Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 27. JULI 2000
gBESSUH©BB5
Liðin tvö áðnr m leikurinn hófst. Efmyndin prentast vel má sjá kafftkönnu eina mikla sem að sjálfsógðu inni-
hélt te. Mynd: K.K.
Langbesta
krikketlið landsins
Á laugardag fór fram úrslitaleikur íslands-
mótsins í krikket á íþróttavellinum í Stykkis-
hólmi. Áttust við Ungmennafélagið Glaum-
ur og KKKR eða Kylfan, krikketklúbbur
Reykjavíkur í fjörugum leik sem lauk með
glæslegum sigri heimamanna sem unnu með
60 stigum gegn 46. Þóttu úrslitin koma
nokkuð á óvart þar sem Glaumverjar höfðu
að sögn haft takmarkaðan tíma til æfinga.
Þar sem liðin tvö eru ekki aðilar að ISI var
um óopinbert Islandsmót að ræða en engu að
síður mun þetta vera í fyrsta skiptið sem leik-
ið er um Islandsmeistaratign í krikketi. Það
breytir heldur engu um efrirtektarverðan ár-
angur Ungmennafélagsins Glaums að sam-
kvæmt heimildum blaðsins munu um þessar
mundir vera ámóta mörg krikketlið á landinu
og tóku þátt í fyrsta Islandsmótinu í knatt-
spymu. Er þess vænst að uppgangur krikket-
íþróttarinnar hér á landi verði ekki minni en
fótboltans þegar ffam líða stundir.
K.K.
Öflugar í golfinu
Kvennastarf Golfklúbbs Borgarness
Vinsældir að aukast
I sumar sem endranær hefur verið í gangi öfl-
ugt starf hjá konunum í Golfklúbbi Borgamess.
Alls era um 20 þeirra virkar í klúbbnum og er
sumardagskráin í nokkuð föstum skorðum.
Að sögn Þóra Björgvinsdóttur formanns
kvennanefndar Golfklúbbsins era þrír megin-
viðburðir í starfinu í sumar en þar af era tveir
þegar afstaðnir. Fyrsti viðburðurinn var þegar
haldið var boðsmót þann 10. júní þar sem kon-
um úr Golfklúbbi Setbergs í Hafnarfirði var
boðið í Borgames. Styrktaraðili þess móts var
K. Karlsson heildsali. Á kvennadaginn 19. júní
var síðan haldið svokallað Clarins mót en hefð
er fyrir því að mót sé haldið þennan dag. Mót-
ið var með léttu yfirbragði og ýmislegt glens og
grín í gangi. Þetta mót var að sjálfsögðu styrkt
af fyrirtækjum í eigu kvenna í Borgamesi. Þar
má fremsta telja
Snyrtistofu
Jennýar Lind en
einnig gaf
Blómabúð Dóra
öllum keppend-
um rauða rós.
Síðasti viðburður jr
sumarsins verður
síðan innanfé-
lagsmót sem
haldið verður 14.
ágúst næstkom-
andi, en Glimir
ehf. í Borgamesi
mun verða
styrktaraðili þess
móts.
„Við konumar í klúbbnum hittumst alltaf á
mánudögum auk þess sem við erum með hóp-
tíma með kennslu á miðvikudögum. Starfið
eflist með hverju árinu sem h'ður og vinsældir
golfiþróttarinnar era alltaf að aukast meðal
kvenna á öllum aldri. Það er til dæmis alltaf
mjög góð þátttaka í mómm hjá okkur”, sagði
Þóra í samtali við blaðamann. „Við höfum not-
ið mikils velvilja hjá Ingu Lára og Björgvini
Oskari staðarhöldurum á golfvellinum í Borg-
amesi og það er virkilega góður andi hjá okk-
ur”, bætti Þóra við. Að lokum vill Þóra koma
því á ffamfæri að nýir félagar era innilega
boðnir velkomnir hvort sem þeir koma úr
Borgamesi eða nærsveitum. EA
Frá Clarins mótinu 19.júní, glaðbeittir keppendur ásamt styrktaraðila mótsins Jmnýju Lind.
