Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 25.05.2001, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 25.05.2001, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 25. MAI 2001 jntajLHw... Penninn Ráhlevsi L-listans Vandræðagangur L-listans með "ákvörðun" um legu hringvegarins um Borgames virðist ekki eiga sér nein takmörk. Forseti bæjarstjórnar fjallar um málið í viðtali við Skessu- horn 17. maí sl. en segir ekki alla söguna. A bæjarstjórnarfundi 11. maí sl. kom fram tillaga frá meirihlutan- um, þar sem annars vegar var lagt til að þrýsta á um endurbætur á núver- andi vegi í gegnum bæinn og hins- vegar að hefjast þegar handa um að koma veginum út í fjörð. Fyrri hluta tillögunnar gátum við fúlltrú- ar B listans fellt okkur við en alls ekki þann seinni þar sem þar átti að tímasetja flutning vegarins enda engar forsendur fyrir slíku nú að okkar mati. Eins og ljóst er liggur fyrir samþykkt aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir þeim möguleika að einhvem tíma í framtíðinni megi færa veginn skapist aðstæður sem knýi á um það. Slíkar aðstæður em ekki tál staðar nú. Meirihluti síðustu bæjarstjómar B- og D- lista stóð að þessu ffam- sýna og 'góða skipulagi sem sam- þykkt var og nýútkominn skýrsla "Borgarnesnefndar" (nefnd sem sett var á laggimar í samráði við samgönguráðuneytið til að fara yfir málið) staðfestir í raun að ekki sé hægt að fullyrða hvenær flytja þurfi vegstæðið, reyndar sé líklegt að nú- verandi vegstæði í gegnum bæinn muni duga í næstu 20 ár. Stefna L-listans Eitt af stefhumálum L-listans í Borgarbyggð fyrir síðustu kosning- ar var að láta fara ffam skoðana- könnun um legu hringvegarins um Borgames. I stefhunni sagði m.a. "Ekkert liggur fyrir uin hvenær eða jafnvel hvort hringvegurinn um Borgarnes verði færður upp með landinu að austan, þrátt fyrir að að- alskipulagstillaga geri ráð fyrir siíku. Slíkt er óþolandi óvissa fyrir fyrirtæki og íbúa sem vilja skipu- leggja sína ffamtíð m.t.t. legu að þjóðvegi nr. 1. Nauðsynlegt er að sem allra fyrst verði tekin endanlega ákvörðun um legu hringvegarins að undangenginni faglegri úttekt á þeim kostum sem til greina koma, annars vegar áfram í gegnum bæinn og hinsvegar upp með landinu. Eft- ir vandaða kynningu og umræðu verði íbúum gefinn kostur á að segja álit sitt í skoðanakönnun." Málatilbúnaður Skoðum hvemig staðið var að málum af hálfu L-listans og hver niðurstaðan varð. Það byrjaði "glæsilega" með tillögu fulltrúa L- listans í upphafi kjörtímabilsins um að lagning hringvegar um Borgar- nes yrði þá þegar sett í mat á um- hverfisáhrifúm. Það fékkst auðvitað ekki samþykkt enda tillagan óljós og engin ákvörðun hafði verið tekin um að færa veginn og þar af leið- andi ekld tímabært að setja ffam- kvæmdina í umhverfismat. Til að lenda málinu var farin sú leið að óska effir því við samgönguráðherra að gerð yrði forathugun á helstu valkosmm á ffamtíðarlegu Þjóðveg- ar 1 um Borgames. Þeirri vinnu áðumefndrar "Borgarnesnefndar" lauk nýverið og var skýrsla um mál- ið kynnt á Hótel Borgamesi 24. apríl s.l. Faglegri úttekt er því loks lokið, en hefur óvissunni verið eytt sem L-listanum var svo tíðrætt um? Fallið firá uppruna- legri tillögu Á áðurnefndum bæjarstjórnar- fundi var því til umræðu tdllaga meirihluta L og D lista þar sem lagt var til að Bæjarstjóm Borgarbyggð- ar styddi þær tillögur um úrbætur á þjóðvegi 1 í gegnum Borgarnes sem fram koma í skýrslu Borgarnes- nefúdar. Auk þess var lagt til að vegur meðfram ströndinni að aust- an væri sú framtíðarlausn sem stefnt skyldi að. Þá væri mikilvægt að sú ffamkvæmd yrði tekin inn á vegaá- ætlun ekki seinna en við endurskoð- un langtímaáætlunar 2006. Þessi