Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2000, Side 1

Skessuhorn - 14.12.2000, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 50. tbl. 3. árg. 14. desember 2000 Kr. 250 í lausasölu Síðasta blað aldarinnar Næsta tölublað Skessuhorns, jólablað ársins, verður það síðasta á þess- ari öld. Fyrsta tölublað nýrrar aldar kemur út föstudaginn 5. janúar n.k. Jólablaðið kemur út fimmtudaginn 21. desember og þurfa auglýsingar og annað efni að berast í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 19. des. GE Markaðsdeild fyrir jámblendi flyst til Islands Ákveðið hefur verið að markaðs- deild í Kíslimálmdeild Elkem flytjist til Islands. Nýr fram- kvæmdastjóri Islenska járn- blendifélagsins, Frank Björk- lund, verður yfirmaður jám- blendi- sviðsins innan Elkem samtímis því sem hann tekur við framkvæmdastjórastarfinu hjá Islenska jámblendifélaginu hf. I Kíslimálmdeild Elkem, sem ís- lenska járnblendifélagið hf. heyrir undir eru 5 aðrar járnblendi- og kísilmálmverksmiðjur. Kísilmálm- deildinni var nýverið skipt upp í þrjú svið eftir mörkuðum en þau eru kísilmálmsvið, járnblendisvið og málmsteypusvið. í tilkynningu deildarinnar muni styrkja félagið í frá Járnblendifélaginu segir að þess markaðssókn til frambúðar. sé vænst að flutningur markaðs- K.K. Magmís Kristjánsson meö kindina sem varðjýrir barðinu á lágfótu. Mynd: GE Dýrbítur vaxandi vandamál Margir bændur á Vesturlandi hafa áhyggjur af sýnilegum vexti tófustofhsins sem meðal annars stafar af því að minni á- hersla hefur verið lögð á það undanfarin ár að vinna greni. Um síðustu helgi heimti Magn- ús Kristjánsson bóndi á Höskulds- stöðum í Laxárdal á sem greini- lega var dýrbitin. Magnús spraut- aði ána með fúkkalyfjum og telur að hún muni jafna sig en í mörg- um tilfellum dregur dýrbit ærnar til dauða. Magnús telur að tófan sé vax- andi vandamál í Dölunum. “Maður er að sjá miklu meira af tófum og ummerki urn að hún hafi verið á ferðinni heldur en var. Þetta eru náttúrulega afleið- ingar af því að hún var friðuð á Vestfjörðum og einnig er það bara þannig að það er ekki staðið nógu vel og skipulega að því að halda henni í skefjum,” segir Magnús. GE Eins og fram hefur komið í ffétt- um var 12 starfsmönnum í sérvöru- deild Haraldar Böðvarssonar hf. sagt upp störfum fyrir rúmri viku þar sem fyrir liggur ákvörðun um að sameina sérvinnsluna að hluta ti! hefðbund- inni vinnslu fiskafurða. Starfsfólkinu var gert kunnugt um uppsagnimar á fimmtudags morgni en ekki var gef- ið upp hverjir hefðu misst vinnuna. Uppsagnarbréfin vom sett í póst eft- ir starfsmannafundinn á fimmtudeg- inum 30. nóvember en ekkert þeirra var borið út þann daginn og ekkert á föstudeginum. Það var svo ekki fyrr en eftir helgina sem þau komust til skila. Samkvæmt heimildum Skessu- homs fór einn starfsmanna fyrirtæk- isins á pósthúsið til þess að athuga hvort hann ætti þar bréf á föstudeg- inum en fékk neikvætt svar. Hans beið svo tilkynning um uppsagnar- bréf í póstkassanum eftir helgina. Olli þetta að vonum miklum óróa meðal starfsfólks auk þess sem gildi uppsagnanna frestast um mánuð. Haraldi Böðvarssyni hf. ber því skylda til að hafa starfsmennina 12 á launum einum mánuði lengur en ella hefði orðið. “Astæðan fyrir því er að tilkynning um uppsögn á að berast til viðkom- andi launþega fyrir mánaðamót og það gerðist ekki í þessu tilfelli. Upp- sögnin sem slík er gild en það frest- ast um mánuð að hún taki gildi” seg- ir Guðmundur Páll Jónsson, starfs- mannastjóri fyrirtækisins. “Eg og El- ínbjörg Magnúsdóttir, fulltrúi Verkalýðsfélagsins, emm búin að hitta fólkið þar sem við fómm sam- eiginlega í gegnum þessa hluti og hvaða réttur gildir við þessar aðstæð- ur. Við hjá HB stóðum í þeirri mein- ingu að bréfin yrðu borin út seinni part fimmtudagsins. Við ætlum okkur þó ekki að gera ágreiningsmál úr þessu því þjónustan hjá íslands- pósti hefúr hingað til verið til fyrir- myndar. Auðvitað geta alltaf komið upp vandamál en maður tekur tillit til þess ef viðeigandi skýringar fást. Eg er búinn að tala við þau á póstin- um og við ræddum um að þetta kæmi ekki fyrir aftur.” Guðmundur segir sökina að hluta til liggja hjá þeim sjálfum. “Til þess að vera alveg öraggir hefðum við þurft að vera fyrr á ferðinni. Reynt var ffarn á síðustu stundu að komast hjá því að grípa til þessara aðgerða en það gekk ekki upp.” Ljóst er að aukin íjárútlát fylgja því óhjákvæmilega að hafa 12 manns í vinnu í heilan mánuð og ekki er víst að næg vinna sé fyrir alla. ‘Vonandi liggja þó einhver verkefni fyrir. Um leið og það varð ljóst að við þyrftum að grípa til svona aðgerða fram- kvæmdum við hlutina og það breytir ekki öllu hvort það er mánuðinum fyrr eða seinna.” SÓK Uppsagnarbréfin bárust ekld á réttum túna Verið velkomin! Sími 430 5533 rnruTím oq Laugardaga 10-19 Sunnudaga 13-18

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.