Úrslit í Boltaleik Framkölhm-
arþjónustunnar í Borgamesi
liggja nú fyrir. Þeir sem
hrepptu vinninga em:
Anna Kristinsdóttir, Fífusund
Ama Einarsdóttir, Borgarvík 12
Ami Páll Þorbjömsson, Borg á Mýrum
Asa Haraldsdóttir, Þórólfsgata 15
Asdts H. Bjamadóttir, Hvanneyri
Auður Eiríksdóttir.; Glitsstaðir
Auður Oskarsdóttir
Bára Einarsdóttir, Sólbyrgi, 320 Reykholt
Bergþóra Tómasdóttir, Gunnlaugsgata 2
Birgir Gíslason, Þórólfsgata 19a
Bima Hltn, Re'ttarbolt 8
Bima Pálsdóttir, Mánabraut 6a
Bjarki Gunnarsson, Brekku
Björg H. Kristófersdóttir, Berugata 30
Björgvin Kristbjömsson, Bónhóll
Brynjólfur Gíslason, Stafholt
Dómhildur Jónsdóttir, Þórunnargata 7
Dóra Gísladóttir, Garðavtk 9
Elías Jóhannesson, Ferjubakka IV
Elva Jónmundsdóttir, Amþórsholt
Flemning Róbert, Varmalandsskóli
Guðbjartur, Mýrarbraut 35
Guðljörg, Kveldúlfsgata 26
Guðfinna Indriðadóttir, Skipanes
GuðleifAndrésdóttir, Gunnlaugsgata 12
Guðmundur Guðmundss., Kveldúlfsgata 21
Guðmundur Sigurðsson, Helgugata 13
Guðmundur Snorri Sigfússon, Hvanneyri
Guðný Grendal, Krossnes
Guðrún + Atli Steinar, Austurbolt 3
Guðrún Bergmann, Sólbrekka
Hafdts Pétursdóttir, Hvanneyri
Helga Guðmars., Þorsteinsgata la
Hildur Traustad., Hús 3, Andaktlsárvirkjun
Hrönn Helgadóttir, Amarklettur 14
Hmnd Þorgeirsd., Brekku, Borgarfj.sveit
Hugrún Lilja, Hæll, Flókadal
Ingibjörg Gunnarsdóttir.; Borgarbraut 7
Jón Bragi, Silfurtún 14c
Jón Ragnar Gunnarsson, Kópnesbraut 6
Jórunn Guðsteinsdóttir, Höfðaholt 1
Júlíana Jónsdóttir.; Kveldúlfsgata 11
Karítas Heiða Lárusdóttir, Réttarholti 2
Karitas, Einarsnes
Kristfh'ður Bjömsd., Hofsstöðum, Hálsasveit
Kristinn Eysteins., Lækjartún 2
Loftur V. Bjamason, Helluhóll 10
Maggý Sig., Borgarbraut 3
Magnea Helgadóttir, Hlíð, Reykholti
Nanna Einarsdóttir, Klettavík 11
Oddný Björk Bjömsdóttir, Rauðanes 2
Olafía Jónsdóttir, Víkurtún 7, Hólmavík
Ólafur Sig., Garðavík 7
Olafur Steinþórsson, Berugata 2
Olína Gísladóttir, Kveldúlfsgata 8
Olöf Geirsdóttir, Skúlagata 14
Olöf Guðmundsdóttir, Hundastapa
Ósk Jónsdóttir
Pétur Már Jónsson, Hrafnaklettur 6
Ragnar Gunnarsson, Böðvarsgata 6
Ragnheiður Runólfsd., Vitabr. 9, Hólmavík
Sesselja Birgisdóttir.; Vatnsholt 6, 230 KEF
Sigríður Huld Skúlad., Steintún, Dalabyggð
Sigrún O Sig., Borgarvík 5
Sigurborg Jónsdóttir, Þorsteinsgata 9
Sigurður Sigurðsson, Borgarvík 13
Sigurrós G. Þórðardóttir, Hafnarbraut 31
Sólrún A. Rafnsdóttir, Kjartansgata 6
Steinunn Bjamadóttir, Gunnlaugsgata 7
Svanhildur Karlsdóttir, Þórðargata 2
Svavar Dór Ragnarsson, Gautavík 29-31
Þórarinn Sig., Fálkaklettur 2
Þórdís Sigurbjömsdóttir, Hrísum, Flókadal
Þórður Jónsson, Þórðargata 2
Þorkell Már Einarsson, Amarklettur 12
Þorsteinn Jakobsson, Brautarholt 2
Þröstur Ránar, Brautatholt 2, Olafsvtk
Tinna Borg Amfinnsd., Bakkakot 2, Bifröst
Valdís Magnúsdóttir, Hvanneyri
Vignir Öm Pálss., Lækjart. 11, Hólmavík
Nánari upplýsingar í Framköllunarþjónustunni í síma 437 105$,
Æfingaferð Sundfélagsins til Frakklands
Kjúldingar voru kanínur
17. maí í vor hélt elsti hópur
sundfólks frá Sundfélagi Akraness
(unglingar 14-19 ára) í æfingabúðir
til Frakklands. Flogið var til
Barcelona á Spáni og ferðast með
rúm til Canet í Roussilion héraði
sem er við Miðjarðarhafið í þriggja
tíma keyrslu ffá Barcelona. Bærinn
Canet er strandbær, þar búa um 5 -
7 þúsund manns yfir veturinn en á
sumrin stóreykst fólksfjöldinn og
fer í um 20 þúsund manns og það-
an af meira.
Allar aðstæður til sundæfinga
vora mjög góðar, 50 metra útilaug
og þreksalur, svo ekki sé talað um
veðurfarið, því þennan hálfa mánuð
sem sundfólkið dvaldi í Frakklandi
var hitastigið 18 - 28°C og sól
flesta daga að undanteknum degin-
um sem við komum.
