Skessuhorn - 05.01.2001, Page 4
FIMMTUDAGUR 5. JANUAR 2001
^acssunui,
4
Litíð yfir farinn veg
Það sem er minnisverðast frá síðasta ári aldarinnar
Síðasta ár, sem samkvæmt yfir-
lýstri stefnu Skessuhorns var
síðasta ár aldarinnar, var sann-
arlega viðburðarríkt og sjálfsagt
upplifðu þá flestir eitthvað sem
þeir munu minnast um langa
framtíð. Skessuhorn fékk þrjá
valinkunna Vestlendinga til að
gera upp árið og rifja upp hvað
þeim þótti minnisstæðast síð-
ustu tólf mánuðina.
Skin og skúr
í aldarlok
Segir Kristján Sveins-
son bæjarfulltrúi á
Akranesi
“Það sem kemur fyrst í hugann
er að sjálfsögðu það sem var erfið-
ast og sársaukafyllst á árinu,” seg-
ir Kristján Sveinsson umboðsmað-
ur Essó og Samvinnuferða á Akra-
nesi og bæjarfulltrúi Akraneslist-
ans. “Við misstum son okkar, Karl,
í vinnuslysi á Grundartanga þann
10. apríl síðastliðinn. Það stendur
mér ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um. Eg var á meirihlutafundi þeg-
ar ég fékk fréttirnar og hitti prest-
inn fyrir utan bæjarskrifstofurnar
hér á Akranesi. Það er sennilega
eftirminnilegasta augnablikið og
það breytti miklu fyrir mig og
mína fjölskyldu.
Sem betur fer er annað sem
hægt er að minnast frá síðasta ári
mun ánægjulegra. I tengslum við
þennan hörmulega atburð þótti
mér mjög vænt unt að finna hvað
bæjarbúar eru sainhentir þegar
eitthvað bjátar á. Við fengum mik-
inn og góðan stuðning frá fjölda
fólks og fundum fyrir injög sterkri
hluttekningu. Þarna fundum við
það líka hvað það er mikilvægt fyr-
ir svona samfélag að hafa góðan
prest eins og séra Eðvarð Ingólfs-
son er en hann reyndist okkur
mjög vel. Þetta var bjart ljós í
myrkrinu á þeim tíma. Þá var ég
líka mjög stoltur af því að Sveinn,
yngri sonur okkar, skyldi Ijúka
samræmdu prófunum með ágæt-
um árangri svo skömmu eftir að
þessi atburður dundi yfir. Þetta er
það sem stendur upp úr hjá mér
svona persónulega.
Uppgangur
Hvað varðar bæjarmálin og
mannlífið hér á Akranesi er margs
góðs að minnast frá síðasta ári. Eg
er mjög ánægður með uppganginn
hér á Skaganum og það virðist
ætla að ganga eftir að áhrif Hval-
íjarðarganganna og frá uppbygg-
ingunni á Grundartanga verði sú
lyftistöng sem maður vonaðist til.
Ibúar Akraness eru nú orðnir fleiri
en þeir hafa nokkurntíma verið
áður og almennt ríkir mikil
bjartsýni á framtíðina. Atvinnuá-
standið er gott og margir góðir
hlutir að gerast. Eg trúi því að sú
ákvörðun að sameina Akranesveitu
rekstri bæjarins hafi verið til góðs
þrátt fyrir að það hafi verið mjög
umdeild ákvörðun. Það er hins-
vegar erfitt að gera svo öllum líki
og ef maður er að gefa sig í pólitík
verður maður að sætta sig við að
þurfa að taka erfiðar ákvarðanir.
Við sjáum fram á mikla hagræð-
ingu af þeirri sameiningu og ég er
sannfærður um að hún á eftir að
skila góðum árangri þegar fram
líða stundir. Talandi um samein-
ingu þá hefði ég viljað sjá eitthvað
gerast í sameiningu sveitarfélag-
anna hér sunnan Skarðsheiðar en
ég vona að eitthvað gerist í þeim
málum á þessu ári.
Einu má að sjálfsögðu ekki
gleyma en það var bikarúrslitaleik-
ur IA og ÍBV. Það var virkilega
gaman að vera á Laugardalsvellin-
um og sjá strákana vinna bikarinn.
Þá var árangur 4. flokks einnig
frábær og gefur góð fyrirheit um
framtíðina,” segir Kristján Sveins-
son að lokum.
