Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 14

Skessuhorn - 27.01.2000, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 SKESSUHÖSM Símenntunarmiðstöðin hefur mörg hlutverk Pennínn J Fjöldi Vestlendinga hefur sótt námskeið sér til gagns og gamans á því tæpa ári sem Símenntunarmið- stöðin hefur starfað. Tómstunda- námskeið eru sá hluti starfseminnar sem mest ber á, en því fer fjarri að það sé eina hlutverk Símenntunar- miðstöðvarinnar að skipuleggja frí- stundanám. Mig langar í þessari grein að vekja athygli á þeirri starf- semi sem hljóðlegar fer. Símenntun í atvinnulífinu Eitt hlutverk miðstöðvarinnar er að auka samstarf atvinnulífs og skóla og efla menntun vinnandi fólks. Síkvikur vinnumarkaður ger- ir síbreytilegar hæfhiskröfur og þeir sem ekki viðhalda þekkingu sinni og færni eiga það á hættu að lenda úti í horni eins og hver önnur af- lóga vinnuvél. Menntun er ekki lengur forði sem menn afla sér á yngri árum heldur þarf að safna henni í sarpinn alla ævi. Það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni ríkis, menntastofnana, atvinnurekenda, stéttarfélaga og sérhvers einstak- lings að sjá til þess að menntun þjóðarinnar sé í samræmi við þarfir atvinnulífsins. Hlutverk atvinnulífs- ins er að skilgreina menntunarþarf- irnar og hlutverk skólanna að bregðast við þessum þörfum. Hlut- verk einstaklinga er að temja sér sveigjanleika og búa sig undir að störfin sem þeir gegna geri aðrar kröfur til þeirra í dag en í gær. Sí- menntunarmiðstöðin leitar svo eft- ir samvinnu allra þessara aðila í því skjrni að auka menntun fullorðins fólks. Á þessu fyrsta starfsári hefur Sí- menntunarmiðstöðin sérsniðið talsvert af námskeiðum sem fyrir- tæki, stofnanir, stéttarfélög og sveitarfélög hafa beðið um. Hægt og sígandi er verið að feta sig inn á þá braut að aðstoða viðskiptavini við að greina mennmnarþörfina. Þá er ekki eingöngu verið að hugsa um að bæta handtökin heldur einnig hugarfarið því eins og allir vita skiptir hugarfar stjórnenda og starfsfólks sköpum í atvinnurekstri. Fjamám Það verður æ algengara að fólk stundi nám án þess að þurfa að mæta í skólann nema til að útskrif- ast. Fjarnám er ýmist stundað um tölvu eða gagnvirkan fjarkennslu- búnað. Fjamám um tölvu er hægt að stunda þegar og þar sem nem- endum hentar, en fjarkennslubún- aður gerir fólki kleift að sitja kennslustundir í fjarlægum menntastofhunum. Fjarnám og fjarvinnsla hljóta að vera liður í lausn byggðaröskunar- vandans. Það fer ekki hjá því að bú- seta í dreifbýli verður fysilegri kost- ur þegar hægt er að stunda doktors- nám við bandarískan háskóla sitj- andi við ódýra heimilistölvu vestur í Hörðudal eða að hafa atvinnu af að svara í síma fyrir alþjóðlegt stórfyr- irtæki undir Jökli. Eitt hlutverka Símenntunarmið- stöðvarinnar er að auka möguleika Vestlendinga á að stunda fjamám og kenna þeim að nýta sér það sem í boði er. I teoríunni era fjarnáms- möguleikar ótæmandi, en veruleik- inn er annar. Vandinn er í stuttu máli þessi: 1) Símkerfið er ekki í stakk búið til að uppfylla þær kröfur um burð- argetu sem fjarnám og fjarvinnslu- störf gera. 2) Enn er ekki ljóst hver á að bera kostnaðinn sem fylgir því að flytja framhalds- og háskólanám til dreifðra byggða. 