarstjórnir á Vestur- landi. í framhaldi af því var fyrir- tækinu falið að koma með tillögu að áframhaldandi starfi SSV 2. Á aðalfundi SSV í Reykholti sl. haust var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, þar á meðal atkvæðum Akurnesinga, að fela næstu stjórn SSV að skoða ákveðn- ar leiðir sem skipulagsnefnd aðal- fundar SSV undir forystu bæjar- stjórans á Akranesi mælti með. 3. Á þessum fundi var kosin 7 manna stjórn með öllum greiddum atkvæðum. 4. Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar SSV var kosið um tvo full- trúa stjórnar í formannsstól. Sigríð- ur Gróa Kristjánsdóttir fékk 3 at- kvæði og Gunnar Sigurðsson fékk 4 atkvæði og var því réttkjörinn. Þetta þoldi meirihlutinn á Akra- nesi ekki og sagði Akranesbæ úr samtökum sveitarfélaga á Vestur- landi. Þetta er það sem ég kalla barnalegt, „ef við fáum ekki það sem við viljum þá erum við bara hætt“. Ef hlutirnir eru ekki þókn- anlegir meirihlutanum á Akranesi þá hætta þeir bara að vera með! Það er augljóst í þessu máli að ekki er verið að hugsa um hagsmuni Akur- nesinga eða Vestlendinga. Málflutningur meirihlutans á Akranesi er annars með ólíkindum í Gunnar Sigurðsson þessu máli. Á sama tíma og hann segir Akra- nesbæ úr SSV gefur meirihlutinn yfirlýsingu um að hann vilji samtarf á Vesturlandi um þau verkefni sem Akranesbær getur haft gott af eða nýtist báðum. Hver leggur trúnað á svona málflutning? Meirihlutanum væri nær að hotíá fram á veginn frekar en að stunda þennan sand- kassaleik og fara svo bara í fylu! Er þetta Akranesbæ og Vesturlandi til heilla? Gunnar Sigurðsson er bcejarfulltrúi sjálfstæðismanna á Akranesi og formaður SSV Norðurál með kynningu Þann 4. febrúar næstkomandi ætlar Norðurál hf. að vera með opið hús og kynningu á umhverf- ismælingum og umhverfisvöktun í Hvalfirði sem fyrirtækið og Is- lenska járnblendifélagið hafa staðið að undanfarin tvö ár. Kynningin er opin öllum frá kl. 16 til kl 21:30 og verður haldin að Norræna skólasetrinu á Hval- fjarðarströnd. Einnig verða kynntar teikning- ar af fyrirhugaðri stækkun og sýndar ljósmyndir og skýringar- myndir af mengunarvarnarbún- aði og daglegu framleiðsluferli." (Fréttatilkynning) Rússnessldr snillingar Rússnesku tvíburamir Fjodor- ov verða með tónleika í sal Grundaskóla á Akranesi í kvöld, fimmtudag 27.jan. kl.20.30. ”Það er mikið happ fyrir okkur að fá þessa snillinga aftur til okk- ar,” segir Lárus Sighvatsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi. “Þeir léku fyrir okkur sl. sumar og voru margir sem misstu af þeim þá. Nú er um að gera að láta þá bræður ekki ffam hjá sér fara,” sagði Lárus. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og mun hluti miða- verðs ganga til harmonikkusveit- ar TA sem hyggur á utanlands- ferð í vor. SB Símenntun í atvinnulífinu Ole Imsland, framkvæmda- stjóri Rogaland Kurs og Kompet- ansesenter heldur tvo opna fundi hér á landi í þessari vilcu um sí- mennmn í atvinnulífinu. Hann er hér í boði Símenntunarmiðstöðv- ar Vesturlands með styrk frá norska sendiráðinu. Fyrri fund- urinn verður í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 20.00 í íþróttahús- inu Jaðarsbökkum á Akranesi en sá síðari í Fjarkennslustofu HI í Reykjavík á föstudag kl. 10.00. ^Menning 2000 á Akranesi Atta listamenn setja upp verk sín Þann 15. janúar voru kynnt í Kirkjuhvoli þau verk sem sett verða upp í tengslum við Menn- ingu 2000. Listamönnum á Akra- nesi og brottfluttum Akurnesing- um var boðið að senda inn tillög- ur að umhverfislistaverkum. Verkin skyldu vera úr náttúruleg- um efhum og öðrum ódýrum verkurn t.d rekaviði. Alls bárust 10 tillögur og voru átta tillögur eftir jafnmarga listamenn valdar. Þeir listamenn sem setja verk sín upp eru: Auður Vésteinsdóttir, Bjarni Þór Bjarnason, Guttormur Jónsson, Helena Guttormsdóttir, Jónína Guðnadóttir, Marlize Wechner, Philippe Richart og Sigríður Rut Hreinsdóttir. Verkin verða sett upp á þremur stöðum, við Leyni, við Langa- sand og á Elínarhöfða. Verk Jón- ínu „Himnaríki” og Marlize „Veðrafiskar” verða staðsett við Leyni. Verk Auðar „A floti”, Hei- enar „Liðinn tími” og Sigríðar “As fiski” verða staðsett á Langa- sandi. Verk Philippe „Veiðar”, Bjarna „Tálbeitan” og Guttorms „Sætí” verða svo staðsett á Elín- arhöfða. SB

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.