Skessuhorn - 16.11.2000, Qupperneq 19
cm£39Unu>..
FIMMTUDAGUR 16. NOVEMBER 2000
19
Framhaldsskóli
Á aðalfundi Héraðsnefhdar Snæ-
fellinga þann 11. nóvember s.l.
var Guðrún A Gunnarsdóttir
kosin formaður. Guðrún tók við
formennsku af Ásbimi Ottars-
syni sem verið hefur formaður
s.l. 6 ár. Guðrún sem er bæjar-
fulltrúi í Stykkishólmi er ekki ó-
kunnug starfi nefindarinnar þar
sem hún hefur verið formaður í
menningar- og safnanefnd Snæ-
fellinga síðan 1995.
Guðrún sagði að starfið leggðist
bara vel í sig og samstarf sveitarfé-
laganna væri alltaf að styrkjast.
Safhamálin hafa undanfarin ár ver-
ið stærsti einstaki rekstrarþáttur
héraðsnefndarinnar og í þeim hafi
náðst góð samstaða og orðið miklar
framfarir. “Mestu breytingarnar í
þeim málaflokki eru án efa hve vel
hefur verið staðið að uppbyggingu
safhsins í Gamla pakkhúsinu í O-
lafsvík og jafhframt hafa náðst góð-
ir áfangar í Norska húsinu í Stykk-
ishólmi. Framundan er að að koma
upp sýningu á miðhæð Norska
hússins þar sem sýnt verður heimili
í líkingu við það sem var þegar Árni
Thorlacius bjó í húsinu. Það er
líka skemmtilegt að segja frá því að
frá Félagi Snæfellinga og Hnapp-
dæla kom fram vilji til að koma á fót
héraðsskjalasafni og þar um kom
líka tillaga frá fulltrúum Eyrarsveit-
ar. Héraðsráði var falið að ræða
þessi mál við fulltrúa félagsins”.
Félags- og skólamál
En kemur starf héraðsnefndar til
með að breytast á næstu misserum?
“Það eru ákaflega mörg mál sem
koma á borð héraðsnefndar og
varða samstarf sveitarfélaganna. Þar
má nefha samgöngumál, félags- og
skólamál og margt fleira. Við stig-
um stórt skref þegar við komum á
Félags- og skólaþjónustunni, þó
það mál sé í raun ekki á borði hér-
aðsnefndar, þar sem ekki eiga allir
hreppar aðild, var upphafið hjá hér-
aðsnefnd. I þessum málaflokki var
samstarf sveitarfélaganna um samj
eiginlega barnaverndarnefnd. A
fundinum var samþykkt að leggja
hana niður og að Félags- og skóla-
þjónustan tæki við hennar starfi. Þá
sýnist mér líklegast að málefni fatl-
aðra sem er málaílokkur sem senn
færist á hendur sveitarfélaga muni
fara undir Félags- og skólaþjónust-
una. Framundan er mikil vinna við
framhaldsskólamálið en nefnd á
vegum héraðsnefndar hefur unnið
að því máli og mun vinna það á-
fram”.
Framhaldsskóli
Snæfellinga
Á fundinum fór mikill tími í að
ræða málefhi framhaldsskóla á Snæ-
fellsnesi og var Björn Bjarnason
menntamálaráðherra gestur fund-
arins, en honum var boðið til að
fjalla um málefni framhaldsskóla,
ekki síst í ljósi þeirra óska Snæfell-
inga að stofhaður verði framhalds-
skóli Snæfellinga. Ekki var annað
að heyra á ræðu Björns en að hann
væri jákvæður fýrir hugmyndum
Snæfellinga um framhaldsnám.
Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri í
Grundarfirði hefur verið í forsvari
fyrir nefnd um framhaldsskóla á
Snæfellsnesi. Hún sagði frá hug-
myndum um framhaldsskóla á Snæ-
fellsnesi og að sveitarfélögin hefðu
komið sér saman um að miða við
staðsetningu hans í Grundarfirði.
Síðan benti Björg á síaukna sam-
vinnu sveitarfélaga, bættar og batn-
andi samgöngur og að ósk um
ffamhaldsskóla væri besta tækifærið
til að bæta mannlíf og búsetuskil-
yrði á svæðinu.
