Skessuhorn - 16.08.2001, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001
aa£39Úljui2:
J óhanna í Eflingu
Vinmir að framförum í Stykkishólmsbæ
Það hafa blásið hlýir sumarvindar
í tónlistarlífinu í Stykkishólmi í
sumar. Efling Sykkishólms er fé-
lagsskapur sem hefur ekki átt lítinn
þátt í því hversu oft Stykkishólms-
búar og gestir þeirra hafa getað sótt
góða og vandaða tónleika á síðustu
mánuðum. En hver er þessi félags-
skapur Efling og af hverju hefúr
hann svona mikinn áhuga á að
Stykkishólmbúar komist á tónleika,
er þetta eitthvert sérstakt áhugafé-
lag um menningu í Stykláshólmi?
Jóhanna Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri félagsins og bakara-
írú, situr íyrir svörum.
Upphaf Eflingar
„Mér skilst að Sturla Böðvarsson,
fyrrverandi bæjarstjóri í Sykkis-
hólmi, hafi lengi haft áhuga á þess-
um málum en það var ekki fyrr en
tun 1995 sem félagið var stofhað.
Það má segja að þessi félagsskapur
sé félag atvinnulífsins í Stykkis-
hólmi, þar sem bærinn, fyrirtæki
bæjarins og stofnanir, sem og ein-
staklingarnir sjálfir koma að rekstr-
inum á einn og annan hátt. Þetta er
sem sagt félagsskapur þeirra sem
hafa áhuga á framfaramálum í bæn-
um. I lögum félagsins er til dæmis
kveðið á um að markmið þess sé að
vinna að framfaramálum á sviði at-
vinnu- og menningarlífs." Jóhanna
segir að fjármagn til félagsins sé
fengið frá félagsmönnum, fyrir-
tækjum og einstaklingum og séu fé-
lagsgjöldin reiknuð hlutfallslega
eftir stærð þeirra og umsvifum. Þar
að auki hefúr Efling haft sértekjur
af rekstri verkefúa.
Sumartónleikar
Stykkishólmskirkj u
Jóhanna tekur undir það sjónar-
mið að mest beri kannski á starfi
Eflingar um þessar mundir með áð-
urnefndum tónleikum sem félagið
stendur fyrir í sumar ásamt kór
kirkjunnar, svonefúdum Sumartón-
leikum í Stykkishólmskirkju. „Eitt
af verkefúunum sem við komum á
fót á sínum tíma voru Sumartón-
leikarnir en það var í framkvæmda-
stjóratíð Ingibjargar Þorsteinsdótt-
ur, píanóleikara og tónlistarkenn-
ara. I hennar tíð er það sem sé á-
kveðið að koma á fót þessari vönd-
uðu tónleikaröð, bæði með það fyr-
ir augum að efla menningarlífið
meðal bæjarbúa en einnig til að
auglýsa bæinn upp og það var eigin-
lega kirkjan sem gaf tóninn því
þetta er það frábært tónleikahús
sem upplagt var að nota í þetta,“
segir Jóhanna.
Efling ekki einungis
menningarafl
Jóhanna segir starfsemina vera
mjög fjölbreytta þrátt fyrir að
menningardagskrá sumarsins sé
fyrirferðarmikil. „Það er mjög
margt sem við erum að vinna með.
Við erum t.a.m. nokkurs konar
gagnabanki og höldum utan um á-
kveðnar upplýsingar varðandi fyrir-
tæki og stofúanir, þjónustu og starf-
semi í bænum. Það er mikið leitað
til Eflingar eftir upplýsingum og
hafa t.d. bæði Háskóli Islands og
Háskólinn á Akureyri leitað til okk-
ar eftir upplýsingum. Eru erindi þá
jafn fjölbreytt og þau eru mörg og
fjallaði t.a.m. ein fyrirspurnin um
það hvaða fyrirtæki hérna þyrftu á
flutningi á landi að halda. Síðan
berast margar fyrirspurnir til okkar
um ferðaþjónustu.“ Hún segir að
sérstaða Eflingar á landsvísu felist
líklega í því hversu fjölbreytt starf-
semin er innan félagsins þar sem
sérstökum sviðum innan atvinnu-
lífsins sé sinnt til jafns við menning-
una. „Félagið hefur til að mynda
umsjón með upplýsingaþjónustu
ferðamanna í bænum og tjaldstæði
bæjarins. Það er þó eitt af mark-
miðum Eflingar að halda ekki úti
rekstri, heldur frekar að efla starf-
semi til þess að hún geti farið að
ganga upp á eigin spýtur," segir Jó-
hanna og nefnir Ferðaþjónustuna
og tónleikaröðina sem dæmi um
starfsemi sem geti farið fljótlega að
reka sig sjálfa.
Stórverkefiii árið 2003
„Atvinnuvegasýning Vesturlands
í Stykkishólmi árið 1999 er
langstærsti viðburðurinn sem ég
hef komið nálægt með starfi Efling-
ar,“ segir Jóhanna þegar hún er
beðin að nefna eitthvað í starfsemi
Eflingar sem hafi verið sérstaklega
eftirminnilegt. „Hún tókst sérstak-
lega vel. Upp undir hundrað fyrir-
tæki sýndu þar, stór og smá, frá
handverksfólki upp í álver og við
fullyrðum að um 8-10 þúsund
manns hafi séð sýninguna. Þegar
fólk kvaddi okkur við sýningarlok
vorum við spurð hvenær næsta sýn-
ing yrði og getum við nú lýst því
yfir að næsta sýning verði að öllum
líkindum árið 2003. Að sögn Jó-
hönnu eru hinir árlegu Dönsku
dagar á næsta leyti og undirbúning-
ur Eflingar á þeirri skemmtun á
lokastigi. Stóra spurningin er nátt-
úrulega sú hvort hinir eiturhressu
Olsenbræður verði á hátíðinni.
„Það er ekki hægt að segja til um
það á þessari stundu hvort að þeir
mæta á svæðið því málin eru á mjög
viðkvæmu stigi,“ segir Jóhanna.
„Svo er önnur spurning hvort þeir
taka lagið, en það fer kannski bara
eftir stemmningunni,“ segir hún og
brosir leyndardómsfull. snih
Dalakonur með
bryggj umarkað
Framtakssamar konur í Dölun-
um tóku sig til um verslunar-
mannahelgiiia og settu upp
bryggjumarkað í gamla kaupfélags-
húsinu í Búðardal. Þar var finna
ýmsa nytjahluti, bæði notað og
nýtt. Þá sýndi listakonan Vilborg
Eggertsdóttir málverk, útsaumaðar
myndir og veggteppi. Jófríður
Benediktsdóttir sýndi jurtalitað
band og margt fleira var þarna til
að gleðja augað.
Að sögn Ingu Maríu Pálsdóttur
sem var potturinn og pannan í
skipulagningunni kom hugmyndin
upp í tengslum við Daladagana í
júlí. „Við vorum fyrst með húsið
opið 28. og 29. júlí, það gekk mjög
vel og fjöldi fólks kom við hjá okk-
ur. Við vorum svo með markaðinn
opinn aftur núna um verslunar-
mannahelgina og settum auk þess
upp sýningu á listmunum uppi á
lofti,“ segir Inga María.
Gamla kaupfélagshúsið í Búðar-
dal var byggt upp úr aldamótunum
1900 og var notað
sem verslunarhús
fram á sjöunda ára-
tuginn. Síðustu ár
hefur kjötpokaffam-
leiðslan Dalur hf.
haft sína starfsemi í
húsinu en nú hefur
Eiríksstaðanefnd fest
kaup á því og hyggst
setja þar upp safú í
minningu Leifs Ei-
ríkssonar.
MB/GE
Altaristaflan
áBorg
Altaristaflan á Borg á Mýrum hef-
ur verið tekin til geymslu og sýnis í
Safnahúsinu í Borgarnesi á meðan
kirkjan er í viðgerð. Altaristaflan er
merkilegur gripur en hún er frá 1898
máluð af hinum þekkta listamanni
William Gershom Collingwood
(1854-1932) sem ferðaðist um ísland
sumarið 1997.
Sr. Einar Friðgeirsson prestur á
Borg pantaði altaristöfluna þegar
Collingwood dvaldi á Borg. Altar-
istaflan er olíumálverk 1x1,25 m að
stærð í breiðum ramma. Taflan sýnir
ffásögn Nýja-testamentisins af því,
er mæðurnar komu til Jesú með
börn sín, til þess að hann legði hend-
ur sínar yfir þau og blessaði þau. En
lærisveinarnir vildu ekki leyfa þeim
að koma og vísuðu þeim frá með
hörðum orðum.
Æskulínu-
verðlaun
Síðastliðinn fimmtudag var
dregið í Æskulínuleik Búnað-
arbankans í Borgarnesi.
Siggi sæti í Latabæ mætti
sjálfur á staðinn og veitti hin-
um heppna vinningshafa verð-
launin og skemmti gestum
bankans í leiðinni. Verðlauna-
hafinn heitir Kári Gíslason bú-
settur í Borgarnesi og hlaut
hann í verðlaun tíuþúsund
króna innlegg á bankabók og
risavaxið gjafabréf fyrir
Latóseðlum.
Kári Gíslason tekur við g/afabréf-
inu úr bendi Sigga seeta sendifiill-
trtía Latabdejar.