Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2000, Síða 5

Skessuhorn - 27.07.2000, Síða 5
 5 < t( if lr 1 > r » 1 r \ O ,r i r * /; ? '» ■ I"! *>■> *•. 6 / I ^ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2000 Þá er runninn upp sá tími sem sveitavargur- inn upplifir sem stundir brotinna drifskafta, sprunginna hjólbarða og tapaðra tinda, semsé heyannir. Undirritaður er nýbúinn að stilla út- varpið á gömlu gufuna til að ná veðurspánni, en lítur síðan út um eldhúsglugga og fer að telja hænsni sem vappa í varpa. Við teljum alltaf hæn- urnar minnst tvisvar á dag eftir að fjórir óknytta- strákar að sunnan skutu með loftriffli tvær hænur hér útí hænsnakofa að kvöldi til fyrr í sumar. Vík- ingasveit þessi dvaldi helgarlangt í sumarhúsi afa síns hér eigi allíjarri. Þetta voru svona skoppara- strákar, klæddir eftir þeirri tísku sem upprunnin er í svertingjahverfum í Guðseiginlandi. Múnder- ing þessi samanstendur af hettupeysu, húfupott- loki og brókum þannig tilsniðnum að íseta dregst með jörðu. Skoppararnir ganga álútir og með rykkjum því þeir hafa hlustað alltof lengi á svo- kallaða rapptónlist og er jafnvægis skyn þeirra því allt úr lagi gengið. Endurhæfingu mætti þó ef- laust framkvæma á skoppurum með því að hyssa upp um þá buxurnar, láta þá svo hlusta á Geir- mund Valtýsson non stop í þrjár vikur. Munu þá dissararnir halda göngulaginu taktföstu og ganga uppréttari en áður. Oft er illmögulegt að skilja hvað skopparar eru að basla við að segja. Þó eru tvö orð sem skiljast greinilega og eru skoppurum gríðarlega töm á tungu, en það eru orðin “fökk jú”. Undirritaður er nú ekki sterkur í erlendum tungumálum, en ímyndar sér að þetta þýði góðan daginn upp á amerísku, eða frómar óskir um góða heilsu fram yfir næsta bögg. Víkur nú sögunni aftur að hænsnatalningu. Haninn var sérstaklega upptendraður kynferðis- lega í þetta skiptið, en hænurnar aftur á móti ó- venju daufar til samfara, hlupu þær því undan þvers og kruss, þurfti því teljari að byrja talningu upp á nýtt aftur og aftur. Loks tók hanahelvítið pásu, gladdist ég nú gríðarlega og sá ff am á niður- stöðu talningar innan stundar. Þá dundu ósköpin yfir. Smárútu var ekið heim að bænum og virtust hænurnar hræddari við bílinn en kynóðan árgal- ann. Frestaðist því talningin um óákveðinn tíma. Var ég nú við að brotna niður andlega og bresta í grát, hef ég þó ekki fellt tár síðan ég komst að því að Gísli S Einarsson alþingismaður er skyldur mér. Jæja, útúr bílnum stígur Jóhannes nokkur systrungur þess sem þetta ritar. Jóhannes hefur það að atvinnu að hressa við sárlasnar Zetor drátt- arvélar og ruglaðar rúllubaggamaskínur, en er rútubílstjóri í frístundum. Þegar Jóhannes gekk í bæinn sá ég að hann var rennblautur upp á mið lær, berfættur í bandaskóm, og minnti útgangur- inn helst á nafna hans, Jóhannes skírara nýskrið- inn upp úr ánni Jórdan frá því að svissa heiðingj- um úr villutrú yfir í kristindóm. Reyndar má halda samanburði á þeim nöfnum áfram því mér finnst Jóhannes frændi skýrari en ýmsir aðrir Jó- hannesar, t.d. Jóhannes á fóðurbílnum og Jó- hannes hjá Neytendasamtökunum, en þeir eru nú báðir kratar. “Hvar lentir þú ofaní, eftir langvarandi þurrka?” spurði ég. “Bíllinn strand- aði smá í Norðlingafljótinu, ég var að koma með starfsfólk Skessuhorns ofan af Arnarvatnsheiði, það var þar í sumarferð” sagði Jóhannes. Nú var kominn tími á að móðgast hressilega, fara í sum- arferð án þess að bjóða pistlahöfundum með, bölvaðar nánasir og grútar geta þetta verið. “Og allir blindfullir auðvitað?” spurði