Skessuhorn - 16.08.2001, Side 7
uHt33Utlu.._
V • ’T rr ■ t/TI
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
Nú er að renna upp það tímabil
ársins hjá mér sem allir í fjölskyld-
unni kvíða mikið fyrir. Sumarið er
næstum búið, daginn styttir, skól-
inn er framundan og skólatösku-
lyktin verður allsráðandi á heimil-
inu. Börnin eru óróleg bæði af
ótta og spenningi að byrja á ný í
skólanum. Nú tekur skólinn aftur
við börnunum og fyrrar mig þess-
ari íþyngjandi ábyrgð sem hefur
verið lögð á mig í allt sumar, þar
sem ég hef algjörlega þurft að sjá
um uppeldið á þeim sjálf. En þar
sem skólarnir byrja núna fyrr en
ella þá kemur haustið fyrr hjá mér
og hjá „húsmóður“ eins og mér
er uppskeruhátið ffamundan með
sultu, sláturgerð og öllu því til-
heyrandi.
Heimilisfólkið læðist með veggj-
um. Eiginmaðurinn hefur það í
flimtingum að það komi svo und-
arlegur glampi í augun á mér þeg-
ar hausta tekur. Mér þótti þetta í
fyrstu það rómantískasta sem hann
hefúr sagt um mig þar til ég áttaði
mig á því hvað hann meinti. Hann
segir að ég setji upp undarlegan
svip og hamist við að draga björg
í bú eins og sjálf móðuharðindin
væru rétt handan við hornið. Ekki
bæti úr skák allt þetta krepputal í
þjóðfélaginu sem sé gjörsamlega
að fara með taugarnar á mér.
Það er um miðjan ágústmánuð
hvers árs sem ég gerist afskaplega
spennt fyrir bíltúrum í helstu móa
í nágrenninu. I þessa bíltúra býð
ég heimilisfólkinu sem í fyrstu
tóku þessum boðum mínum feg-
inshendi en hefur nú með árunum
snúist upp í martröð þegar ég
neyði þau satt að segja með mér.
Mér finnst þeim auðvitað ekki vor-
kunn að koma með mér til að
kanna væntanlega berjasprettu, en
ég get ekki sagt að áhuginn sé að
drepa þau. Svo er það undir mán-
aðarlok sem leikurinn hefst fyrir
alvöru. Þá dríf ég alla fjöl-
skyldumeðlimi út í bíl snemma
morguns nauðuga viljuga, fylli
skottið af allskyns dollum og föt-
um og held til berja. Tólf ára
sonurinn og eiginmaðurinn stynja
og það meira og meira með hverju
árinu.
Spurningar brenna á vörum eig-
inmannsins hvort ég þurfi öll þessi
ber og hvað ég ætli að gera við
þau? Eg held ró minni og spyr
hvort hann langi ekki í bláber með
rjóma? Eg fæ vatn í munninn við
tilhugsunina og hann örugglega
líka. Eg bendi honum á að það
sé líka svo ægilega gott að eiga
bláberjahlaup og sultur í geymsl-
unni þetta sé hrein og klár búbót.
Hann spyr hvort ekki séu nokkrar
krukkur til ennþá af löguninni frá í
fyrra. Hann segir mér að hann
bara skilji einfaldlega ekki tilhvers
ég þurfi alla þessa sultu, sem ég
neiti svo sjálfri mér og honum um
að borða þar sem þetta sé ein-
göngu sykur og svo ógurlega fit-
andi. Hann skilur bara ekki í því
að ég tuði um megranir og hollt
mataræði meginhluta ársins, en
svo fyllist ég eldmóði og kappi við
að fylla hillurnar í geymslunni með
sulm og frystikistuna með slátri.
Svo fái heimilisfólkið ekki að
snerta við þessari búbót minni þar
sem ég segi að þetta sé hræðilega
óhollur matur og við drepumst
bara ef við étum þetta. Það mætti
ætla að þetta væri einhver keppni
hjá mér að safna árgöngum af
merktum sultukrukkum. Svo er
spurning hvort ég fái eitthvað út úr
því ár eftir ár að hafa börnin og
hann með mér í berjamó fúl og á-
hugalaus. Hann sjálfur myndi
sko aldrei taka mig og börnin með
í veiði nema við værum ákafinn og
ánægjan uppmáluð.
Hann stynur áffam og tuldrar
um hvort ég drepi ekki niður tæki-
færi íslensks iðnaðar með þessu
heimavafstri mínu, sem virðist á
hans mælikvarða vera að nálgast
fyrirtækjaframleiðslu og hvað sé
Starfbókara hjá embœtti sýslumannsins
í Borgarnesi er laust til umsóknar.
Laun fara eftir kjarasamningi opinberra
starfsmanna og aðlögunarsamningi
gerðum d grundvelli hans.