3) Skólakerfið hefur ekki aðlagast vinnubrögðum fjarnáms og það á eftir að kenna kennuram að kenna á þennan hátt. 4) Almenningur er ekki undir það búinn að nýta sér þessa náms- tækni. Það þarf að kenna nemend- um að læra á þennan hátt. Þessi vandamál eru ekki óyfir- stíganleg, en það tekur tíma að leysa þau. A Vesturlandi hafa sex þéttbýlissveitarfélög komið sér upp gagnvirkum fjarkennslubúnaði þannig að enginn Vestlendingur þarf að fara um langan veg til að stunda fjarnám um slíkan búnað. I vetur hafa fjórir nemendur á Vest- urlandi stundað nám við HI í heimabyggð, en fjöldi þeirra fer ör- ugglega vaxandi þegar fyrrgreind- um Ijónum verður ratt úr vegi. Að læra að læra Tölvulæsi er forsenda fjarnáms og meðal annars þess vegna hefur Símenntunarmiðstöðin lagt áherslu á upplýsingatækni í námskeiða- framboði sínu. Um þessar mundir er að fara af stað samvinnuverkefhi fjögurra þjóða, sem Vestlendingar taka þátt í. Markmið verkefnisins er að kenna konum í dreifbýli á tölvur og gera þeim þannig kleift að stun- da fjarnám og fjarvinnslustörf. 20 konur víðsvegar af Vesturlandi stunda nú tölvunám á Varmalandi þar sem verið er að prófa nýtt kennsluefni í vefutgáfu. Tölvufærni er þegar farin að skipta fólki í stéttir og sú stéttskipt- ing mun aukast í framtíðinni. Vitað er að konur standa verr að vígi en karlar og dreifbýlið stendur höllum fæti í þessum efnum. Konur í dreif- býli eru því sá hópur sem helst á það á hættu að missa af upplýsinga- hraðlestinni. Þess vegna er þetta til- raunanámsefni sem unnið er af há- skólakennurum í fjóram löndum fyrst prófað í kvennahópum. Þátt- takendur hér á landi era af Vestur- landi, úr Eyjafirði og Eyjum. Það er gaman að geta þess að á öllum þess- um stöðum hefur þurft að velja úr hópi áhugasamra umsækjenda á meðan leitað hefur verið að fólki til að taka þátt í tilrauninni í Noregi, Irlandi og Slóvakíu. Þessi tilrauna- kennsla og tilraunanámsefhi mun síðar nýtast öðram hópum til að til- einka sér undirstöðuatriði upplýs- ingatækninnar og nýta sér þau til fjarnáms og fjarvinnslustarfa. Nám er skemmtun Að lokum langar mig að minnast örlítið á gildi tómstundanáms. Sjálfri finnst mér helsti gallinn við að búa í dreifbýli vera sá hversu erfitt er að sækja námskeið. Mér finnst það vera mannréttindi að geta lagt rækt við áhugamál sín á námskeiðum. Það er erfitt að halda úti námskeiðahaldi í fámenni og sérstaklega er erfitt að fá samfellu í frístundanámið. Ein leið til að gera námskeiðs- hald í dreifbýli mögulegt er að halda námskeið sem jafnt nýtast fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Dæmi um slík nám- skeið eru tölvunámskeiðin sem ll/örg Amadóttir haldin hafa verið um allt Vesturland í vetur. I Grandarfirði er nú verið að reyna leið til tómstundanáms, sem mikið er notuð á öðrum Norður- löndum. Þar er að fara af stað les- hringur sem les og ræðir um Eyr- byggju. I leshring fræðist fólk af öðram um leið og það fræðir aðra. Þar sem enginn eiginlegur kennari er á námskeiðinu er kostnaður