Skessuhorn - 25.05.2001, Blaðsíða 7
»n£S9Umr»Jj
FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001
7
Nú er sumarið allt framundan.
Við stelpurnar í frúarleikfiminni
erum að leggja síðustu hönd á
maga, rass og læri svo allt sé nú
tilbúið fyrir bikiníið í sumar. Vxð
höfum allar jafnað okkur á
„júróvisíon“ klúðrinu og teljum
xetta einungis á misskilningi
jyggt þar sem við tefldum fram
þessu líka fjölþjóðlega liði. En
sem sagt við höfum sagt skilið
við þetta hneyksli og bíðum í
ofvæni eftir sumrinu sem virðist
ætla að láta á sér standa.
En það er nú lítið áhyggjuefni
fyrir þær stöllur mínar. Þær eru
sko tilbúnar í að borga meira
fyrir það eitt að láta árangur
vetrarlangrar vinnu sjást og það
er ekki hægt í sundlaugum
Iandsins. Nei, út í heim skal
haldið til að bera sig á sólar-
ströndum.
Eg reyni að dreifa athygli
þeirra frá því að ég muni nú bara
ferðast um ástkæra ylhýra föður-
landið, sem mér finnst ekkert til
að skammast mín fyrir. Já, mér
finnst þær nú heldur kærulausar
margar hverjar og ég furða mig
oft á því hvort ég sé ein þarna
mitt á meðal þeirra, sem hafi á-
hyggjur af þjóðarskútunni, við-
skiptahallanum, gengi krónunn-
ar, æsku landsins og svo mætti
lengi telja. Eg reyni alltaf af
mínum pólitíska mætti að koma
á málefnalegum umræðum í
sturtunum, sem bara skolast
niður um svelginn og þær virð-
ast engan áhuga hafa. Þær
segja mig stundum vera með
einum of mikla kvenrembu og
skoðanir mínar jaðri við skoð-
anir „rauðsokku“. Hvort ég
geti bara ekki verið svolítið
„lekker“ og hætt að hafa þessar
eilífu áhyggjur sem virðast svo
ástæðulausar að þeirra mati.
En mitt á meðal þeirra stend
ég og leiði hugann að sumrinu.
Sem þriggja barna móðir fer
maður strax að vori að hafa á-
hyggjur af börnunum, þá á ég
við bvað börnin mín eigi að
hafa fyrir stafni í sumar. Nóg er
í boði og erfitt að velja og ekkert
er ókeypis.
Það var í fjölskylduboði um
daginn að afinn leit á 12 ára son
minn og spurði: Hvað ætlar þú
að vinna í sumar nafni? Dreng-
urinn leit upp og svaraði sposk-
Eg ætla að vinna hjá
Já já, tók ég undir
stolt, hann ætlar að passa systur
sína. Afinn glotti og spurði til á-
réttingar hvort hann ætlaði eHd
að hafa eitthvað fyrir stafni. Eg
kreppti tærnar í skónum og
bölvaði í hljóði. Spurði síðan
ofur rólega hvort honum fyndist
þetta ekki vera eitthvað til að
hafa fyrir stafni, að gæta yngri
systur sinnar, meðan við for-
eldrarnir stunduðum okkar
vinnu. Eg hefði nú hugsað mér
að borga honum laun fyrir þetta.
ur:
mommu.
Drengurinn var nú staðinn upp
og tók þá skynsamlegu ákvörð-
un að láta móður sína um þenn-
an þátt og þar með var hann
horfinn af vettvangi.
Afinn var nú kominn í gírinn
og benti mér á, að á drengsins
aldri hefðu bæði hann og faðir
drengsins gert út trillur með
feðrum sínum og það sumar eft-
ir sumar. Eg sagði honum að
það væri nú bara svo að við ætt-
um ekki trillu og mér þætti þetta
ógurlegt vesen í kringum þessa
smábátaútgerð í landinu. Auk
þess væri það sjálfsagt ekkert
fyrir mig að standa í útgerð.
Eg hélt síðan ræðu um æsku
mína úti á landi sem kemur oft-
ar við sögu í streði mínu þessa
dagana. I endurminningunni
er alltaf sól, ég áhyggjulaus í
stuttu pilsi með tíkarspena í
hári að sippa og það alveg upp
undir fermingu. Vinnan sem ég
stundaði á þessum árum var að
gæta barna eldri systra minna og
ég hlaut sko ekki neitt slæmt af
því. Því ætti sonur minn ekki
feta í fótspor móður sinnar og
velja barnfóstrustarfið í stað
grásleppuveiða föðursins.
Ennfremur var mamma mín
alltaf til staðar á þessum árum
heima í „hagkaupsslopp" ang-
andi af hreinlæti og nýbökuðum
kleinum. Það var nú ekki á-
hyggjunum fyrir að fara hjá mér
þá.
