Skessuhorn - 16.08.2001, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR
Sundfélag Akraness
Vel heppnað Faxaflóasund
Sundkappar úr Sundfélagi Akra-
ness syntu yfir Faxaflóann fyrir
skemmstu til þess aö afla fjár, en
þetta er í áttunda skiptið sem þaö
er gert. Lagt var af stað úr Fteykja-
víkurhöfn klukkan þrjú aö degi til í
sól og blankalogni og tók sundið
fimm klukkustundir og fjörutíu mín-
útur aö þessu sinni. Átta krakkar
frá fjórtán ára aldri skiptust á aö
synda. Sá sem synti lengst var
sundgarpurinn mikli, Guðgeir Guö-
mundsson, en hann synti í 65 mín-
útur.
Eyleifur Jóhannesson, þjálfari
krakkanna, var mjög ánægöur aö
sundinu loknu og sagöi þaö hafa
gengið mjög vel. „Viö viljum fyrst
og fremst þakka bæjarbúum og
fyrirtækjum á Akranesi fyrir stuön-
inginn en í ár söfnuöust nærri 800
þúsund krónur sem er meö því
besta frá upphafi og t.d. mun
meira en á síðasta ári. Peningarn-
ir fara inn á ferðareikning sund-
manna og veröa notaðir til þess aö
greiða niður kostnað viö aö fara t
æfingabúðir erlendis. Elstu krakk-
arnir, um tuttugu manna hópur,
fara í æfingaferð í kringum pásk-
ana á næsta ári en ekki er enn á-
kveðiö hvert verðurfarið.“ SÓK
Dagana 10. - 12. ágúst dvaldi
vaskur hópur 3. flokks kvenna á
Siglufirði á hinu árlega Pæjumóti
Þormóös Ramma-Sæbergs.
Mótiö var ákaflega vel skipulagt
og aðbúnaður allur hinn besti og
heimamönnum til mikils sóma.
Veðrið var frábært á föstudegi en
um helgina rigndi dálítiö í annars
mildu veöri og logni. Fararstjóri
var Jófríöur Sigfúsdóttir og ekill
„Sæmundarrútu" Steinar Ragn-
arsson. Þjálfari liösins er Sverrir
Heiðar.
Eftirtaldar kepptu f.h. Skalla-
gríms.
Anna María Torfadóttir
Guðrún Ósk Ámundadóttir
Guðrún Selma Steinarsdóttir
Gunnfríður Ólafsdóttir
Jóhanna Lóa Sigurbergsdóttir
Karítas H. Lárusdóttir
Margrét Brynjarsdóttir
Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
Þórdís Steinarsdóttir
Léku stúlkurnar sex leiki, unnu
fjóra þeirra en töpuöu tveimur og
endaði liðið í fjóröa sæti af 10 lið-
um. Var hópurinn félaginu til mikils
sóma jafnt utan vallar sem innan.
Úrslitin voru eftirfarandi
Riðlakeppni
Skallagrímur - ÞórAk. 0-2
Skallagrímur - BÍ 0-2
Skallagrímur - Dalvík 1-0
(Sigga Dóra)
Skallagrímur - FH 1-0
(Sigga Dóra)
Úrslitakeppni
Skallagrímur - HKA/íkingur 2-1
(Guðrún Selma 2)
Skallagrímur - FH 1-0 (Guðrún
Selma)
Seinasti leikur íslandsmótsins hjá
stúlkunum er gegn UMF. Bessa-
staðahrepps, á Skallagrímsvelli
mánudaginn 20. ágúst n.k. kl.
18:00 og væri gaman aö fá stuön-
ing frá knattspyrnuunnendum hér-
aðsins úr stúkunni, þær eiga þaö
svo sannarlega skilið. (SHe)
Leikmenn ÍA í fimmta flokki karia í knattspyrnu
Strákarnir komnir í úrslit
Strákarnir í fimmta flokki IA hafa
svo sannarlega staöiö sig vel í bolt-
anum í sumar og nú er svo komið
að þeir eru komnir í úrslit. Það
veröur að teljast mjög góöur árang-
ur þar sem meirihluti leikmanna í
fimmta flokki er 11 ára en þeir
mega vera á bilinu 11-12 ára. Um
helgina halda þeir til Egilsstaöa þar
sem þeir mæta Þór, Akureyri og
Sindra. Ef báöir leikirnir vinnast
munu þeir svo leika til úrslita í
Reykjavík síöar í mánuðinum.
