Skessuhorn - 01.02.2001, Page 7
^&cssunui..
FIMMTUDAGUR 1. FEBRUAR 2001
7
m.
Stundum hvarflar að manni að allur áróður
Umferðarráðs sé til lítils, a.m.k. í ljósi tíðra
umferðarslysa og þess að bílafloti landsmanna
hefur aldrei verið eins nýr né eins öruggur og
hann er nú. Að vísu er þarna stórt ef sem erfitt
er að tjá sig um, þ.e. hvernig ástandið væri EF
Umferðarrráð hefði ekki uppi þann áróður
sem það þó hefiir?
Pistlari er samt þeirrar skoðunar að góðlát-
leg tilmæli starfsmanna Umferðarráðs á öld-
um ljósvakans verði, þrátt fyrir góðan vilja sem
að baki liggur, varla til að breyta undarlegum
umferðarvenjum landans. Þegar 3-4 bflstjórar
aka yfir á rauðgulu/rauðu Ijósi, t.d. á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í
Reykjavík, í hvert skipti sem græna Ijósið
slökknar allan liðlangan daginn og aðrir 1-2
bflstjórar eru allt að 7-8 sekúndur að aka af
stað í hvert skipti sem græna Ijósið kviknar er
það til marks um að umferðarmenningin sé
sjúk.
Hjal um að muna að kveikja ljósin og
hreinsa framrúðuna er einskis nýtt þegar öku-
menn leggja í hættu sem viðbragð þeirra er
fjarri því að vera nógu snöggt til að bjarga
þeim úr þótt þeir sæju greinilega annað farar-
tæki út um rain-x borna framrúðu í skjanna-
birtu halogenljósa. Það er eitthvað að í höfð-
inu á fólki sem með þvílíkri hegðun rýrir líkur
sínar og annarra vegfarenda á að komast leið-
ar sinnar heilu og höldnu.
Sagt er að gamakerfi höfuðborgarinnar beri
ekki umferðina og óhjákvæmilegt sé að reyna
að bjarga sér ef maður á einhvern tíma að
komast í vinnuna eða heim. Og skiptir fórnar-
kostnaðurinn þá engu eða hvað? Einhver ár-
angur hefur orðið af þeirri viðleitni lögreglu
að fá ökumenn til að lækka ökuhraðann og
virða hámarkshraða. Sú var tíðin að bfll á lög-
legum hraða var fyrir í Artúnsbrekkunni hvort
sem honum var ekið upp eða ofan. Sem betur
fer hafa hraðamælingar lögreglu og sektanir
dregið eitthvað úr meðalhraða.
Nauðsynlegt er að draga úr umferðarþunga.
Til skemmri tíma litið sýnist vænleg leið að
hækka bílastæðagjöld. Nú þegar kostar 900 kr.
á dag að geyma bíl í miðborg Reykjavíkur.
Borgaryfirvöld verða að koma til móts við bif-
reiðaeigendur sem skilja bílinn eftir heima
með því að bæta almenningssamgöngur og
auka tíðni strætisvagna verulega. Til lengri
tíma litið væri fróðlegt að skoða bemr þær til-
lögur sem Skúli Bjarnason hefur lagt fram í
skýrslu um jarðgöng og lestakerfi í Reykjavík.
Samanburður hans á kostnaði við annars veg-
ar að bæta bflaumferðarmannvirki og hins
vegar að fara allt aðrar leiðir í samgöngumál-
um höfuðborgarinnar þykja trúverðugar.
Hins vegar er Ijóst að ef slíkar framtíðarhug-
myndir verða að veruleika verður nýr hugsun-
arháttur að ryðja sér til rúms. Þá þýðir ekki
lengur að hafa það ávallt sem viðmiðun þegar
farið er í kaupstaðarferð að geta ekið einka-
bílnum svo til inn í verslanir og stofhanir þar
sem menn eiga erindi. Hætt er við að ekkert
hjal dugi til slíkra þjóðarsálarbreytinga.
Að lokum enn ein þversögnin í trygginga-
málum:
Ef minnsti vafi leikur á líkamlegu heilbrigði
manna hafria tryggingarfélög að sjúkratryggja
þá, því miður. En þótt greinilegur brestur sé í
skapgerð ökumanns varðandi bifr eiðaakstur þá
er ekkert mál að tryggja ökutækið og öku-
manninn.
Lars H. Andersen
Ósóttir vinningar í happdrætti Lions
36ld<síkbv>ph®ppdf^t,tí
MiðanúmerVinningur
Miðanúmer
Bóndal
nr.38
nr.177
nr.190
nr.509
nr.650
nr.742
'6 Hlaupahjól
Supersett nr.1490
Lego kappakstursleikur nr.1507
Byssa nr.1600
Dúkkuhús nr.1738
Model - aerðasett nr.1747
Hanna plastperlur nr.1789
Leikjaspil nr.2139
:
Teiknísett
I ... óSj ■■ j.
Hlaupahjó
Púss uspil
Api
Pokemon
Pokemon
:■
BORGARBYGGÐ
ÚTHLUTUN ÚR
MENNINGARSJÓÐI
BORGARBYGGÐAR
ÁRIÐ 2001
Stjóm Menningarsjóðs Borgarbyggðar
auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur
það hlutverk að styrkja menningarmál
í Borgarbyggð.
Æskilegt er að með umsókninni fylgi
bókhaldsuppgjör síðasta árs, eða starfsárs
og áætlun um nýtingu styrksins ásamt
greinargerð. Að loknn starfsári aíliendist
sjóðsstjóm greinargerð rnn nýtingu styrksins.
Umsóknir skulu berast stjóm Memiingarsjóðs
Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgarnesi
fyrir 20. febrúar n.k.
Borgarnesi 28. janúar 2001.
Stjórn Menningarsjóðs
Borgarbyggðar.