í lág- marki og þar af leiðandi þarf ekki marga þátttakendur til að af nám- skeiðinu geti orðið. Hópstjórinn hefur það hlutverk að sjá til þess að umræður snúist um Eyrbyggju og ekkert nema Eyrbyggju. Hópurinn ber sjálfur ábyrgð á að fræðast og fræða og mörg dæmi era um það að vel samsettir leshringir lifi áram saman. Eg óska Eyrbyggjules- hringnum í Grandarfirði langlífi og vona að brátt spretti upp leshringir um önnur efni á öðram stöðum á Vesturlandi. Björg Amadóttir, forstöðumaður Shnenntimarmiðstöðvar Vesturlands Iþrótta- og tómstundamál í Borgarbyggð Penninn Undanfama mánuði hefur um- ræða um rekstur íþróttafélaga verið í deiglunni í Borgarbyggð. A fundi bæjarstjórnar Borgarbyggðar 17. janúar 2000 vora samþykkt stefhu- markandi atriði varðandi aðkomu sveitarfélagsins að íþrótta- og tóm- stundamálum. Stefnumörkunin miðast við að efla starfsemi félaga en einfalda jafhframt aðkomu sveitarfélagsins m.a. með rekstrarsamningum og markvissarir úthlutun peninga- styrkja. Eftirtalin atriði vora samþykkt sem stefhumörkun: 1. Iþrótta- og tómstundaskóli. Sett verði fjármagn í að undirbúa starfsemi íþrótta- og tómstunda- skóla ffá 1. janúar 2001 í 6 mánuði í samstarfi við íþrótta- og æskulýðs- fulltrúa. I ffamhaldi af því verði stefht að rekstrarsamningi/um um verkefni skólans og umsjón. 2. Annað æskulýðs- og tóm- stundastarf. I fjárhagsáætlun ársins 2000 verði settar 2 m.kr. í aðstöðu fyrir eldri unglinga. 3. Rekstrarsamningar. Stefnt verði að gerð rekstrarsamninga í auknu mæli við félög í Borgarbyggð um rekstur íþróttamannvirkja og starfsemi er heyrir undir íþrótta- og tómstundastarf. 4. Styrkveitingar. Arlega verði veitt fastri fjárhæð til úthlutunar peningalegra styrkja. Auglýst verði eftir umsóknum og úthlutað í samræmi við fyrirfram settar út- hlutunarreglur. Tómstundanefnd, ásamt bæjarstjóra, íþrótta-og æsku- lýðsfulltrúa verði falið að gera til- lögur um úthlutunarreglur. Fjár- hæð til úthlutunar verði ákveðin ffá ári til árs. Yfirlit yfir framlög til íþrótta- tómstunda- og æskulýðsmála. Yfirlit fyrir árin 1998 og 1999 fylgir með til samanburðar. Þús. Kr 1998 1999 2000 Reikmtð húsa- ogvaUarleiga til ijrróttafélaga 5.689 5.918 7.400 Greiðslur samkv. eldri satnningum 1.867 3.654 4.100 Peningastyrkir til úthlutunar 1.810 778 1.500 Onnur framlög og styrkir 423 400 900 Samtals: 9.789 10.750 13.900 Samtals framlög án reiknaðrar leigu 4.100 4.832 6.500 Eins og sjá má eru greiðslur vegna eldri samninga nú umtals- verðar og verða næstu tvö árin. Reiknuð leiga hefur hækkað nokk- uð þar sem gjaldskrá vegna íþrótta- mannvirkja var hækkuð eftir mar- gra ára óbreytta tölu. Þessi upp- hæð er millifærð sem tekjur á mála- flokkinn íþrótta- og tómstundamál og skuldfærð á íþróttafélögin. A þessu yfirliti sést líka að beinir peningalegir styrkir til íþrótta- og æskulýðsmála hafa aukist milli ára. Það hefur verið skýr vilji bæjar- stjórnar að styðja sem best við íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfé- laginu. Áður nefnd stefnumörkun verður unnin í góðu samstarfi við þau félög sem sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi. Hugmyndin