Umsóknum ber að skila til sýslumannsins
í Borgarnesi, Bjarnarbraut 2 í Borgarnesi,
fyrir 30. dgúst nk.
Sýslumaður veitir ndnari upplýsingar um
starfið.
Borgarnesi, 13. ágúst 2001.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi.
;;>!
|f| 11
Varmalandsskóli
Borgarfírðí
S. 430 1500
Okkur vantar starfsfólk
fyrir næsta vetur:
• Blönduð störf, þ.e. umsjón og eftirlit með
nemendum úti og inni og ræsting á húsnæði skólans.
Störf hefjast 20. ágúst 2001.
• Kennara til almennrar kennslu.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra í símum
430 1511 og 430 1527 eða við rekstrarskrifstofu
skólans í síma 430 1541.
Nefang: varmal@ismennt.is
eiginlega að þessari sultu sem
hægt er að fá í öllum helstu stór-
mörkuðum.
Ohh hvað hann getur verið full.
Jæja en ég læt nú ekki á mig fá
þreytu þeirra feðga á berjamó og
segi eiginmanninum að svo lengi
sem ég muni eftir mér hafi ég
alltaf farið í berjamó. A hverju
hausti hafi móðir mín, þessi ynd-
islegasta mannvera lífs míns, sett
skuplu á höfuðið og breyst í harð-
stjóra. Hún hafi dregið okkur
nauðug, viljug í berjamó, þar setti
hún okkur systkinin niður á sín-
hverja þúfuna og þaðan þorðum
við ekki að standa upp fyrr en þúf-
an var berjalaus eða myrkrið var
skollið á og mamma sest undir
stýri blikkandi ljósum og þeytandi
bílflautuna, þá var okkur óhætt.
Ekki skemmdumst við systkinin á
þessari meðferð að mínu mati og
því er ég staðráðin í að fjölskyldan
skal með mér til berja. En ég hef
gefið börnunum það loforð að
koma heim fyrir myrkur og gera
ekki eins og mamma að setja
skuplu á höfuðið, þeyta flautu og
blikka ljósum. Hvort sem eigin-
manninum líkar betur eða verr er
ég staðráðin í að halda áfram
þessu brjálæðislega berjaæði.
Akraneskaupstaður
Auglýsing frá
Brekkubæjar- og Grundaskóla
Nemendur komi í skólana mánudaginn 27. ágúst sem hér segir:
Grundaskóli
Nemendur fœddir 1986
(lO.bekkur) kl. 9:00
Nemendur fœddir 1987
(9.bekkur) kl. 10:00
Nemendur fæddir 7 988
(8.bekkur) kl. 10:00
Nemendur fœddir 7 989
(7.bekkur) kl. 10:30
Nemendur fœddir 1990
(ó.bekkur) kl. 10:30
Nemendur fæddir 7 99 7
(5.bekkur) kl. 11:00
Nemendur fæddir 7 992
(4.bekkur) kl. 11:00
Nemendur fæddir 7 993
(3.bekkur) kl. 13:00
Nemendur fæddir 1994
(2.bekkur) kl. 13:00
Nemendur fœddir 7 995
(l.bekkur)
verba boðaðir sérstaklega
Brekkubæjarskóli
Nemendur fæddir 7 986
(lO.bekkur) kl. 9:00
Nemendur fæadir 7 987
(9.bekkur) kl. 10:00
Nemendur fæddir 7 988
(8.bekkur) kl. 10:30
Nemendur fæddir 7 989
(7.bekkur) kl. 11:00
Nemendur fæddir 7 990
(ó.bekkur) kl. 11:30
Nemendur fæddir 1991
(5.bekkur) kl. 11:30
Nemendur fæddir 1992
(4.bekkur) kl. 13:00
Nemendur fœddir 1993
(3.bekkur) kl. 13:30
Nemendur fæddir 1994
(2.bekkur) kl. 14:00
Nemendur fæddir 1995
(l.bekkur)
veröa boðaöir sérstaklega
Foreldrar/forráðamenn grunnskólabarna athugið að tilkynna
þarfstrax um nemendur sem flytjast á milli skólahverfa
og cetla að skipta um skóla.
Skóladagvist
Deildarstjorar skóladagvistar verba meb símatíma föstudaginn 24. ágúst
frá kl. 10-12 sími 431 -1843 í Brekkuseli (Anna Lóa) og 431 -2793 í
Grundaseli (Brynja). Börn sem verba í skóladagvist eru velkomin í
heimsókn 27. áqúst, þá verbur opib hús hjá okkur frá kl. 11 - 16.
Foreldrar eru veíkomnir meb börnum sínum.
Skóladagvist hefst 28. ágúst um leib og kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá.
Skólastjórar