Árið 2000 var
merkilegt ár
Segir Kristinn Jónas-
son bæjarstjóri Snæ-
fellsbæjar
“Árið 2000 var gott og merki-
legt ár,” segir Kristinn Jónasson
bæjarstjóri í Snæfellsbæ. “í Snæ-
fellsbæ var mikið um að vera og
miklar framkvæmdir. Mikill upp-
gangur var í ferðaþjónustunni,
Hótel Höfði og Gistiheimilið á
Brekkubæ tóku í notkun nýtt hús-
næði. Einnig var tekinn í notkun
hestabúgarður í Böðvarsholti í
Staðarsveit. Lokið var við vegar-
kafla á milli Arnarstapa og Hellna
sem er mikil samgöngubót. A
liðnu ári voru afhjúpuð tvö lista-
verk; Beðið í von á Hellissandi,
sem er til minningar um sjó-
mannskonur, og einnig var vígt
listaverkið “Fyrsta hvíta móðirin í
Ameríku” á Laugarbrekku í góðu
veðri og var margt góðra gesta
sem heimsótti okkur þann dag.
Færeyskir dagar voru haldnir í
þriðja sinn í blíðskaparveðri og
menn höfðu það á orði að guð
hlyti að vera Færeyingur þar sem
einmuna veðurblíða hefur verið á
þessum hátíðum hingað til. A
Færeyskum dögum var undirrit-
að vinabæjarsamkomulag við bæ-
inn Vestmanna í Færeyjum.
A árinu var byggt glæsilegt í-
þróttahús sem var tekið í notkun
í desember, þetta hús mun gjör-
breyta allri aðstöðu til íþóttaiðk-
ana í bænum. Anægjulegt var að á
liðnu ári fjölgaði ibúum í Snæ-
fellsbæ og nokkur íbúðarhús og
iðnaðarhúsnæði voru byggð. For-
seti íslands hr. Olafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Musaieff
kornu í opinbera heimsókn í Snæ-
fellsbæ. Snæfellsbær fékk viður-
kenningu frá Siv Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra fyrir góðan ár-
angur í vinnu að Staðardagskrá 21.
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi
gerðu með sér tímamótasam-
komulag um samstarf á hinum
ýmsu sviðum og sáum við fyrsta
afrakstur þess á árinu er við tókum
í notkun Skóla- og félagsþjónustu
Snæfellsness í Snæfellsbæ og hóf-
um vinnu við að setja á stofn fram-
haldsskóla sem verður staðsettur í
Grundarfirði. Einnig fannst mér
takast vel til hjá sveitarfélögum á
Vesturlandi að sýna samstöðu og
stofna Samstarfsvettvang Vestur-
lands undir forystu Gunnars Sig-
urðssonar formanns SSV.
Sokkið auga
Af öðru má nefna Eiríksstaðar-
hátíð sem var afar gaman að taka
þátt í. Jarðskjálftanir á Suður-
landi voru einnig eftirminnilegir,
þá sérstaklega hinn seinni því
hann fann ég vel heima hjá mér og
í raun í fyrsta skipti sem ég finn
fyrir jarðskjálfta og varð mér
hugsað til þeirra sem voru við
upptök hans. Iþróttaafrek þeirra
Völu, Arnar og Kristínar Rósar
voru einnig minnisstæð. Hörmu-
leg slys á liðnu ári fóru ekki fram
hjá mér frekar en öðrum og við
þurfum öll að líta í eigin barm og
skoða hvað við getum gert til að
fækka slysum. Af erlendum vett-
vangi vakti einna mesta athygli
mína framkvæmd kosninganna í
Bandaríkjunum og sú ánægjulega
staðreynd að þrátt fyrir skelfilegt
klúður í talningum og vandræði
við að finna út hver væri réttkjör-
inn forseti þá skyldu menn berjast
í réttarsölum en ekki á götum úti
sem hefði nú verið reyndin hjá
mörgum öðrum þjóðum og af
minna tilefni.
Persónulega var þetta gott ár.
Fjölskyldan keypti fokheldan sum-
arbústað á Arnarstapa í byrjun árs-
ins og þar var smíðað í frístundum
fram á haust. Það sem mest kom á
óvart voru leyndir hæfileikar mín-
ir til iðnaðarstarfa. Þó munaði
litlu að illa færi einu sinni, því ég
datt á andlitið sama dag og ég tók
á móti gestum frá Færeyjum sem
voru að koma að undirrita vina-
bæjarsamkomulag. Eg verð að við-
urkenna að það var ekki mjög
gaman að vera með sokkið auga
allur hruflaður í andlitinu við und-
irritun vinabæjarsamkomulags
með á fimmta þúsund áhorfend-
ur,” segir Kristinn að lokum.
Viðburðaríkt
ár
*
segir Björg Agústsdóttir
sveitarstjóri í
Grundarfirði
“Þegar litið er til ársins 2000
er óhætt að segja að það hafi ver-
ið viðburðaríkt hjá okkur Grund-
firðingum,” segir Björg Agústs-
dóttir sveitarstjóri í Grundar-
firði.