á bak- við hana er m.a sú að breyta að- komu sveitarfélagsins þannig að ekki koma til styrkir eftir á heldur vita félög í byrjun árs hvaða fjár- muni þau fá frá sveitarfélaginu. Ein upphæð verður eyrnamerkt sjóði til íþrótta- og tómstundastarfs sem aðilar í Borgarbyggð geta sótt um í. Rekstrarsamningar geta styrkt starf félaganna og gert starfið markvissara þar sem hlutur sveitar- félagsins verður minni en félaganna meiri. Auknir tekjumöguleikar tengdir þessu verða vonandi til góðs fyrir félögin. Víða um land hafa íþróttafélög átt við gífulegan peningalegan vanda að stríða. Starfsemi þeirra byggist að mestu leyti upp á frjálsu starfi, tekjum af auglýsingum og velvilja fyrirtækja. Þáttur sveitar- félaga hefur verið sá að veita eins góða þjónustu og hægt er hvað varðar aðstöðu enda bundið í lands- lögum. Bein aðkoma sveitarfélaga pen- ingalega séð hefur verið mjög mis- munandi. Benda má á að sam- kvæmt árbók sveitarfélaga fyrir árið 1999 sem sýnir útgjöld ársins 1998 er Borgarbyggð í þriðja sæti á landsmælikvarða hvað varðar upp- hæð pr. íbúa til íþrótta- og æsku- lýðsmála. Aðeins Olafsfjörður og Grindavík eru hærri miðað við svipaða stærð sveitarfélags. Nokkurs misskilnings hefur gætt varðandi rekstrarsamning um íþróttavöllinn í Borgarnesi. Borg- arbyggð hefur undanfarin ár gert samning við Knattspyrnudeild Skallagríms um umsjón og rekstur vallarins. Hér er ekki um beinan peningastyrk að ræða heldur samn- ing um rekstur. Borgarbyggð hefur keypt þjónustu af Knattspyrnu- deildinni og Golfklúbbi Borgar- ness, sem séð hefur um sláttinn, og sést það góða starf á því að við eig- um einn fallegasta íþróttavöll landsins. Styrkur sveitarfélagsins. Það má alltaf deila um hversu miklum upphæðum skuli veitt til íþrótta- og tómstundastarfs. Þetta er geysifjölbreytt flóra. Annars- vegar era íþróttir sem iðkaðar era undir stjórn þjálfara í íþróttamið- stöð eða tómstundastarf sem m.a. fer fram í félagsmiðstöð eða undir stjórn félagasamtaka. Það er styrkur hvers sveitarfélags að þar dafni öflugt íþrótta- og tóm- stundastarf. Ekki aðeins eflir það börn og unglinga í leik og starfi heldur er það mikilvægur þáttur í félagsmótun þeirra fjölmörgu aðila sem vinna sjálfboðavinnu á vegum félaga. I Borgarbyggð hefur fjöldi fólks sinnt íþrótta- og tómstunda- starfi í sjálfboðavinnu áram saman Helga Halldórsdóttir og unnið sveitarfélaginu gríðarlega gott starf. Slíkt er aldrei hægt að meta til fjár. Þegar fólk hyggst flytja búferlum era nokkrir þættir sem hafa áhrif á ákvörðun um hvar best þykir að setjast að. Einn af þeim þáttum sem þyngst vegur era möguleikar á tómstundum og íþróttaiðkun. Það er margsannað að slíkt er aðdráttar- afl fyrir fólk sem metur þau gæði meira en margt annað. Oflugt íþrótta- og tómstunda- starf er hagur okkar allra og verður ekki eyrnamerkt einstökum aðilum eða pólitískum línum. Samstaða um öflugt starf á þessum vettvangi er sá styrkur sem við þurfum. Með von um gott og fjölbreytt íþrótta- og tómstundaár. Helga Halldórsdóttir, formaður tómstundanefndar Borgarbyggðar.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.