tillaga var óásættanleg að mati fulltrúa B-listans en undirrituð telja þetta ekki tímabært enda ekki forsendur til að fara að vinna að því að færa umferðina út fyrir Borgar- nes að svo komnu máli. Rétt er hinsvegar að gera ráð fyrir þessari framkvæmd sem framtíðarmögu- leika á skipulagi. Meirihlutínn óskaði efit- ir samvinnu eftirá Núverandi meirihluti óskaði eftir samvinnu og samstöðu um þessa til- lögu við B-listann og lagði áherslu á afgreiðslu hennar á bæjarstjórnar- fundinum þá þegar. Það hefur hinsvegar tíðkast að vinna stærri mál í bæjarráði ef menn hafa litið á samstöðu við minnihlutann sem lykilatriði en ekki með fúndarhléum og tilheyrandi töfum á bæjarstjóm- arfundum. Auðvitað kom þarna í ljós verulegur ágreiningur um mál- ið þar sem sumir bæjarfulltrúar meirihlutans töluðu fyrir því að hefja þegar vinnu við að koma þess- ari framkvæmd inn á langtímaáætl- un vegagerðarinnar, en aðrir þar með taldir fulltrúar B-listans töldu engar forsendur til slíks. Niðurstaða Niðurstaða meirihlutans var að tvískipta tillögu sinni þar sem sátt var um að beita sér fyrir endurbót- um á þjóðvegi 1 í gegnum bæinn. Hinsvegar náðist ekki sátt um seinni hluta tillögunnar þrátt fyrir að meirihlutinn drægi til baka fasta tímasetningu á því að koma vegin- um upp með landinu inn á vegaá- ædun. Niðurstaða meirihlutans er því eftír faglega úttekt og kynningu á málinu að halda sig við núgildandi aðalskipulag fyrir Borgarbyggð þar sem gert er ráð fyrir þjóðvegi 1 í gegnum Borgarnes með endurbót- um en um leið gert ráð fyrir vegi út í firðinum sem framtíðarlausn. Hvaða óvissu hefur þá verið eytt eða var þá nokkur óvissa nema í kollinum á fulltrúum L-listans? Það er a.m.k. kosti ljóst að þessi vegamál hafa verið í vinnslu nær allt kjör- tímabilið og þeir stefnulausu hafa nú loks viðurkennt og skilið þá GuSmundur Eiríksson stefnu sem lögð var til í aðalskipu- lagi Borgarbyggðar. Eftír stendur að það þótti ástæða til fyrir kosningar að hálfu L- lista- manna að gera skoðanakönnun meðal íbúa Borgames um þjóðveg 1 um Borgarnes. Það hlýtur að vera óþarfi núna þegar menn eru búnir að átta sig á málunum. Undirrituð telja mikilvægt og hafa nú þegar beitt sér fyrir því að fjármagn fáist til endurbóta á þjóð- vegi 1 í gegnum Borgarnes. Við gátum ekki fallist á orðaleik fulltrúa meirihlutans um veg út í firðinum sem framtíðarlausn eftir að hafa orðið vimi að ædun þeirra um að beita sér fyrir honum út í fjörðinn strax á næsta kjörtímabili. Það er skynsamlegra að setjast niður í upp- hafi máls og koma sér niður á stefnu en að ana út í óvissu með óþarfa málatílbúnað og orðhengilshátt. Kolfinna Jóhannesdóttir og Guðmundur Eiríksson bæjarfulltrúar B-listans í Borgarbyggð ^Penninn Sólarmegin í hita ogþunga dagsins Mér barst sú fregn á dögunum að Sönghópurinn Sólarmegin muni halda tónleika í Bíóhöllinni á Akranesi þ. 24 . maí n.k. Eg sem þetta rita hef áður í ræðu og rití lýst ánægju með þá tónleika sem hópurinn hefur haldið og undirrit- aður hefur átt þess kost að sækja. Það er mikill tími og vinna sem fer í að tmdirbúa slíka tónleika, og slíkt verður aldrei metíð til fjár. Hógvær og hlý framkoma hópsins við flutning og kynningu þeirra verka sem hann hefur unnið með, veitir þeim sem hlýðir fagnaðar- kennd. Þetta er sú lýsing sem ég get besta gefið sem áhugamaður um tónlist, um ieið og ég hvet alla þá sem eiga þess kost, að sækja tónleika hópsins. Sönghópurinn Sólarmegin tók upp þá nýbreytni að halda jólatón- leika í Akraneskirkju á seinustu jólaföstu. Allir þeir sem ég hef heyrt ræða um það framtak hóps- ins hafa lokið lofsorði á þá og menningarauka sem þeir voru. Akveðið er að halda einnig tón- leika í Hafnarborg Hafnarfirði 