ég. “Eitthvað var það nú með vín” sagði Jóhannes “en ekki mikið”. Ég sá greinilega að hann var að ljúga. Sjálfsagt verið beðinn um að þegja yfir sukkinu, enda reyndi hann að beina talinu frá sjóðdrukknu Skessuhomsliðinu með því að útskýra fyrir mér muninn á Welger RP 200 og Welger RP 200S með breiðri sópvindu. “Svo auðvitað”, sagði ég“ þegar þú stoppaðir í ánni, þá hefur allt liðið tryllst af hræðslu, mðst út og í ána og þeir sem ekki lentu á hrokasund, þeir strönduðu á grynningum og þú hefur þurft að draga allt liðið á land og veita því áfallahjálp, þess vegna ertu svona blautur”. “Nei”, sagði Jóhannes, en mér fannst nei-ið ekki nógu afgerandi, svo eg tók það sem samþykki. “- Hvurnig er það?”, spurði ég, “ertu svangur, viltu borða?” “ Ja ég er nú búinn að borða en ég er samt svangur” sagði Jóhannes. “Var það ekki með nesti?”, spurði ég . “Það var nú með soldið af brauði” ansaði hann. Kræst maður, þetta sá ég nú alveg fyrir mér, það hafa allir verið komnir á rass- gatið sökum ölvunar áður en lagt var af stað úr Borgarnesi, sá fyllsti verið sendur út í Geirabakarí til að kaupa snúða, vínarbrauð og skúffuköku til að hafa með í ferðina, en ekki getað gert sig skiljan- legan, afgreiðslustúlkan haldið að þetta væri venjulegur hestamaður, og sendiboðinn komið til baka með fullan höldupoka með gömlu fransk- brauði. “Heldurðu að þetta hafi ekki verið svona?” spurði ég. “Það veit ég ekkert um” sagði Jóhannes “þetta var allaveganna of gott í útigang”. Síðan fór hann að útskýra fyrir mér muninn á smiti og leka í pakkdósum. “Hvar er liðið núna?” Spurði ég. “Ég skildi það eftir í Húsafelli” var svarið. Auðvitað fer það í Húsafell, hugsaði ég, þar er ekkert búið að taka til síðan sukkið var sem mest um daginn, og þá er líka hægt að segja frá því í Skessuhorni að það hafi verið einhverjir andskotar að sunnan sem svínuðu allt út þarna framfrá. Nú var dagur að kveldi kominn, Jóhannes kvaddi og fór. Til að geta sofnað þetta kvöld sleppti ég því að telja kindur, ég taldi hænsni. Bjartmar Hannesson Síðsumarssýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður haldin að Vindási, félagssvæði hestamannafélagsins Skugga, 11. ágúst. Síðasti skráningardagur er áætlaður föstudagurinn 4. ágúst og er tekið við skráningum í síma 437-1215. e S Búnadarsamtök Vesturlands BORGARBYGGB Auglýsing liskipulag landspildu 1 um deiliskipulag landspildu úr lögbýlinu Bjargi í Borgarbyggö. Um er að ræða byggingareiti fyrir skemmu og þrjú sumarhús til útleigu fyrir bændagistingu. Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með lýst eftir atnugasemdum við ofangreint deiliskipulag. Tillagan mun liggia frammi á Bæjarskrifstofu Borgarbvgeðar frá 26. iúlí 2000 til 23. ágúst 2000. 8 Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna fyrir 6. september 2000 og skulu þær vera skriflegar. Borgarnesi Í7.júlí 2000 Byggingarfulltrúinn í Borgarbyggð / VSS7 HÓTEÍ: ATVINNA BOKGARNES | Starfsfólk óskast til þrifa á herbergjum og I í uppvask frá 1. ágúst I Upplýsingar í síma 437 1119 Starf' i London íMf g Bamgóð manneskja, 18 ára eða eldri, óskast á I íslenskt/enskt heimili til að aðstoða við bamagæslu f og heimilisstörf. Þrjú böm, 6,4 og 3 ára, þau eldri | í skóla. Þarf að geta byrjað í ágústlok. Góð laun 1 fyrir fullt starf. Reyklaust heimli. Nánari upplýsingar í síma 557 2381 og 896 8587 Vantar afleysingafólk Óskum eftir starfsfólki til afleysinga á helgarvaktir í veitingastofu, verslun og sjoppu V Símar 430 5550-430 5555 -430 5566 J

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.