Hugi Haröarson er þjálfari strák-
anna. Hann lét þau orö falla fyrr í
sumar aö ef lærisveinar hans
kæmust í úrslit myndi hann láta
háriö fjúka og skarta klippingu
þeirri sem David Beckham varö
hvaö frægastur fyrir á árinu. Strák-
arnir tóku hann á orðinu á dögun-
um, héldu honum niöri og gerðu
sér lítið fyrir og klipptu hann sjálfir.
Hugi skartar því glæsilegum hana-
kambi þessa dagana, en í samtali
við Skessuhorn sagöist hann hafa
vonast til þess aö strákarnir hefðu
gleymt þessari yfirlýsingu hans.
ísleifur Örn Guömundsson er einn
af þeim ungu og efnilegu leik-
mönnum sem skipa fimmta flokk
ÍA. Hann segir engan vafa á því aö
þeir nái aö sigra í leikjum sínum á
Egilsstööum um helgina. „Auövit-
aö vinnum viö. Viö þurfum helst aö
vinna báöa leikina. Þá þurfum viö
aö spila úrslitaleik í riðlinum til aö
komast í sjálfan úrslitaleikinn í
Reykjavík.'1 ísleifur segir aö þeim
félögum hafi gengið vel í sumar og
þótt hann hafi sjálfur ekki náö aö
skora í sumar er hann bjartsýnn á
framhaldið. „Ég er ekki búinn aö
skora neitt ennþá, en ég skora
svona fimm mörk í úrslitakeppn-
inni.“ SÓK
Frábær árangur frjálsíþróttafólks
Um 30 keppendur fóru frá Ung-
mennasambandi Borgarfjaröar á
meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum, 12 - 14 ára sem haldið
var á Laugardalsvelli og 15-22
ára sem haldið var á Kópavogs-
velli síðastliðna helgi. Aö sögn
írisar Grönfeldt, héraösþjálfara
UMSB var árangurinn góöur og
sagði hún að óvenju mörg gull-
verölaun hafi skilað sér í Borgar-
fjörðinn aö þessu sinni.
Bestum árangri t flokki 15-22
ára náöu frjálsíþróttagarpar af
Akranesi, þeir Sigurkarl Gústavs-
son og Gauti Jóhannesson. Þeir
hafa bætt sig mjög í sumar og er
Gauti orðinn einn efnilegasti
langhlaupri landsins og Sigurkarl
er á góðu skriöi í styttri vega-
lengdunum. Hér fer á eftir besti
árangur keppenda UMSB á mót-
inu.
Gauti Jóhannesson
3000 m hlaup 1. sæti 9:00.39
1500mhlaup l.sæti 4:12.67
Sigurkarl Gústavsson
400 m hlaup t.sæti 52,09
200 m hlaup 1. sæti 23.27
WOmhlaup 1. sæti 11,34
Kristín Þórhallsdóttir
100 m hlaup 1. sæti 13,01
langstökk 2. sæti 5,00
Hallbera Eiríksdóttir
kringlukast 1. sæti 35.36
spjótkast 3. sæti 30,45
Snorri Þ. Davíðsson
800 m hlaup 3. sæti 2:25.41
Besti árangur í flokki 12 -14 ára
varö eftirfarandi.
Jónas Guðmundsson, 13 ára
spjótkast 1. sæti 32.60
Kristján Guðmundsson, 14 ára
spjótkast 2. sæti 38.60
Sigríður Hrefna Jónsdóttir, 12 ára
kúluvarp 2. sæti 9.50
Halifaxar byrja vel í langneðstu deild
Linkollar lagðir að velli
á drengilegan hátt
Vörpulegir og vaskir sveinar
Halifaxhrepps hófu Englands-
mótiö í sparkvifimi meö lúðra-
blæstri og söng þegar þeir lögöu
lítilmagnana frá Linkolla borg
(Lincoln City) á afar drengilegan
hátt í fyrstu umferðinni í
langneðstu deild á laugardaginn
var.