30. maí næstkomandi, ég hvet alla þá sem þess eiga kost að sækja þá. Um leið og þessi orð eru sett á blað vil ég nota tækifærið og þakka því áhugafólki sem með leiklist, tónlist og annarri listiðju um land allt auka lífsfyllingu okkar hinna sem eiga þess kost á að njóta henn- ar. Með bestu kveðjum um gott sumar í daglegu lífi, leik og starfi. Gísli S. Einarsson I Skagaleikflokkurinn Aðalfundur og framhaldsaðalfundur Skagaleikflokksins verður haldinn á Akratorgi miðvikudaginn 30. maí kl. 17:00 Munið að hafa með ykkur stóla! Stjómin Athugasemd vegna fféttar I 20. tölublaði Skessuhorns er frétt, sem ber heitið "Kosningar í haust?" Þar er greint frá sameiningarvið- ræðum 3ja hreppa við innanverðan Breiðafjörð sem nýlega eru hafnar. Það sem vekur athygli og furðu eru fullyrðingar um afstöðu full- trúa í nefndinni til sameiningar. Heimildarmanns er ekki getið. Þar er staðfestur áhugi fulltrúa úr Dalabyggð og Reykhólahreppi á sameiningu en látið að því liggja að fulltrúar Saurbæjarhrepps séu tví- stígandi í málinu. Svona fréttaflutningur virðist hafa þann tilgang einan að sá efa- semdum í hugi fólks á svæðinu og gera okkur fulltrúa Saurbæinga tortryggilega í þess augum. Það hafa verið haldnir 2 fundir þessara aðila og þar hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en allir fulltrúar hreppanna vinni af heilindum að þessu máli og vonum við að svo verði áfram, þótt eðlilega geti menn greint á um einstök at- riði. Við hörmum svona ónákvæman fréttaflutning í þessu annars ágæta blaði og væntum þess að það leiti sér traustari heimilda þegar fluttar eru fréttir úr héraðinu. Sigurður Þórólfsson Sæmundur Kristjánsson Frá ritstjóra í umræddri frétt segir orðrétt: "...en ekki er vitað um afstöðu full- trúa Saurbæjarhrepps." Þau orð ber einfaldlega að skilja eins og þau eru sögð, þ.e.a.s. blaðið hafði ekki upplýsingar um þeirra af- stöðu. Því fer hinsvegar fjarri því að þar með sé verið að brigsla þeim um óheilindi. ritstjóri ffieygarðshornið Tíu vinsælustu höfhunarlínur kvenfólks og hvað þær merkja í raunveruleikanum. 10. Ég lít á þig sem bróður -Þú minnir mig á lúðann í „Deliverance“. 9. Það er dálítill aldursmunur á okkur -Ég vil ekki vera með manni sem gæti verið pabbi minn. 8. Ég hef ekki „þannig“ áhuga á þér -Þú ert ljótasta fi'fl sem ég hef séð á ævinni. 7. Líf mitt er of flókið núna -Ég vil ekki að þú eyðir allri nóttinni hjá mér. Þá gætirðu heyrt mig tala í símann við aðra menn sem ég er með. 6. Ég á kærasta -Ég vil frekar köttinn minn en þig- 5. Ég fer ekki út með sam- starfsmönnum mínum -Ég myndi ekki fara út með þér þó að þú værir bara í sama „sól- kerfi“, hvað þá í sömu bygg- ingu. 4. Það ert ekki þú, það er ég -Það ert þú. 3. Ég vil einbeita mér að starfs- ferlinum -Jafnvel eitthvað jafn leiðinlegt og þreytandi og vinnan mín er betra en að fara út með þér. 2. Ég er hrifin af öðrum -Þó að þú værir síðasti maður- inn á jörðinni þá myndi ég ekki fara út með þér. 1. Verum bara vinir -Ég vil að þú sért hérna svo að ég geti sagt þér í ítrustu smáat- riðum frá öllum þeim mönnum sem ég hitti og sef hjá. 10 vinsælustu höfhunarlínur karlmanna og hvað þær merkja í raunveruleikanum. 10. Eg lít á þig sem systur -Þú ert ljót. 9. Það er dálítill aldursmunur á okkur -Þú ert ljót. 8. Ég hef ekki „þannig“ áhuga á þér -Þú ert ljót. 7. Líf mitt er of flókið núna -Þú ert ljót. 6. Ég á kærustu -Þú ert ljót. 5. Ég fer ekki út með sam- starfskonum mínum -Þú ert ljót. 4. Það ert ekki þú, það er ég -Þú ert ljót. 3. Ég vil einbeita mér að starfs- ferlinum -Þú ert ljót. 2. Ég er hrifinn af annarri konu -Þú ert ljót. 1. Veram bara vinir -Þú ert hrikalega ljót.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.