Æfingar vora stundaðar af kappi,
tvær á dag að jafnaði. Flesta daga
var vaknað kl. 06:00 og æft ffá kl.
07 - 9:30 og ffá 14 - 16.
Dvalið var á hótel Europa í ná-
grenni laugarinnar, í íbúðaklasa
sem heitir Jamaica. Höfðum við til
afhota 4 íbúðir og vora 4 -5 í hverri
íbúð. Hópurinn var í fullu fæði á
hótelinu. Morgunmatur var með
hefðbundnum hætti en hádegis- og
kvöldmatur vora þríréttaðir og tók
það nokkrar máltíðir fyrir hópinn
að venjast því að sitja í 45 mínútur
við matarborðið og láta þjóna sér,
en það vandist allvel.
Maturinn var ágætur að mati
fullorðinna í hópnum, en ungling-
amir vora misánægðir, fannst t.d.
ffönsku kjúklingarnir nokkuð ein-
kennilegir. Kjúklingarnir voru
reyndar kanínur, en það var ekki
upplýst fyrr en í lok ferðarinnar.
Helgina 26-28. maí var nokkuð
sterkt sundmót í lauginni. Þar vora
keppendur frá mörgum þjóðum og
nokkrir ffægir sundmenn svo sem
Evrópumeistari árin 1998 og 1999,
Stephan Perrot frá Frakklandi,
Cloudia Poll frá Costa Rica,
Olympíumeistari í Atlanta, Alex-
ander Popov (Rússi) sem æfir í
Ástralíu, 12-faldur Evrópumeistari
og 4-faldur Olympíumeistari.
Einnig var ísienski Olympíuhópur-
inn ásamt hópi úr Sundfélaginu
Ægi.
Hluti unglinganna fékk að taka
þátt í mótinu ásamt krökkum úr
Ægi og Ólympíuhópnum. Gekk
þeim í heild sinni vel, þótt ekki hafi
verið sett nein Islandsmet eða lág-
mörk slegin fyrir Ólympíuleikana í
Ástralíu.
Hvað afþreyingu varðaði í ferð-
inni þá var fyrirhugað að fara í
vatnagarð í nágrenninu, en þegar í
ljós kom að hann opnaði ekki fyrr
en um miðjan júní lá við að hópur-
inn þyrfti á áfallahjálp að halda, slík
voru vonbrigðin. Því er þannig
háttað með sumarfríin og opnun
staða fyrir ferðamennina í Frakk-
landi að nánast ekkert gerist fyrr en
í byrjun júní.
Vegna mikilla æfinga og sund-
mótsins vannst ekki mikill tími til
að skoða sig um, þó var farið á
ströndina og hoppað í trambolíni
með tilheyrandi loftköstum og
rambað í búðir og smávegis annað
gert sér til dundurs. Slegið var upp
spilakvöldi með Ægir-ingum og
Olympíuhópnum íslenska undir
beram himni í blíðunni. F.kU fer
miklum sögum af spilaafrekum
hópsins, en sumir sátu fastar við
borðin en aðrir og uppskára verð-
laun þess vegna.
Ferðinni lauk með heimkomu ffá
Barcelona þann 30. maí, og vora
nokkur viðbrigði fyrir hópinn að
koma í kuldann á Islandi svo ekki sé
talað um kuldann sem var helgina
eftir á IA - Essó mótinu sem krakk-
arnir tóku þátt í og stóðu sig vel að
vanda.
Æfingaferð sem þessi er í huga
okkar fararstjóra og stjórnenda
sundfélagsins afar mikilvæg fyrir
krakkana til að byggja þau upp fyr-
ir átökin sem iðkun sundíþróttar-
innar krefst, en fáar íþróttagreinar
krefjast jafhmikils af iðkendum sín-
um og sundið gerir.
Ferðin var fjármögnuð með á-
heitum af Faxaflóasundinu sem
eldri iðkendur Sundfélags Akraness
fara árlega. Velunnurum félagsins
era hér með færðar bestu þakkir
fyrir góðan stuðning við Stmdfélag
Akraness. Án þess stuðnings væri
ekki hægt að halda úti jafii þrótt-
miklu starfi og ratrn ber vitni eða
gera unglingunum kleift að fara í
æfingaferðir eins og hér er greint
ffá.
Faxaflóasund ársins 2000 er fyr-
irhugað á næstu dögum, eða strax
og veður og sjávarstraumar leyfa.
Sundkrakkar munu á næstunni leita
eftir áheitum hjá einstaklingum og
fyrirtækjum, vonast er eftir góðum
móttökum þeim til handa eins og
undanfarin ár.
Katrín Leifsdóttir, fararstjóri.
Jón Pálmi Pálsson, fararstjóri.
Sigurlín Þorbergsdóttir, þjálfari.