Ungsveinarnir tveir sem Páll
Brisveili knattspyrnuforstjóri
nældi sér í á flóamarkaði í sum-
ar, Þeir Krákur frá Miðfelli (Craig
Midgley) og Páll Hersveinsson
(Paul Harsley) skoruðu tvö afar
drengileg mörk sem dugðu
Haliföxum til sigurs.
Linkollar byrjuöu með bægsla-
gangi og látum og létu dólgslega.
Allt leit út fyrir að þeir myndu
valta yfir hetjur Halifaxhrepþs
meö andlegu ofbeldi og yfir-
gangi. Halifaxar létu hinsvegar
ekki buga sig enda dvaldi liðið
drjúgan hluta sumarsins á Helln-
um á Snæfellsnesi í innhverfri í-
hugun og úthverfri athugun á-
samt því aö sækja á annan tug
sjálfstyrkingarnámskeiöa.
Frygð og fögnuður
Á þrítugustu og sjöundu mín-
útu fyrri leikhluta dró til tíöinda.
Höföu þá Linkollar sótt ógurlega
að marki Halifax. Barst þá boltinn
eitt sinn á vallarhelming Linkolla
þar sem markvörður þeirra, Aöal-
steinn Maríuson (Allan Marriott)
tók viö honum og hugöist spyrna
honum til baka. Ætlaöi hann sér
of langan tíma í verkið því nýliö-
Páll var kátur sem slátur
inn knái Krákur frá Miðfellli kom
aðvífandi og tók boltann af tá Aö-
alsteins og spyrnti honum á afar
ósérhlífinn hátt í mark Linkolla.
Tárin voru ekki þornuð á
hvörmum heimamanna þegar
Halifaxar skoruðu sitt annað
mark. Tók þá Stefán Svöluson (-
Steven Swales) afar drengilega
aukaspyrnu og sendi knöttinn
hárnákvæmt á Pál Hersveinsson
nýliðann frá Grímsstööum
(Grímsby). Átti Páll ekki í miklum
vandkvæöum meö aö afgreiöa
knöttinn með yndislegu afturfótar-
skoti í hægra markhornið vinstra
megin nær. Ætluðu þá allar ung-
meyjar Kaldadals (Chalderdale)
af göflum aö ganga af frygö og
fögnuði.
Örskömmu síðar náöu Linkollar
aö klóra í bakkafullann lækinn
meö afar lítilmótlegu marki Leós
Þorbjörnssonar (Lee Thorp) sem
laumaði boltanum ósmekklega
fram hjá hinum grandvara og geð-
prúöa markveröi Halifaxa, Lárusi
Bryta (Lee Butler).
Ekki dró frekar til tíöinda í þess-
um leik. Frækilegur sigur kappa
vorra í fyrsta leik og má mikiö
vera ef þeir fara aðeins upp um
eina deild aö leiktíö liðinni.
Páll kátur
Liö Halifaxa var þannig skipaö.
Town: Lárus Bryti (Lee Butler),
Páll Hersveinsson (Paul
Harsley), Andri Skógarvöröur
(Andy Woodward) Grámann
Mikjálsson (Gray Mitchell), Krist-
ján Klöruson (Cris Clarke), Mark-
ús Júlíusson (Mark Jules), Njáll
frá Rauðsmýri (Neil Redfearn),
Páll Berg (Paul Stoneman),
Stefán Svöluson (Steve Swales),
Krákur frá Miðfelli (Craig
Midgley) Stefán Vagnsson
(Steve Kerrigan) og Jón Viöar
(Jamie Wood).
Hinn þungbrýndi þjálfari Hali-
faxa, Páll Brisveill var kátur aö
leik loknum en það gerðist síöast
fyrir átta árum. Lék hann viö
hvurn sinn fingur og kvaö af
munni fram hringhendar drápur.
Brá hann einnig fyrir sig óhefö-
bundnum bragarhætti sem
kenndur er viö hann sjálfan,
Pálsháttur hinn meiri.:
Nú hlæja skal dátt
Við lékum þá grátt
Aftan og framan og allt um kring
Eins og gamlan KR-ing
GE