í dag er þetta ekki hægt, ef ég
tek þá ákvörðun að vera heima
og hætta útivinnu til að geta
verið til staðar fyrir börnin, þá
er ég talin skrítin af öðrum gild-
um þjóðfélagsþegnum, veik,
duglaus, áhugalaus, skoðanalaus
o.s.frv.. Já, það er bara ekki í
tísku að vera heimavinnandi og
ég hef nú prófað þetta en vegna
áreitis frá útivinnandi fólki lét
ég undan þrýstingi. Svo að nú
er ég komin í hóp öskuvondra
foreldra, sem finnst brotið á sér
fyrir að þurfa að hugsa um börn-
in sín yfir sumarið.
Þegar hér var komið sögu, í
þessu fjölskylduboði, var ég orð-
in heit í umræðunni og leit í
kringum mig eftir stuðningi og
mætti augnaráði eiginmannsins
sem gaf skýr skilaboð: Þú ert að
rífast við manninn sem veitti
mér fyrstu vinnuna.
En viti menn afinn leit á mig
og var farinn að mýkjast. Já já,
ég veit að það er vandrataður
meðalvegurinn í uppeldismálum
í dag. En ég var nú bara að tala
um dugandi vinnu fyrir dreng-
inn. Svona gaurar eins og hann
verða að hafa eitthvað fyrir
stafni annað en að passa börn.
Þeir verða að fá að sýna getu
sína til að verða ekki að ein-
hverjum aumingjum. En segðu
mér Rannveig ætlarðu nokkuð
að gera hann að kerlingu?
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
INGI TRYGGVASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
Nýtt á söluskrá
Réttarholt 3, Borgarnesi.
Einbýlishús 140 ferm. og bílskúr 48 ferm. Forstofa flísalögð.
Eldhús dúklagt, viðarinnrétting. Borðstofa, stofa og gangur
parketlagt. Baðherb. dúklagt, ljós innr., kerlaug. Fjögur
svefnherb., 3 dúklögð, korkflísar á einu, skápar í hjónaherb.
Gestasnyrting flísalögð, sturta. Þvottahús. Stór afgirtur
garður.
Verð: kr. 14.800.000
MJÓLKURKV ÓTI
Óskað er eftir tilboðum í 150.000 lítra greiðslumark (kvóta)
í mjólk. Tilboð sendist undirrituðum í síðasta lagi 14. júní
2001. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
HéraSssýnina kynbótahrossa á Vesturlandi verður í
Borgarnesi dagana 11.-16. júní. Tekið verður við
skráningum til 6. iúní á skrifstofu BúnaSarsamtaka
Vesturlands í síma 437 1215 eSa meS tölvupósti sem er
buvest@vesturland.is. Sýningargjaldiö er 5.000 kr. á
hross og skal það greiSast fyrir lok dags 8. iúní.
Endurgreiðsla á sýningarajöldum kemur aðeins til greina
ef látið er vita um forföfí áöur en dómar hefjast. Ekki
verður endurgreiddur nema helmingur sýningargjalds
þ.e. 2.500 kr.
Oll hross sem koma til dóms þurfa að vera
einstaklingsmerkt (örmerkt eða frostmerkt) og stóðhestar
skulu blóðprófaðir með tilliti til ætternis.
Búnaðarsamtök Vesturlands
BÖRGARBYGGÐ
Forstöðumaður
fræðslu- og
menningarsviðs
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns
fræðslu- og menningarsviðs frd 1. september 2001.
Starfssvið:
Forstöðumaður hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á fræðslumálum,
æskulýðs- og íþróttamálum og menningarmálum hjá Borgarbyggð.
Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstrarlegum markmiðum og forsendum
þeirra stoftiana sem undir hann heyra og leitar leiða í samráði við einstaka
yfirmenn þeirra um að ná fram hagkvæmni og veita um leið góða þjónustu.
Forstöðumaður fer með verkefni sveitarfélagsins í menningarmálum í
samræmi við ákvörðun yfirstjórnar. Hann er tengiliður við
menningarstofnanir og hefur umsjón með framkvæmd samstarfssamninga.
Menntun og hœfniskröfur:
Óskað er eftir starfsmanni með háskólamenntun eða sambærilega menntun.
Reynsla og þekking af stjórnun og rekstri er nauðsynleg, auk þess sem
reynsla af fræðslu-, menningar- og íþróttamálum er æskileg. Starfsmaðurinn
þarf að viðhafa sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni í mannlegum
samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 6. júní 2001 og skulu skriflegar umsóknir
með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendar skrifstofu
Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi. Nánari upplýsingar
gefur bæjarstjóri í síma 437-1224 (stefan@borgarbyggd.is).
Bœjarstjóri Borgarbyggðar