“Framkvæmdir hófust við bygg-
ingu slökkvistöðvar, almennings-
bókasafns og áhaldahúss í gamla
vélsmiðjuhúsnæðinu sem keypt
var á árinu, en ofan á það er byggð
heil hæð. Gerður var samningur
um kaup og byggingu á nýjum
slökkvibíl í febrúar en tafir á inn-
flutningi bifreiðarinnar leiða því
miður til seinkunar á afhendingu
fram til vors 2001. Oflug upp-
bygging á innra starfi slökkviliðs-
ins í árslok er ánægjuleg, ekki síst
fyrir þær sakir að þar tóku menn
höndum saman og bættu úr því
sem betur mátti fara hjá okkur.
Nýju iðnaðar- og athafnahverfi
var hleypt af stokkunum fyrri
hluta ársins og byggingar þutu
upp, en alls var þar úthlutað sex
lóðum á árinu, auk tveggja lóða
undir atvinnu- og þjónustuhús-
næði í eldri hverfum.
Nýjung í skólamálum með fjar-
námi á framhaldsskólastigi var í
gangi frá því haustið 1999. Að
vori var metinn árangur og af-
staða nemenda, foreldra og fleiri
aðila og samningur um verkefnið
svo endurnýjaður s.l. haust. A-
nægjulegt er hve grunnskóli og
leikskóli eru vel mannaðir en
góðir kennarar bættust í hópinn á
árinu.
Aukið samstarf
Mér er ofarlega í huga aukið
samstarf Snæfellinga á árinu, m.a.
stofnun Félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga þar sem þjónusta er
aukin og hún færð nær íbúunum.
Öflug samstaða, mikil undirbún-
ingsvinna og óskir um framhalds-
skóla á Snæfellsnesi ber hátt í mín-
um huga. Framhaldsskólamálið er
eitt mesta hagsmunamál okkar
Snæfellinga og mikilvægt að vel
takist til ef jákvætt svar fæst við
beiðni okkar. Framkvæmdir hófust
við uppbyggingu vegar jtfir Vatna-
heiði, („Vatnaleið”) og ekki má
gleyma þeim merka áfanga að
Kolgrafarfjörður komst á vegaáætl-
un með framkvæmdir við þverun
fjarðarins á árunum 2002-2004.
Akveðin vonbrigði en dýrmæt
reynsla var að keyra hafnarfram-
kvæmdirnar okkar í gegnum ferli
skv. nýjum lögum um mat á um-
hverfisáhrifum. Mér fmnst full á-
stæða fyrir okkur að íhuga hvernig
öll stjórnsýsla varðandi verklegar
framkvæmdir, leyfisveitingar og
annað þessu tengt, er sífellt að
þyngjast og ákvæði laga virðast
koma jafnvel stjórnsýslunni sjálfri
í opna skjöldu. Þetta á reyndar við
um svo margt annað og ekki tími
til að staldra við það hér.
Anægjuleg var heimsókn forseta
íslands, þó ég leyfi mér að hafa þá
skoðun að forsetinn mætti staldra
lengur við á hverjum stað, auk þess
sem athygli þölmiðla á því sem
snýr að gestgjöfunum er sérkenni-
lega lítil og tilviljanakennd. Eg
minnist þess heiðurs sem Grund-
firðingum hlotnaðist þegar Skessu-
horn og fleiri aðilar veittu okkur
verðlaun sem snyrtilegasta sveitar-
félagið á Vesturlandi. Arið 2000 var
„FrakklandsvinaPár” Grundfirð-
inga, merk tengsl við Frakka voru
efld og var hápunkturinn þegar
tvær franskar gólettur heimsóttu
okkur í blíðskaparveðri um miðjan
júnímánuð. Hollvinasamtök
Grundarfjarðar unnu frábært starf
á árinu, m.a. við útgáfu rits í „safhi
til sögu Eyrarsveitar” í samstarfi
við sögunefnd sveitarfélagsins og
er það eitt af fjölmörgum dæmum
um afrakstur jákvæðs hugarfars og
samstöðu sem skilað hefúr samfé-
laginu okkar miklum verðmætum.“
Segir Björg Agústsdóttir
l.janúar kl. 06.02 - Svembam. -
pyngd: 3500 - Lengd: 52 cm - For-
eldrar: Lára Elín GuSbrandsdóttir og
Gunnar B. Steingrímsson, Akranesi.
Ljósmófiir: Helga R. Höskuldsdóttir.
Nýfæddir Vesdendingar eru
boðnir velkomnir í heiminn
um leið og nýbökuðum
foreldrum eru færðar
hamingjuóslár.
2. janúar kl. 03.28 - Meybam. -
Þyngd: 3530 - Lengd: 52.5 cm. For-
eldrar: Svava Sigríður Ragnarsdóttir
og Gunnar Þór Haraldsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir.