Skessuhorn - 16.08.2001, Qupperneq 5
^ntsaunui..
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
5
Mæling á útskolun á-
burðardna í jarðvegi
Guómimdur Hrafii Jóhamiesson tilraun-
arstjóri
Við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri er nú verið að hrinda af
stað rannsóknarverkefni á útskolun
næringarefna í jarðvegi. Þar verður í
fyrsta sinn á Islandi mælt magn á-
burðarefha sem verða eftir að lok-
inni næringarupptöku plantna og
geta þannig hugsanlega mengað ár
og vötn nágrenni ræktaðs lands eða
annarra svæða sem borið er á.
Það er Guðmundur Hrafn Jó-
hannesson, kennari við landbúnað-
arháskólann, sem stýrir rannsókn-
inni, en reiknað er með að fyrstu
niðurstöður úr henni verði komnar
um næstu áramót og verkefhinu
ljúki í ágúst 2002. Þetta er í fyrsta
sinn hér á landi sem útskolun nær-
ingarefna ffá ræktarlandi er mæld,
en hingað til hafa aðeins verið leidd-
ar líkur að tölum í þessu sambandi.
Þessi rannsókn við landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri mun gefa tæki-
færi til að kanna áhrif jarðræktar á
gæði umhverfis. Reynt verður að
varpa Ijósi á hvort áburðarnotkun sé
með þeim hætti að ásættanlegt sé út
frá umhverfissjónarmiðum, sem eru
sífellt að verða meira áberandi í um-
ræðunni um landbúnað. Tilbúinn á-
burður hefur verið talinn tiltölulega
óskaðlegur umhverfinu hér á landi
án þess að til séu beinar rannsóknar-
niðurstöður þar um. Það er mat
manna nú að rannsókn sem þessi
leiði til aukinnar þekkingar og skiln-
ings á nýtingu áburðarefha, sem síð-
an leiðir tdl spamaðar í áburðarnotk-
un.
smh
Fjölmargir mótmæla breyt-
ingu á skipulagi
Skipulagsnefnd leggur til aö breytingamar verði samþykktar
Skipulagsnefnd Akraness auglýstd
nýverið eftir athugasemdum við þá
áætlun að breyta skipulagi að Ak-
ursbraut 9 en óskað hafði verið eft-
ir að fá að breyta húsnæðinu í fjöl-
býlishús með verslunarrými á jarð-
hæð. Athugasemdir bámst frá eig-
endum húseignanna að Akursbraut
1 la-1 ld og Heilbrigðisfulltrúa.
Á síðasta fundi nefndarinnar
voru svo tekin fyrir ítrelcuð mót-
mæli húseigenda Akursbrautar 1 la-
1 ld auk mótmæla frá Norðuráli og
Björgunarfélagi Akraness. Húseig-
endur skrifuðu skipulagsnefnd bréf
þar sem þeir gerðu ýmsar athuga-
semdir t.d. hvað varðar slysahættu
barna og umferð flutningabíla um
Akursbraut. Auk þess ítrekuðu þeir
að breytingin gæti skapað Akranes-
kaupstað ábyrgð og kaupskyldu
eigna þeirra. I bréfinu kom fram að
eigendur húsanna við Suðurgötu
26, 28, 30 og 34 mótmæltu einnig
fyrirhuguðum breytingum.
Norðurál er eigandi Suðurgöm
32 og gerði fyrirtækið athugasemd
við breytingarnar og mótmælti
þeim þar sem þær kynnu að rýra
verðgildi eignarinnar. Björgunarfé-
lag Akraness hefur aðsemr sitt við
Akursbraut og telur félagið að
breytingin gæti haft áhrif á endur-
söluverð auk þess sem félagsskap-
urinn sé háður góðu aðgengi og
nægum bílastæðum. Hugsanleg út-
köll um miðjar næmr getd einnig
valdið töluverðum óþægindum.
Skipulagsnefnd svaraði öllum
þeim athugasemdum sem bámst
skriflega og taldi ekki ástæðu til að
hætta við fyrirhugaðar breytingar.
Lagði nefndin til við bæjarstjórn að
tillaga að breytingu yrði samþykkt
með þeim skilyrðum að íbúðirnar
myndu uppfylla ströngustu kröfur
um hljóðvist og að miðað skyldi við
að starfsemi á nærliggjandi lóðum
félli undir skilgreiningu um at-
hafnasvæði.
SÓK
Ferðablaðið Vesturland 2001
\imiiiigshafar í
happdrætti
Tíðindamenn ehf. gáfu út upplýsingaritið Vesturland 2001 í byrjun sumars.
Hvert blað hafði sérstakt númer og hafa nú fjórtán þeirra verið dregin út í happ-
drætti. Vinningar voru ekki af lakara taginu en þeir tengjast allir ferðaþjónustu á
Vesturlandi. Vmningshafar geta nálgast vinningana hjá Upplýsinga- og kynningar-
miðstöð Vesturlands, sími 437-2214. Eftirtalin númer voru dregin út.
1. 1471 - Gisting fyrir tvo með morgunverði í Gistihúsinu Móum við Akrafjall.
2. 192 - Frír aðgangur að safnahúsunum Görðum fyrir fjölskylduna.
3. 1760 - Gisting fyrir tvo á Hótel Barbró ásamt morgunverði.
4. 901 - Golf, kaffihlaðborð og sund í Húsafelli.
5. 3458 - Gisting í sumarbústað í tvær nætur auk leyfis til að veiða í Hvítá eða fara á rjúpna-
eða gæsaveiði.
6. 11967 - Gisting fyrir tvo á Hótel Reykholti fyrir tvo ásamt morgunverði.
7. 12237 - Veisluferð fyrir tvo frá Stykkishólmi með Sæferðum.
8. 15715 - Ferð með Baldri út í Flatey fyrir tvo með Sæferðum.
9. 23344 - Hefðbundin Suðureyjasigling fyrir tvo með Sæferðunr.
10. 17866 - Gisting fyrir tvo á Hótel Framnesi í Grundarfirði ásamt morgunverði.
11. 8663 - Kvöldverður fyrir tvo að verðmæti allt að 8.000 krónur í Arnarbæ á Arnarstapa.
12. 606 - Frír aðgangur að safninu að Eiríksstöðum í Haukadal fyrir fjölskylduna.
13. 2901 - Gisting fyrir tvo ásarnt morgunverði á Hótel Eddu, Laugum í Sælingsdal.
14. 14354 - Sumarhús til afnota í eina nótt í boði Stóra Vatnshorns í Haukadal.
‘átWTrasrtrofa
Jyrirfestrar t íjíxaS á t>e<jum
©norrastofu
Axel Kristinsson, sagnfrœðingur, mun flytja fyrirlesturinn
Auður og ættleysi
um Borgfirðinginn Þorbjöm Bjamason og aðra nýríka
bændur á 18. öld miðvikudaginn 22. ágúst kl. 21.00
í Snorrastofu.
Allir hjartanlega velkomnir. Aðgangseyrir er 400 kr.
Kaffiveitingar.
AUGNABLIK
Þarft þú húsnæði fyrir
þig og þína?
Þá er hér ef til vill ágætis tækifæri
Stór, björt og falleg 4-5 herb. íbúð á þriðju hæð,
vesturenda, með gott útsýni, í fjölbýli við
Hraunbæinn í Reykjavik er til sölu.
I Hríngdu, það kostar lítið.
| Get sent þér lýsingu á íbúðinni ef þarf.
§
Starf gjaldkera hjá embœtti sýslumannsins
í Borgarnesi er laust til umsóknar.
Laun fara eftir kjarasamningi opinberra
starfsmanna og aðlögunarsamningi
gerðum á grundvelli hans.
Umsóknum ber að skila til sýslumannsins
í Borgarnesi, Bjarnarbraut 2 í Borgarnesi,
fyrir 30. dgúst nk.
Sýslumaður veitir nánari upplýsingar um
starfið.
Borgarnesi, 13. ágúst 2001.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi.
r
FJÖLBRAUTASKÓL!
VESTURLANDS Á AKRANESI
UPPHAF
HAUSTANNAR
2001
A
Skólinn á Akranesi verður settur fimmtudaginn 23. ágúst kl. 10 og
kennsla hefst kl. 13.10. Nýnemar á Akranesi (þeir sem ekki hafa
verið í skólanum á Akranesi áður) eiga að koma á skólasetninauna.
Foreldrar oa forráðamenn nýnema eru einnig velkomnir. Að
setningunni lokinni munu nýnemar hitta umsjónarkennara sína og
fá stundatöflu annarinnar. Eldri nemendur (allir sem hafa verið í
. skólanum á Akranesi áður) geta sótt stundatöflur sínar miðvikudaginn
| 22. ágúst kl. 13 -17 og fimmtudaginn 23. ágúst kl. 9 - 11.
x
5 »
I Snæfellsbæ verða stundatöflur nemenda afhentar
| . fimmtudaginn 23. áaúst kl. 15.
í Stykkishólmi verða stundatöfíur nemenda afhentar
föstudaginn 24. ágúst kl. 11.
Skólabíll fer frá Boraarnesi fimmtudaginn 23. ágúst kl. 9 og 12 og til
baka kl. 15.30. Reqíulequr skólaakstur frá Borgarnesi hefst föstudaqinn
24. ágústkl. 7.15.
Bóksala
BókabúS Andrésar-Penninn, Kirkjubraut 54, Akranesi, verður meS þær
bækur til sölu sem notaSar eru í kennslu í FVA.
Bókalista og fleiri gagnlegar upplýsingar má finna á heimasíSu skólans
V.
http://www.fva.is
J