Skessuhorn - 27.07.2000, Qupperneq 7
§S1SSÖH©Bí i
FIMMTUDAGUR 27. JULI 2000
7
Gefiur varamannaskýlinu langt nef!
Slær í gegn á fertugsaldri
Þrátt fyrir að Haraldur
Hinriksson hafi verið við-
loðandi meistaraflokk
Skagamanna í knattspyrnu
með hléum allt frá árinu
1987 hefur varamannaskýl-
ið nánast verið hans annað
heimili á Skaganum. En
ekki lengur! Þessi 32 ára
skotvissi útherji er að leika
betur en nokkru sinni fyrr
og á drjúgan þátt í því að
Skagamenn eru nú þar sem
þeir eru í deildinni. Þrjú
glæsileg mörk hans í íjór-
um deildarleikjum Skaga-
manna, gegn Fram, Kefla-
vík og nú síðast Leiftri,
hafa undirstrikað að aldur
er afstætt hugtak í knatt-
spymunni ef líkamsástand
og metnaður er í lagi.
Það voru sennilega ekki
margir sem spáðu því að
Haraldur myndi eiga fast
sæti í byrjunarliði Skaga-
manna við upphafi Islands-
móts. Eftir að hafa leikið
tvö síðustu sumur með
Skallagrími og átt erfitt
með að fóta sig í aðalliði
Akurnesinga í rúman ára-
tug áttu flestir von á því að
varamannaskýlið biði hans
enn einu sinni. En loksins snerist
gæfan á sveif með rakaranum hár-
beitta.
Lagt hart að mér
“Eg hef sennilega aldrei lagt eins
hart að mér og í ár og ég varð því
kátur þegar Oli Þórðar gaf mér
tækifæri í byrjunarliðinu,” sagði
um” ef hann ekki
stendur sig. “Óli er
fínn þjálfari og hefur
mjög gott lag á að
brýna menn til dáða.
Hann er sigurvegari að
upplagi og leggur of-
urkapp á að innræta
leikmönnum það hug-
arfar. Eg held t.d. að
enginn efist um að
Fylkismenn búa vel að
því starfi sem hann
lagði grunn að í Ar-
bænvun.”
Haraldur bankaði
fyrst á dyr meistara-
flokks árið 1987, þá 19
ára gamall. Hann lék
leik og leik en gafst
upp á biðinni eftir
tækifærinu og skipti
yfir í Skallagrím árið
1990. Ári síðar var
hann aftur kominn í
raðir Skagamanna og
lék drjúgan hluta leikj-
anna árið sem liðið lék
í gömlu 2. deildinni.
Tækifærunum fór
fækkandi á árunum
1992 og 1993 og svo
fór að Haraldur hélt á
ný í Borgames og lék
þar 1994 og 1995. En aftur lá leið-
in á heimaslóðir og ein af stæstu
stundum ferilsins var er Haraldur
var í byrjunarliði í úrslitaleiknum
fræga gegn KR 1996. Sumarið 1997
er hinn “skrautlegi” Ivan Golac
stýrði Skagamönnum varð Harald-
ur fyrir því að fótbrotna. I kjölfarið
skipti hann yfir í Skallagrím í þriðja
sinn og lék þar 1998 og 1999.
Rakarinn hárbeitti kveður varamannaskýlið með stœl, en veit tnanna
best að efhann ekki stendur sig er skýlið rétt handan hliðarlínunnar.
Mynd: SSv.
Haraldur er Skessuhorn ræddi við
hann. “Eg var staðráðinn í að nýta
tækifærið út í ystu æsar og eins og
mál hafa þróast efast ég um að ég
hafi leikið betur á ferlinum en
einmitt nú.”
Haraldur er þjálfaranum þakklát-
ur en hann gerir sér líka fulla grein
fyrir því að það er engrar miskunn-
ar að vænta hjá “Hvítanestrukkn-
A
í liðinni viku kynnti Mál og bent á ýmis náttúrufyrirbæri eins Á bakhlið kortsins eru lýsingar
menning nýtt sérkort af Snæfells- og ölkeldur, gíga, hveri, hella og og litmyndir af helstu náttúruperl-
nesi í mælikvarðanum 1:100.000. fossa. Gaman er geta þess að á um Snæfellsness, kort af þéttbýlis-
Kortið er eitt ítarlegasta sérkort kortinu ern upplýsingar um stöðum svæðisins, jarðfræðikort af
sem gefið hefur verið út á Islandi strönduð skip á utanverðu nesinu Snæfellsnesi og nýleg loftmynd af
og inniheldur það fjölmargar upp- og ér greint frá nöfhum þeirra og Snæfellsjökli. Þar er einnig að
lýsingar fyrir ferðamenn, m.a. um strandárum. finna ítarlega vegalengdatöflu þar
gististaði, tjaldstæði, söfn, sund- A kortinu eru nýjustu upplýsing- sem tilgreindar eru vegalengdir til
laugar og aðra þjónustu sem ekki ar um vegakerfi Snæfellsness og Snæfellsness og milli helstu staða.
hefur áður sést á íslenskum landa- tilgreint hvaða vegir eru enn mal- Höfundur sérkortsins er Ólafur
kortum. Nægif þar að nefha upp- árbornir og hverjir hafa fengið Valsson kortagerðarmaður, en Örn
lýsingar um bátsferðir, hvalaskoð- bundið slitlag. Vegirnir hafa auk Sigurðsson iandfræðingur ritstýrði
un, hákarlaverkun, golfvelli, skíða- þess verið GPS niældír og er kort- verkinu.
svæði og hringsjár. Auk þess er ið uppfært í samræmi við það. MM
Fýluferð í
Þórsmörk
Kalastaðakotsland
undir írístundabyggð
Starfsmannafélag Sjúkrahúss
Akraness lagði af stað í Bása í Þórs-
mörk með tæplega sjötíu manna
hóp síðastliðinn föstudag í helli-
rigningu. Rigningin jókst efdr því
sem austar dró og við afleggjarann
í Þórsmörk var orðið ljóst að ámar
voru ófærar. 37 mm úrkoma hafði
mælst á fimmtudeginum og 47
mm úrkoma á föstudag. Efdr at-
kvæðagreiðslu var ákveðið að snúa
við og halda heim á leið, enda
spáði áffamhaldandi rigningu dag-
inn efrir. Það var því þreyttur og
svekktur hópur sem kom tíl Akra-
ness um miðnætti á föstudagskvöld
efrir langa setu í rútunni.