Lítill en góður skóli
“Þetta verður lítill framhalds-
skóli, en við leggjum áherslu á að
hann verði full fjögur ár og viljum
ekki breyta fýrir minna. Nemenda-
fjöldi hefur verið varlega áætlaður
um 130-150 miðað við þær for-
sendur sem undirbúningsnefndin
hefur gefið sér um „heimtur” úr ár-
göngunum á svæðinu, en þar að
auki myndi skólinn geta laðað fleiri
að, t.d. eldri nemendur, og full-
orðna sem af einhverjum ástæðum
hafa tekið sér hlé frá námi”. Þá
benti Björg á að eðlilegt væri að
ætla að framhaldsskóli á svæðinu
hefði jálcvæð áhrif á búsetuþróun á
svæðinu þannig að íbúum fjölgaði,
og skilaði þar með fieiri nemendum
inn í skólann. Undirbúningsnefnd-
in hefur sett fram hugmyndir um 2
stærsta mál Snæfellinga
stúdentsbrautir, félagsfræða- og
náttúrufræðabraut, auk styttri
starfsbrauta og almenns náms sem
hægt væri að móta mjög heima fyr-
ir. Ný aðalnámskrá fýrir fram-
haldsskóla gefur skólunum sjálfum
töluvert svigrúm til að móta það
nám sem boðið verður upp á. Ekki
eru hugmyndir um umsvifamiklar
verknámsbrautir, enda mjög margir
minni skólar að hverfa frá slíku, þar
sem það reynist of kostnaðarsamt
og erfitt að halda úti, sérstaklega
þegar aðsóknin er sveiflukennd. Þá
sagði Björg; “það er ekki nóg að
hafa skóla, það þyrfti að vera hægt
að gera kröfur um gæði námsins og
að skólinn stæðist þær kröfur sem
við viljum gera til ffamhaldsskóla-
náms á morgun, ekki bara í dag”.
Samstaða um stórkost-
legt tækifæri
Undirbúningsnefndin hefur
gengið út frá því að fjarnám verði
eðlilegur hluti skólastarfsins, þannig
að unnt væri að hafa meiri breidd í
námsframboði og auka valmögu-
leika nemenda. “Með stofnun fram-
haldsskóla á Snæfellsnesi”, sagði
Björg, “gæfist stórkostlegt tækifæri
til að móta framhaldsskóla ffamtíð-
arinnar og við eigum að ganga út ffá
því að skólinn yrði vel tæknivæddur
og horfa þarf inn í tækni morgun-
dagsins í því sambandi”.
Gunnar Svanlaugsson skólastjóri
í Stykkishólmi taldi að það væri
nauðsynlegt fýrir Snæfellinga að
sameinast um þetta verkefni, ræddi
um staðsetningu og sagði að miðað
við samstarf allra sveitarfélaganna
um þetta verkefni þá væri sjálfgefið
að skólinn þyrfti að vera miðsvæðis.
“Eg tel ekkert annað en fjögurra ára
nám í framhaldsskóla komi til
greina, annars finnst nemendum
ekki taka því að fara t.d. fýrir 2 ár í
framhaldsdeild í annað sveitarfélag.
Þetta yrði ekki eins mikið „þeirra”
skóli”. Gunnar sagði að hann
greindi mikinn áhuga unglinganna
hjá sér fýrir hugmyndum um ffam-
haldsskóla og hann taldi þetta mál
nauðsynlegt til að halda þessum
hluta íbúanna heima.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri tók
mjög í sama streng og rakti hvað
gerðist þegar krakkarnir fara í
burtu, göturnar tæmast og allt er
með öðrum brag. “Við þurftum á
því að halda að hafa þennan atorku-
sama hóp íbúanna inni í samfélag-
inu okkar.
Þverun Kolgrafarfjarðar
I beinu framhaldi af framhalds-
skólaumræðunni kom upp umræð-
an um bættar samgöngur milli staða
á norðanverðu Snæfellsnesi.
Sturla Böðvarsson tók til máls og
hnykkti á því að þverun Kolgrafar-
fjarðar væri inni á vegaáætlun nú
þegar. Hann sagði að gert væri ráð
fýrir að hefjast handa við þverun
Kolgrafarfjarðar árið 2002 og að
framkvæmdinni yrði lokið 2004. Þá
lýsti Sturla því hve gífurlega mikið
það hefði að segja að hafa nemend-
ur heima og vitnaði til reynslu
Skagamanna í því sambandi.
Jóhann Ársælsson sagði frá und-
irbúningi og upphafsárum FVA á
Akranesi og baráttu bæjarfélagsins
fýrir þeim skóla. Hann taldi Snæ-
fellinga vera á réttri braut. Skóli
snerist ekki bara um menntun barn-
anna okkar, heldur hefði mikil áhrif
ínn í samfélagið.
Björn Bjarnason lýsti ánægju með
einhug heimámanna um málið, t.d.
að ekki væri ágreiningur um atriði
eins og staðsetningu. Hann sagði að
undirbúningur málsins væri góður
og að ráðuneytið væri tilbúið að
vinna áfram að málinu.
1H
18. nóvember 2000
Stykkishólmi
Sjúkrahús og heilsugæslustöð, Stykkishólmi
Mælingar
Mældur blóðþrýstingur og blóðfita frá kl. 10:00 til 14:00.
Frá kl. 12:00 til 13:45 verður Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir Sjúkrahúss
Akraness og HL stöðvarinnar í Reykjavík til viðtals fyrir þá einstaklinga
sem mælast með of háan blóðþrýsting eða blóðfitu.
Fræðslufundur í f
frá kl. 14:00 til 16:00
Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir flytur erindi um líshætti og
hjartasjúkdoma.
Félas hjartasjúklinsa á Vesturlandi
Landssamtök hjartasjúklinsa