SÓK
Bæjarráði Akraness barst á dögunum bréf frá oddvita Hvalfjarðar-
strandahrepps, þar sem óskað var staðfestingar á breytingu á svæðisskipu-
lagi sunnan Skarðsheiðar. Breytingin felst í því að hluti Kalastaðakotslands
er tekinn undir frístundabyggð í stað skógar- og landbúnaðarsvæðis áður.
Bæjarráð gerði engar athugasemdir við breytinguna.
SÓK
Ferðir fadaðra og alraðra
Félagsmálastjóranum á Akranesi hefur nú verið falið að annast gerð út-
boðsgagna fyrir ferðaþjónustu fatlaðra. I útboðsgögnunum verður gert
ráð fyrir að aksturinn komi einnig til með að þjóna þörfum aldraðra sem
nýta sér dagvist á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Jóni Pálma Pálssyni,
bæjarritara, var á síðasta fundi bæjarráðs falið að rita stjóm Höfða bréf þar
sem óskað yrði eftir samstarfi um aksturinn.
A réttum stað
á röngum tíma
En hvað hefur valdið því að Har-
aldur er núna fyrst að sýna sitt rétta
andlit? “Á því kunna að vera ýmsar
skýringar. Eflaust hef ég ekki verið
orðinn nógu góður í fyrstu atrennu
en síðan var ég einfaldlega réttur
maður á réttum stað en á röngum
tíma þegar Skagaliðið var að
springa út 1992 og 1993. Þar var
valinn maður í hverju rúmi og ekki
hlaupið að því að festa sig í sessi.
Þetta sama lið var að stofni til það
sama og vann tvöfalt árið 1996.”
Er það ekki sérkennileg tilfinning
að “slá í gegn” á fertugsaldrinum?
“Eg vil nú ekki líta svo á að ég sé að
slá í gegn. En ég nýt augnabliksins
til hins ítrasta. Eg hef verið með
Skagaliðinu á ýmsum tímapunktum
undanfarin 13 ár en hef sjaldan þótt
eins gaman og nú. Auðvitað spilar
inn í að ég er að leika meira en ég
hef gert áður en hópurinn er líka
mjög skemmtileg blanda yngri
manna og eldri og reyndari jaxla.”
Eitt í lokin, bestu Skagamennim-
ir sem þú hefur leikið með? “Sig-
urður Jónsson kemur fyrstur upp í
hugann og svo sennilega tvíburarn-
ir, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir.
Annars hef ég verið samferða svo
mörgum góðum leikmönnum að
það er varla vinnandi vegur að tína
einstaka menn þar úr,” segir Har-
aldur að lokum.
-SSv.
.___________________
* *
Kirkjukór Grundarfíarðar:
Kirkjukór Grundarfjarðar heki-
ur í 10 daga söngferðalag til Ung-
verjalnnds og Austurríkis í ágúst
næstkomandi. Kórinn inun koma
fram þrisvar sinnum og flvtja bæði
kírkjulega og veraldlega tónlist. I
samtali við Skessuhorn ságði Frið-
rik Yigtiir Stefánsson, organisti og
stjórnandi kórsins að allir væru
orðnir spenntir enda hefði undir-
búningur ferðarinnar staðið í þrjú
ár. Rúmlega 30 manna hópur
heldurutan.
“Við komum frain á kristnihátíð
í Búdapest og serú gestakór við
úngyerska messu í kaþolskri
kirkju,” sagði Friðrik Vlgnir. Kór-
inn inun einnig koma ffain í Vodi-
vkirkju í Vín en þar heldur Friðrik
■
Á.'■ TV...:; ; Á; ■ : y .. / vv;ýV■
Vignir orgeltónleika og ætlar að
spila jafnt verk eftir Bach sem og
orgelverk eftir íslenska höfunda.
Þessi þrjú ár sem undirbúning-
urinn hefur staðið hefur hópúrinn
verið óþreytandi við fiáröflun og
sagði Friðrik V’ignir hana hafa
géngið nokkuð vel. “Við höfum
fjármagnað þessa ferð meðal ann-
ars méð laufabrauðsgerð og eínnig
höfum við komið fram á írskum
þjóðlagakvöldum á krám og þá
jafnvel slegið upp léttu balli. Sá
söngur hefur ekki verið beint und-
ír merkjum kirkjukórsins heldur
höfum við kallað okkur “The holy
people,” ságði Friðrik Vignír Stef-
ánsson.
K.K.
(fóníeilq
Agúst Olafsson bariton
og
Sigurður Marteinsson píanóleikari
Halda tónleika í Stykkishólmskirkju
fimmtudaginn 27. júlínk. kl. 20:30
Á efnisskránni eru verk eftir:
Franz Schubert, Oskar Merikanto, Gunnar Reyni
Sveinsson,
Karl O. Runólfsson, Arni Björnsson, Sigfús
Halldórrson og fleiri.
Aðgangseyrir kr. 500,-
fyrir 14 ára og eldri
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju
2000